Dagur - 04.02.1989, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 4. febrúar 1989
V - öI >'\AH íRi'iinoí &
poppsíðon
Umsjón: Valur Sæmundsson.
Gott aö vita um hljómtæki - 1. hluti:
Mikilvægi hátalara í hijómtækjakeðjunni
Ég hef hugsað mér að fara út í dálít-
ið aðra sálma en popp með þessum
greinaflokki sem hér hefst. Það að
hlusta á tónlist krefst nefnilega þar
tilgerðra tækja og tilað njóta tónlist-
arinnar sem best þurfa tækin að
vera góð og ekki síður rétt staðsett.
I þessum greinaflokki verður fjallað
svolítið um algengustu hljómtæki,
þ.e. hátalara, magnara, plötuspil-
ara, geislaspilara, snældutæki og
útvarpsviðtæki, svo og um uppsetn-
ingu þeirra, meðferð á hljómplötum
o.fl. Mér er bæði Ijúft og skylt að
geta þess að greinaflokkurinn er
byggður á bæklingi nr. 1 í röðinni
„Gott er að vita“ sem fræðsludeild
Sambands íslenskra samvinnu-
félaga gaf út. Bæklingurinn fjallar
um hljómtæki og kom út árið 1985.
Ég vona bara að einhverjir hafi
gagn af þessum greinum. Hentugt
væri t.d. að klippa greinarnar út og
safna í möppu. Greinarnar verða
mislangar, sennilega alls 8 og mun
sú síðasta væntanlega birtast um
miðjan maímánuð.
Á velflestum heimilum í landinu
eru til hljómtæki af einhverju tagi,
enda þykja sjálfsögö þægindi að
geta notiö tónlistar þegar tími gefst
til frá erli dagsins.
Hljómtæki eru mjög misjöfn aö
gæöum og þaö getur i fljótu bragði
verið erfitt aö henda reiður á hvaö
ákvaröi hljómgæöi þeirra. Því miður
er þaö svo aö þegar dæma á um
gæöi einstakra tækja veröa þaö oft
ýmis aukaatriði sem mest áhrif hafa
á niðurstöðuna en aðalatriðin
gleymast. Aðalatriðið er hvernig
tónlistin hljómar í ÞÍNUM eyrum.
Glæsilegt útlit tækjanna, mikið
auglýstur framleiðandi eða hátt verð
er engin trygging fyrir gæðum.
Hlutverk hljómtækja er í stuttu
máli: Að koma til skila efni, tali og
tónlist, líkast þvl sem var við upp-
haflegan flutning.
Eins og áður segir ert það þú sem
dæmir um hvernig til hefur tekist hjá
framleiðandanum og hvort hljóm-
tækin eru þeirra peninga virði sem
seljandinn setur upp. Það er nefni-
lega enginn dómbærari en þú um
það hvernig þér líkar það sem úr
hljómtækjunum heyrist.
Þessir þættir geta því eðli málsins
samkvæmt ekki gefið nein endan-
leg svör við þvl hvaða hljómtæki séu
best, þau svör eru einfaldlega ekki
til. Aftur á móti er hér reynt að
benda á nokkur atriði sem auðveld-
að geta valið, einnig eru gefin góð
ráð um uppstillingu hljómtækjanna
og bent á nokkra þætti sem sannar-
lega hafa áhrif á hljómgæðin.
Hátalarar
Heppilegast er að velja hátalara
fyrst, því val á þeim ákvarðast m.a.
af stærð herbergisins sem þeir
verða I og magnarann ereinfaldara
að velja þegar hátalararnir eru
þekktir.
Til þess að hátalari geti skilað
lægstu tónum sem mannsheyrnin
skynjar þarf a.m.k. þrennt að vera til
staðar: í fyrsta lagi stór hátalara-
kassi. í öðru lagi lágtíðniseining
(bassahátalari) með stórri keilu og
öflugum segli. Og í þriðja lagi stórt
hlustunarherbergi. í herbergi sem
er minna en 10 nT og er t.d. 3,5 m á
lengri veginn heyrast ekki lægri tón-
ar en 50 rið (Hz). Það þarf reyndar
meira en 40 m' stofu til þess að
lægstu tónarnir komi fram. Þar fyrir
utan eru stórir hátalarar ekki endi-
lega góðir hátalarar en hátalarar
sem bæði eru góðir og stórir eru
alltaf dýrir.
Hversu mörg vött hátalarinn er
eða réttara sagt hve mörg vött hann
þolir, og hvort hann þess vegna
passi við þennan eða hinn magnar-
ann eru vangaveltur sem engu máli
skipta. 100W magnari og 40W
hátalarar geta vel gengið saman og
engin ástæða er til að óttast það að
hátalararnir eyðileggist þrátt fyrir
lægri vattatölu.
Næmi hátalarans (Sensitivity) er
aftur á móti mælikvarði á hve öflug-
an magnara þarf til þess að keyra
hann. Næmið er þannig fundið að
mælt er hve hár hljómstyrkurinn er,
1 m frá hátalaranum þegar hann
fær eitt vatt frá magnaranum.
Mælieiningin er dB SPL. Flestir
hátalarar líggja á bilinu 85-92 dB
SPL. Ef talan er lægri en 87 þarf
stóran magnara til þess að fá fram
sama hljómstyrk, en ef hún er hærri
en 92 hefur einhverju af hljómgæð-
unum verið fórnaö.
Hámarks óbjagaður hljómstyrkur
hátalarans er mælikvarði á hve
„kraftmikill" hann er. Algengast er
að þessi tala sé um 105 dB SPL
1 m. Hvorki fjöldi eininga í hátalara-
kassanum (2way/3way) né hvort
hann er opinn (með loftröri) eða lok-
aður, tryggja I sjálfu sér hljómgæði.
En það sem getur stórlega dregið úr
gæðum ágætra hátalara er lélegur
magnari, grannir og langir hátalara-
vírar og umfram allt röng staðsetn-
ing hátalaranna.
Staðsetning hátalara
Tilgangurinn með stereo er að
endurskapa í heimahúsum eigin-
leika tónlistarsalar og upptöku-
herbergis. Ef vel tekst til skynjar
hlustandinn ekki bara breidd heldur
einnig dýpt og jafnvel hæð. Þegar
hlustað er á klassískt tónverk flutt af
sinfóníuhljómsveit með hefðbund-
inni hljóðfæraskipan á hlustandinn
að geta staðsett hljóðfærin í stereo-
myndinni. T.d. eiga fiðlur að vera
framarlega og vinstra megin við
miðju o.s.frv.
Einföld regla er til um afstöðu
hlustanda og hátalara. Samkvæmt
henni er bilið milli hátalaranna haft
jafn stórt og fjarlægð hlustanda frá
hátölurunum. Hlustandinn situr því í
einu horni jafnhliða þrihyrnings, mitt
á milli hátalaranna. Helst á bilið milli
hátalaranna að vera lengra en tveir
metrar, en nú koma til atriði sem
taka verður tillit til. Fjarlægð hátal-
ara frá hliðarveg má ekki vera minni
en 60 sm og frá bakvegg helst ekki
minni en 80 sm. Hæð hátalarans
verður að miða við að hann sé í
sömu hæð og eyru hlustandans
(þ.e. þegar hann situr í stól). Þar
sem fæstir heimilishátalarar eru svo
stórir eru hátalarastandar (fætur)
nauðsynlegir.
