Dagur - 23.11.1988, Side 1
1
Nýblómabúð
hefiir verið opnuð
að Glerárgötu 28, sími 22551.
Opið til kl. 21.00 allíi daga.
71. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 23. nóvember 1988
223. tölublað
Hvölum §ölgar ár frá ári:
Hnúfubakurinn
versti ovinur
loðnusjómanna
- sjaldan eða aldrei verið jafn mikið
um hvali á loðnumiðunum
Það er samdómaálit loðnu-
sjómanna að sjaldan eða aldrei
hafl verið jafn mikið um hvali
á Ioðnumiðunum. Mest ber á
hnúfubak en margbreytileg
smáhveli sjást einnig á miðun-
um. Bjarni Bjarnason, skip-
stjóri á Súlunni EA-300, segir
að hval á loðnunmiðunum
fjölgi ár frá ári og oft á tíðum
valdi hann erfiðleikunum við
veiðarnar.
Það sem af er þessari vertíð
hefur einn hnúfubakur komið í
nót Súlunnar en með mikilli
lagni skipverja tókst að losa
hann úr prísundinni án þess að
nótin rifnaði. „Við slepptum
framendanum á nótinni frá okkur
og slökktum síðan öll ljós á skip-
inu nema kastaraljósið. Með því
gátum við beint hnúfubaknum
frá skipinu," segir Bjarni.
Skipverjar á loðnubát frá Vest-
mannaeyjum voru þó ekki alveg
eins heppnir á dögunum, því tveir
hnúfubakar flæktust í nót skips-
ins og rifu hana illa.
Bjarni Bjarnason segir að mest
beri á hnúfubaknum á miðunum
norður af Vestfjörðum en einnig
hafi hans orðið vart austan Kol-
beinseyjar. „Ég hygg að þar hafi
hann ekki oft látið sjá sig,“ segir
Bjarni. Þá segir hann að á
grunnslóð hafi menn að undan-
förnu séð óvenjumikið af smá-
hveli. „í sumar og sérstaklega í
haust hafa þessar skepnur verið
mjög áberandi. Einkum er um að
ræða höfrunga og hnísur.“ óþh
„Við burstum alltaf í okkur tennurnar,“ er yfirlýsing sem þessi börn geta vonandi gefið. í opnunni í dag er fjaliað
um tannvernd barna og góðan árangur sem náðst hefur á því sviði á Akureyri. Mynd: gb
Miklir flárhagserfiðleikar hjá Hofsóshreppi:
Lögð ínn beiðni um aðstoð
hjá félagsmálaráðuneytinu
Hofsóshreppur hefur, vegna
mikilla fjárhagserfiðleika, lagt
inn beiðni um aðstoð hjá fé-
lagsmálaráðuneytinu um að
ríkið komi hreppnum til
hjálpar. Skuldir Hofsóshrepps
nema nú samtals um 50-60
milljónum króna og áætlaðar
tekjur þessa árs eru taldar um
15 milljónir. Mun sú upphæð
varla duga fyrir vaxtakostnaði
og afborgunum, þannig að
hreppurinn hefur ekkert ráð-
stöfunarfé undir höndum. Fé-
lagsmálaráðuneytið mun taka
beiðnina til athugunar og ekki
Sauðárkróksbær:
Fengið 73 millj. í staðgreiðslufé
- það sem af er árinu - staða bæjarsjóðs ekki slæm
I uppgjöri ríkisbókhalds fyrir
fyrstu 6 mánuði ársins kemur
Sauðárkróksbær nokkuð vel út
hvað varðar staðgreiðslufé til
bæjarins. Eftir það uppgjör
átti Sauðárkróksbær inni 10,8
milljónir króna hjá ríkinu og
hefur fengið þá upphæð
greidda. Fram á daginn í dag
hefur Sauðárkróksbær fengið
samtals um 73 milljónir króna í
staðgreiðslufé.
Að sögn Elsu Jónsdóttur
bæjarritara er staða bæjarsjóðs í
dag ekki svo slæm og sagði hún
að miðað við mörg önnur sveitar-
félag af svipaðri stærð, stæði
Sauðárkróksbær nokkuð vel að
vígi. „Það má segja að staða
bæjarsjóðs sé svipuð og á sama
tíma í fyrra. Bærinn hefur ekki
staðið í svo miklum framkvæmd-
um á þessu ári, einn af stóru
útgjaldaliðunum var aukið hluta-
fé í Steinullarverksmiðjunni.
Eigum við ekki að segja að þetta
malli áfram,“ sagði Élsa að lok-
um. -bjb
er vitað hvenær afgreiðsla
málsins Iiggur fyrir af þeirra
hálfu.
I samtali við Dag sagði Einar
Jóhannsson, sem sæti á í
hreppsnefnd, að eina af ástæðum
þessa fjárhagsvanda mætti rekja
til ársins 1983 þegar malbikunar-
framkvæmdir hófust á Hofsósi og
síðan aftur 1986. „Það má segja
að það hafi verið of stór biti fyrir
okkur, en ég held að fáir vildu
vera án malbiksins í dag. Á þess-
um tíma fengum við ekki það lán
frá Byggðasjóði sem við höfðum
ætlað, þannig að vandinn hlóðst
upp. Ég vil taka það fram að ég
tel að hér sé ekki um sóun fjár-
muna hreppsins að ræða, eða
óráðsíu. Þarna komu einfaldlega
til utanaðkomandi áhrif og ég
held að það sé víðar slæm staða
hjá sveitarfélögum í dag,“ sagði
Einar.
