Dagur - 04.02.1989, Síða 9

Dagur - 04.02.1989, Síða 9
4. febrúar 1989 - DAGUR - 9 að íslendingar eru allir meira og minna skyldir og einangrun landsins hefur haft það í för með sér, að er- lend kynblöndun hefur verið ákaf- lega lítil hér, þar til á þessari öld.“ Hef ekki gaman af að umgangast fólk sem er hlekkjað í viðjar vana og smáborgaraháttar - Hvað með önnur áhugamál en ætt- fræði, er eitthvað annað sem kemst að? „Eitt af mínum helstu áhugamál- um eru neysla áfengis, hass og amfeta- míns á góðurn stundum. í vímunni skapast líkamleg vellíðan og andlegt upphafningarástand, sern gerir það að verkum að maður nýtur betur ýmissa andlegra gilda. svo sem tón- listar, kveðskapar og þess sem augað gleður, svo og mannlegra samskipta. Pá kynnist maður gegnunr framan- sagt taugakerfisföndur fjöldanum öllum af skemmtilegum og litríkum persónuleikum, sem maður myndi trauðla komast í kynni við ella. Enn- fremur hef ég gaman af tónlist, þá einkum popp- og rokktónlist, svo og þjóðlögum og ættjarðarlögum, sem oft eru tekin við skál í réttum og á hestamannamótum. Einnig hef ég gaman af hefðbundnum íslenskum kveðskap og set reyndar stundum saman sjálfur, þegar andinn kemur yfir mig. Þá má tína það til, að ég hef gaman af ferðalögum og því að umgangast hresst fólk, og þá fólk sem sker sig eitthvað úr, ekki fólk sem hlekkjað er í viðjar vana og smáborgaraháttar.“ Búum við besta almannatryggingakerfi í heimi Hvað með þjóðmál, hefur þú ein- hverja skoðun á íslensku þjóðfélagi? „Aður en ég fer að setja út á það, sem miður er, vil ég byrja á því að geta þess sem vel er um íslenskt þjóðfélag. Við búum hér við ein- hverja bestu samtryggingu og almannatryggingakerfi í heimi og hygg ég að engin þjóð standi okkur framar í þessu efni, nema e.t.v. Svíar. Þetta er ekki svo lítill hlutur. ef gerður er samanburður við önnur lönd. Víða erlendis er það fólk sett á guð og gaddinn - eða svo til - sem sakir elli eða örkumlunar getur ekki framfært sig, og það er leitun að því landi þar sem læknisþjónusta er greidd eins mikið niður og hér. Þetta mætti nrargur íhuga, sem prísar dýrð útlandanna, en finnst allt að öllu hér heima. Vitaskuld eru greiðslur til elli- lífeyrisþega og einstæðra foreldra smánarlega lágar, en betra er þó að fá einhvern lífeyri en engan.“ Það að taka áhættu er mjög þroskandi En livað með það slæma í þessu þjóðfélagi? „Já, þá vil ég víkja að ranghverf- unni. Ber þar fyrst að nefna mjög ískyggilega þróun sem á sér nú stað um allan hinn vestræna heim. Hún felst í þe.irri viðleitni möppudýra kerfisins að steypa okkur öll í staðl- aða mynd og líða lítil frávik til orðs og æðis, en gefa því fólki sjúkdóms- stimpil, sem lætur eftir ástríðum sínum. Það eru grundvallar mann- réttindi, að hver einstaklingur hafi rétt til lífs og rétt til þess að ráðstafa lífi sínu að eigin geðþótta og leita hamingjunnar eftir þeim leiðum, sem hann sjálfur kýs, að því tilskildu að hann geri ekki á hluta annarra eða stofni þeim í ótvíræða hættu. í þessu felst að einstaklingurinn hefur fullan rétt á því að taka þá áhættu, sem hann vill, á eigin lífi og limum. Það að taka áhættu er mjög þroskandi, því sá tekur litlum framförum sem aldrei reynir neitt á. Því miður eru framansögð mannréttindi þverbrotin í íslensku þjóðfélagi. í fyrsta lagi eru hér leyfðar fóstureyðingar á „félags- legum forsendum“. í öðru lagi er fólki bannað að neyta annarra vímu- gjafa en áfengis, svo sem hass og amfetamíns, sér til gleði og jákvæðra hughrifa. Og fyrir það þriðja eru menn skyldaðir til þess að tjóðra sig eins og hunda þegar þeir ferðast urn í bifreiðum. En það þarf kannski eng- an að undra þótt hérlendir valdhafar hafi forgöngu um slík mannréttindi, þar sem þeir háu herrar virðast ekki telja sér skylt að virða mannréttinda- ákvæði stjórnarskrárinnar nema eft- ir dúk og disk, sbr. bók Jóns Steinars Gunnlaugssonar „Deilt á dómar- ann“. Farið að skilgreina allar mannlegar ástríður sem sjúkdóma í Sovétríkjunum var lengi lenska að úrskurða þá menn geðsjúka, sem sýndu 'sjálfstæði í hugsun og breytni, en neituðu að undirgangast kerfis- þrælkun og taktgönguræfilshátt. Sömu aðferð var og reynt að beita við Jónas Jónsson dómsmálaráð- herra frá Hriflu, þegar hann gerðist áhrifamönnum þungur ljár í þúfu. Öll var þessi „sjúkdómsgreining", jafnt hér sem í Rússíá, að sjálfsögðu í fyllsta máta læknisfræðileg og hávísindaleg í úttali þeirra manna sem vildu klína á hina sjúkdóms- stimplinum í þeim tilgangi að fá þá svipta almennum mannréttindum. í Rússlandi var reynt að „lækna" hinn „sjúka" með heilaþvotti. Fæstir skyldu víst ætla að sjúkdómasmíð hliðstæð þessari ætti sér stað í vest- rænum þjóðfélögum, en þannig er því þó einmitt varið. Stöðugt færist í vöxt að skilgreina allar mannlegar ástríður sem sjúkdóma, sem þurfi meðfcrðar við. Ef fólk hefur mann- rænu á því að nytja boðefnaforða taugakerfis síns og láta sér líða vel við nautn áfengis, hass og amfeta- míns, er það brotalaust flokkað und- ir sjúkdóm og kveður svo rammt að, að nærri liggur að þetta sé orðinn hluti af trúarjátningu landsmanna. Hitt mun ekki eins kunnugt, að er- lendis er nú farið að skilgreina það fólk sjúkt, sem hneigist til ofáts, og ennfremur það fólk sem hneigist mikið til kynlífs. Eru þessum „sjúkl- ingum" settar meðferðir í stíl við þær sem neytendunr áfengis og annarra vímuefna er boðið upp á, að því að nrér er tjáð. Með sama áframhaldi verður ekki til sú hegðun eða mann- vera, sem sérfræðingastéttin getur ekki auðveldlega sjúkdómsgreint sem óeðlilega eða sjúka, ef hún sýnir frávik frá því staðlaða móti sem þjóðféiagskerfið vill troða upp á jafnt háa sem lága, sbr. bók Jóhann- esar Björns Lúðvíkssonar; „Skákað í skjóli Hitlers,” bls. 95. En kannski er þessi sjúkdómasmíð sérfræðinganna vcl skiljanleg í Ijósi þess, að menn hrinda ekki að öllu jöfnu af stað þeirri þróun sem fækkar atvinnutæki- færum þeirra. heldur einmitt það gagnstæða. Mannorðsþjófnaður framinn á fíkniefnaneytendum Á undanförnum árum er búið að fremja slíkan mannorðsþjófnað á fíkniefnaneytendum, aö engu tali tekur. Búiö er að innræta almenningi að útilokað sé að neyta hass og amfetamíns í hófi, að allri neyslu vímuefna hljóti alltaf að fylgja mis- notkun og vandamál og að vímuefna- neytendur séu allir með tölu, eða að minnsta kosti upp til hópa, veik- lundaðir og óábyrgir einstaklingar, trassar, ónytjungar, sjúklingar, ofbeldismenn og yfir höfuð niðurrifs- menn í mannlegu samfélagi. Þessu er sannarlega á hinn veginn farið. Það er aðeins örlítil prósenta af kannabis- og amfetamínsneytendum sem þessi lýsing gæti átt við, eða hlutfallslega jafnlítil prósenta og sú sem sama lýs- ing gæti að einhverju leyti átt viö í til- vikum áfengisneytenda. Meirihluti