Dagur - 23.11.1988, Síða 14
14.-..DAQUP -.23, nóvember 1988
Auglýsing frá Bifreiða-
stöð Norðurlands hf.
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn verður opin
í vetur á sömu tímum og afgreiðsla umferðar-
miðstöðvarinnar eða frá kl. 9-17 virka daga.
Að gefnu tilefni skal það skýrt tekið fram
að upplýsingamiðstöðin veitir ekki upp-
lýsingar um færð á vegum.
Þeim aðilum sem vantar þær upplýsingar er
bent á að snúa sér til Vegagerðar ríkisins.
CM UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ C“p FYRIR FERÐAMENN ( % SÍMI 27733
/
Sjúkraliðar
Kristnesspítali óskar eftir að ráða sjúkraliða nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Ibúðarhúsnæði til staðar.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 31100.
Kristnesspítali.
Bamaskóla Akureyrar vantar
forfallakennara til starfa
Frá áramótum vantar kennara fyrir 6. bekk árdegis
(1/2 staða) og fyrir 1. bekk og 2. bekk síðdegis (1/2 +
1/2 staða). Um er að ræða starf til loka skólaárs.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 24449 og yfir-
kennari í síma 24172.
Vantar blaðbera
frá 1. desember í Aðalstræti og Lækjargötu.
Strandgötu 31 • S 24222
Allar auglýsingar sem þarf að vinna sérstak-
lega, þurfa að berast til auglýsingadeildar
tveimur til þremur dögum fyrir birtingu.
Auglýsingadeild Dags.
Frá fundi sjúkraliða af Norðurlandi vestra með stjórn Sjúkraliðafélags íslands í Safnaðarheimilinu á Sauðárkróki
fyrir skömmu. Myndir: -bjb
„Það er þörfin fyrir störfin
sem skapar hlutína“
- frá fundi stjórnar Sjúkraliðafélags íslands
með sjúkraliðum af Norðurlandi
Fyrir skömmu átti stjórn
Sjúkraliðafélags Islands fund
með sjúkraliðum frá Sauðár-
króki, Blönduósi og Hvamms-
tanga. Fundurinn var haldinn í
Safnaðarheimilinu á Sauðár-
króki og á hann mættu um 30
sjúkraliðar. Málefni sjúkraliða
voru að sjálfsögðu á dagskrá
og kynnti stjórn félagsins fyrir
sjúkraliðum hvað væri að ger-
ast í þeirra málum í dag. Að
sögn Kristínar Á. Guðmunds-
dóttur formanns Sjúkraliðafé-
lags íslands var þessi fundur
einn af mörgum sem stjórnin
ætlar að halda með sjúkralið-
um um land allt.
Að loknum fundahöldum var
samþykkt að fundurinn sendi frá
sér svohljóðandi ályktun:
„Stefnuskrá stjórnar er að ná
til sem flestra sjúkraliða út um
land allt og hefur verið rætt uin
sameiningu minni deilda úti á
landsbyggðinni.
Full þörf á kynningu
á námi sjúkraliðans
Á undanförnum árum hefur
skapast aukinn skilningur á því
hvað sjúkraliði er. Pað er að
segja hvað eðlilegt er hvað
sjúkraliðar vinni, þegar námið er
haft til hliðsjónar. Þennan skiln-
ing teljuin við meiri meðal hjúkr-
unarfræðinga BHM. Þeir eru
mun opnari fyrir því hvað sjúkra-
liðinn hefur lært. Það gefur auga
leið að til þess að geta vegið og
metið hvað og hvar sjúkraliðinn
nýtist best í starfi þarf hjúkrun-
arfræðingurinn að hafa yfirsýn
yfir það nám sem sjúkraliðinn
hefur.
Ástæðan fyrir þessum aukna
skilningi hjá hjúkrunarfræðing-
um BHM teljum við vera að
sjúkraliðar og hjúkrunarfræðing-
ar BHM hafa sumir hverjir geng-
ið samhliða í námi á heilsugæslu-
braut, þannig að grunnurinn er sá
sami. Það er líka töluvert um að
BHM-hjúkrunarfræðingar út-
skrifast sem sjúkraliðar á leið
sinni upp í háskólanám. Þetta er
það sem við teljum að hafi skap-
að þann skilning sem myndast
hefur á undanförnum árum:
Þetta sýnir okkur að full þörf er á
því að við hefjum kynningu á
námi okkar.
