Dagur - 23.11.1988, Side 4
4 - DAGUR - 2§ý nóvember 1988
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTdÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON,
FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARAR: GUÐMUNDUR HRAFN BRYNJARSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRfMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASfMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
í fótspor Þorsteins
Á tyllidögum lætur Morgunblaðið sem það sé
laust úr viðjum Sjálfstæðisflokksins og talar í
landsföðurlegum tóni til stjórnmálamanna úr öll-
um flokkum. Þegar hins vegar harðnar á dalnum
og mikið liggur við, kastar Morgunblaðið grím-
unni og sýnir sína réttu ásjónu. Þessa má glögg-
lega sjá merki í blaðinu síðustu vikur og daga.
Ástæðan er líklega sú að ritstjórum Morgun-
blaðsins er hætt að lítast á hvernig málum er
komið á stjórnmálasviðinu. Þeir vita sem er að
máttur Morgunblaðsins er talsverður og rennur
blóðið til skyldunnar að hjálpa Sjálfstæðisflokkn-
um úr pólitískri einangrun, ef þess er nokkur
kostur.
Undanfarna daga hefur Morgunblaðið fetað
dyggilega í fótspor formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, Þorsteins Pálssonar, sem útnefndi
Framsóknarflokkinn höfuðóvin sjálfstæðis-
manna, á flokksráðsfundi fyrir skömmu. Síðan
hefur Framsóknarflokkurinn og þá sérstaklega
formaður hans, Steingrímur Hermannsson, sætt
hörðum árásum í hverjum Morgunblaðsleiðaran-
um á fætur öðrum. í sjálfu sér þurfa slíkar árásir
ekki að koma á óvart. Framsóknarflokkurinn er
samhentur flokkur með afar styrka forystu.
Andstæðingar hans hafa því oft beitt þeirri
aðferð á liðnum árum og áratugum að ráðast
persónulega gegn leiðtogum flokksins, í þeirri
von að koma höggi á flokkinn í heild. Sagan hef-
ur að geyma mörg dæmi um slíkar árásir, sem í
senn hafa verið ómaklegar og ósmekklegar.
Margt bendir til þess að enn einu sinni ætli sag-
an að endurtaka sig að þessu leyti.
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra,
gerði fyrrnefnda útnefningu Sjálfstæðisflokksins
sérstaklega að umtalsefni í yfirlitsræðu sinni á
flokksþingi framsóknarmanna um síðustu helgi.
Þá sagði hann m.a.:
„Sjálfstæðismenn hafa nýlega haldið fund.
Megin niðurstaða þess fundar var að útnefna
okkur framsóknarmenn sem sinn höfuðóvin.
Okkur er að sjálfsögðu sómi sýndur með því að
vera höfuðóvinur íhaldsins í landinu. Við skulum
sýna íhaldinu að við erum verðugir þessa sóma
og ekki heldur valda frjálslyndum og umbóta-
sinnuðum mönnum vonbrigðum í þeim efnum.
Við framsóknarmenn veljum okkur hins vegar
ekki óvini. Við veljum okkur samstarfsmenn. Við
veljum þá til samstarfs, sem þora að horfast í
augu við erfiðleikana, en hlaupa ekki frá verkinu
þegar í harðbakkann slær. “
í þessum orðum formanns Framsóknarflokks-
ins er að finna þá staðreynd, sem Morgunblaðs-
ritsjórum eins og öðrum sjálfstæðismönnum,
hlýtur að svíða sárt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
villst af leið og er ekki lengur leiðandi afl í
íslenskum stjórnmálum. Félagshyggjuvakningin
í landinu er ánægjuleg afleiðing þess. BB.
viðtol dagsins
Sigurpáll ísfjörð, Þráinn Ingólfsson, Karl Háifdánarson og Bragi Ingólfsson. Myndir: im
Haukar frá Húsavík, ný hljómsveit með gömlu nafni:
„Nýtt og gamalt,
rólegt o g jjörugt“
„Þetta er gamalt nafn á nýrri
hljómsveit. Hljómsveitir með
nafninu Haukar eru búnar að
starfa á Húsavík í ýmsu formi
af og til, síðustu 25 árin eða
þar um bil.“ Dagur er kominn i
heimsókn á æfingu hjá Hauk-
um en þessa nýju hljómsveit
skipa þeir: Karl Hálfdánarson,
bassagítarleikari og hvíslari,
Bragi Ingólfsson, trommuleik-
ari og söngvari, Þráinn Ingólfs-
son, ekki bróðir Braga og gít-
arleikari og Sigurpáll ísfjörð,
hljómborðsleikari og söngvari.
