Dagur - 11.02.1989, Page 2
2 - DAGUR - 11. febrúar 1989
Heil og sæl, eða bara hæ! Ég veit
ekki alveg hvernig ég á að byrja
en hitt veit ég að ég hef frá ýmsu
að segja. Það er sannarlega tími
til kominn að kona tjái sig um
þjóðmálin. Við erum engir eftir-
bátar karlanna í þeim efnum
fremur en öðrum. Mér er sagt að
konur séu ragar við að láta ljós
sitt skína á opinberum vettvangi
og því miður er það satt og rétt
og ekki við neinn að sakast nema
okkur sjálfar. Við verðum að
taka okkur saman í andlitinu ef
okkur á að takast að breyta við-
teknum viðhorfum í þjóðfélaginu
og komast til valda.
Lítið þið bara á hvala- og lag-
metismálið. Svona hefði aldrei
farið ef konur hefðu fengið að
ráða. Það er mín einlæg skoðun
að best sé að láta berast með
hvalavinastraumnum um stund-
arsakir. ísland myndi losna und-
an þessum þrýstingi, við myndum
leggja áherslu á okkar fersku
sjávarafurðir úr ómenguðum sjó
og fljótiega yrði mönnum ljóst
hve mikilvægar fiskveiðar íslend-
inga' væru fyrir mannkynið allt.
Mengun vex um heim allan og
við eigum að fylgja þeirri stefnu
að vera friðunar- og verndarsinn-
ar. Eftir nokkra mánuði væri síð-
an hægt að leggja fram tölur sem
sýndu að fjölgun hvala við
íslandsstrendur væri ógnun við
fiskistofna og þar með kæmi fram
kraf^ frá þjóðum heimsins að
þess|r skaðvaldar yröu veiddir.
Þetta er kannski ekki nein
kvennapólitík, heldur bara
almenn skynsemi sem einkennir
íslenskar húsmæður. Við vitum
að börn hafa ekkert gaman af því
að stríða öðrum börnum nema
þau sýni sterk andsvör. Á sama
hátt myndu Grænfriðungar hætta
að jagast í okkur ef við kinkuð-
um kolli og hættum hvalveiðum
um stundarsakir, rétt til að lægja
öldurnar og snúa vörn í sókn. En
stolt, dramb og þvergirðingshátt-
ur hins íslenska karlmanns leyfir
ekkert slíkt. Þrjóski strákurinn
fer alltaf í fýlu þegar honum er
strítt, grenjar jafnvel, og þess
vegna halda börnin áfram að
stríða honum. Með þessu móti
getur ástandið aðeins versnað.
Stjórnun þessa lands er og hef-
ur ávallt verið gegnsýrð af karla-
pólitík. Nú vilja Borgarar fara í
stjórn, þykjast vera ofsalega góð-
ir bara til að geta krækt í tvo ráð-
herrastóla. Þetta snýst allt um
völd og peninga hjá þessum
blessuðum karlmönnum okkar.
Stólar, neyti, stöður, sjóðir,
nefndir og annar hégómi er meira
virði en hagur fjölskyldunnar.
Sjálf get ég ekki kvartað. Ég
bý í stóru einbýlishúsi í Glerár-
hverfi á Akureyri, á hreint ágæt-
an eiginmann sem hefur skaffað
vel og tvo indæla syni, vel gerða
og góðlynda. Ég þarf ekki að
vinna úti en hef þó stundum grip-
ið í vinnu hálfan daginn til að
auka sjálfstraustið og sjálfstæði
mitt sem konu. Ég er iðin við að
sækja ýmis námskeið til að halda
við menntun minni og ég get
bjargað mér á flestum sviðum.
En ég vil ekki bara hugsa um
sjálfa mig. Þess vegna þáði ég
boð um að skrifa hugleiðingar í
þennan fjölmiðil og segja frá
skoðunum mínum.
Við bjóðum Önnu Ýr velkomna til leiks á ritvellinum. Hún skrifar jafnt um hvali sem mýkri mál.
Talandi um fjölmiðla þá er það
svakalega áberandi hve konur fá
þar lítið rúm. Það er alltaf verið
að taia við karla um hin og þessi
málefni og börnin sem alast upp
límd við sjónvarpsskjáinn halda
einfaldlega að karlar séu æðri
verur en konur og þeir einir séu
færir um að gegna ábyrgðarstöð-
um. Þetta er meinlegur misskiln-
ingur sem við getum eytt með því
að láta meira í okkur heyra, ekki
bara um „mjúku málin“ heldur
líka peninga- og stjórnunarmál.
