Dagur - 23.11.1988, Page 15
23. nóvember 1988 - DAGUR - 15
íþróttir
Mark Duffield
þjálfar KS
Mark DufHeld verður næsti
þjálfari KS í knattspyrnu.
Gengið var frá samningum
við Mark um helgina og hef-
ur hann þegar hafið störf á
Siglufirði.
Mark lék með KS-mönnum
um langt skeið en hélt þá í
víking, fyrst til KA, síðan í
Garðinn og að síðustu upp á
Skipaskaga. Nú er hann sem
sagt kominn heim aftur og er
mikil ánægja hjá forráða-
mönnum KS að hafa endur-
heimt týnda soninn.
Fyrsta verkefni Marks verð-
ur að stýra liðinu á Laugamöt-
inu um næstu helgi.
Flugleiðadeildin í körfu:
Slátrun í Grindavík
Körfuknattleikslið Þórs hélt
suður með sjó og lék við Ung-
mennafélagsdrengina í Grinda-
vík í gærkvöld. Leikar fóru
þannig að Grindvíkingar möl-
uðu Þórsarana 117:76
Strax á fyrstu mínútum leiksins
var ljóst í hvað stefndi. Grindvík-
ingar keyrðu upp hraðan og virt-
ust Þórsarar vera alveg baráttu-
lausir. Engu líkara virtist en þeir
hefðu sætt sig við tap áður en
leikurinn byrjaði. Þannig hugs-
unarháttur kann ekki góðri lukku
að stýra.
Grindavík jók því forskot sitt
jafnt og þétt og voru heimamenn
á undan í flesta bolta, hvort sem
var í vörn eða sókn. Ekki var
þetta þó neinn stórleikur af
þeirra hálfu en mótstaðan var lítil
sem engin. Staðan í leikhléi var
þvf 61:32.
Svipað var uppi á teningnum í
síðari hálfleik. Forskot þeirra
gulklæddu jókst jafnt og þétt og
lokastaðan var því stórsigur
117:76 fyrir Grindavík.
rifja neitt meira um þessa útreið
hér á síðunni.
Hjá Grindavík var það liðs-
heildin sem vann leikinn, eins og
sést á stigaskoruninni. í fyrri
hálfleik bar mest á Jóni Páli Har-
aldssyni, en í þeim síðari voru
þeir Ástþór Ingason og Steinþór
Helgason góðir.
Hjá Pórsurum var Eiríkur góð-
ur í fyrri hálfleik meðan pústið
var í lagi. í þeim síðari var Kon-
ráð Óskarsson sá eini sem eitt-
hvað sýndi og virðist hann vera
alveg þindarlaus.
Dómarar voru þeir Kristinn
Albertsson og Gunnar Valgeirs-
son og dæmdu þeir leikinn vel.
Einn annar leikur var spilaður
í Flugleiðadeildinni. Valur sigr-
aði ÍS 98:54.
Stig UMFG: Guðmundur Bragason 25, Stein-
þór Helgason 20, Jón Páll Haraldsson 17, Ást-
þór Ingason 15, Rúnar Árnason 13, Ólafur P.
Jóhannson 9, Guðlaugur Jónsson 6, Dagbjartur
Wilhartsson 4, Sveinbjörn Sigurðsson 2.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 21, Eiríkur Sig-
urðsson 17, Guðmundur Björnsson 13, Björn
Sveinsson 9, Stefán Friðleifsson 6, Þórir Jón
Guðlaugsson 4, Kristján Rafnsson 4.
JÓH/AP
Guðmundur Björnsson og félagar hans hlutu slænian skell í Grindavík í
gærkvöld. Mynd: EHB
Petta er leikur sem Þórsarar
vilja sjálfsagt gleyma og grafa
sem fyrst og ekki er áætlunin að
Handknattleikur:
„Nú þurfum við á áhorfendum að halda“
Sund:
- segir Erlingur Kristjánsson um leikinn við Stjörnuna í kvöld
Glæsilegur árangur
sundliðs HSÞ
- keppir í 1. deild að ári
Sundlið H.S.Þ. vann sig upp í
1. deild með stórgóðum árangri,
í 2. deildarkeppni, sem fram
fór dagana 11., 12. og 13. nóv.
í sundhöll Hafnfirðinga, eins
og sagt var frá í Degi fyrir
skömmu.
Mótið hófst á föstudagskvöldi
með 800 m skriðsundi kvenna og
karla, að því loknu var H.S.Þ.
liðið með 1565 stig og í efsta sæti.
Á laugardag hófst mótið kl. 15.
H.S.Þ. hélt forustunni allan þann
dag, en vegna reglna um að
félögin megi setja inn varamann
fyrir ógildingssund, en þau voru
synt að lokinni keppni, komst
U.M.S.K. yfir með 9598 stig en
H.S.Þ. 9394 stig.
