Dagur - 11.02.1989, Side 7
- DtAGMft - 7
Skákfélag Akureyrar 70 ára
- merkileg saga sem hófst með stofnun taflfélags um síðustu aldamót
Skákfélag Akureyrar varð 70
ára föstudaginn 10. febrúar.
Saga félagsins nær þó lengra
en 70 ár aftur í tímann og er
raunar lengri en svo að henni
verði gerð nokkur skil hér.
Hins vegar er ætlunin að kynn-
ast þessu félagi dálítið með
stuttu spjalli við þrjá stjórnar-
menn, þá Pál Hlöðvesson
formann, Ingimar Friðfinnsson
ritara og Albert Sigurðsson
meðstjórnanda.
Fyrstu heimildir sem Ingimar
sagðist þekkja um félagslegt
skákstarf á Akureyri er að finna í
gerðabókum frá 1901. Þar segir
eftirfarandi:
„Mánudaginn þann 24. nóv-
ember 1901 komu 6 menn saman
hjá Boga veitingamanni Daníels-
syni á Barðsnefi, til þess að ræða
um stofnun taflfélags. Eftir
nokkrar umræður, varð niður-
staðan sú að samþykkt var, að
stofna skyldi áðurnefnt félag og
gjörðust þessir 6 menn stofnend-
ur félagsins.
Ákvæði var tekið um að fundir
skyldu haldnir 1-2 á viku. í stjórn
félagsins voru kosnir: Jón Jóns-
son söðlasmiður á Oddeyri, ísak
Jónsson íshússtjóri, Steinback
Stefánsson tannlæknir.“
Undir þetta skrifa stofnendur
taflfélagsins, þeir Jón, ísak,
Steinback, Ásgeir Pétursson, Kr.
Guðmundsson og Jakob Frí-
mannsson.
Tafl- og tímaritafélag
Akureyrar
Fyrsta fundargerðin var rituð í
bók fyrir „tafl-klúbb Akureyrar"
en síðan er félagið ávallt nefnt
Taflfélag Akureyrar, til ársloka
1903. Þá er samþykkt að sameina
taflfélagið og Tímarita- og blaða-
félagið. Á hið nýja félag að heita
Lestrar- og taflfélag Akureyrar.
„Við samruna þessara félaga
lýkur ritun fundargerða Taflfé-
lags Akureyrar og er mér ekki
kunnugt um fundargerðir eða
aðrar upplýsingar um Lestrar- og
taflfélag Akureyrar eftir það, að
undanteknu slitri af reiknings-
haldi félagsins og nær það til árs-
ins 1907. Þá er félagið ýmist nefnt
Tímarita- og taflfélag Akureyrar
eða Tafl- og tímaritafélag Akur-
eyrar,“ sagði Ingimar.
Skákfélag Akureyrar var síðan
stofnað 10. febrúar 1919. Ingimar
sagði að hvatamenn að stofnun
félagsins hafi ekki verið tilgreind-
ir en í íslensku skákblaði frá 1925
er Ari Guðmundsson frá Þúfna-
völlum sagður aðalhvatamaður
að stofnun Skákfélags Akureyr-
ar. Hann var formaður þess í 5 ár
og fyrsti forseti Skáksambands
íslands.
Fyrsta stjórn Skákfélags Akur-
eyrar var þannig skipuð: Ari
Guðmundsson formaður, Hálf-
dán Halldórsson ritari og Þor-
steinn Thorlacius gjaldkeri.
Skákfélagið stofnaði
Skáksamband Islands
á fundi á Blönduósi
Þetta er í stuttu máli forsagan að
stofnun Skákfélags Akureyrar.
Það félag leggur síðan grunninn
að Skáksambandi íslands, eins og
Albert Sigurðsson greinir okkur
frá:
„Já, það má segja að Skákfélag
Akureyrar hafi stofnað Skáksam-
bandið og undirbúið fyrstu lög
sambandsins. Það var stofnað á
Blönduósi árið 1925 og var Ari
Guðmundsson fyrsti formaður
þess. Það væri ekki úr vegi að
minnast þess að á næsta ári eru
liðin hundrað ár frá fæðingu Ara
frá Þúfnavöllum. Reykvíkingar
voru á móti þessari stofnun og
tóku ekki þátt í starfi sambands-
ins fyrstu árin.“
- Hvenær komst þú inn í
Skákfélagið Albert?
„Það hefur líklega verið 1940.
Ég var í stjórn til margra ára og
þrisvar formaður, fyrst 1957-58,
en nú er ég meðstjórnandi."
- Manstu hvernig skáklífinu
var háttað á Akureyri þá?
„Já, það var dálítið frábrugðið
því sem er í dag. Við í félaginu
héldum fund tvisvar í viku, lengi
vel í Gránufélagsgötu 9, og síðan
víða í bænum. Má þar nefna
Túngötu 2, þar sem nú er
geymsla fyrir Augsýn en var
matsölustaður. Þá vorum við
nokkur ár í Skjaldborg og ekki
Teflt í félagsheimilinu í Þingvallastræti. Tilkoma þess hefur hleypt nýju
blóði í skáklífið á Akureyri. Mynd: tlv
Pf
Páll Hlöðvesson, formaður Skákfélags Akureyrar, og Albert Sigurðsson,
meðstjórnandi. Mynd: ehb
má gleyma vörubílastöðinni
Stefni. Þar var mikið teflt og
skákmót haldin, allt frá stofnun
Ungu skákmennirnir í Skákfélagi
Akureyrar hafa staðið sig mjög vel
undanfarin ár. Mynd: tlv |
stöðvarinnar og þangað til hún
fluttist úr Strandgötunni."
Sá sem tapaöi
varö að borga kaffið!
