Dagur - 10.12.1988, Blaðsíða 20
Akureyri, laugardagur 10. desember 1988
Akureyrarbær:
Semur um kaup á fimmtán
fyrstu kaupleiguíbúðunum
Akureyrarbær hefur samiö viö
Híbýli hf. um smíði 15 kaup-
leiguíbúða og veröa þær í fjöl-
býlishúsinu sem byrjað er að
byggja á horni Þórunnarstræt-
is, Helgamagrastrætis og
Munkaþverárstrætis. Þar með
er fyrsti kaupleigusamningur-
inn orðinn staðreynd á Akur-
eyri og má telja það merk
tímamót.
Sigfús Jónsson hæjarstjóri
undirritaði samninginn fyrir hönd
Akureyrarbæjar og sagði hann í
samtali við Dag, að enn væri ekki
endanlega ákveðið hvernig staðið
verður að þessu, t.d. hvað varðar
úthlutanir. „Við erum aðeins í
ábyrgð fyrir þessu núna. Fjárveit-
ing var fyrir hendi og við hleypt-
um þessu af stað því við vildum
ekki tefja fyrir byggingafram-
kvæmdum og fjármögnun. Hins
vegar ætlum við okkur lengri
tíma til þess að ákveða nánar um
fyrirkomulagið.
Um er að ræða 5 félagslegar
og 10 almennar kaupleiguíbúðir.
Innan almenna kaupleigusamn-
ingsins eru mismunandi mögu-
leikar t.d. fyrir einstök félög eins
og Sjálfsbjörg að koma inn í
Helgarveðrið:
Slvdda, él,
hiti, frost
Norðlendingar liafa, líkt og
aörir landsmenn, kynnst ýms-
um sýnishornum af veðurfari
að tmdanförnu og svo verður
áfram, samkvæmt upplýsing-
um frá Veðurstofu íslands.
Á laugardag er búist við suð-
uustanátt og slyddu norðanlands,
hitastig verður í kringum
frostmark. Á sunnudag snýst
hann síðan í norðvestan með élj-
um og frosti. Þetta veður á að
vara allan sunnudaginn en á
mánudag á síðan að koma suð-
vestanátt með þokkalcgum
hlýindum. Þetta er sjálfsagt lýs-
andi dæmi um umhleypinga. SS
Akureyri:
Ekið á bfla
og á brott
fyrradag var ekið á tvær kyrr-
stæðar bifreiöar á Akureyri og
tjónvaldarnir stungu af í báð-
um tilvikum. Um hádegi var
tilkynnt um tjón á bifreiöinni
A-3204, sem stóð við Núpa-
síðu 8, og kl. 19.40 var lögregl-
an kölluö á vettvang vegna
tjóns á bifreiðinni Y-16787,
sem var við verslunina Síðu.
Ekki hefur náðst til ökumann-
anna sem lentu í þessum árekstr-
um og óku síðan af vettvangi og
óskar lögreglan á Akureyri eftir
sjónarvottum að atburöunum.
Á fimmtudaginn var einnig all-
harður árekstur á Akureyri, auk
minniháttar umferðaróhappa,
mótum Þórunnarstrætis og
Glerárgötu. Þar urðu talsverðar
skcmmdir á bílum en engin slys á
fólki. SS
sammnga.
Verkamannabústaðir á Akur-
eyri hafa séð um allan undirbún-
ing vegna þessa samnings og
koma til með að sjá um fram-
kvæmdir fyrir bæinn. VG
Atvinnuleysi ungs fólks á Akureyri:
26% á aldrinum 16-20 ára
- við síðustu útborgun atvinnuleysisbóta
hjá skrifstofu Einingar
Við síðustu útborgun atvinnu-
leysisbóta hjá skrifstofu verka-
lýðsfélagsins Einingar á Akur-
eyri voru 26% bótaþega á aldr-
inum 16 til 20 ára. Ulfhildur
Rögnvaldsdóttir, bæjarfull-
trúi, vakti máls á þessu á fundi
Bæjarstjórnar Akureyrar 6.
þ.m. Þess skal getið að fleiri
stéttarfélög en Eining greiða
bætur gegnum skrifstofuna.
Úlfhildur sagði að þetta unga
fólk væri yfirleitt ekki komið með
langan starfsaldur á vinnustöðum
og væri látið fara fyrst þegar sam-
dráttur yrði hjá fyrirtækjum.
Vegna þess hversu starfsaldur
þessa fólks er í flestum tilvikum
lítill fær það ekki fullar atvinnu-
leysisbætur.
„Þetta er mál sem varðar
bæjarfélagið. Hér er t.d. um að
ræða einstaklinga sem hafa hætt í
skóla og eru aðeins búnir að
vinna í nokkrar vikur þegar þeim
er sagt upp. Þetta vandamál snýr
að félagslegri þjónustu í
bænum,“ sagði Úlfhildur.
