Dagur - 22.12.1988, Side 14

Dagur - 22.12.1988, Side 14
14 - DAGUR - 22. desember 1988 Raftækni — Akureyri Sérverslun með rafvörur í Miðbænum. Við höfum úrval raftækja frá þekktum og viðurkenndum framleiðendum. Jólaseríur og stjörnur, úti og inni. Jólatrésfætur, sænskir. Hárblásarar. Rakvélar, dömu og herra. Djúpsteikingapottar. Örbylgjuofnar, Moulinex og Philips. Kaffikönnur, 8 tegundir. Brauðristar, 6 tegundir. Hrærivélar. Hraðsuðukatlar og könnur. Ryksugur • Straujárn • Vöfflujárn. Hitateppi fyrir háls, bak og allan líkamann. Að ógleymdum Eumenia þvottavélunum okkar. (Hver fær vél nr. 300?) Við bendum fólki eindregið á að athuga verð hjá okkur áður en þið ákveðið kaup á rafvörum. Það getur borgað sig. Svo er staðgreiðsluafsláttur af öllum stærri tækjum yfir 10 þús. kr. P.s. Við minnum á Nilfisk þjónustuna okkar. Með jólakveðju. Ingvi R. Jóhannsson, Brekkugötu 7, Akureyri, sími 26383. ^ . óyð ^ Mýjar vorur V J Kaupmannafélag - vandaðar vörur \L7 Akureyrar SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA Á NORÐURLANDI EYSTRA Vistheimilið Sólborg Hjúkrunarfræðingur óskast í 50% starf sem fyrst á nýju ári. Vinnutími aðlagast að þínum óskum. Verksvið: Ábyrgð á lyfjabúri og afgreiðsla úr því, eftirlit með lyfjagjöfum og ýmislegt. Hjúkrunar- og leiðbeiningastörf. Uppl. í síma 21755 milli kl. 10.00 og 16.00. Forstöðumaður. Afmæliskveðja: Tryggvi Kristjánsson 100 ára 100 ára er í dag Tryggvi Krist- jánsson. Hann mun vera elsti borgari Akureyrar nú. Tryggvi fæddist á Meyjarhóli Svalbarðs- strönd 22. des. 1888 og ólst þar upp hjá foreldrum sínum, Friðriku Guðmundsdóttur og Kristjáni Guðmundssyni ásamt tveim al- systkinum og einum hálfbróður. Tryggvi missti föður sinn 14 ára gamall og kom það þá í hans hlut að sjá um búrekstur með móður sinni, þar til hann kvæntist árið 1910 Jóhönnu Valdimarsdóttur frá Leifshúsum þar í sveit. Þau eignuðust fjögur börn, Laufeyju, Friðriku, Kristján og Jón, og eru þau öll búsett á Akureyri. Þau hjón stunduðu búskap á Meyjar- hóli til ársins 1944, en fluttu þá til Akureyrar og bjuggu í Brekku- götu 15. Tryggvi hóf störf sem lager- maður við heildverslun Valgarðs Stefánssonar og vann þar nokkur ár, en síðan hjá Eimskip við upp- skipun og önnur verkamanna- störf. Síðustu starfsárin vann hann hjá Kristjáni syni sínum sem starfrækir bólstrun og burstagerð. Konu sína missti Tryggvi árið 1965 og dvaldist eftir það hjá Kristjáni syni sínum og konu hans Þórdísi. í janúar 1983 vist- aðist hann á Dvalarheimili aldr- aðra í Skjaldarvík. Þaðan á hann margar góðar minningar um sam- skipti við starfsfólk og vistmenn. Þar verður þó aðeins einn nefnd- ur Halldór Albertsson sem var honum ómetanlegur vinur og félagi við þessar breyttu aðstæð- ur. í febrúar síðastliðnum hrakaði heilsu hans nokkuð og var hann þá fluttur á Dvalarheimilið Hlíð á hjúkrunardeild, þar sem hann er nú rúmfastur, líkamsþrekið búið en hugsunin skýr, og fylgist hann daglega með fréttum í út- varpi. Tryggvi var mikill gleðimaður á sínum yngri árum. Hann var einn af stofnendum Ungmenna- félagsins „Æskan“ á Svalbarðs- strönd og stuðlaði þar að skemmtanahaldi og leiklist, sem hann hafði mikinn áhuga á. Eftir að hann fluttist til Akureyrar lék hann með Leikfélagi Akureyrar, meðal annars Ketil í „Skugga- sveini“. En alvaran var líka í huga hans, hann gegndi mörgum trún- aðarstörfum í sinni sveit og átti allmörg ár sæti í hreppsnefnd. J.T. Bamakór á Lúsíuhátíd í grein sem birtist í Degi 16. desember frá Lúsíuhátið Karlakórs Akureyrar var vegna mistaka ekki minnst á barnakór ■ umsjá Birgis Helgasonar. Barnakórinn, sem Birgir Helgason æfði vegna söngs á Lúsíuhátíð og við guðsþjónustur í Akureyrarkirkju um jólin, söng fjögur lög með Karlakór Akureyrar undir stjórn Atla Guð- laugssonar og Birgis Helgasonar. Hér að ofan er mynd af kórunum þessu til áréttingar. Barnakórinn mun syngja í Dvalarheimilinu Hlíð á aðfangadag og við messu í Akureyrarkirkju á 2. jóladag eins og verið hefur undanfarin ár. EHB CASIO hljómborð í miklu úrvali — Verð frá kr. 3.980. Jókagjöf sem gleður unga sem aldna AKURVIK % Nýjar vörur - vandaðar vörur ÍS HF. - GLERÁRGÖTU 20 - AKUREYRI - SÍMI 22233 Kaupmannafélag Akureyrar KaupiÖ jolagjofma á bensínstöðvum ESSO Nýtt greiðslukortatímabil. Ef verslað er fyrír meira en kr. 3.500.- lengist lánstíminn til 1. mars. Bensínstöðvar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.