Dagur - 11.02.1989, Síða 1
fjArmál ÞlN
SÉRGREIN OKKAR
TJARFESTINGARFELAGID,
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Aðstandendur „Ein með öllu ’88“ í vondu máli:
Söluskattur af aðgöngumiðum á Mel-
gerðismelum í sumar í vanskihun
Mál sem snertir einstakling
ana sem stóðu að útihátíðinni
að Melgerðismelum í sumar
„Ein með öllu“ er nú til rann-
sóknar hjá skattrannsóknar-
stjóra ríkisins. Hér er um að
ræða mál vegna vangoldins
söluskatts sem bæjarfógetinn á
Akureyri sendi ríkissaksókn-
ara til meðferðar og hann hef-
ur nú sent skattrannsóknar-
stjóra til frekari umfjöllunar.
Framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar kannast ekki við þetta mál,
en vararíkissaksóknari, Bragi
Steinarsson er ekki á sama
máli.
„Þetta er hreint og klárt sölu-
skattsmál og ekki deilt um
annað, þar sem ekki hefur verið
staðið í skilum á innheimtum
söluskatti. Okkur voru sendar
lögregluskýrslur um þetta frá
Akureyri og hér var um einhverj-
ar fúlgur að ræða, að mig minnir
á þriðju milljón króna. Á þessu
móti höfðu verið innheimtar fé-
fúlgur sem ráðstafað var með
öðrum hætti en að skila því á
þann stað sem það átti að fara.
Þetta sætir skattalegum viðurlög-
um samkvæmt söluskattslögum.
Málið fór, að við teljum, rétta
leið til skattrannsóknarstjóra eins
og skattalög kveða á um og bæj-
árfógetinn á Akureyri fékk afrit
af bréfi þess efnis.“
- ríkissaksóknari hefur vísað málinu til skattrannsóknarstjóra
Skattamál eru sérvettvangur,
bæði hvað varðar rannsókn og
viðurlög. Skattrannsóknarstjóri
er úrskurðaraðili, eða nokkurs
konar dómstóll í skattamálum
sem kveður á um skattaviðurlög
eins og hver annar dómstóll. Síð-
an geta báðir aðilar kært úrskurð
skattrannsóknarstjóra til ríkis-
skattanefndar ef þannig ber við.
Um 4000 manns lögðu leið sína
á útihátíðina í suniar og greiddu
tæþlega 3000 manns fullt að-
göngumiðaverð, að sögn að-
standenda. Miðaverðið var 4500
krónur og samkvæmt því áttu
aðstandendur að greiða um 2,7
miljónir króna til bæjarfógetans á
Akureyri fyrir 25. september
1988.
Ómar Pétursson framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar segist ekkert
kannast við að má! þetta hafi ver-
ið sent ríkissaksóknara til
umfjöllunar. Hann segir ekkert
til í því að söluskattur hafi ekki
verið greiddur, þó þeir séu enn í
einhverri skuld. „Það er verið að
leysa þetta og það verður leyst.
Þetta fer aldrei það langt að þetta
'verði eitthvert mál,“ sagðiómar.
Almennt mun farið með mál af
þéssu tagi þannig, að ef skuldir til
fógeta eru ekki greiddar eru
reyndar allar hugsanlegar inn-
heimtuleiðir. Heimilt er að gera
lögtak vegna vanskila á söluskatti
auk ýmissa annarra leiða sem lög
leyfa að séu notaðar til inn-
heimtu. Ef slíkar aðferðir bera
ekki árangur og engu er að ná,
getur athæfið verið refsivert, það
er þá sent saksóknara til frekari
rannsóknar eða meðhöndlunar.
VG
Athugun Hollustuverndar á þorrablótsmat
á Dalvík og Árskógsströnd:
Matareitrun vegna Oostrídium
Perfiringens og BaciDus Cerius
- fundust í sýni sem tekið var úr hangikjötsafgöngum
Athugun Hollustuverndar rík-
isins á þorramatssýnum frá
þorrablótum á Dalvík og
Árskógsströnd um síöustu
helgi hafa leitt í Ijós aö í hangi-
Einn á báti.