Hofsóshreppur er stór hluthafi
í hraðfrystihúsi staðarins og
skuldar frystihúsið hreppnum
mikla fjármuni, sem það að sjálf-
sögðu getur ekki greitt vegna
slæmrar stöðu. „Það yrði lífs-
björg fyrir okkur ef við bættist
nýr togari í flotann, því hráefnis-
skortur í frystihúsinu hefur verið
mikill. Það blasir við mikið
atvinnuleysi hjá okkur. ef ekkert
verður að gert. Það yrði ekki til
að bæta á þann fólksflótta sem
hefur verið frá Hofsósi undanfar-
in ár í átt að höfuðborgarsva:ð-
inu,“ sagði Einar ennfremur.
Einar sagði að nú hafi allar
framkvæmdir verið stöðvaðar hjá
hreppnum vegna fjárhagsörðug-
leikanna. Væri það slæmt, m.a.
vegna þess að til hafi staðið að
endurnýja stofnlagnir hjá vatns-
veitunni þar sem þær væru orðn-
ar nær ónýtar. „Það verður slæmt
ástand ef lagnirnar tækju upp á
því að springa í vetur, ef kæmi
mikið frost,“ sagði Einar að
lokum. - -bjb
Vigfús B. Jónsson, bóndi á Laxamýri, er lítt hrifinn af NATO-flugvelli í Aðaldal:
Viðbjóðslegt að fá slíkt yfír sig
Vigfús B. Jónsson, bóndi á
Laxamýri 2 í Aðaldal, segist
vera andvígur byggingu vara-
flugvallar í Aðaldal sem þjóni
Atlantshafsbandalaginu og
almennu farþegaflugi yfir
Norður-Atlantshaf.
Vigfús segir að hann hafi lengi
verið andvígur slíku mannvirki í
Aðaldal, en hinsvegar hafi hann
ekki sett sig upp á móti byggingu
varaflugvallar sem eingöngu
þjónaði íslensku millilandaflugi.
Vigfús segist ekki geta svarað fyr-
ir aðra ábúendur í Aðaldæla-
hreppi en hann telji þó að and-
staða við byggingu hernaðarflug-
vallar þar sé nokkuð almenn.
„Ég tel að væri viðbjóðslegt að fá
slíkt yfir sig,“ segir Vigfús. „Hér
er viðkvæm náttúra, t.d. mikið
fuglalíf, sem menn eru að reyna
að vernda þannig að herflugvelli
myndum við ekki fagna hér.“
Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, hefur látið
hafa eftir sér að bygging varaflug-
vallar í Aðaldal með þátttöku
NATO sé lífsnauðsynleg fram-
kvæmd fyrir íslendinga. Sam-
gönguráðherra, Steingrímur J.
Sigfússon, hefur hinsvegar lýst
sig algjörlega andvígan þessum
hugmyndum og forsætisráðherra
segir að samkvæmt ákvæðum
stjórnarsáttmála núverandi ríkis-
stjórnar verði á hennar starfstíma
ekki ráðist í nýjar meiriháttar
framkvæmdir á vegum Varnar-
liðsins.
Ekki náðist í utanríkisráðherra
í gær en að sögn aðstoðarmanns
hans, Stefáns Friðfinnssonar,
liggja ekki fyrir neinar ákvarðan-
ir um þetta mál í ráðuneytinu en
hins vegar sé vitað um vilja
NATO til þess að láta fara fram
athugun á þessu máli. „Það sem
hefur gerst í varaflugvallarmálinu
síðan við komum í þetta ráðu-
neyti er nákvæmlega ekkert því
að mér skilst að einhver sé á móti
þessu,“ segir Stefán.
Samkvæmt skýrslu starfshóps
um varamillilandaflugvöll, sem
leit dagsins ljós í apríl sl., mun
um 1000 m langt og 300 m breitt
svæði vaxið birkiskógi fara undir
flugbraut í Aðaldal, ef varaflug-
völlur verður byggður þar. Mið-
að við þetta myndi norðurendi
flugbrautarinnar, sem þyrfti að
vera 3 km á lengd, nálgast Laxá
og Æðarfossa, sem telja verður
einn besta veiðistað árinnar.
Stærstur hluti þessa lands er inn-
an jarðarmarka T.axamýrar.
Innan fárra vikna eða mánaða
verður tekin ákvörðun í höfuð-
stöðvum NATO um staðsetningu
flugvallar, sem bandalagið hefði
afnot af á ófriðartímum. Auk
Aðaldals hefur verið rætt um að
byggja hann í Meistaravík á
Grænlandi eða í Skotlandi. Stef-
án Friðfinnsson segir að skotið
hafi verið á að kostnaður vegna
varaflugvallar í Aðaldal lægi á
bilinu 10-15 ntilljarðar króna.
Hann segir að gert hafi verið ráð
fyrir að NATO greiddi þann
kostnað að fullu. óþh