Dagur - 13.12.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 13. desember 1988
Hvammstangi
Til sölu er helmingur húseignarinnar að Brekku-
götu 2 á Hvammstanga.
Um er að ræða neðri hæð og kjallara gamla verslun-
arhúss Sigurðar Pálmasonar á staðnum, samtals
um 300 fm að grunnfleti brúttó.
Húsið stendur á sjávarlóð í hjarta bæjarins og er til-
valið fyrir verslunarrekstur, skrifstofustarfsemi eða til
íbúðar eða félagsstarfsemi.
Tilboðum í eignina skal skila fyrir kl. 12.00 á hádegi
föstud. 30. desember 1988 til undirritaðs skiptastjóra
sem jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum. Jafnframt er áskilinn réttur til að ganga
til nánari samninga við hvaða tilboðsgjafa sem er.
Guðmundur Arnaldsson, skiptastjóri þrotabús
Verslunar Sigurðar Pálmasonar hf.
Pósthólf 977, 121 Reykjavík, sími 91-641458.
/Jólatví-
menningur B.A.
Bridgefélag Akureyrar eftir til jólatvímennings
þriðjudaginn 13. desember.
Afar frjálslegt keppnisfyrirkomulag. Nánar kynnt á
staðnum.
Meðal verðlauna er útbeinað jólahangikjöt, Lindu-
konfekt, kerti ogspil, briddsbækur o.fl. Engin trygging
er fyrir því að verðlaunin komi í hlut efstu para!
Borðgjald er 100 krónur á mann hið minnsta, en þátt-
takendum er frjálst að greiða mun meira. Borðgjaldið
rennur óskipt til landssöfnunar Hjálparstofnunar kirkj-
unnar.
Allt spilafólk á Akureyri og nágrenni er sérstak-
lega hvatt til að mæta og taka makann með, ef
þess er kostur.
Spilamennskan hefst kl. 19.30 í Félagsborg.
Opið hús
í Hafnarstræti 90, laugard. 17. desemberfrá kl. 15-18.
Akureyringar og nágrannar!
Lítið inn og fáið ykkur hressingu.
#
FRAMSÓKNARFÉLAG AKUREYRAR.
Borgarbíó
Alltaf nýjar
myndir
Símsvari 23500
Vantar blaðbera
strax í neðri hluta
Hrafnagilsstrætis,
neðri hluta
Eyrarlandsvegar,
Möðruvallastræti
og Skólastíg
Ml
Síminn er
24222
\I íþróttir I
Þór spilaði tvo útileiki í 2. deild
karla í handknattleik um helgina. Á
laugardaginn mættu þeir ÍR í
íþróttahúsi Seljaskóla og töpuðu
32:16 í slökum leik. Á sunnudaginn
hefndu Haukarnir ófaranna frá því á
Akureyri fyrir rúmri viku og sigruðu
Þór 28:21 eftir að Þórsarar höfðu
haft yfírhöndina mestan hluta ieiks-
ins.
Dauft í Seljaskóla
Eins og markatölurnar segja til um var
leikur Þórsara gegn ÍR mjög slakur. ÍR
átti hins vegar þokkalegan leik en
þurfti ekki að hafa mikið fyrir sigrin-
um. Ótrúlegir yfirburðir þeirra í fyrri
hálfleik slógu Þórsara út af laginu og í
hálfleik var staðan 16:5.
Sagan nánast endurtók sig í seinni
hálfleik þótt leikur Þórsara væri lítið
eitt árangursríkari en í fyrri hálfleik.
Þrátt fyrir það var enginn möguleiki á
að veita ÍR keppni og þeir hömpuðu
sigri í lokin, 32:16.
Mörk ÍR: Finnur Jóhannsson 8, Ólafur Gylfa-
son 7, Matthías MatthíassOn 5, Orri Bollason 4,
Róbert Rafnsson 4. Frosti Guðlaugsson 4.
Mörk Þórs: Kristinn Hreinsson 4, Ingólfur
Samúelsson 4, Páll Gíslason 3, Atli Rúnarsson
2, Guðmundur Óli Jóhannsson 2, Jóhann
Jóhannsson 1.
Hefnd Haukanna
Handboltalega var leikurinn í Hafnar-
firði á sunnudaginn mun skemmtilegri
á að horfa. Þórsarar áttu góða byrjun
og leikur iiðsins var allur annar en dag-
inn áður. Þeir komust í 5:0 á fyrstu 7
mínútunum en þá loks fóru Haukarnir
í gang. Það var samt ekki fyrr en um
miðjan fyrri hálfleikinn að jjeim tókst
Páll Gíslason og Kristinn Hreinsson voru markahæstir hjá Þór í leikjunum fyrir sunnan.
Mynd: JÓH
Handknattleikur/2. deild karla:
Haukarnir hefndu ófaranna á Akureyri
- lögðu Þór 28:21 - Stórtap Þórs gegn ÍR
að minnka muninn í tvö mörk en nær
allar sóknir Þórsara skiluðu marki
enda spiluðu þeir á köflum mjög
öruggt og yfirvegað.
Eftir að staðan hafði verið 14:12 í
hálfleik komu Hafnfirðingar mjög
ákveðnir í þann síðari. Greinilegt var
að þeir ætluðu að leggja allt í sölurnar
til að stöðva Þórsarana og það tókst.
