Dagur - 11.02.1989, Qupperneq 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 800 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 70 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 530 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
MARGRÉT ÞÓRA ÞÓRSDÓTTIR, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON,
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Verðstöðvun í orði
en ekki á borði
Margir óttast að verðhækkanaskriða fari af stað
þegar verðstöðvunartímabilinu lýkur þann 1. mars
nk. Þessi ótti er ekki ástæðulaus því vitað er að fjöl-
margar hækkunarbeiðnir liggja fyrir hjá Verðlags-
stofnun. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri, sagði í
samtali við Dag fyrr í vikunni að þegar sé ljóst að
búvöruverð verði tekið til endurskoðunar svo og
verðlagning ýmissa orkufyrirtækja. Einnig sagði
hann fyrirtæki innan samgöngugeirans hafa beðið
með hækkanir fram yfir verðstöðvunartímabilið.
Hækkanir á þessum liðum koma til með að vega
þungt í útgjöldum heimilanna.
Vafalaust fylgja mun fleiri hækkunarbeiðnir í kjöl-
farið. Þær eru þó ekki helsta áhyggjuefni hins
almenna neytanda. Miklu alvarlegra er að fjölmarg-
ar verslanir og þjónustufyrirtæki hafa sýnilega leyft
sér að hækka verð á vörum og þjónustu á sjálfu
verðstöðvunartímabilinu. Þarna er um mismiklar
hækkanir að ræða og sumar þeirra eiga sér eflaust
eðlilegar skýringar, s.s. breytingu á gengi íslensku
krónunnar o.fl. En oftar hefur verð hreinlega verið
hækkað í skjóli takmarkaðs verðlagseftirlits og
lélegs verðskyns almennings í landinu. Allar verð-
kannanir, sem gerðar hafa verið á verðstöðvunar-
tímabilinu, staðfesta þetta.
Sú spurning er áleitin hver þróunin komi til með
að verða þegar verðstöðvunartímabilinu lýkur.
Ríkisstjórnin hefur boðað hert verðlagseftirlit á
þeim „umþóttunartíma" sem við tekur í verðlags-
málum eftir 1. mars. Verðlagsráði og Verðlags-
stofnun er falið að hafa yfirumsjón með þeim
aðgerðum sem í hönd fara. Þær felast m.a. í því að
fyrirtækjum verður skylt að tilkynna verðhækkanir
og ástæður fyrir þeim til fyrrnefndra aðila, sem hafa
heimild til að beita ýtrustu ákvæðum verðlagslaga
ef þeim sýnist þörf á. Viðurlög við vanrækslu á
þessari tilkynningaskyldu verða hert. Verðlags-
stofnun er falið að fylgjast sérstaklega með verð-
ákvörðunum einokunar- og markaðsráðandi fyrir-
tækja, hvort sem um er að ræða einkafyrirtæki eða
opinber þjónustufyrirtæki. Einnig er stofnuninni
fahð að sinna verðkönnunum af árvekni og kynna
niðurstöður þeirra rækilega. Síðast en ekki síst er
Verðlagsstofnun falið að taka upp samstarf við
verkalýðs- og neytendafélög um aðhald að verðlagi.
Þessar aðgerðir eru ágætar í sjálfu sér, en því
miður duga þær ekki til. Þegar verðlag var gefið
frjálst á sínum tíma var dregið verulega úr starf-
semi Verðlagsstofnunar. Þessi ágæta stofnun hefur
því engan veginn bolmagn né mannafla nú til að
halda uppi eins virku verðlagseftirliti og nauðsyn-
legt er. Þess vegna er mjög brýnt að almenningur
gangi til liðs við stofnunina og herði eigið verðlags-
eftirht til mikiha muna og hiki ekki við að tilkynna til
réttra aðila ef vart verður við óeðlilegar verðhækk-
anir. Það er nefnilega staðreynd að opinbert verð-
lagseftirht, hversu gott sem það er, getur aldrei’
komið í staðinn fyrir árvekni neytenda. BB.
myndbandarýni
Þrjár góðar
og ferskar
Iiér koma þrjár ferskar ræmur
fyrir myndbandaglápara og all-
ar falla þær í flokk með betri
myndum. Kannski hafa margir
séð Frantic og Wall Street í
kvikmyndahúsum en hinum
skal bent á myndbandaleigurn-
ar. Þá gefur Time after Time
hinum myndunum ekkert eftir.
Af öðrum tíðindum úr heimi
myndbandanna má nefna að
Videoland er að flytja úr portinu
í Brekkugötu niður í Strandgötu,
nánar tiltekið í hús sem kallast
Alaska. Þar er Maggi að hreiðra
um sig á neðri hæðinni og er hann
þá orðinn nágranni Dags á nýjan
leik.
Nýlega fékk ég tilkynningu frá
Steinum hf. um myndbandaút-
gáfu í febrúar og mun ég greina
frá þeirri útgáfu við tækifæri.
Forsvarsmenn annarra útgáfufyr-
irtækja mættu líka láta í sér
heyra. Að lokum óska ég ykkur
góðrar myndbandahelgi. SS
Þessi geislandi fantasía verður
mjög spennandi á köflum en
húmor og hlýleiki H.G. Wells er
þó jafnvel yfirsterkari. Malcom
McDowell er afburða góður í
þessu hlutverki og David Warner
er líka virkilega sannfærandi
morðingi. Hin prýðilega leikkona
Mary Steenburgen fer með hlut-
verk Amy, en hún lék einmitt á
móti Malcom McDowell í leikrit-
inu um Rauðhettu sem Stöð 2
sýndi um jólin. Þetta er úrvalslið
og Time after Time er hreint ekki
galin mynd. §§
Hreint ekki
galin mynd
Videoland: Time after Time
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Nicholas Meyer
Aðalhlutverk: Malcom McDowell,
David Warner, Mary Steenburgen
Aldurstakmark: Bönnuð yngri en 16 ára
Time after Time er mynd sem
kemur skemmtilega á óvart. Eftir
söguþræðinum að dæma gat mað-
ur búist við dæmalausu rugli en
annað kemur á daginn. Myndin
er bæði fyndin og spennandi, vel
leikin og hin besta í alla staði.
Staðreyndum og skáldskap er
blandað saman á óvenjulegan
hátt og útkoman er Nicholas
Meyer leikstjóra og hans fólki til
sóma.
Myndin hefst í London árið
1893. H.G. Wells er að kynna
tímavélina sína en úti leikur
Kviðristu-Kobbi (Jack the
Ripper) lausum hala. Dr. Steven-
son kemur í kynningarboðið til
Wells en hann er grunaður um að
vera hnífafimi morðinginn sem
ræðst á vændiskonur. Stevenson
tekst að flýja í tímavélinni fram
til ársins 1979, lendir í San
Francisco, en H.G. Wells eltir
hann.
Það er kostulegt að sjá þessa
gömlu bresku gauka frá 19. öld-
inni í hringiðu stórborgar árið
1979. Hreint dásamleg atriði.
H.G. Wells kynnist Amy og nú
fer ást og spenna að koma í
spilið. Dr. Stevenson heldur
áfram fyrri iðju, vændiskonur eru
myrtar hvarvetna í borginni, og
Wells einsetur sér að koma þess-
um brjálæðingi aftur til ársins
1893 og láta draga hann fyrir rétt
í London.
Skrambi góð
spennumynd
Videoland: Frantic
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Roman Polanski
Aðalhlutverk: Harrison Ford,
Emanuelle Seigner, John Mahoney
Sýningartími: 115 mínútur
Aldurstakmark: Bönnuð yngri en 16 ára
Roman Polanski hefur brallað
margt um ævina. Meðal annars
hefur hann tekið ungar stúlkur
upp á sína arma og gert þær að
leikkonum. í Frantic teflir Polan-
ski fram nýjustu uppgötvuninni,
hinni bráðfallegu Emanuelle
Seigner. Þessi þokkagyðja minnir
reyndar um margt á aðra upp-
götvun Polanskis, nefnilega Nast-
ösju Kinski.
Roman Polanski er einnig góð-
ur leikstjóri og í Frantic koma
helstu kostir hans vel fram. Til að
leika á móti krúttinu sínu hefur
hann fengið ævintýraleikarann
Harrison Ford, sem hér sýnir á
sér nýjar hliðar, eða svipaðar
hliðar og í Vitninu.
Frantic fer rólega af stað. Dr.