Nú er það svo að erfitt getur
reynst að fara I einu og öllu eftir
þessum ráðum, enda er það ekki
skilyrði. Aftur á móti má fullyrða að
ef vikið er verulega frá þeim t.d.
með því að hafa hátalarana klessta
úti í horni eða bak við þung hús-
gögn færist hljóðmyndin öll úr
skorðum, hátíðnin dofnar, bassinn
verður ýktur og mjög óskýr og borin
von um að hægt sé að framkalla
stereomynd. Það er bæði einfalt og
fljótlegt að sannprófa þetta.
Eitt er það sem oft vil gleymast í
baráttunni við að ná auknum hljóm-
gæðum, en það eru hátalaravírarn-
ir/kaplarnir.
Sérhannaðir hátalarakaplar eru
tífalt dýrari en grannar lampasnúr-
ur. Oft er því spurt: Er hljómgæða-
munurinn í samræmi við þetta?
Sem svar við þessari spurningu er
rétt að benda á að hátalaravírar eru
enn einn hlekkurinn í hljómtækja-
keðjunni, jafnmikilvægur og aðrir
með tilliti til hljómgæða, en
hundraðfalt ódýrari en t.d. hátalar-
arnir og magnarinn.
I næsta þætti veröur fjallað um
magnara.
Hér er ekkert
hrafnaþing...
...en hins vegar
erum við fús
að veita ÞÉR
góða þjónustu
Við bjóðum:
Tölvuprentun
Blaðaprentun
Tímaritaprentun
Bókaprentun
Bókband
Dagsprent
Strandgötu 31 • Akureyri • S 96-24222
Vinsældalisti
Rás 2
- vikuna 27/1-3/2 1989
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (1.) (7) Angel of Harlem U2
2. (5.) (5) Waiting for a star to fall Boy meets girl
3. (3.) (6) Last night
4. (2.) (10) Þig bara þig Sálin hans Jóns míns
5. (4.) (7) Bless
6. (17.) (2) Smooth criminal Michael Jackson
7. (21.) (2) You got it Roy Orbison
8. (8.) (3) Crystal nights Ornamental
9. (9.) (5) Neistinn Sálin hans Jóns míns
10. (16.) (3) All she wants is ÐuranDuran
11. (6.) (9) Hólmfríður Júlíusdóttir Ný-dönsk
12. (10.) (7) Elísa Sú Ellen
13. (7.) (14) Handle with care .... Traveling Wilburys
14. (11.) (4) She makes my day Robert Palmer
15. (-) H Baby, I love your way/freebird Will to Power
16. (14.) (5) Svo marga daga
17. (13.) (10.) Frostrós
18. H H As long as you follow Fleetwood Mac
19. (12.) (5) Er ást í tunglinu? Geiri Sæm & Hunangstunglið
20. (15.) (8) Missing you Chris De Burg
ísienski listinn
- vikuna 29/1-03/2 1989
Sæti Áður Vikur Lag Flytjandi
1. (3.) (4) Smooth criminal Michael Jackson
2. (1.) (9) Þig bara þig Sálin hans Jóns míns
3. (4.) . (8) Angel of Harlem U2
4. (2.) (7) Hólmfríður Júlíusdóttir Ný Dönsk
5. (7.) (51 Waiting for a star to fall Boy meets girl
6. (6.) (6. Bless Sverrir Stormsker
7. (5.) (6) Neistinn Sálin hans Jóns míns
8. (16.) (3) Back on holiday Robbie Neyil
9. (15.) (2) All she wants is Duran Duran
10. (9.) (5) Take me to your heart Rick Astley
11. (26.) (2) Shake for the seik Escape Club
12. (18.) (3) Einfaltmál Síðan skein sól
13. (13.) (4) Stæltir strákar Jójó
14. (14.) (3) As long as you follow Fleedwood Mac
15. (10.) (5) Dagar .. Eyjólfur Kristjánsson
16. (-•) (1) Jackie Blue Zone
17. (12.) (8) Glugginn
18. H (1) You got it RoyOrbison
19. (19.) (3) Last night Traveling Wilburys
20. (-) (1) Four letter word KimWilde