Vegna þessa máls beindi Úlf-
hildur því til atvinnumálanefndar
að þörf væri á að afla nánari upp-
lýsinga hjá vinnumiðlunarskrif-
stofunni fyrir bæjarstjorn um þá
sem eru á atvinnuleysisbótum,
þ.e. hvernig hlutfall atvinnu-
lausra skiptist milli stéttarfélaga
og starfsgreina auk aldursskipt-
ingar. „Ég tel mjög mikilvægt að
fá þessar upplýsingar því það er
alvarlegt mál cf ungt fólk er að
verða atvinnulaust í lengri tíma,“
sagði Úlfhildur. EHB
. i
í dag kl. 16 verður kveikt á jólatrénu á Ráðhústorgi á Akureyri. Starfsmenn
Akureyrarbæjar hafa unnið hörðum höndum við að gera allt klárt fyrir dag-
inn en auk þess sem Ijósin verða tendruð, verða ýmsar uppákomur á torginu.
Jólatréð er gjöf frá Randres í Danmörku, vinabæ Akureyrar. Mymi: TLV
Frystihús við Skagafjörð:
Lítll sem engin vinna fram að jólum
Fyrirsjáanlegt er að lítil sem
engin vinna verði hjá frystihús-
unum þremur við Skagatjörð
frani að jólum. Ekki er von á
neinum togarafiski cn ef veður
leyfír þá mun Hafborgin fara í
tvær veiöiferðir fyrir Hrað-
frystihúsiö á Hofsósi. Er þetta
mun verra ástand en fyrir ári,
en þá var full vinna í frystihús-
unum alveg fram að jólum.
Togarar Utgerðarfélags Skag-
fírðinga munu ekki lcggja upp
með físk, enda allir búnir með
þorskkvótann og í þann veginn
að klára karfann.
Skafti er kominn í slipp í Hafn-
arfirði og Drangey og Hegranes
munu selja karfa í Þýskalandi á
næstu dögum, Drangeyjan þann
15. og Hegranesið 19. des. nk.
Síðasti afli Skafta var settur í
gáma og verður hann seldur nú í
vikunni, aðallega karfi.
„Mér sýnist þetta ætla að verða
10 dögum slappara núna. Kvót-
inn minnkar ár frá ári, þannig að
það er erfiðara að stilla þetta
saman. Það horfir í 5-10%
minnkun á kvóta næsta árs,
stofnarnir eru ekki það sterkir.
togarakvótinn búinn
Þetta verður dauður tími fram
yfir áramót, en við munum ekki
segja upp starfsfólki. Vandinn er
mikill, en menn veröa bara að
herða sultarólina,“ sagði Árni
Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihússins Skjaldar
hf. í samtali við Dag. -bjb
Þriggja mánaða leigusamningur Jökuls hf.
á eigum þrotabús Sæbliks hf.:
Rækjuvinnsla altur
í gang á Kópaskeri
I gærmorgun hófst vinnsla að
nýju í rækjuverksmiðju þrota-
bús Sæbliks hf. á Kópaskeri.
Útgerðarfélagið Jökull hf. á
Raufarhöfn hefur leigt eigur
þrotabúsins, rækjuverksmiðju
og skipið Árna á Bakka Þ.H.
380, til þriggja mánaða eða
frain í mars á næsta ári.
Samningar tókust um síðustu
helgi um leigu Jökuls hf. á eigum
Hvirfilbylur:
Varadekkið tókst á loft
Hann varð ekki lítið undrandi,
maðurinn á Land Rover jepp-
anum, sem var á ferð eftir Eyja-
fjarðarbraut vestri á miðviku-
daginn. Móts við bæinn Teig
lenti hann í snörpum hvirfílbyl
og skipti engum togum að vara-
dekkið þaut upp af þaki bíls-
ins og út í Eyjafjarðará.
Atburður þessi er mjög
óvenjulegur því hvirfilbylir á
þessum slóðum eru afar sjaldan
sterkir, hvað þá að þeir megni að
rífa með sér varadekk af jeppa-
bifreið og þeyta því út í
buskann.
Ekki tókst manninum að
endurheimta varadekkið. Það
liggur nú á botni Eyjafjarðarár,
týnt og tröllum gefið. SS
þrotabúsins og hélt Árni á Bakka
þá þegar til veiöa. Hann kom síð-
an inn til löndunar í fyrrakvöld
og landaði 7 tonnum af fallegri
rækju.
Að öllu óbreyttu verður full
vinna í rækjuverksmiðju Sæbliks
hf. út þennan mánuð og þar til
leigusamningur Jökuls hf. rennur
út. Af um 600 tonna rækjukvóta
Árna á Bakka á þessu ári eru nú
eftir 140 tonn. Sýnt þykir að ekki
rnuni takast að veiða upp í kvót-
ann á síðustu vikum ársins. Sam-
kvæmt upplýsingum Björns Jóns-
sonar í sjávarútvegsráðuneytinu
er ekki heimilt að færa þann
kvóta skipsins, seni búast má við
að verði eftir um áramót, yfir á
næsta ár. Björn segir að einhvern
næstu daga verði gepgið frá út-
hlutun rækjukvóta fyrir flotann,
þ.m.t. kvóta Árna á Bakka.
Örlygur Hnefill Jónsson,
bústjóri þrotabús Sæbliks hf.,
hefur auglýst eftir tilboðum í eig-
ur þrotabúsins. Um er að ræða
rækjuverksmiðju Sæbliks hf.,
verbúð fyrirtækisins og Árna á
Bakka. 1 auglýsingu bústjórans
er veittur tilboðsfrestur til kl. 12
þann 16. desember nk. Áskilinn
er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum. Jafn-
framt er áskilinn réttur til að
ganga til nánari samninga við
hvaða tilboðsgjafa sem er. óþh