Dagur - 04.02.1989, Qupperneq 1
fjArmAl PfN
SÉRGREIN OKKAR
TJARFESTINGARFEIAGIÐ,
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra, á flölmennum fundi í Hlíðarbæ:
Steingrímur J. Sigfússon, land-
búnaðarráðherra, telur vel
konia til álita að niðurgreiða
slátrun á ákveðnum fjölda
búfjár sem bændur taka heim.
Með þessu móti telur ráðherra
unnt að komast að einhverju
leyti fyrir þá miklu heimaslátr-
un, sem samkvæmt orðum
„Guð gefi okkur hærra verð fyrir
refaskinnin!!“ Mynd: óþh
Nýmæli í námsmati:
Heimilis-
störfin geta
stytt námið
Ákveðið hefur verið að frá og
með næsta skólaári verði
reynsla á vinnumarkaði og
heimilisstörf metin þcgar
nemendur flytjast á milli skóla
eða taka upp nám í framhaids-
skóla að nýju að afloknu hléi.
Þetta atriði getur t.d. átt við þá
fjölmörgu sem eftir langt hlé
setjast á skólabekk í öldunga-
deildum framhaldsskólanna.
Þetta nýmæli tengist nýjum
reglum um mat á námi nemenda
sem flytjast á milli framhalds-
skóla. Markmiðið með námsmat-
inu er að meta fyrra nám til
áfanga og eininga og fella það að
því námskerfi sem viðtökuskóli
hefur uppá að bjóða þannig að
einstaklingur hefji nám á því
námsstigi sem honum hentar.
Gerður Óskarsdóttir, ráðu-
nautur menntamálaráðherra,
segir að miðað sé við að reynsla á
vinnumarkaði eða við heimilis-
störf geti mest gefið 16 einingar,
eða m.ö.o. stytt námið um hálft
ár. Miðað er við 7 ára reynslu í
heimilisstörfum eða á vinnu-
markaði til að ná 16 einingum.
Af fjölmörgum öðrum málum
sem komu til tals á fundi land-
búnaðarráðherra með eyfirskum
bændum má nefna hugsanlega
framlengingu núgildandi búvöru-
samnings, sem gildir til ársins
1992. Sveinn Jónsson, bóndi í
Ytra-Kálfsskinni, beindi þeirri
spurningu til ráðherra hvort hann
vildi beita sér fyrir slíku.
Steingrímur kvaðst ekki geta
lofað því að nýr búvörusamning-
ur yrði gerður í anda þess sem nú
er í gildi. Hins vegar taldi hann
mikilvægt að gera einhvern sam-
Jón Sigurðarson, forstjóri Ála-
foss hf., segist hvorki vera
bjartsýnn né svartsýnn á góðan
árangur af samningaviðræðum
við fulltrúa sovéska ríkisfyrir-
tækisins Razno og samvinnu-
fyrirtækisins Sojus um kaup á
ullarvörum, en þær hafa staðið
yfir í Moskvu frá því í byrjun
vikunnar.
Jón segir að nú sé verið að
ræða verð og magn en ekki liggi
fyrir hvað út úr þeim viðræðum
komi. Hann segir að menn hafi
gert sér vonir um að Razno kaupi
ullarvörur frá Álafossi hf. fyrir
a.m.k. 5 milljónir dollara, en það
eru lægri rnörk viðskiptabókun-
ar. Hvað Sojus varðar hafi hins
vegar verið bundnar vonir við
2ja-3ja milljóna dollara kaup á
ullarvörum.
Forstjóri Álafoss hf. mun
fljúga austur í Moskvufrostið á
morgun og setjast þar við samn-
ingaborð. Aðalsteinnn Helgason
og Kolbeinn Sigurbjörnsson hafa
staðið í samningaviðræðunum í
þessari viku f.h. Álafoss hf. og
mun Kolbeinn verða áfram við
samningaborðið í næstu viku en
Jón tekur sæti Aðalsteins. óþh
vill endurbættan búvörusamning eftir 1992
fjölmargra aðila og tölulegum
upplýsingum, virðist vera
stunduð fram hjá fullvirðisrétt-
arkerfi. Ráðherra lét þessi orð
falla á bændaklúbbsfundi í
Hlíöarbæ sl. flmmtudags-
kvöld, sem um 120 manns
sóttu. Fundurinn var mjög
fjörlegur og stóð í hálfan sjötta
tíma.
bærilegan grundvöll fyrir bú-
reksturinn í framtíðinni. „Ég tel
koma til greina að gera á þessu
fyrirkomulagi verulegar breyting-
ar þannig að ekki sé víst að við
köllum það sama nafni. En ég
álít jafnframt að beri að gera ein-
hvern samningsbundinn grund-
völl sem nái til langs ti'ma," sagði
Stcingrímur J. Sigfússson. óþh
Fundarmenn lýstu áhyggjum
yfir mikilli heimaslátrun en bentu
á að hana mætti að verulegu leyti
rekja til of mikils sláturkostnað-
ar. Með öðrum orðum að bændur
vildu komast hjá þessum mikla
kostnaði með því einfaldlega að
slátra fénu heima. Ráðherra
sagðist vissulega hafa heyrt stað-
hæfingú þessa efnis og sagði
alvarlegt ef rétt reyndist. Alvar-
legast væri þó ef þeir bændur sem
slátruðu fé heima seldu síðan
kjöt af því út um allar trissur.
Steingrímur upplýsti að í land-
búnaðarráðuneytinu væri nú haf-
in úttekt á þessum málum og
beindist fyrsta stig hennar að
samanburði á tölum um fram-
leiðslu og ásetning. Hann sagði
þctta vera fyrsta skrefið en síðan
mætti búast við frekari aðgerðum
sem ekki væri rétt að greina frá
að svo komnu máli.
Ráðherra sagðist hafa hugleitt
það að banna alla heimaslátrun
nema förgun á veiku fc. „í stað-
inn tel ég að ætti að bjóða fram-
leiðendum upp á slátrun á góðum
kjörum á tilteknu magni. Ástæð-
an fyrir þessu væri einfaldlega sú
að losna við þessa umræðú, því
satt bcst að segja er hún ekki
góð. Það cr nógu erfitt að standa
í vörn fyrir þetta kerfi og þá pen-
inga sem í það fara þó maður hafi
ekki sífellt yfir sér orðróm um
misnotkun,“ sagði Steingrímur.
Og hann bætti við: „Það er ansi
hætt við því að samstaðan, að svo
miklu leyti sem hún hefur þó ver-
ið um fullvirðisréttarkerfið, fari
fjandans til á stuttum tíma ef
menn horfa upp á það haust eftir
haust að fé sé lógað heima í stór-
utn stíl. Ég tala í alvöru þegar ég
spyr hvort menn hafi sannanir
fyrir að slíkt hafi átt sér stað.
Menn eiga að gera viðvart um
það en taka það ekki sem gam-
anmál,“ sagði Steingrímur.
Samningaviðræður Álafoss hf. í Moskvu:
Er hvorki bjart-
sýnn né svartsýnn
- segir Jón Sigurðarson
/ klakaböndum.
Mynd: TLV
Hef hugleitt í fiilM alvöru
aö bauna alla heimaslátrun