Dagur - 04.02.1989, Síða 16
Kveikjuhlutir í úrvali
þÓRSHAMAR HF.
Við Tryggvabraut ■ Akureyri ■ Sími 22700
Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga
á Þórshöfn í erfiðleikum:
Skuldar félagið
röskar 500 milljónir?
- Enn á ný deila menn um réttmæti
breytinga Stakfellsins í frystiskip
Miklir erfiðleikar blasa nú við
Utgerðarfélagi Norður-Þing-
eyinga á Þórshöfn. Atvinnu-
tryggingarsjóður hefur hafnað
umsókn félagsins um lán úr
sjóðnum og segir Gunnar
Hilmarsson formaður sjóðsins
að óöruggur rekstrargrund-
völlur skipti mestu þar um.
Hann segir félagið of skuldugt
og eigið fé þess of lítiö tii að
réttlætanlegt hafi verið að lána
Útgerðarfélaginu fé.
Reikningar fyrir árið 1988 hafa
ekki verið lagðir fram, þannig að
heildarskuldir fyrirtækisins eru
enn óskrifað blað. Samkvæmt
heimildum blaðsins eru þær þó
rösklega 500 milljónir króna, en
við gengisfellinguna í ársbyrjun
hækkuðu skuldir félagsins um 30
milljónir króna. Stærstu skuldu-
nautar félagsins eru Landsbank-
inn, Ríkisábyrgðarsjóður og
Helgarveðrið:
Snjókoma af
öllum áttum
- kaldir vindar
Byggðasjóður. Útgerðarfélagið
gerir út tvö skip, Stakfellið, sem
er frystiskip, og Súlnafellið sem
keypt var til að afla hráefnis fyrir
fiskvinnsluna.
Að Útgerðarfélaginu standa
Kaupfélag Langnesinga, Þórshöfn,
sem á 52% hlut í fyrirtækinu,
Þórshafnarhreppur sem á 23%,
Hraðfrystistöð Þórshafnar á
einnig 23% hlut og Svalbarðs-
hreppur 2%. Þegar Stakfellinu
var breytt í frystiskip, í apríl-maí
árið 1987, risu um það allnokkrar
deilur og voru heimamenn ekki á
einu máli um breytingarnar. Þeir
sem fiskvinnslumegin standa
töldu stefnuna ranga og bentu á
að upþhaflega hafi skipið verið
keypt til að afla hráefnis fyrir
vinnsluna, en meirihluti stjórnar
ÚNÞ - kaupfélagsmcnn, töldu
útgerðina tapa stórfé vegna
skorts á alfrystibúnaði. Nú deila
menn enn um réttmæti breyting-
anna, og sagði einn heimildar-
manna blaðsins að tímaspursmál
væri hvenær staðurinn missti
báða togarana. Þórólfur Gíslason
stjórnarformaður ÚNÞ sagði lín-
ur skýrast eftir örfáar vikur varð-
andi hvað gert yrði í málum
félagsins, en vildi að öðru leyti
ekki láta hafa neitt eftir sér um
málið. mþþ
Gestur Davíðsson og Ingólfur Gíslason, bakarar hjá Brauðgerð KEA, með fullan bakka af bollum, hreyknir á svip.
Mynd: TLV
Bolludagurinn framundan:
Hundrað þúsund bollur
ofan í Akureyringa
Þá er bolludagurinn framund-
an og á mánudaginn mun land-
inn llykkjast í bakaríin. Undir-
búningur bolludagsins hófst sl.
miðvikudag hjá flestum brauð-
gerðum og verður unnið stans-
laust yfir helgina.
Hjá Brauðgerð KEA verða
bakaðar 35-40 þúsund bollur og
er það öllu meira en í fyrra. Að
sögn bakarameistara KEA eru
bollurnar alltaf að stækka ár frá
ári og að sjálfsögðu einnig betri
og betri ár frá ári. Hjá Kristjáns-
bakarí verða bakaðar um 40 þús-
und bollur, sem er svipað magn
og í fyrra. Einarsbakarí ætlar að
baka um 20 þúsund bollur, þann-
ig að gera má ráð fyrir að Akur-
eyringar og nærsveitamenn inn-
byrði hátt í 100 þúsund bollur að
þessu sinni, svo ekki sé minnst á
allar heimabökuðu bollurnar.
Það þarf svo vart að taka það
fram að bakarameistarar sögðust
nota ekta rjóma og ekta súkku-
laði í bollurnar, þannig að enginn
ætti að verða vonsvikinn. Svo er
bara ykkar að dæma, en að lok-
um: Verði ykkur að góðu. -bjb
Akureyri:
Nokkur fyrirtæki og einstakl-
ingar kaupa Hótel Varðborg
- Miklar endurbætur framundan á hótelinu sem fær nafnið Hótel Norðurland
„Það munu kaldir vindar blása
um Norðlendinga um helg-
ina," sagði Einar Sveinbjörns-
son veðurfræðingur, aðspurð-
ur um helgarveðrið. Á laugar-
dag verður all hvöss noröanátt
meö snjókomu eða éljum. Á
sunnudag snýst vindur í suö-
austan eða austanátt með
snjókomu undir kvöldið. Hita-
stig á laugardag veröur á bil-
inu 4-10 stig í mínus en eitt-
hvað hlýrra verður á sunnu-
dag. -bjb
Janúar
afar úr-
komusamur
Úrkomu- og umhleypinga-
samur janúarmánuður er að
baki. Úrkoma í mánuðinum
mældist 94.1 stig á Akureyri
sem er tvöföld meðalúr-
koma í janúar.