Fyrir nokkrum dögum kom ég
inn í verslun þar sem tveir eldri
menn ræddu málin, báðir fyrrver-
andi kennarar. Þetta minnti mig
á þróunina, eða öfugþróunina
(slæmt orð) á síðustu áratugum.
Nú eru fáir karlar eftir í kennara-
stéttinni. Þeir eru allir orðnir ein-
hverjir mikilvægir fræðingar.
Þetta er óæskilegt. Ég vil ekki að
karlar eða konur einoki vissar
starfsgreinar, ég vil jafnari dreif-
ingu kynja og launa, en læt hér
staðar numið að sinni.
Anna Ýr.
heilsupósturinn
I
'Umsjón: Sigurður Gestsson og Einar Guðmann
Ekkí með öUum mjaUa
Tvisvar í viku
gæti verið nóg
Robert Hickson og Maureen
Rosenkoeter sem starfa við
íþróttadeild háskólans í íllinois
gerðu könnun á því hve oft í viku
fólk yrði að æfa ef það ætlaði að
halda sér í góðu þolþjálfunar-
formi. Fyrst þjálfuðu þau stóran
hóp fólks 6 daga vikunnar í 10
vikur, 40 mínútur í hvert skipti.
Þau byrjuðu á því að þjálfa þetta
mikið til þess að byggja upp styrk
og þol. Að loknum þessum 10
vikum var hópnum skipt í tvennt
þegar kom að því að þjálfa ein-
ungis til viðhalds. Þá fór annar
hópurinn að æfa tvisvar í viku en
hinn æfði fjórum sinnum í viku.
Báðir hóparnir æfðu í 40 mínútur
í hvert sinn. Eftir 15 vikur voru
báðir hóparnir rannsakaðir aftur.
Það reyndist enginn munur á
hópunum og héldu þeir báðir
sama líkamsástandi, þoli og styrk
sem þeim hafði tekist að ná eftir
10 vikna uppbyggingatímabilið.
Þannig að ef þú ert búinn að ná
því formi sem þú vilt vera í og vilt
einungis halda þér við, þá gætir
þú sloppið með að æfa einungis
tvisvar í viku 30-40 mínútur í
senn. Það er því spurning hvort
rannsóknin hefði ekki þurft að
standa lengur en 15 vikur, því
það er ekki mjög langur tími.
Hlaupandi afturábak
Það er ekki á hverjum degi sem
maður sér skokkara hlaupa aftur-
ábak, enda yrði sá skokkari ekki
álitinn með öllum mjalla ef sæist
til hans hlaupandi afturábak upp
um holt og hæðir. Það er hins
vegar að verða þróunin í Banda-
ríkjunum þar sem það gerist
sívinsælla. Nú halda sjálfsagt
flestir að nú séu bandaríkjamenn
endanlega orðnir klikkaðir. En
nei, þeir eru ekki eins vitlausir og
þeir líta út fyrir að vera. Með því
að hlaupa afturábak er verið að
styrkja magavöðvana, bakið,
vöðvana framan og aftan á lærun-
um, auk þess sem það stuðlar að
meira samræmi milli vöðvanna.
Það er ekki nóg nteð að afturá-
bakskokk leggi minna álag á lík-
amann heldur er einnig hægt að
byrja að æfa mun fyrr eftir ýmis
meiðsli svo sem tognun á ökkla,
meiðsli í baki og eftir skurð-
aðgerðir á hné. Samt sem áður
í skaltu ekki reyna afturábak
hlaup ef þú hefur hælsæri eða
önnur álíka meiðsli á fótum.
Eins og gefur að skilja er ekki
sama hvar hlaupið er. Ágætt er
að vera á einhverjum öruggum
stað þar sem landslagið er þannig
að ekki þarf að hafa augun hjá
sér. Hins vegar er sennilega best
að vera tveir saman þar sem þú
hleypur afturábak og félagi þinn
varar þig við því sem kann að
verða á veginum, og síðan skipt-
ist þið á. Það er einnig gott að
byrja á því að hlaupa einungis
stuttar vegalengdir til þess að
losna við strengi í kálfunum og
vera viðbúinn auknum áhorf-
endafjölda!
Eins og gefur að skilja er best að hlaupa á stöðum þar sem ekki þarf að hafa
augun hjá sér.