Keppnin á sunnudag var mjög
spennandi milli tveggja efstu
liða, því H.S.Þ. tókst að komast
yfir aftur eftir nokkrar greinar en
að loknum einstaklingsgreinum
var U.M.S.K. með betri stiga-
tölu. Og úrslit réðust ekki fyrr en
eftir boðsund. Gert var stutt hlé
fyrir boðsundin, ríkti þá mikil
spenna í sundhöll Hafnfirðinga.
Þessu lauk með sigri U.M.S.K.
sem fengu 17560 stig en H.S.Þ.
fengu 17516 eða 44 stiga munur.
Síðan komu U.M.S.B. 16505,
Ármann 16218, H.S.K. 15997,
Bolungarvík 14313.
Eftirtaldir krakkar kepptu í
sundliði H.S.Þ.:
Viðar Örn Sævarsson f. 1977
Edda Sverrisdóttir f. 1976
Linda Viðarsdóttir f. 1976
Þorgerður Þráinsdóttir f. 1975
Fjóla María Ágústsdóttir f. 1975
Hólmfríður Aðalsteinsd. f. 1975
Heimir Harðarson f. 1975
María Fanndal Birkisd. f. 1975
Ingibjörg Gunnarsdóttir f. 1974
Illugi Fanndal Birkísson f. 1974
Kristján Örn Sævarsson f. 1974
Sölvi Már Sveinsson f. 1972
Hilmar Ágústsson f. 1972
Þórhalla Gunnarsdóttir f. 1972
Kjartan Jónsson f. 1971
Jónas Óskarsson f. 1961
Þjálfarar: Birkir Fanndal og
Pálmi Jakobsson.
Sundlið HSÞ sem keppir í 1. deild á næsta ári.
kenni að ég er frekar smeykur
fyrir þennan leik. Árangur
tveggja seinustu leikja gefur ekki
vonir til bjartsýni. Við munum
hins vegar leggja okkur alla fram
og nú, frekar en oft áður, þurfum
við á stuðningi áhorfenda að
halda," sagði Erlingur Kristjáns-
son KA-maður.
í kvöld fara fram þrír aðrir
leikir í 1. deild karla. Á Hlíðar-
enda taka Valsmenn á móti
Gróttu, í Laugardalshöll leika
Framarar og ÍBV og í Hafnar-
firði spilar FH við Breiðablik. Á
morgun lýkur 6. umferð með leik
Víkinga og KR-inga í Laugar-
dalshöll.
Skíði:
KA og Stjarnan leika í 1.
deildinni í handbolta í kvöld.
KA-liðinu hefur ekki gengið
sem skyldi í tveimur seinustu
leikjum eftir mjög góða byrjun
í mótinu. Stjarnan tapaði
þremur fyrstu leikjum sínum,
en hefur unnið þá tvo seinustu.
Það má því búast við hörku-
viðureign þegar Brynjar Kvar-
an og Axel Björnsson fyrrver-
andi KA-menn mæta sínu
gamla félagi kl. 20.30 í kvöld.
Erlingur Kristjánsson stór-
skytta þeirra KA-manna var
varkár í tali er hann var spurður
um leikinn í kvöld. „Ég viður-
Það verða átta krakkar og hinn
júgóslavneski þjálfari þeirra Jag-
odic Florjan sem hefja hlaupið á
sunnudagsmorguninn kl. 10.
Þetta er boðhlaup og munu skíða-
krakkarnir safna áheitum hjá ein-
staklingum og fyrirtækjum. Gert
er ráð fyrir því að þeir sem heita
á krakkana greiði visst á hvern
hlaupinn kílómetra.
Ferðin til Júgóslavíu hefst 14.
desember og er komið aftur heim
28. sama mánaðar. Skíðakrakk-
arnir munu dveljast við æfingar og
keppni í borginni Kranjskagora
en þar verður einmitt keppt í
Heimsbikarkeppninni á skíðum
15. desember. Einnig munu félag-
arnir í Skíðaráðinu fara til Ítalíu
og Austurríkis.
Skíðakrakkar hlaupa írá
Ilúsavík til Akureyrar
safna áheitum fyrir ferð
Krakkar úr Skíðaráði Akur-
eyrar ætla að hlaupa áheita-
hlaup frá Húsavík til Akureyr-
ar á sunnudaginn til styrktar
æfinga- og keppnisferð sem
þau fara í desembermánuði til
Júgóslavíu.
Skíðakrakkarnir ásamt Jagodic Florjan þjálfara sínum en þau ætla að hlaupa
frá Húsavík til Akureyrar á sunnudaginn. Mynd: gb
Krakkarnir munu næstu daga
safna áheitum og þeir sem vilja
leggja þeim lið geta hringt í síma
21726 eða 26747 á fimmtudag og
föstudag.
Erlingur Kristjánsson.