Meðalhitinn mældist 1.1.
stig og er aðeins yfir meðallag-
inu. Trausti Jónsson í veður-
farsdeild Veðurstofu íslands
segist ekki hafa sólskinsstund-
irnar á hreinu enn, en þær
muni vera afar fáar.
Vindhraði fór mest upp í 8
vindstig þann 7. janúar og
sagði Trausti að mánuðurin
hefði ekki verið hvassviðra-
samur, en óhætt að fullyrða að
umhleypingasamur hefði hann
verið.
Mest frost mældist 10.7 stig,
en þó janúar væri mældist ein-
nig 10.6 stiga hiti hinn 31.
janúar. mþþ
Nokkur fyrirtæki og einstakl-
ingar í ferðamannaiðnaðinum
á Akureyri hafa keypt Hótel
Varðborg af fyrirtækjum
IOGT á Akureyri. Á meðal
kaupenda eru Ferðaskrifstofa
Akureyrar og Flugfélag
Norðurlands og að sögn Gísla
Jónssonar hjá FA verður
endanlega gengið frá stofnun
hlutafélags um kaupin í næstu
viku en hinir nýju eigendur
hafa þegar tekið við hótelinu.
„Við tókum bara við til að
loka, því framundan eru miklar
endurbætur á húsnæðinu, bæði
að utan og innan. Það þarf að
skipta um allt gler í húsinu,
skipta um hurðir, innréttingar og
teppi, mála og gera ýmsar þær
bætur sem þarf til þess að þetta
geti talist nútímalegt hótel. Þarna
eru 30 herbergi en við stefnum að
því að opna hótelið á ný um
miðjan apríl og þá undir nafninu
Hótel Norðurland, sem var nafn-
ið á hótelinu áður en það fékk
nafnið Hótel Varðborg," sagði
Gísli ennfremur.
Aðspurður sagði Gísli það
ekki vera efst á óskalistanum að
selja vín á hótelinu. „En við
munum engu að síður sníða
reksturinn eftir þeim kröfum og
óskum sem koma upp þegar gest-
irnir fara að streyma inn. Það er
ekki meiningin að setja þarna
upp matsölustað, heldur að
þjóna fyrst og fremst stærri hóp-
um sem vilja borða þarna og geta
þá fengið léttvín og öl með
matnum."
Gísli sagði rekstur Hótels
Norðurlands samræmast mjög
vel rekstri Ferðaskrifstofu Akur-
eyrar og auka möguleika skrif-
stofunar til muna. „Við höfum
nokkra reynslu í svona rekstri því
við höfum rekið sumarhótel að
Þelamörk undanfarin tvö sumur
en það leggst nú af,“ sagði Gísli
Jónsson. -KK
Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráðherra,
um fréttaflutning Dagblaðsins Vísis sl. miðvikudag:
Yfírgengilegar rangfærslur
og lygi í loðdýragrein DV
Á fundi í Hlíðarbæ í fyrra-
kvöld fór Steingrímur J. Sig-
fússon, landbúnaöarráðherra,
ófögrum orðum um frétta-
flutning DV sl. miðvikudag af
þeim aðgerðum sem ríkis-
stjórnin hefur ákveðið til að
styðja við bakið á loðdýra-
ræktinni. DV segir í forsíðu-
frétt af málinu að í þeim felist
ríkisstyrkur upp á rúman hálf-
an milljarð króna. Fyrirsögnin
á forsíðu er eftirfarandi:
„Styrkurinn nemur fjórföldum
árstekjum greinarinnar.“
Landbúnaðarráðherra sagði
svo grófar mistúlkanir í frétt DV
af málinu að engu tali taki.
„Blaðið hefur skrifað um þetta
margar fréttir undanfarna daga
og birt langa fréttaskýringu. um
málið. I henni er meiru logið til
en ég hef nokkru sinni áður séð.
Þær 55 milljónir króna sem
ákveðið hefur verið að ríkið leggi
beint til loðdýraræktarinnar í
formi niðurgreiðslu á fóðurverði
eru í meðförum DV orðnar að
hálfum milljarði króna. Þetta er
satt best að segja svo yfirgengileg
meðferð á tölum og svo margar
rangfærslur í einni grein að mér
er til efs að DV hafi getað ráðið
sér svona vitlausan blaðamann.
Það hljóta að læðast að mér
nokkrar efasemdir um að maður-
inn sé ekki svona gjörsamlega
mislukkaður á sínu sviði og þetta
geti allt verið óviljandi rangtúlk-
að,“ sagði Steingrímur J. Sigfús-
son. óþh