Dagur - 04.02.1989, Blaðsíða 7
4. febrúar 1989 - DÁGUR - 7
Hólar í Hjaltadal þar sem námskeiðin eru m.a. haldin.
Stéttarsamband bænda:
Endurmenntunarnámskeið
og utanlandsferðir
í vetur hafa verið haldin
endurmenntunarnámskeið á
vegum Stéttarsambands
bænda, búfræðslunefndar og
bændaskólanna. Námskeiðin
eru haldin við bændaskólana á
Hólum og Hvanneyri. Síðast-
liðið haust ákvað stjórn Fram-
leiðnisjóðs Iandbúnaðarins að
veita þátttakendum ákveðna
fyrirgreiðslu vegna námskeið-
anna.
Fyrirgreiðsla þessi felst í
greiðslu á námskeiðsgjaldi, fæði
og gistingu á námskeiðsstað og
ferðastyrk. Námskeiðin eru mörg
og mismunandi löng. Um nám-
skeið á vormisseri má nefna sem
dæmi bændabókhald, markaðs-
setningu laxfiska, nýtingu fiski-
stofna, málmsuðu, bleikjueldi,
tölvunotkun í landbúnaði, kanínu-
rækt, loðdýrarækt, byggingar-
dómar hrossa, heyverkun,
skattskil, fóðurfræði fiska,
nýgreinar, rekstur eldisstöðva,
skógrækt, hæfileika hrossa og
laxarækt og hafbeit.
Stéttarsamband bænda hefur
skipulagt bændaferðir til Vestur-
.Þýskalands og Kanada næsta
sumar. Ferðin til V,- Þýskalands
hefst með flugi til Zurich 17.
júní. Um er að ræða tvo 45
manna hópa sem dveljast til
skiptis í Passau og Svartaskógi,
auk þess sem kynnisferðir verða
farnar til fjölmargra annarra
staða. Ferðin kostar 37 til 42 þús.
kr. fyrir manninn.
Dagana 5. til 7. ágúst verða
mikil hátíðahöld í Gimli í Mani-
toba, en þá verður þess minnst að
100 ár eru liðin frá því að fýrsti
„íslendingadagurinn“ var hald-
inn hátíðlegur. Áf því tilefni verða
þriggja daga hátíðahöld í Gimli.
Flogið verður til Winnipeg um
mánaðamótin júlí-ágúst og gist
þar fyrstu næturnar. Síðan er
ferð um Nýja ísland á dagskrá,
farið á hátíðahöldin í Gimli og
margt fleira skoðað á þriggja
vikna ferð um landið. Fjöldi þátt-
takenda í ferðinni getur orðið 45.
Upplýsingar um þessa ferð veitir
Agnar Guðnason hjá Stéttar-
sambandi bænda. EHB
Póstur og sími:
Gera athugasemd við frétta-
flutning af faxkröfum
Póstur og sími hefur gert
athugasemd við fréttaflutning í
fjölmiðlum af faxkröfum sem
er ný þjónusta stofnunarinnar.
Þessi þónusta var tekin upp að
ósk Félags íslenskra stór-
kaupmana og Landvara, lands-
félags vörubifreiðastjóra á
flutningaleiðum. í tilkynningu
frá Pósti og síma segir að þessi
nýja þjónusta eigi alls ekki að
koma í stað gildandi póst-
kröfuþjónustu þar sem hægt er
að senda hvort heldur sem er
bréf eða böggla með áhvílandi
póstkröfu.
„Munu forráðamenn Landvara
hafa lýst því yfir á blaðamanna-
fundi miðvikudaginn 18. þessa
mánaðar að þeir hefðu orðið var-
ir við mikla óánægju landsbyggð-
arfólks með verðlagningu Pósts
og síma á faxkröfusendingum. Á
fundum með Pósti og síma var
Landvaramönnum gert ljóst hver
kostnaður við faxkröfur yrði og
var fallist á þá verðlagningu.
Jafnframt var tekið fram að gjald
þetta væri meðaltalsgjald iniðað
við gjald fyrir póstfaxþjónustu og
það yrði endurskoðað þegar
reynsla væri komið á þjónustuna,
ef ástæða þætti til. Að þeirri
endurskoðun er nú unnið,“ segir
í tilkynningunni. JOH
Akureyrarmót B.A.:
Anton og Pétur efstir
Nú er einungis fimm umferð-
um ólokið í Akureyrarmóti
Bridgefélags Akureyrar í tví-
menningi. 26 pör taka þátt í
mótinu og eru spilaðar fimm
umferðir á kvöldi, fimm spil
milli para, eftir Barometer-
fyrirkomulagi.
Staðan að loknum 20 umferð-
um er þessi: Stig
1. Anton Haraldsson -
Pétur Guðjónsson: 173
2. Hörður Steinbergsson -
Örn Einarsson: 161
3. Ólafur Ágústsson -
Sveinbjörn Jónsson: 149
4. Magnús Aðalbjörnsson -
Pétur Jósepsson: 118
5. Reynir Helgason -
Tryggvi Gunnarsson: 100
6. Kristján Guðjónsson -
Stefán Ragnarsson: 90
7. -8. Ármann Helgason -
Arnar Daníelsson: 58
7.-8. Gunnlaugur Guðmundsson -
Kristinn Kristinsson: 58
9.-10. Grettir Frímannsson -
Frímann Frímannsson: 36
9.-10. Jón Smári Friðriksson -
Páll H. Jónsson: 36
Öll spil eru tölvugefin. Keppnis-
stjóri er Albert Sigurðsson en tölvu-
útreikning annast Margrét Þórðar-
dóttir. Næstu fimm untferðir fara
fram þriðjudaginn 7. febrúar.
Spilamennskan hefst kl. 19.30 í
Félagsborg.
NYJUSTU FRETTIR
AF METSÖLUBÓKINNI
í LANDSBANKANUM:
RAUNÁVÖXTUN KJÖRBÓKAR
VAR FRÁ 8,57%
Á ÁRINU 1988
Já, það kemurmörgum á óvart að óbundin ávöxtunarleið
eins og Kjörbók skuli bera slíka raunávöxtun.
En ástæðan er samt einföld.
Kjörbókin er sveigjanleg í allar áttir og höfundar hennar
í Landsbankanum taka sífellt með í reikninginn
breytilegar aðstæður. Þannig ber Kjörbók
háa grunnvexti, ávöxtunin er reglulega borin saman
við verðtryggða reikninga og þeir sem eiga lengi inni
eru verðlaunaðir sérstaklega með afturvirkum
vaxtaþrepum eftir 16 og 24 mánuði.
Raunávöxtun Kjörbókar árið 1988 var 8,57%.
Þeirsem átt höfðu innstæðu óhreyfða í 16 mánuði fengu
9,92% raunávöxtun á árinu og 24 mánaða óhreyfð
innstæða gaf 10,49% raunávöxtun á sama tíma.
Þér er óhætt að leggja traust þitt og sparifé
á Kjörbókina strax. Hún bregst ekki frekar en fyrri daginn.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna