Dagur - 11.02.1989, Side 16
Akureyri, laugardagur 11. febrúar 1989
Rafgeymar
í bílinn, bátinn, vinnuvélinaN
Viðhaldsfríir
Veljiö rétt merki
þÓRSHAMAR HF.
Við Tryggvabraut • Akurcyri • Sími 22700
Húsavík:
Áætlað að vinna við
höfnina fyrír 42 milljónir
- gatnagerðarframkvæmdir fyrir 2,5 milljónir
Samkvæmt fjárhagsáætlun
bæjarsjóðs Húsavíkur og
bæjarfyrirtækja, sem var til
fyrri umræðu í Bæjarstjórn
Húsavíkur 31. jan., er reiknað
með að helstu framkvæmdir á
vegum hafnarsjóðs verði
áfangi við Norðurgarðinn sem
kosti tæplega 38 milljónir.
Einnig að 5 milljónum verði
varið til sjóvarna, til að Ijúka
grjótvörn framan á veg frá
hafnarsvæðinu að Þorvalds-
staðaá.
Áætlunin gerir ráð fyrir að
helstu liðir gjaldfærðrar fjárfest-
ingar verði sem hér segir: 4,3
milljónir til Framhaldsskólans,
varið til kennslugagna og búnað-
ar og lagfæringa á húseigninni
Túni. Til Barnaskólans verði var-
ið 1,2 milljónum til endurbóta og
500 þúsundum til Tónlistarskól-
ans, aðallega til hjóðfærakaupa. í
Langholti verði 3 milljónum var-
ið til að ganga frá malarnámi,
þannig að um helmingur svæðis-
ins verði byggingarhæfar lóðir.
Ekki er reiknað með öðrum
gatnagerðarframkvæmdum en
gangstéttagerð við nokkrar götur
Húsavík:
Töluverð veðurhæð
en engar skemmdir
Ekki var vitað um nein óhöpp
eða skemmdir vegna veðursins
aðfaranótt föstudagsins er
Dagur hafði samband við lög-
reglu og hafnarvörð á Húsa-
vík. Að beiðni Almannavarna
stóð lögreglan vakt til kl. 5 um
morguninn en varð ekki vör
við nein vandræði.
Vakt var í bátum í Húsavíkur-
höfn sem allir voru inni, að tog-
urunum undanskildum. Að sögn
Halldórs Porvaldssonar hafnar-
varðar var töluverð veðurhæð um
nóttina. Allt fór vel og vildi Hall-
dór þakka það hve vindur var
suðlægur, norðvestanátt hafði
verið spáð en sem betur fór rætt-
ist sú spá ekki þar sem vindur
stendur verr á höfnina í þeirri átt.
Stórstreymi var og háflóð kl.
1.30. Mikið særok var við höfn-
ina á tímabili. IM
sem áætlað er að kosti 2,5 millj-
ónir. Barnaheimilinu eru áætluð
500 þúsund til kaupa á húsgögn-
um, leiktækjum og fleiru og bæj-
arskrifstofum 400 þúsund til
endurbóta á tölvubúnaði og hús-
gögnum. Skíðamannvirkjum eru
áætluð 300 þúsund, íþóttavöllum
210 þúsund, tæknideild 150 þús-
und og leikvöllum 100 þúsund.
Hvað eignfærða fjárfestingu
varðar er reiknað með að um
28,7 milljónir þurfi til að ljúka
við 5 leiguíbúðir sem nú eru í
smíðum, en til athugunar er að
Búseti yfirtaki byggingu þessara
íbúða að einhverju eða öllu leyti.
Til Dvalarheimilis aldraðra er
varið um 6,4 milljónum, til
heilsugæslustöðvar tæpum 4
milljónum. 2 milljónum til
hönnunar nýbyggingar við
Barnaskólann og 1 milljón til
íþróttahúss. Áhaldahús fær 1,6
milljónir til að endurnýja véla- og
tækjakost. Sundlaugin fær 550
þúsund og Safnahúsið 500 þús-
und, en fyrirhugað er að hefja
byggingu sjóminjasafns á árinu.
IM
Miklir snjóruðningar eru víða á götum Akureyrar eftir óvenju mikla snjó-
komu. Vegheflar og gröfur af ýmsum gerðum hafa verið í stöðugri vinnu við
að ryðja göturnar sem sumar voru orðnar næstum því ófærar venjulegum
fóiksbflum. Mynd: TLV
Atvinnumál sveitakvenna til umræðu á ráðunautafundi:
Ágústa á Refsstað boðar pere-
strojku í íslenskum landbúnaði
Á ráðunautafundi í Reykjavík
í gær flutti Ágústa Þorkels-
dóttir, bóndi á Refstað í
Vopnafirði, erindi þar sem hún
boðaði „perestrojku“, nýja
hugsun, í íslenskum landbún-
aði. Hún ræddi um stöðu
Helgarspáin:
Gott veður á Norðurlandi
Veðurstofa íslands gerir ráð
fyrir bærilegasta veðri á
Norðurlandi um helgina og víst
þykir mörgum það kærkomin
tilbreyting frá lægðafarganinu
undanfarið. Það verður hins
vegar éljaveður á Suður- og
Vesturlandi og eitthvað ná
þessi él inn á landið.
