Dagur


Dagur - 15.09.1988, Qupperneq 16

Dagur - 15.09.1988, Qupperneq 16
H1 Akureyri, fímmtudagur 15. september 1988 TEKJUBREF• KJARABRÉF Q2> FJARMAL ÞIN - SÉRGREIN OKKAR rF|ÁRFESriNCARFÉLACID Ráðhústorgi 3, Akureyri Bygging viðlegubryggju á Hvammstaiiga langt knmin - kostnaður undir áætlun Nú eru yfírstandandi fram- kvæmdir viö höfnina á Hvammstanga. Bygging 40 m viðlegubryggju er langt komin en eftir er að endurbæta grjót- vörn sem skemmdist í miklu brimi sem var í október á sl. ári. kosta og ekki hefur verið gerð nein kostnaðaráætlun í því sambandi. Enn hefur ekki verið ákveðið hvert grjótið verður sótt en flutningur á því hlýtur að verða stór hluti af heildarkostn- aði við það verk. fh Góðir vinir í léttum leik. Mynd: TLV Áætlaður kostnaður við gerð trébryggjunnar var 15,3 milljónir króna en Þórður Skúlason, sveit- arstjóri á Hvammstanga sagði í samtali við Dag að sú fram- kvæmd mundi kosta mun minni fjárhæð en áætlað var. Hann sagði að þetta hefði allt verið unnið af heimamönnum, undir stjórn Stefáns Þórhallssonar hafnarvarðar. Vinna við bygging- una hefði öll gengið sérstaklega vel og einnig hefði fengist timb- ur á hagstæðu verði. Pórður sagði að ekki væri nein spurning um að það væri mun hagkvæmara að vinna svona verk eingöngu með heimamönnum. Varðandi endurbætur á grjót- vörninni er óljóst hvað hún muni Búsetaæði grípur um sig á húsnæðismarkaðimim áhugi á samstarfi Búseta og bæjarfélaga Á nokkrum vikum hafa um 500 manns gengið í húsnæðis- samvinnufélagið Búseta og sagði Reynir Ingibjörnsson framkvæmdastjóri að hægt væri að tala um „Búsetaæði“ í þessu sambandi. Hann sagði að þessa sprengingu mætti rekja til þess að fólk væri nú farið að sjá árangur af starfí félagsins og átti þar við fjölbýl- ishús Búseta í Grafarvogi í Reykjavík, en þar verður flutt inn í 46 íbúðir í haust. En er Búseti bara fyrir Reyk- víkinga? Reynir svaraði því neit- andi og sagði að send hefðu verið bréf til bæjar- og sveitarstjórna víðs vegar um landið þar sem lýst er yfir áhuga á samstarfi, í tengsl- Sauðárkrókur: Köldu vatni hleypt á úr Sandskarðsveitu um við ný lög um kaupleiguíbúð- ir. Þegar hefur borist svar frá nokkrum bæjarfélögum og sagði Reynir að nú væri verið að kanna hvernig samstarfi Búseta, bæjar- félaga og jafnvel fyrirtækja og félagasamtaka yrði best háttað. Hann sagði að Búseti hefði stofnað félag á Akureyri árið 1984 og þá hefðu um 200 manns gengið í það, en vegna þrenginga í húsnæðismálum þjóðarinnar hefði starfsemin að mestu legið niðri. Félagið sótti um 12 íbúðir á sínum tíma og sú umsókn hefur verið endurnýjuð undir nýju lögunum um kaupleiguíbúðir. Reynir sagði að nú væri kominn tími til að Búseti á Akureyri færi að ræða við bæjaryfirvöld í fullri alvöru um samstarf. byggingarkostnaði. Sá sem kaup- ir búseturétt hefur fullan umráðarétt yfir íbúðinni og greiðir síðan mánaðargjald; fjár- magnskostnað, húsgjald og viðhald, og þetta gjald verður 11- 16 þúsund á mánuði í nýja hús- inu, sem er ævintýri líkast fyrir leigjendur,“ sagði Reynir. SS Vopnafjörður: Aflabrögð þokkaleg - Brettingur landaði 155 tonnum Aflabrögð hafa verið þokkaleg á Vopnafirði að undanförnu en ótíð hjá trillum. Lýtingur hefur verið á úthafsrækju en aflinn lélegur, en skipið frystir rækj- una um borð. Togarinn Brett- ingur landaði nýlega 110 tonn- um af ísflski og 45 tonnum af heilfrystum físki. Pétur Olgeirsson er fram- kvæmdastjóri Tanga hf. á Vopnafirði, sem gerir út togar- ann Bretting. Tangi gerir einnig út togskipið Eyvind Vopna og