Þegar liðnar voru 8 mínútur af seinni
hálfleik jöfnuðu þeir 16:16 og allt leit
út fyrir spennandi lokakafla.
Jafnt var á öllum tölum upp í 19
mörk en þá skildu leiðir. Úthald Þórs-
ara var greinilega þrotið og Haukarnir
skoruðu 6 mörk í röð. Á lokamínútun-
um bættu Þórsarar tveimur mörkum
við og lokastaðan varð 28:21.
Leikurinn var nokkuð skemmtilegur
á að horfa. Haukarnir hafa á að skipa
sterku liði og þrátt fyrir ósigurinn lék
Þórsliðið nokkuð vel. Þeir eiga nú að-
eins einn leik eftir á útivelli og geta því
bætt stöðu sína í deildinni verulega
með sigrum á heimavelli.
Mörk Hauka: Sigurjón Sigurðsson 10, Jón
Örn Stefánsson 4, Arni Hermannsson 3, Gunn-
laugur Grétarsson 3, Jón Þórðarson 3, Óskar
Sigurðsson 3, Sigurður Sigurðsson 1, Ágúst S.
Karlsson 1.
Mörk Þórs: Páll Gíslason 6, Jóhann Jóhanns-
son 5, Ingólfur Samúelsson 3, Kristinn Hreins-
son 2, Atli M. Rúnarsson 2, Aðalbjöm Svan-
laugsson 2, Sævar Árnason l.JOH
Handknattleikur/1. deild kvenna:
Þórsstúlkumar mættu oíjörlum sínum
- töpuðu stórt fyrir Stjörnunni og FH
Þórsstúlkurnar töpuðu stórt í báð-
um leikjum sínum sunnan heiða um
helgina. Á föstudagskvöld léku þær
við stöllur sínar í Stjörnunni og töp-
uðu 19:31. Á laugardaginn mættu
þær FH í Hafnarfírði og máttu þola
stórtap 13:34.
Erla Rafnsdóttir reyndist erfíð
í leiknum á föstudagskvöld gerðu
Stjörnustúlkurnar út um leikinn strax í
fyrri hálfleik. Fljótlega náðu þær góðu
forskoti og leiddu í hálfleik, 16:8. Þórs-
stúlkurnar náðu aldrei að ógna sigri
þeirra í síðari hálfleik og því fór sem
fór. Erla Rafnsdóttir reyndist Þórs-
stúlkunum erfið og skoraði hún alls 13
mörk í leiknum. Lokatölur leiksins
urðu sem áður segir 31:19 Stjörnunni í
hag.
Mörk Stjörnunnar skoruðu: Erla Rafnsdóttir
13, Herdts Sigurbjörnsdóttir 5, Guðný Gunn-
steinsdóttir 4, Hrund Grétarsdóttir 3, Helga Sig-
mundsdóttir 3, Guðný Guðnadóttir 2, Ingibjörg
Andrésdóttir 1.
Mörk Pórs skoruðu: María Ingimundardóttir
6, Valdís Hallgrímsdóttir 5. Inga Huld Pálsdótt-
ir 4, Harpa Örvarsdóttir 2, Steinunn Geirsdóttir
1. Hugrún Felixdóttir 1.
Valdís Hallgrímsdóttir var einna atkvæða-
mest Þórsara um helgina.
Úthaldið þraut í Hafnarfírði
Leikurinn við FH á laugardaginn byrj-
aði líkt og leikurinn á föstudagskvöld-
ið. FH skoraði hvert markið af öðru en
hvorki gekk né rak í sóknum Þórs. Það
var ekki fyrr en liðnar voru 12 mínútur
að Þórsstúlkur skoruðu sitt fyrsta mark
en þá höfðu FH stúlkurnar skorað 8
mörk. Þær héldu uppteknum hætti það
sem eftir var hálfleiks og virtust ekki
eiga í miklum vandræðum með Þórs-
liðið. Staðan í hálfleik var 16:7.
Fyrstu 10 mínútur seinni hálfleiks
héldu Þórsstúlkurnar í horfinu en þeg-
ar staðan var orðin 22:11 var sem allur
vindur væri úr þeim, úthaldið var
þverrandi eftir erfiða leiki. FH stúlk-
urnar gengu á lagið og skoruðu 7 mörk
í röð án svars frá Þór.
Björg Gilsdóttir átti góðan leik á síð-
ustu mínútunum og skoraði falleg
mörk. Það sem eftir lifði skoruðu Þórs-
stúlkurnar aðeins tvö mörk og lokatöl-
ur urðu því 34:13. Lið FH var jafnt og
varla hægt að segja að ein stúlka hafi
borið af. í Þórsliðinu bar einna mest á
Valdísi Hallgrímsdóttur og Maríu Ingi-
mundardóttur.
Mörk FH skoruðu: Björg Gilsdóttir 5, Heiða
Einarsdóttir 5, Eva Baldursdóttir 5, Rut Bald-
ursdóttir 5, Sigurborg Eyjólfsdóttir 4, Kristín
Pétursdóttir 4, Berglind Hreinsdóttir 2, Inga
Einarsdóttir 2, Árdís Aradóttir 2.
Mörk Þórs: María Ingimundardóttir 6. Valdís
Hallgrímsdóttir 4, Inga Huld Pálsdóttir 2, Berg-
rós Guðmundsdóttir 1. JÓH