Karl og Bragi hafa áður leikið
saman í Haukum. „Þá hét hljóm-
sveitin Húsavíkur-Haukar,“ segir
Bragi. „Það var út af deilum sem
urðu um nafnið. Hljómsveit fyrir
sunnan taldi sig eiga þetta nafn,
Hauka, en svo reyndist það ekki
vera rétt.“
- Nú er svolítið óvenjuleg
blanda í þessari hljómsveit, tveir
gamlir jaxlar, Karl og Bragi sem
eru nær fertugu en tvítugu og
tveir ungir jaxiar sem eru nær
tvítugs- en fertugsaldrinum.
Hvernig gengur ykkur að vinna
saman?
„Samstarfið gengur bara vel,“
segir Kalli og hinir þrír samsinna
því. „Það er gott að vinna með
mönnum með reynslu," segir
Þráinn. „Fyrst spiluðum við í
unglingahljómsveitum. “
- Hvernig músik spilið þið?
„Við reynum að spila músík
sem gengur á böllum, bæði nýtt
og gamalt í bland, rólegt og
fjörugt,“ svarar Bragi. „Svo er
annað mál að uppáhaldsmúsík
hvers og eins er kannski ekki
alltaf sú sama.“
„Við byrjuðum að æfa saman í
september og ég hef aldrei verið í
hljómsveit sem hefur æft eins
stíft,“ segir Kalli.
- Er mikil samkeppni í brans-
anum eða ætlið þið að vera svona
rosalega góðir?
„Það á eftir að reyna á það, en
það hafa engin ósköp verið um
að vera á svæðinu. Hér er starf-
andi önnur hljómsveit í lausa-
bissness og dúett sem leikur á
Karl og Bragi.
hótelinu. Aðkomuhljómsveitir
sækja hingað og það er oft eins
og það sé einhvers konar mottó
hjá mönnum að fá eitthvað
aðkomið. Leitað var eftir tilboð-
um frá hljómsveitum fyrir árs-
hátíð hérna um daginn og þegar
upp var staðið var langhæsta til-
boðinu tekið en það var frá
aðkomuhljómsveit," svaraði
Bragi.
- Eruð þið ekkert farnir að
spila á böllum?
„Jú, við höfum spilað á þrem
böllum, þar af tveim fyrir austan
og þar var okkur ofsalega vel
tekið. Nú fer í hönd tími sem
yfirleitt hefur verið frekar dauf-
ur, fram að hátíðunum, en við
höldum okkar striki við æfingarn-
ar,“ svaraði Kalli.
Að lokum voru allir í hljóm-
sveittinni spurðir sömu spurning-
ar: Hvað drægi þá til að starfa
með hljómsveit, verja sínum frí-
tíma í að æfa mörg kvöld í viku
og spila svo um helgar.
Mynd: IM
„Þetta er mitt hobby. Ég er
mikið fyrir músík og finnst gam-
an að spila með góðum mönnum.
Maður er ekki í þessu eingöngu
fyrir ánægjuna heldur reiknar
með að hafa eitthvað aðeins út úr
þessu sem aukavinnu, það hefur
að vísu ekki verið mikið að gera
en vonandi stendur það til bóta,“
svarar Bragi.
„Það er gaman að spila með
góðum mönnum, ég get tekið
undir það. Þetta er góður félags-
skapur,“ svarar Karl.
„Bara fyrir ánægjuna, ég hef
gaman af að spila. Svo fær maður
kannski eitthvað út úr þessu, þó
er útgerðin dýr og maður kemur
kannski aldrei í plús út úr dæm-
inu. Ég var að kaupa gítar á 55
þúsund,“ svarar Þráinn.
„Af sömu ástæðu og Þráinn,“
svarar Sigurpáll.
Þess má geta að umboðssími
hljómsveitarinnar er 41033 og
þessir hressu félagar voru sam-
mála um lokaorðin: „Geymið
greinina." IM