sagði Pétur að aflinn hefði verið hálftregur hjá honum, lítið hefði veiðst af þorski og skipið hefði því snúið sér að öðrum tegund- um. Hann sagði að iítið væri eftir af aflakvóta, t.d. ætti Brettingur aðeins eftir um 500 tonn af þorski, enda hefðu önnur skip gengið á kvóta Brettings fyrri hluta ársins meðan unnið var að endursmíði skipsins í Póllandi. Pétur sagði að það færi eftir afla- brögðum hvort hugað yrði að kvótakaupum í vetur, en hann reiknaði fastlega með því að Tangi neyddist til að útvega meiri kvóta fyrir skipin. SS Áfengi keypt fyrir um 900 milljónir - fyrstu 3 mánuði ársins Lagningu vatns úr Sandskarðs- veitu fyrir Sauðárkróksbúa lauk fyrir skömmu og var 10 sekúndulítrum af köldu og góðu vatni hleypt á kalda- vatnskerfí bæjarins. Kemur það til með að þjóna íbúum Hlíðarhverfís, en ef vatnstank- ur fyllist fer umframvatn inn á allt kerfí bæjarins. Um 40 sek- úndulítrar eru inni á öllu vatns- kerfínu og sagði Páll Pálsson veitustjóri að það hefði oft ver- ið meira. „Ég ætla ekki að lofa því að það verði ekki vatns- laust nú í sláturtíðinni þó að um þessa viðbót hafí verið að ræða úr Sandskarðinu.“ Lagning vatnsins úr Sand- skarði gekk mjög vel þrátt fyrir leiðindaveður oft á tíðum, rign- ingu og sudda og oft mjög mikla þoku. Var þokan oft svo slæm að gröfustjóri sá ekki í endann á skóflunni þegar hann var að grafa. Vatnslögnin úr Sandskarði er alls 3,3 kílómetrar að lengd. Páll sagði að hægt væri að virkja meira vatn úr Sandskarð- inu en þar væri ekki endalaust hægt að taka vatn í framtíðinni. Nýja vatnið sem íbúar Hlíðar- hverfis fá núna er mjög kalt, 1,4 gráður, eða eins og Páll sagði: „Það passar vel í viskíð án þess að hafa klaka.“ -bjb Á Húsavík var stofnuð undir- búningsnefnd um Búsetafélag á sínum tíma og einnig á Sauðár- króki. Þá var mikill áhugi á Siglu- firði og Blönduósi, að sögn Reynis, og nú hefur áhugi manna fengið byr undir báða vængi þeg- ar fimm ára barátta Búseta er að skila árangri. En hvað er búsetu- kerfi? „Félagið er öllum opið, félags- menn kaupa sér búseturétt, sem er vísitölutryggður eignarhlutur, en félagið sjálft tekur opinber lán og er hinn formlegi eigandi hús- næðisins. Búsetturétturinn er ótímabundinn og í þessu fyrsta húsnæði okkar er hann 15% af Fyrstu þrjá mánuði ársins keyptu Islendingar áfengi fyrir tæplega 900 milljónir króna. Mest var verslað í Reykjavík, en þar á eftir á Akureyri. Út- sölurnar í Keflavík og á Sel- fossi koma þar á eftir, en minnst var verslað á Siglufírði. Akureyringar keyptu áfengi fyrir rúmlega 72 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði þessa árs, en höfðu keypt fyrir tæpa 51 milljón á sama tíma fyrir ári. Aukningin er 43,6%. Á Sauðárkróki var selt áfengi fyrir tæplega 16 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins, en fyrir sama tíma í fyrra hafði verið selt áfengi úr útibúinu fyrir um 11 milljónir króna, og er um 43,7% aukningu að ræða. Austfirðingar keyptu áfengi í útibúinu á Seyðisfirði fyrir tæp- lega 20 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins, en höfðu verslað fyrir tæplega 15 milljónir á sama tíma fyrra ár. Aukningin er 35,5%. Á Siglufirði var selt áfengi fyrstu þrjá mánuðina á árinu fyrir um 6,5 milljónir króna, en árið á undan fyrir 4,7 milljónir og er aukningin 36%. Rúmlega 70% alls þess áfengis sem keypt er, kaupa menn í Reykjavík og á Akureyri sem skipar annað sætið á lista þessum, er með rúmlega 8% hlutfall af heildarsölunni. mþþ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.