Dagur - 04.02.1989, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 4. febrúar 1989
„Keifisþrœlkun og taktgöngu-
rœlsnótlur eru aauðadómur
yfir öllum sönnum húmanisma"
— Guðmundur Sigurður Jóhannsson QBttfrœðingur ó Sauðórkróki í helgarspjalli
um lífið og tilveruna, cettfrceði og sjólfan sig og taiar Guðmundur tœpifungulaust
jmm ttfræöi er grein sem sí-
VI fellt fleiri og fleiri ís-
lendingar fá áhuga fyr-
# !■ ir og undanfarin ár
hafa vinsældir hennar stöðugt
farið vaxandi. Fróðir menn
segja að sú löngun hafi löngum
blundað með Islendingum að
forvitnast um uppruna sinn og
skyggnast inn í heim forfeðra
sinna. Sumir menn eru þeim
hæfileika gæddir að geta þulið
upp ættir sínar langt aftur, án
þess að skeika. Aðrir ganga enn
lengra og sökkva sér niður í að
rekja ættir manna, af einskær-
um áhuga. Blaðamaður Dags
vissi af einum slíkum og ákvað
að mæla sér mót við hann. Það
er Guðmundur Sigurður Jó-
hannsson á Sauðárkróki, sem
undanfarin ár hefur unnið á
Héraðsskjalasafni Skagfirðinga
við skráningu Skagfirskra ævi-
skráa. Guðmundur hefur unnið
að fjórum bindum af fimm, og
er að vinna að sjötta bindinu
um þessar mundir. En það er
ekki bara ættfræði sem er hjart-
ans mál Guðmundar, hann á
mörg önnur áhugamál og talar
tæpitungulaust í þessu viðtali.
Mynd og texti:
Björn Jóhann Björnsson
Er blaðamaður hitti Guömund á
Héraðsskjalasafninu fyrir skömmu
var hann önnum kafinn við störf sín,
en gaf sér þó tíma til að ræða við
komumann. Eins og öll góð viðtöl
byrja á, þá skulum við fyrst fá upp-
runa Guðmundar og gefum honum
orðiö:
Snemma gerðist ég
kjaftfor og stríðinn
„Ég er fæddur suöur í Keflavík 15.
júlí 1958, en mest af norðlensku og
vestlensku bergi brotinn. Foreldrar
mínir slitu samvistum þegar ég var
fárra ára, én höfðu áður eignast sam-
an annað barn, stúlku, sem nú er
búsett í San Diego í Kaliforníu.
Föðurforeldrar mínir, Guðmundur
Halldórsson og Klara Lárusdóttir.
tóku rnig í fóstur þegar pabbi og
mamrna skildu og ólst ég upp hjá.
þeim að öllu lcyti eftir það og hef
reyndar svo til alla ævi átt heimili hjá
þeint. Snemma gerðist ég baldinn og
uppátækjasamur, skapstór og
þrjóskur, kjaftfor og stríðinn, og var
oft erfiður mínum góðu fósturfor-
eldrurn. í Keflavík sleit ég barns-
skónum og lauk þar landsprófi með
ósköpum árið 1974. Næsta ár stund-
aði ég nám í Menntadeild Gagn-
fræðaskóla Keflavíkur undir handar-
jaðri þess mæta manns, Péturs Gauts
Kristjánssonar. Ég hafði reyndar
verið rekinn úr þeinta sama skóla rétt
fyrir vorpróf árið áður vegna mjög
mergjaðrar skammargreinar, sent ég
ritaði um skólameistara. Ég lærði svo
í Menntaskólanum við Hamrahlíð
næstu þrjá vetur, en þaðan útskrifað-
ist ég á vorönn árið 1978 af svoköll-
uðu fornmálasviði, þar sem uppi-
staðan í nántinu var gríska og latína.
Eftir stúdentspróf vann ég almenn
störf til sjós og lands á Suðurnesjum,
m.a. í því sálaða Hraðfrystihúsi
Keflavíkur. „Störu-Milljón", og uni
hríð kenndi ég af bölvun ntinni
íslensku við þann sania skóla sem ég
hafði verið rekinn úr fimm árum
áður, þ.e. Gagnfræðaskóla Keflavík-
ur.‘‘
Hverjum manni hollt
að breyta um umhverfi
- Hvað varð til þess að þú ílentist
hér í Skagafirði?
„Ég kom hingað í sumarleyfi með
afa mínum og ömmu árið 1981. Við
héldum til á tjaldstæðinu á Sauðár-
króki og er iíða tók að verslunar-
mannahelgi var ég orðinn blankur og
sá þá frant á tvo valkosti, annan þann
að neyðast til þess að vera edrú yfir
helgina, sem er voðalegur hlutur, og
hinn þann, að ganga til verks. Tók ég
betri kostinn, labbaði út á Eyri og
fékk vinnu í Fiskiðjunni. Með því
var mér ljóst að hverjum manni er
hollt að breyta um umhverfi öðru
hverju og kynnast nýju fólki, en ég,
búinn að lifa og starfa í Keflavík alla
mína ævi, tók þá ákvörðun að
setjast að á Sauðárkróki um tíma og
reyna að vinna mér þar sess. Það sem
stuðlaði hvað mest að því að ég tók
þessa ákvörðun, var hversu geysigóð
aðstaða til fræðiiðkana er hér á Hér-
aðsskjalasafni Skagfirðinga, en ég
var búinn að ganga með ættfræði-
bakteríuna í mörg ár og þar ofan á
mikið kynjaður héðan úr Héraðinu.