Á laugardag og sunnudag er
búist við suðvestan strekkingi á
Norðurlandi og skýjað verður
með köflum. Hitastig verður rétt
undir frostmarki, þ.e. vægt frost,
og gangi þessi spá eftir má segja
að þetta verði kjörin útivistar-
helgi fyrir Norðlendinga.
SS
Protabú Pólarprjóns hf.:
Tvö tílboð bárust í vélamar
Á fundi bæjarráðs Blönduóss
fyrir skömmu voru opnuð til-
boð í vélar í þrotabúi Pólar-
prjóns hf., sem voru í eigu
Blönduósbæjar. Tvö tilboð
bárust, frá Zophanías Zophan-
íassyni, umboðs- og heildversl-
un á Blönduósi, og Saumastof-
unni Drífu hf. á Hvamms-
tanga. Verið er að athuga þessi
tilboð og óvíst hvenær ákvörð-
un verður tekin um hvoru
þeirra verður tekið.
Búið er að ganga frá öllu öðru
í þrotabúi Pólarprjóns, og eru
þessar vélar í eigu Blönduósbæj-
ar það síðasta sem eftir er að gera
upp. -bjb
kvenna í sveitum og þá at-
vinnumöguleika sem sveita-
konur hefðu. Ágústa taldi lítið
hafa verið sinnt um að nýta
verkkunnáttu sveitakvenna og
seiglu til að takast á við
vandann. „Vaxtabroddurinn
og leynivopnið í baráttunni
gegn byggðaröskun er í hönd-
um sveitakvenna,“ sagði
Ágústa.
Ágústa taldi marga atvinnu-
möguleika fyrir hendi fyrir
sveitakonur. Sumir væru nýttir
nú þegar en aðrir ekki. Svarið við
þeirri spurningu hvað sveitakon-
an gæti gert væri einfalt; allt.
Flestar konur í sveitum vilji auka
fjölskyldutekjur og langanir
kvenna snúist ekki um búrekstur-
inn heldur vilji konurnar nota
starfshæfni sína óháðar atvinnu
eigin- eða sambýlismanna.
„Margar hugmyndir hafa komið
fram, raunhæfar og óraunhæfar.
Margir hafa af stórhug og dugn-
aði lagt í nýjan atvinnurekstur í
sveitum. En margar góðar hug-
myndir hafa lent í salt vegna
ótrúlegrar þröngsýni og nei-
kvæðra viðbragða. Má þar nefna
t.d. hugmyndabanka Stéttar-
sambandsins sem fékk nafnið
maðkaskrá og nýttist helst mis-
vitrum alþingismönnum til spé-
skapar í kosningaslag," sagði
Ágústa.
í erindi sínu vék hún að nokkr-
um hugmyndum sem beðið geti
kjarkmikilla brautryðjenda s.s.
hálmvinnslu, matvælavinnslu,
minjagripagerð, ullarvinnslu og
dvalarheimili í sveitum. Hún
sagði að t.d. mætti úr hálminum
flétta líkkistukransa sem hingað
til hafa verið fluttir inn. Varðandi
matvælavinnslu benti hún á að
gæludýrafóður er allt innflutt.
Brjóta þyrfti hins vegar þá skoð-
un á bak aftur að matvælafram-
leiðsla kallaði á stórverksmiðjur.
„Pær konur sem hafa hug á að
hefja atvinnustarfsemi sem ekki
hefur verið stunduð áður í þeirra
byggðarlagi þurfa helst á að
halda nær ómennskum kjarki og
óbilandi trú á verkefnið sem þær
ætla að takast á við. Viðbrögð við
slíkum hugmyndum eru ótrúlega
neikvæð og eina aðstoðin sem
veitt er tafarlaust og nánast
óumbeðið, er upptalning allra
þeirra ljóna sem hugsanlega gætu
verið í vegi. Margar þeirra
kvenna sem hafa haft samband
við mig hafa gugnað fyrir þessari
ljónatalningu,“ sagði Ágústa.
JÓH
Akureyri:
86,5 inilljómr til
Verkmenntaskólans
Síðasti fundur Bæjarráðs
Akureyrar um fjárhagsáætlun
1989 var haldinn á fímmtudag.
Bæjarráðsmenn hafa komið
sér saman um að leggja áætl-
unina fram til endanlegrar
afgreiðslu Bæjarstjórnar
Akureyrar á þriðjudag.
Allmargar breytingar hafa ver-
ið gerðir á frumvarpinu að fjár-
hagsáætlun milli umræðna í bæj-
arstjórn. Minnihlutaflokkarnir
tveir eru með nokkrar breytinga-
tillögur við áætlunina sem munu
koma til afgreiðslu á þriðjudag.
Ljóst er að Bæjarráð leggur til
að 28 milljónum króna verði var-
ið til sundlaugar við Glerárskóla
og 86,5 milljónum til fram-
kvæmda við Verkmenntaskól-
ann, þar af er hlutur Akureyrar-
bæjar 30,5 milljónir króna, 10
millj. eru óráðstafað fé frá ríkinu
frá fyrra ári, eftirstöðvarnar eru
framlag ríkisins á fjárlögum.
EHB