Richard Walker (Harrison Ford)
og kona hans, Sandra (Betty
Buckley), koma til Parísar til að
taka þátt í læknaráðstefnu. Þau
höfðu einmitt verið í París fyrir
fimmtán árum, þá í brúðkaups-
ferð. Á hóteli í París gerast þeir
dularfullu atburðir að Sandra
hverfur meðan Walker er í sturtu
og eftir það hefst flækja sem stig-
magnast og erfitt reynist að
greiða úr.
í leit sinni að eiginkonunni
kemst Walker í kast við eitur-
lyfjasala, morðingja og alls kyns
óþjóðalýð, en hann kynnist einn-
ig hinni fögru Michelle (Emanu-
elle Seigner) sem hefur afgerandi
áhrif á gang mála. Fyrir utan
spennuna í kringum glæpamenn-
ina þá skapast innri spenna í
myndinni í kringum þennan þrí-
hyrning og tekst Harrison Ford
mjög vel að túlka þessa togstreitu
sem eiginkona hans og Michelle
vekja. Bætir hann þar upp til-
þrifaleysið þegar konan hverfur,
en lengi vel bólar ekkert á þeirri
örvæntingu sem ætti að hrjá
hann.
Á bakhlið spóluhulstursins er
Frantic líkt við verk Hitchcocks
og víst má finna líkingu. Roman
'Polanski nostrar við ýmis atriði,
jafnvel smáatriði, spennan hleðst
hægt upp og útkoman verður
skrambi góð mynd. SS
Hinn gjör-
spillti íjár-
málaheimur
Videoland: Wall Street
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Oliver Stone
Aðalhlutverk: Michael Douglas,
Charlie Sheen, Martin Sheen,
Daryl Hannah
Sýningartími: 120 mínútur
Hér er á ferðinni mynd sem ber
flest einkenni stórmyndar. Fræg-
ur leikstjóri, úrvals leikarar, andi
Óskarsverðlauna, langur sýning-
artími, mikið lagt upp úr samtöl-
um og öll tæknivinna slétt og
felld. Sumum þykir Wall Street
kannski lítt spennandi, engin
morð og lítill hasar, en spenna
getur verið af öðrum toga.
Ég þekki auðvitað lítið til
fjármálaheimsins í Wall Street en
ég tel að myndin gefi raunsæja
mynd af þessum heimi, þar sem
sumir verða ríkir en aðrir fátæk-
ir. Þetta er mjög ógnvekjandi
veröld og tímabært að hugsa
hvort slík verðbréfaviðskipti með
allri spillingunni og ógeðinu muni
tröllríða íslandi innan skamms.
Bud Fox (Charlie Sheen) er
ungur verðbréfasali á uppleið
sem leggur allt í sölurnar til að ná
á toppinn. Fyrirmynd hans er
fjármálasnillingurinn Gordon
Gekko (Michael Douglas) og
Fox svipar æ meira til þessa
manns, sem hikar ekki við að
yfirtaka fyrirtæki og leggja líf
manna í rúst ef hann græðir á
því. Græðgin er einmitt það sem
allt snýst um í lífi Gekkos og Fox
heldur að hún sé höfuðdyggðin,
þangað til málið fer að snerta
flugfélagið þar sem pabbi hans
(Martin Sheen) vinnur.
Faðirinn er óbreyttur alþýðu-
maður, andstæða við hinn glæsta
peningaheim yfirstéttarinnar.
Sonurinn lætur sér hins vegar
ekki segjast. Hann verður æ
spilltari og með fallegt heimili,
ríkulegan gróða og fallega kær-
ustu (Daryl Hannah) að baki
heldur hann að honum séu allir
vegir færir.
Oliver Stone hefur deilt á
stríðsrekstur í Víetnam en hér
deilir hann á annars konar stríðs-
brölt og tekst ekki síður vel upp.
Þegar gróðasjónarmiðið verður
sett ofar hinum mannlega þætti
er ekki von á góðu. Wall Street
er víti til varnaðar.
Michael Douglas fékk Óskar-
inn fyrir leik sinn og vissulega er
hann sannfærandi, sem og feðg-
arnir Charlie og Martin Sheen.
Hins vegar eru þeir allir mjög lík-
ir í framgöngu og fasi og hefði ég
ekki valið þá til að leika í sömu
mynd. Að lokum: Wall Street
snertir okkur kannski ekki sér-
staklega og myndin er full lang-
(dregin á köflum, en hún vekur
mann til umhugsunar. SS