Kristín Á. Guðmundsdóttir formað-
ur Sjúkraliðafclags íslands.
Heilbrigðisráðuneytið
brugðist skyldu sinni
í dag er hægt að sækja nám í
Sjúkraíiðaskóla íslands, sem er
sérskóli, þar sem krafist er
ákveðinnar undirstöðumenntun-
ar, sem samsvarar tveimur vetr-
um á framhaldsskólastigi. Námið
tekur eitt ár, sem skiptist í bók-
legt nám og verklegt inni á
sjúkrastofnunum. Auk Sjúkra-
liðaskólans hafa 4 fjölbrautaskól-
ar leyfi til að útskrifa sjúkraliða,
þeir falla undir lög um framhalds-
skóla. Þar eru inntökupróf engin,
en þeir sem hafa lokið grunn-
skólaprófi eiga rétt til setu þar.
Sjúkraliðastéttin telur sig hafa
fullan rétt til þess að auka við
menntun sína á því sviði hjúkr-
unar, sem að hinni svokölluðu
grunnhjúkrun snýr. Á undan-
förnum árum hafa sjúkraliðar
barist fyrir því að fá þessu
framgengt. Við teljum heilbrigð-
isráðuneytið hafa brugðist skyldu
sinni hvað þetta varðar. Ár eftir
ár hefur eina leið sjúkraliðastétt-
arinnar verið að reyna að ná
þessu fram í kjarasamningum.
Öllum til góðs
að sjúkraliðar fái stuðning
við kröfur um aukið nám
Það gefur auga leið að þegar far-
ið er með slík mál í gegnum
kjarasamninga þá kostar sú sam-
þykkt sjúkraliðastéttina offjár,
sem síðan leiðir til óeðlilegs
launamunar stéttarinnar í
Reykjavík og úti á landi, þar sem
ekki er um að ræða neina fag-
samninga þar. í síðustu samning-
um voru það sjúkraliðar sem fóru
af stað með hörku. Það má segja
að þeir hafi rutt brautina, allir
vita síðan framhaldið. Við höld-
um að það kæmi öllum til góða
að sjúkraliðar fengju stuðning í
kröfum sínum til aukins náms.
Umræða sú sem verið hefur í
gangi við heilbrigðisráðuneytið á
undanförnum mánuðum, um
breytingu á lögum og reglugerð-
um sem varða störf og starfsvett-
vang sjúkraliða, hefur farið út
fyrir raðir þeirra. Okkur er engin
launung á þvt' að aðaláherslu-
punkturinn í þeim umræðum er
hin svokallaða 5. grein laganna,
sem kveður á um að sjúkraliðar
starfi undir stjórn og á ábyrgð
hjúkrunarfræðinga.
Allir eru þeir að stjórna
og bera ábyrgð á okkur
Nú er það ekki svo að sjúkraliðar
vilji ekki vera undir stjórn yfir-
manna. Heldur viljum við kom-
ast undan því að vera undir
stjórn allra hjúkrunarfræðinga.
Á einni hjúkrunardeild eru starf-
andi á sömu vakt fjöldinn allur af
hjúkrunarfræðingum, allir eru
þeir, lögum samkvæmt, að
stjórna og bera ábyrgð á okkur.
Talandi um ábyrgð. Síðan hve-
nær í ósköpunum hafa stéttir
ekki sjálfar borið ábyrgð á störf-
um sínum?
Svo langt er gengið að nemar á
þriðja ári, svona rétt til að prufa,
eru settir í að stjórna sjúkraliðum
og eru þar með orðnir yfirmenn
þeirra. Hvað sem hjúkrunar-
fræðingar vilja skapa skilning á
þessu eða ekki, þá breytir það
því ekki að þetta er eins og aftan
úr grárri forneskju, en ekki á því
herrans ári 1988.
Hverjir eiga
Florence Nightengale?
Hverjir sköpuðu þessa stétt,
sjúkraliðastéttina? Hverjir byrj-
uðu að vinna við hjúkrun hér á
landi? Hverjir eiga Florence
Nightengale? Þessar og þvílíkar
spurningar fáum við. Því er til að
svara; það á enginn neitt né hefur
búið til neitt í þessu sambandi.
Það er þörfin fyrir störfin sem
skapar hlutina.“ -bjb