Dagur - 22.12.1988, Page 5
22. desember 1988 - DAGUR - 5
Hátíðá
Vopnafirði
Eins og fram kom í Degi í gær flaug heimsins fegursta
kona, Linda Pétursdóttir, til Vopnafjarðar í fyrradag
þar sem hún verður um jólin í faðmi fjölskyldunnar.
Móttökurnar sem Linda fékk hjá vinum og ættingjum á
Vopnafirði voru höfðinglegar. Allir sem vettlingi gátu
valdið á Vopnafirði, ungir sem aldnir, fóru út á flugvöll
til þess að fagna fegurðardísinni. Ræður voru haldnar,
fólk klappaði og kysstist. Stemmningin á flugvellinum á
Vopnafirði var eins og á 17. júní, hreint ólýsanleg!
Ljósmyndari Dags, Tómas Lárus Vilbergsson, var
vitaskuld á Vopnafirði þegar Ungfrú heimur steig út úr
vél Flugfélags Norðurlands. Hann festi heimkomuna á
filmu.
vnmtm imm mi>A.
Mikið fjölinenni fagnaði Lindu við heimkomuna. Hér má sjá hluta hópsins
og ef grannt er skoðað sést að annar hver maður er með inyndavél.
lesendohornið
Messur í
Akureyrarkirkju
Kona í Akureyrarsókn
hringdi:
Ég fékk Safnaðarblað Akur-
eyrarkirkju fyrir skömmu og sá
þá að þegar messur voru auglýst-
ar var ekki getið um hvor sóknar-
prestanna messaði í það og það
skiptið. Sömu sögu er að segja
um útvarpsauglýsingar varðandi
almennar sunnudagamessur í
Akureyrarkirkju, þar er einungis
sagt í lok lilkynningarinnar:
Sóknarprestar eða sóknarprest-
ur, þannig að fólk veit ekki livor
messar. Ég hef talað um þetta við
marga og finnst öllum sem ég
þekki að þessu þyrfti að breyta,
því fólk vill gjarnan vita hvaða
prestur messar hverju sinni.
Sr. Birgir Snæbjörnsson
svarar:
„Ég vil undirstrika að við sókn-
arprestarnir á Akureyri erum
samstarfsmenn og leggjum
áherslu á að hafa samstarfið sem
best. Venjulega reynum við að
fylgja þeirri reglu að messa ann-
an hvorn sunnudag hvor um sig í
Akureyrarkirkju en sú skipan
getur þó riðlast ef annar okkar
þarf að fara úr bænum eða er
vant við látinn á annan hátt. Ég
bendi þeim sem vilja vita um
hvor okkar messar á að við setj-
um venjulega stafina okkar undir
messutilkynningar sem birtast í
Degi.“
Samkort:
Fékk nóg af fátæktarárunum
Bæjarbúi bringdi...
...og kvartaði sáran undan fyrir-
komulagi á umsóknum um
Samkort. Við gefum bæjarbúan-
um orðið: „Pað er ekki nóg með
að þurfi að gefa út víxil með
þrefaldri mánaðarúttekt, til þess
að fá Samkort, heldur er ofan í
kaupið krafist tveggja ábyrgðar-
manna. Það er auðvitað gjörsam-
lega frágangssök að einhverjir
nágrannar mínir fari að ábyrgjast
vöruúttekt mína. Petta myndi
enda með því að hver einasti
íslendingur væri koininn í ábyrgð
fyrir matarkaupum náungans. Ég
veit ekki til að önnur kreditkort
hafi þennan háttinn á. Ef égborga
ekki mánaðarlega geta mennirnir
auðvitað innheiint þessa skuld
eins og hverja aðra skuld. Það
þarf enga ábyrgðarmenn fyrir
henni. Þetta er gjörsamlega út í
hött og gamaldags fyrirkomulag.
Vegna þessa snarhætti cg við að
taka Samkort. Ég fékk satt að
segja nógaf því á fátæktarárunum
að betla víxiluppáskriftir.“
Halldór Guöbjarnason hjá
Samkorti svarar:
Þarna er fyrirtækið að veita kort-
hafanum lánsheimild. Parna er í
raun um fyrirgreiðslu þess að
ræða. Ef við ekki þekkjum við-
komandi korthafa mjög vel er
ósköp eðlilegt að þurfi tryggingu
fyrir lánsheimildinni, hvort sem
hún er 20, 40, 60 eða 100 þúsund.
Á þetta má líta eins og hverja
aðra lánsheimild sem menn fá í
banka. Bankinn fer t.d. fram á
tryggingu ef um er að ræða yfir-
dráttarheimild.
Kristján Magnússon, fyrrverandi sveitarstjóri á Vopnafiröi fór fyrir mót-
tökunefndinni. . .
. . . og fagnaði Lindu nieð virktum,
svo sem sjá má.
í faðmi fjölskyldunnar. Linda ásamt foreldrum sínum, þcim Pétri Olgeirssyni og Ásu Hólmgcirsdóttur og tveimur
tilvonandi fegurðardrottningum.
Þrengsli við
Bögglapóststofuna
Um einstefnu-
akstursgötur:
Aksturs-
stefminni
verði breytt
Mjólkurbílstjóri úr sveitinni
sem jafnvel er aö hugsa um að
flytja til Akureyrar vildi lcggja
orð í belg varðandi einstefnu-
akstursgötur í bænum, en þær
hafa verið til umræðu að
undanförnu.
„Nú er verið að breyta reglum
varðandi einstefnuakstursgötur í
þá veru að leggja á bílum hægra
megin í nokkrum göturn þar sem
áður hefur verið lágt vinstra
megin. Þetta á t.d. við urn Munka-
þverárstræti og Helgamagra-
stræti. Menn hafa ekki verið ýkja
ánægðir með þessa tilhögun, og
kemur þar til að þegar lagt er
hægra megin t.d. í Munkaþverár-
stræti skellur snjór af þökum hús-
anna niður á bílana.
Ég legg til að akstursstefnunni
verði einfaldlega snúið við, þann-
ig að ekið verði niður þessar göt-
ur sem ég minntist á hér á
undan.“
Oft hefur verið kvartað yfir
þrengslum á bílastæðinu austan
við pósthúsið. Mjög erfitt cr að
koma bílum að dyrum Böggla-
póststofunnar. Og verða menn
oft að bera stóra og þunga pakka
langar leiðir að bílum sínum. Það
veldur furðu manna, sem þurfa
aö nýta þjónustu Pósts og síma,
að stór hluti af bílastæðinu, eða
um það bil þriggja metra breið
rönd, meðfram húsinu, sem Ljós-
myndastofa Páls er í, virðist vera
frátekin fyrir einn einasta bíl.
Hann stendur þarna þversum.
Hver svo scm á hann. Væri ekki
nær að nyrðri bílastæðaröðin
væri færð alveg norður að
húsveggnum. Og eiganda þvers-
umbílsins gert að leggja í þá röð
eins og öðrum. Það væri verðugt
vcrkefni fyrir símstöðvarstjór-
ann, aö koma þessu í kring fyrir
aðaljólaösina á pósthúsinu.
Margir yrðu honum þakklátir fyr-
ir það. Viðskiptavinur P og s.
Fhigmannatal
er komíð út
I bókinni er auk flugmannatals, saga F.Í.A. og
myndir úr flugsögu íslendinga.
Bókin fæst í Bókabúð Eddu, Akureyrí.
%
Sendum viðskiptavimun okkar
bestu jóla- og nýárskveðjur
Þökkum viðskiptin á árinu.
Flskbúðln
Strandgötu 11, Akureyri. Sími 27211. ^
________&