Mynd: TLV
kjöti sem boðið var þar upp á
hafi verið bakteríurnar Clostri-
dium Perfringens og Bacillus
Cerius. Báðar þessar bakteríur
geta valdið matareitrun og eru
af svipuðum toga. Heilbrigðis-
eftirlit Eyjafjarðar fékk stað-
festingu um þessa greiningu frá
Hollustuvernd í gær.
Tekin voru nokkur sýni úr mat
frá veitingastaðnum sem útbjó
þorramatinn. Um er að ræðasýni
úr hangikjötsrúllum, sem voru
óhreyfðar í kæli, og súrmat. Þá
voru tekin sýni úr hangikjötsaf-
göngum á einu blótanna. Sam-
kvæmt athugunum Hollustu-
verndar reyndist ekkert athuga-
vert við óhreyfðu hangikjötsrúll-
urnar eða súrmatinn. Nefndar
bakteríur fundust hins vegar í
hangikj ötsafgöngunum.
Valdimar Brynjólfsson, hjá
Heilbrigðiseftirliti Eyjafjarðar,
segir að þessar niðurstöður stað-
festi að bakteríurnar tvær eigi
sök á matareitruninni sem fjöldi
þorrablótsgesta fékk. „Við mun-
um því reyna að leita skýringa á
því hvernig þetta hefur getað
gerst. En eftir stendur að kæling-
in á kjötinu hefur ekki verið
nægileg í þetta skipti, og er
reyndar sjaldan á þorrablótum,
kjötið er sett í bakka og er of
lengi geymt í herbergishita. Rétt
er að taka fram að þó að svona
bakteríur finnist í matvöru þurfa
þær ekki endilega að leiða til
matareitrunar, nema að fjöldi
þeirra sé verulegur. Við ónóga
kælingu getur slíkt skeð,“ segir
Valdimar. Hann segir hugsanlegt
að bakteríurnar hafi borist á milli
með þeim hníf sem var notaður
til að sneiða rúllurnar niður. Þá
er mögulegt að þær hafi verið á
skurðarborðinu, „en þetta viljum
við ekki staðfesta ennþá,“ segir
Valdimar.
Hollustuvernd mun gera nán-
ari athugun á sýnunum, m.a.
skoða hversu mikið er af bakterí-
unum í hverju grammi af kjöt-
inu. Síðan munu fulltrúar Heil-
brigðiseftirlitsins kynna sér með
eigendum og starfsmönnum veit-
ingahússins hver sé hugsanleg
skýring á því að bakteríurnar
hafa borist í þorrablótshangikjöt-
ið. óþh
Stærsti bátur
Bakkfirðinga:
Sökk í
höfninni
Seifur, 26 tonna eikarbátur á
Bakkafirði, sem lagt hefur upp
afla sinn hjá Útveri hf., sökk í
höfninni á Bakkafirði um kl. 4
í fyrrinótt. Foráttuveður var er
báturinn sökk en um hádegis-
bil í gær var veður orðið mun
skaplegra þar eystra.
Seifur slitnaði af legufæri og
sökk með það sama við bryggj-
una. Óvíst er um skemmdir á
bátnum, en óttast er hann kunni
að vera ónýtur. Ekki verður
reynt að ná bátnum upp fyrr en
fulltrúar viðkomandi trygginga-
félags, Skipatryggingar Aust-
fjarða á Höfn, hafa kynnt sér
aðstæður. Ekki var ljóst um
miðjan dag í gær hvenær trygg-
ingarmenn myndu koma til
Bakkafjarðar.
Ekki þarf að fara mörgum orð-
um um hvílíkt rothögg óhappið
er fyrir Bakkfirðinga. Seifur er
langstærsti báturinn á staðnum
og hefur einn báta róðið frá ára-
mótum. óþh