Fyrstu vikurnar sem ég vann í Fisk-
iöjunni, hafðist ég við í tjaldinu og'
var heldur en ekki gert grín að mér
fyrir vikið. Síðar fékk ég til afnota
húsnæði að Suðurgötu 1, í gömlu
Síberíu, sem nú er búið að færa upp
á Skógargötu, og enn síðar tóku afi
og amma sig upp og fluttust hingað
tiorður og fékk ég þá inni hjá þeim,
eins og áöur hafði verið. Vann ég í
fiski fyrstu árin hér og grúskaði í
frístundum mínum í eigin ætt hér á
Safninu, en síðar þróuðust málin á
þann veg, að Sögufélag Skagfirðinga
réði mig til þess að rita Skagfirskar
æviskrár. Hef ég síðan haft þann
starfa á vetrum, auk þess sem ég hef
haldið ættfræðinámskeið við Öld-
ungadeild Fjölbrautaskólans á Sauð-
árkróki, en á suntrin og haustin hef
ég yfirleitt stundað verkamanna-
vinnu suður með sjó. þar sem ég á
fjöldan allan af vinafólki, enda fædd-
ur þar og uppalinn."
Var kominn á kaf
í ættfræði um fermingu
- Hvernig er þessi ættfræðiáhugi
kominn íil hjá þér, er þetta eitthvað
sem hefur lifað með þér alla tíð?
„Ég fékk þennan áltuga ntjög
snemma. Eins og ég sagði ólst ég upp
hjá föðurforeldrum mínum og þar á
heimilinu var einnig gömul kona,
systir ömrnu. Þetta fólk sagði mér oft
sögur af fólki sem þau þekktu eða
heyrðu talað um á fyrri tíð, þá ekki
síst sínum eigin ættmennum. Þetta
varð kveikjan að mínum ættfræði-
áhuga. Þá unigekkst ég mikið á ungl-
ingsárum langömmusystur ntína,
Guðnýju Sveinsdóttur, sem var fróð
kona og minnug og hið mesta val-
kvendi í alla staði, svo og heiðurs-
manninn Ólaf Sigurjónsson frá Litla-
Hólmi j Leiru, fróðan mann og
glöggan og engan veifiskata, sem alla
stund hefur verið ntikiil áhugamaður
um ættfræði. Urðu kynni mín af
þessum gamalmennum til þess að
glæða áhugann enn meira. Það sýnir
raunverulega hversu snemma ég var
kominn á kaf í ættfræði og þjóðlegan
fróðleik. að skömmu eftir fermingu
var ég farinn að taka sögur eftir
Guðnýju og Óla upp á segulband. Þá
spillti ekki fyrir að ég komst ungur í
kynni við Skúla Þór Magnússon
fræðavíking í Keflavík, sent er mikill
unnandi allrar þekkingar. Það mun
hafa verið seinnipart árs 1973, að ég
kom fyrst á Landsbókasafn og Þjóð-
skjalasafn í leit að ættfræðilegri vitn-
eskju og upp úr því fór ég að venja
þangað komur mínar, skjalavörðum
til mikillar hrellingar. Þá vetur sem
ég var við nám í Menntaskólanum í
Hamrahlíð grúskaði ég þar öllum
stundum, þegar næði gafst frá
drykkju og nánti. En það er fyrst nú,
þegar ég er orðinn innanbúðarmaður
hér á Héraðsskjalasafni Skagfirð-
inga, að ég er kontinn í hið sanna
gósenland ættfræðinnar, því það
mun vera eitthvert best útbúna hér-
aðsskjalasafn á landinu og er þar
aragrúi ættfræðiheimilda saman
kominn. Þá spillir ei, að bókavörður
og héraðsskjalavörður eru hinir
alúðlegustu og rækja embætti sín af
hugsjón fullkominni.“
Ættfræðin húmanísk
og aðlaðandi
- Hvað er svona heillandi við ætt-
fræðina, hvað er það sem dregur fólk
til að fara að grúska í ættfræði?