Þáttur Stefnis í skáklífi bæjarins
er auðvitað kapítuli út af fyrir sig
eins og svo margt annað í sögu
Skákfélags Akureyrar, en Albert
heldur áfram:
„Fólkið í Gránufélagsgötunni
og Skjaldborg útbjó handa okkur
kaffi og meðlæti og við höfðum
það þannig að sá sem tapaði
skákinni þurfti að borga kaffið!
Svoleiðis var þetta nú í gamla
daga.“
- Var skákin kannski frekar
leikur en keppnisíþrótt á þessum
tíma?
„Já, það má eiginlega segja að
þetta ,hafi aðallega verið leikur,
ekki þessi keppnisharka í kring-
um þetta eins og núna.“
„Þá voru engin ELO-stig,“
bætti Páll Hlöðvesson við.
Þeir minntust á gamalkunna
félaga í Skákfélagi Akureyrar
sem voru framarlega í skákinni á
sínum tíma, jafnvel í allra
fremstu röð á landinu. Þetta voru
kappar á borð við Ara Guð-
mundsson, Jón Þorsteinsson,
Ingimar Jónsson, Jón Sigurðsson
og Júlíus Bogason.
Albert sagði að fram til 1937-
38 hefði þótt mjög fínt að vera í
Skákfélagi Akureyrar og menn
klæddu sig upp á þegar þeir fóru
að tefla. Eftir það breyttist við-
horfið og menn mættu í vinnu-
fötunum í skákina.
Hann gat þess einnig að Skák-
félag alþýðu og Skákfélag Akur-
eyrar hefðu sameinast upp úr
1935 og þá kom Jón Ingimarsson
til skjalanna en hann átti eftir að
koma mikið við sögu hjá Skákfé-
lagi Akureyrar.
Unglingarnir hafa
staðið sig vel
Við snúum okkur þá til nútíðar
og að formanninum Páli Hlöð-
vessyni. Hve sterka skákmenn á
félagið í dag?
„Á síðustu árum höfum við átt
a.m.k. einn í landsliðsflokki, sem
, hefur þá verið í fyrsta eða öðru
sæti í áskorendaflokki. Þetta eru
þeir Jón Garðar Viðarsson,
Áskell Örn Kárason, Gylfi Þór-
hallsson og Ólafur Kristjánsson.“
- Hafa yngri skákmennirnir
ekki vakið jafnvel enn meiri
athygli?
„Jú, það má kannski segja sem
svo. Sveitir Gagnfræðaskólans og
síðar Menntaskólans á Akureyri
hafa staðið sig mjög vel og flestir
í þessum sveitum hafa verið
meðlimir í Skákfélagi Akureyrar.
Þessir strákar hafa teflt fyrir
hönd íslands í sínum aldursflokk-
um. Af þeim sem hafa keppt fyrir
íslands hönd má nefna Pálma
Pétursson, Smára Ólafsson
(Kristjánssonar), Arnar Þor-
steinsson, Tómas Hermannsson,
Boga Pálsson (Hlöðvessonar),
Rúnar Sigurpálsson og Þórleif
Karlsson.“
- Hvað er á döfinni hjá Skák-
félaginu núna?
„Skákþing Akureyrar stendur
nú yfir og síðan munum við halda
íslandsmótið í áskorendaflokki
ef við uppfyllum viss skilyrði. Við
héldum alþjóðlegt skákmót í
fyrsta sinn á síðasta ári og svo
gæti verið að við héldum annað í
haust í framhaldi af Reykjavíkur-
mótinu. Mótið í fyrra vakti inikla
athygli og örvaði mjög skákáhug-
ann í bænum.“
Húsakaupin 1986
hleyptu lífí í starfsemina
- Hefur tilkoma félagsheimilisins
í Þingvallastræti breytt miklu fyr-
ir Skákfélag Akureyrar?
„Jú, húsakaupin 1986 hafa
hleypt miklu lífi í starfsemina.
Að vísu hefur þetta verið þungur
baggi því við höfum ekki fengið
styrk úr félagsheimilasjóði, en
Akureyrarbær hefur stutt okkur
dyggilega. Starfsemin hefur vaxið
jafnt og þétt. T.d. má nefna að á
unglingaæfingum á laugardögum
hafa verið upp í 40 þátttakendur,
enda byggist árangurinn á því að|
búa vel að ungdómnum. Þarna
eru krakkar alveg niður í 6 ára og
þessi aðstaða bætir úr brýnni
þörf. Aldurslega séð eru eyður
hjá skákmönnum okkar því að-
staða til unglingástarfs var lengi
vel ekki fyrir hendi.“
- Að lokum Páll, hvers óskar
formaðurinn sér á þessum tíma-
mótum í sögu Skákfélags Akur-
eyrar?
„Óskalistinn er auðvitað
langur. En hvað skákinni sjálfri
viðkemur þá vona ég að skáklífið
dafni og fjárhagurinn batni hjá
félaginu þannig að við getum far-
ið að gera meira fyrir okkar upp-
rennandi skákmenn. Þeir sýna
ekki árangur fyrr en eftir nokkur
mót á erlendri grundu, þeir þurfa
að öðlast reynslu.
Mér sýnist á fjárhagsáætlun
Akureyrarbæjar að hann ætli að
hugsa vel um okkur á þessu af-
mælisári og það má segja að á
seinni árum hafi bæjaryfirvöld
sýnt skákinni skilning og er það
ve!,“ sagði Páll að lokum. SS
UTIHURDIR
Trésmiöjan Fjalar hf. Húsavík
Pósthólf 50. Simí 96-41346.
Sérsmlði
Viðhaldsverkefni
Leitiö til okkar meö sérsmíöina
og viðhaldsverkefnin.
Trésmiðjan Fjalar hf. • Húsavík
Sími 96-41346.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.