amfetamíns- og kannabisneytenda, sem og áfengisneytenda, hefur góða heildarstjórn á neyslu sinni, sem hann viðhefur með góðri tempran á góðri stundu, stundar lýtalaust atvinnu sína, er efnahagslega sjálf- bjarga, lifir meinlauslega við sam- borgara sína og rækir vel uppeldi barna sinna. Hef stundað neyslu á hassi og amfetamíni í 10 ár Þetta get ég fullyrt með góðri sam- visku, með því að nota þá fjölmörgu kannabis- og amfetamínsneytendur sem ég þekki persónulega, sem við- miðunarhóp. Þetta fólk hefur hlotið ranglátan dóm hjá almenningsálitinu fyrir það eitt, að vilja láta sér líða vel að eigin vali á góðum stundum og í friði við alla menn. Þó svo að sum dæmi minnihlutahóps fíkniefnaneyt- enda scu hörmuleg, þá cinkunr þeirra sem stunda sprautuneyslu. er það fráleitt að láta meirihlutann gjalda þess. Eða hvernig mundi mönnum lítast á, að öllum þeim, sem eitthvað fengjust viö áfengisncyslu á lífsleiðinni, væri gefinn Hafnarstrætis- rónastimpill af almenningsálitinu, svo samanburöardæmi sé tekið? Sjálfur hef ég stundað neyslu á hassi og amfctamíni liátt í tíu ár, jafnhliða áfcngisneyslu, vel að merkja í höfi, og cr ég því hér ekki fjarri fregn, en það er meira heldur en hægt er að segja um marga þá, sem fjallað hafa um þessi mál í fjölmiðlum. Neysla á hassi og amfetamíni hcldur áfram að aukast Stórskáldið Stephan G. Stcphanson tók fyrir á eftirminnilegan liátt, til- hneigingu almenningsálitsins til þess að „stimpla" og brjóta þá niður sem skera sig úr og fara sínar eigin leiöir. í kvæði sínu um Jón hrak dregur hann þar upp átakanlega. en því miður raunsanna mynd, af því hversu geysilegan niðurrifsmátt almenningsálitiö hefur. Stórskáldið Bólu-Hjálmar tekur og fordóma og stimplagjafir skemmtilega fyrir í þessari stöku:“ Lastaranum líkar ei neitt, ■ lætur hann ganga róginn, finni hann laufhlað íölnad eitt. pá fordæmir hann skóginn. - Hvcr finnst þér að verði fram- tíðin á íslandi, hvað varðar fíkni- efnamál? „Þaö er nú svo, þrátt fyrir fimbul- famb fíkniefnalögreglu og lieila- þvættinga, að fólk heldur sínu*itriki og lætur ekki hræra í sér og segja sér fyrir verkum. Neysla á hassi og amfetamíni heldur áfram aö aukast á íslandi, sem og annars staðar í hinum menntaða heimi. Sannast þar hið fornkveðna, að það kenrur fyrir lítið að níða góðu hlutina niður, því þeir mæla með sér sjálfir. Og ckki er ég frá því, að niðjár okkar muni eftir þrjú hundruð ár líta þá til fíkniefna- löggjafar, sem við búum við í dag, hliðstæðunr augum og við nútíma- menn hrossakjöts- og hórdómslög- in, sem forfeður okkar urðu að búa við fyrir þrjú hundruð árum síðan.” Það sem einum hæfír vel, hæfír öðrum miður Eitthvað að lokum, Guðmundur? „Að lokum vil ég segja þetta, í framhaldi af framansögðu. Einstakl- ingar eru ekki steyptir í sama mót frá náttúrunnar hendi og eru meira og minna ólíkir innbyrðis. Það sem ein- urn hæfir vel, hæfir öðrum miður o.s.frv. Því það er einhver mesta fá- sinna, sem fæðst hefur í mannlegum heila, að reyna að steypa alla ein- staklinga í sama staðlaða rnótið, en skilgreina þá sjúku eða óeðlilegu. sem ekki falla inn í þann ramma. Svo verður mannlífið fegurst og tilbreyt- ingaríkast, að hver og einn fái að njóta sinna sérkenna, en kerfisþrælk- un og taktgönguræfilsháttur eru dauðadómur yfir öllum sönnum húmanisma."

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.