Dagur - 04.02.1989, Síða 5
eeer iBúidaí
4. febrúar 1989
Leikfélag Akureyrar:
Hver er hræddur við
Virgmíu Wolf?
Um næstu helgi, föstudaginn 10.
febrúar, frumsýnir Leikfélag
Akureyrar hið kröftuga verk
Hver er hræddur við Virginíu
Wolf. Verkið er eftir banda.ríska
leikskáldið Edward Albee og var
fyrst sýnt á Broadway 1962 við
mikla hneykslun áhorfenda en
jafnframt hrifningu.
Leikritið fjallar um ástir hjóna,
ekki samlyndra hjóna eins og
Guðbergur skrifaði um heldur
afár ósamlyndra hjóna. Georg og
Marta rífast og berjast en þau eru
samt bundin órjúfanlegum til-
finningaböndum.
Hjónin Richard Burton og
Elizabeth Taylor túlkuðu Georg
og Mörtu á hvíta tjaldinu á sínum
tíma en Leikfélag Akureyrar hef-
ur fengið hjónin Helga Skúlason
og Helgu Bachmann til að kýta á
sviði Samkomuhússins. Pau hafa
verið gift í 30 ár og ættu því að
þekkja vel til leyndardóma
hjónabandsins. Ekki þarf heldur
að orðlengja það að það er mikill
fengur fyrir Leikfélag Akureyrar
að fá þessa landsþekktu leikara
til starfa. og jafnvel heimsþekktu
þar sem Helgi Skúlason er.
Með hlutverk ungu hjónanna,
sem eru svo ógæfusöm að þiggja
heimboð Mörtu um miðja nótt,
fara þau Ellert A. Ingimundar-
son og Ragnheiður Tryggvadótt-
ir. Leikstjóri er Inga Bjarnason,
Guðrún Svava Svavarsdóttir
hannaði leikmynd og búninga og
tónlist er eftir Leif Þórarinsson.
SS
Endurskoðun Akureyri hf.
SAMEINING
Fyrirtækin Endurskoöun Akureyri hf. og Endurskoðun
Sig. Stefánsson hf. hafa sameinað rekstur sinn í einu
endurskoðunarfyrirtæki á Akureyri undir nafninu
Endurskoðun Akureyri hf.
NÝIR AÐILAR
Frá síðastliðnum áramótum gerðust þeir Arnar Árnason
og Björgólfur Jóhannsson, löggiltir endurskoðendur,
aðilar að félaginu.
NÝTT AÐSETUR
Félagið hefur flutt starfsemi sína að Glerárgötu 24, III. hæð.
FJÖLBREYTT ÞJÓNUSTA
Við kappkostum að veita trausta og góða þjónustu og
önnumst eftir sem áður:
★ Endurskoöun og reikningsskil.
★ Bókhald og reikningsskipulagningu.
★ Launabókhald og hvers konar tölvuvinnslu.
★ Ráögjöf í skattamálum og gerö skattframtala.
★ Stofnun og sameiningu félaga.
★ Rekstrarráögjöf og áætlanagerð.
TENGSL
Félagið er í tengslum við Endurskoðun hf. og Endurskoðun
Sig. Stefánsson hf. sem hafa starfsemi víðs vegar um land.
Þá er félagið aðili að alþjóða endurskoðunarfyrirtækinu KPMG.
B1H9 Endurskoðun Akureyri hf.
Þorsteinn Kjartansson,
Arnar Árnason, Björgólfur Jóhannsson,
löggiltir endurskoftendur
Glerárgötu 24, Akureyri.
Sími 96-26600 • Símfax 96-26601.