„Aðaldriffjörðin í ættfræðiáhuga
manna mun vera löngunin til þess að
leita uppruna síns og vita hvaða fólk
það var, sem að þeim stendur, og
hvernig það var. Þetta hefur verið
kallað að rækta tengslin við fortíð-
ina. „Að fortíð skal hyggja, ef fagurt
skal byggja/án fræðslu hins liðna sést
ei, hvað er nýtt", kvað Einar skáld
Benediktsson, og manni sem glatað
hefur tengslum við uppruna sinn,
hefur verið líkt við mann sem misst
hefur ntinnið. Þá má einnig segja að
ættfræðigrúsk sé eins konar söfn-
unarárátta. Ættrakningamenn safna
að sér þekkingarbrotum og raða
þeim upp í fastmótað aðgengilegt
kerfi. Því hefur verið slegið fram, að
ættfræðin sé móðir sagnfræðinnar, og
víst er um það, að ættfræði og per-
sónusaga eru það nátengdir hlutir, að
erfitt er að slíta annað frá hinu, svo
vel fari. Um leið og persónusagan
kemur inn í mýndina, fara þessi fræði
að verða ntjög húmanísk og aðlað-
andi. Mannskepnan er alltaf söm við
sig og í frásögnum af lífi og starfi
eldri kynslóða sjáum við hliðstæður
úr mannlífinu allt í kringunt okkur.
íslendingar eru nú einu sinni sagna-
þjóð og hafa á öllum öldum verið
snillingar í að beita penna, og það
eru alveg frábærlega spaugilegar
klausur sem maður getur rekist á í
ættfræðiheimildum. Skal ég nefna
hér eitt dæmi. Það er úr Eyrarannál,
en þar stendur þessi klausa við árið
1651: „Kom út Jón Jónsson frá
Skinnastöðum í Norðursýslu, sonur
séra Jóns þar, hafði varla með góð-
um prís í Kaupinhafn verið og komst
þar í slæmt mál, einnig síðar hér á
íslandi. Átti mörg börn í frijlUlífi og
sigldi síðast til Englands, gekk þar í
hóruhús og var af þeim geltur.“
(Annálar 1400-1800, III, bls. 266.)
Þá voru karlar hálshöggnir
og konum drekkt
fyrir hórdóm
En það er ekki allt fyndið eða
skemmtilegt sem maður rekst á í
fræðunum. Eitt er það sem slegið
hefur mig illilega við yfirlestur ætt-
fræðiheimilda, en það er hversu gíf-
urleg grimmd og harðneskja var á
fyrri ölduin sýnd því fólki, sem vann
sér það eitt til „sektar" að þjóna kalli
mannlegrar náttúru utan stokka
hjónarúmsins. Mann rekur í roga-
stans, að lesa um það að karlar skuli
hafa verið hálshöggnir, en konuni
drekkt, í refsingarskyni fyrir ítrekað-
an hórdónt, og ófáir karlmenn voru
líflátnir fyrir það að barna systur eig-
inkvenna sinna, þó f eingang væri.
Voru þessar refsingar lagðar á eftir
svokölluðum „Stóra-Dómi“, og er
hætt við að víða flyti blóð á. íslandi,
væri hann aftur í lög leiddur. En því
miður hefur verið til fólk á öllum
öldunt, sem fjandskapast gegn mann-
legri vellíðan og er það á meðal vor
enn þann dag í dag.“
- Segjum sem svo að einhver
maður út á götu fái allt í einu brenn-
andi áhuga á því að vita ættir sínar
langt aftur í fornöld. Hvað á sá mað-
ur að gera?
„Því er fljótsvarað. Hann á að
koma á ættfræðinámskeið til mín og
mun ég þá kenna honum það sem
hann þarf að vita.“
AUir núlifandi
íslendingar komnir af
tveimur mönnum
- Hvað er hægt að komast langt aft-
ur við ættrakningar?
„Með lagni og heppni er hægt að
rekja velflestar ættir aftur til 1703, en
það ár var fyrsta allsherjar manntal
tekið á íslandi. Sumar ættir er hægt
að rekja allt aftur til landnámsmanna
eftir skjallegum heimildum, og eftir
ættartölum er hægt að rekja ættir allra
núlifandi íslendinga til landnáms-
manna og frá þeim til Adams þess
sem Guð skapaði fyrstan allra
manna. I þeirn liðum sem liggja þar á
rnilli, má finna margt stórmennið,
s.s. Óðinn kóng, Nóa arkarsmið og
Príamus höfuðkonung í Tróju. En
slíkar rakningar flokkast nú fremur
undir afþreyingarbókmenntir en
sagnfræði. Því hefur verið slegið
fram, að allir núlifandi íslendingar
séu komnir af tveimur mönnum,
þeim Jóni Arasyni biskupi á Hólum
og Einar Sigurðssyni presti og skáldi
í Heydölum í Breiðdal, sem orti jóla-
sálminn „Nóttin var sú ágæt ein“. í
þeim tilvikum sem ég hef gert viða-
niiklar ættartölur, þar sem rekið er
aftur í 10. lið á alla vegu frá núlifandi
rnönnum, hefur það ekki brugðist að
einhverja leggi hefur mátt rekja upp
til þessarra manna. Veit ég ekki til
þess að framansögð kenning hafi ver-
ið afsönnuð og hygg ég hana vera
rétta. Fámennið gerir það að verkum