Dagur - 25.02.1989, Side 2
2 - DAGUR - 25: febrúar 1989
Samvinnuskólinn
Bifröst
Rekstrarfræði á háskólastigi.
Samvinnuskólapróf í rekstrarfræðum
á háskólastigi miðar að því að rekstrarfræðingar séu
undirbúnir til ábyrgðar- og stjórnunarstarfa í atvinnu-
lífinu, einkum á vegum Samvinnuhreyfingarinnar.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfærði- eða við-
skiptabrautum eða lokapróf í frumgreinum við Samvinnu-
skólann eða annað sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Markaðarfræði, verslunar- og framleiðslu-
stjórn, fjármálastjórn og áætlanagerð, starfsmannastjórn
og skipulagsmál, almannatengsl, lögfræði og félagsfræði,
félagsmálafræði, samvinnumál o.fl.
Námslýsing: Áhersla lögð á sjálfstæð raunhæf verkefni
og vettvangskannanir í atvinnulífinu auk fyrirlestra og við-
talstíma o.fl.
Námstími: Tveir vetur frá september til maí hvort ár.
Aðstaða: Heimavist, fjölskyldubústaðir, skólaheimili, fél-
agsaðstaða og mötuneyti á Bifröst í Borgarfirði ásamt
vinnustofum, bókasafni, tölvubúnaði o.s.frv.
Barnagæsla á staðnum.
Kostnaður: Fæði, húsnæði, þjónusta og fræðsla áætluð
um 27.000.- kr. á mánuði fyrir einstakling næsta vetur.
Umsóknir: Með persónulegu bréfi til skólastjóra Sam-
vinnuskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna persónuupplýs-
ingar, upplýsingar um fyrri skólagöngu með afriti skírteina
og upplýsingar um fyrri störf.
Ekki sérstök umsóknareyðublöð.
Veitt er innganga umsækjendum af öllu landinu.
Þeir umsækjendur ganga fyrir sem orðnir eru eldri en 20
ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu. Námið
hentar jafnt konum sem körlum.
Allt að 20 umsækjendur hljóta skólavist í Rekstrarfræða-
deild.
Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan eftir því sem
skólarými leyfir.
Miðað er m.a. við regiur um námsiárt.
Samvinnuskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi, sími 93-50000.
FÉLAGSMÁLASKÓLI
if
Gissur Pétursson Egill H. Gíslason Finnur Ingólfsson
'JSH
Arnar Bjarnason Hrólfur Ölvisson Helgi Pétursson
Samband ungra framsóknarmanna og kjördæmissambönd Fram-
sóknarflokksins hafa ákveðið að fara á stað með Félagsmálaskóla
þar sem boðið verður uppá eftirfarandi námskeið:
A. Grunnnámskeið í félagsmálum:
Efni: Fundarsköp og ræðumennska, tillögugerö, stefnumál
Framsóknarflokksins o.fl.
Tímalengd: 8 klst.
Leiðbeinendur verða: Gissur Pétursson, Egill HeiðarGísla-
son, Finnur Ingólfsson, Arnar Bjarnason og Hrólfur Ölvisson.
Stefnt er að því að halda námskeiðið í febrúar og mars á
eftirtöldum stöðum ef næg þáttaka fæst: Reykjavík, Keflavík,
Selfossi, Vestmannaeyjum, Höfn, Egilsstöðum, Akureyri,
Sauðárkróki, (safirði, Ólafsvík og Akranesi.
B. Fjölmiðlanámskeið:
Efni: Framkoma í sjónvarpi og útvarpi. Undirstöðuatriði í
frétta og greinaskrifum. Áhrif fjölmiðla.
Tímalengd: 16 klst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson, fréttamaður. Stefnt er að því
að halda námskeið á Akureyri.
Þeir sem hafa áhuga á þessum námskeiðum eru hvattir til að
hafa samband við eftirtalda aðila:
Norðurland eystra: Skrifstofa Framsóknarflokksins,
mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16-18, sími
96-21180 og Snorri Finnlaugsson, sími 96-61645.
Norðurland vestra: Bogi Sigurbjörnsson, sími 96-71527.
Austurland: Ólafur Sigurðsson, sími 97-81760.
Samband ungra framsóknarmanna
Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins
Fjármálaráðuneytið í skattskuldahreingerningum:
Tíu þúsund framteljendur
skulda tekju- og eignaskatt
- reglur settar í gær um að dreifa megi uppgjöri á fimm ár
Um 10 þúsund framteljendur
skulda eigna- og tekjuskatta
fyrir árið 1986 og samkvæmt
áætlun fjármálaráðuneytisins
er um að ræða hálfan fjórða
milljarð króna, þegar áfallinn
kostnaður hefur verið reiknað-
ur. Hér er um að ræða skuldir
sem til urðu áður en stað-
greiðsla var tekin upp. Olafur
Ragnar Grímsson, fjármála-
ráðherra, setti í gær nýjar regl-
ur um innheimtu á þessum
skattskuldum þannig að ein-
staklingar geta nú samið um
uppgjör á sínum skúldum með
skuldabréfum til 3ja, 4ra, eða 5
ára. Bréfin verða með jöfnum
mánaðarlegum afborgunum og
fyrstu afborgun þann 15. júní
nk. Þau eru verðtryggð og
bera 1,5-3,5% vexti, mismun-
andi eftir lengd skuldabréf-
anna. Engar skattskuldir verða
felldar niður.
„Við teljum ekki rétt að gefa
mönnum eftir skattskuldir. Slíkt
væri fordæmi sem gæti haft marg-
víslega hættu í för með sér. Stað-
greiðslan felur í sér menn geta
ekki ýtt vanskilum á undan sér
Hegranes SK-2 og Skafti SK-3
komu til Sauðárkrókshafnar í
vikunni með góðan afla. Hegra-
nesið var með 190 tonn eftir 5
veiðidaga og var aflinn að
mestu þorskur. Skafti var með
135 tonn af þorski. Um 25 tonn
fóru í gáma af afla Hegraness-
ins, þannig að um 300 tonn
fóru í vinnslu til frystihúsanna.
Þar verður því nóg að gera
næstu vikuna.
„Það er allt komið á fullt hjá
okkur. Þetta er búið að vera
mjög stopult, það er að vísu
verra að fá aflann svona í stórum
Þórsarar höfðu lítið í sterka
Keflvíkinga að gera í Flugleiða-
deildinni í körfu á Akureyri á
fimmtudagskvöldið. Yfirburð-
ir ÍBK voru miklir og stærsta
tap Þórs á tímabilinu 122:85
var staðreynd.
Það var ljóst strax frá byrjun í
hvað stefndi. Keflvíkingar byrj-
uðu af miklum krafti og náðu
strax forystunni og juku hana
jafnt og þétt allan tímann.
Að vísu náðu Þórsarar að
halda tölunum niðri í fyrri hálf-
leik og spila þá þokkalega vörn
og var staðan í leikhléi 55:34 fyrir
gestina.
I síðari hálfleik var varnar-
leikurinn slakur hjá báðum liðum
og hugsuðu Keflvíkingar mest
um það að ná boltanum til þess
að skora fleiri stig.
eins og gamla kerfið bauð upp á.
Þess vegna var óhjákvæmilegt að
grípa til sérstakra aðgerða til að
hreinsa borðið,“ sagði fjármála-
ráðherra í gær.
Áðurnefnd skuldabréf munu
verða í innheimtu hjá ríkisfé-
hirði. Krafist verður trygginga
fyrir bréfunum sem innheimtu-
stofnun telur viðunandi t.d. með
fasteignaveði, bankaábyrgð eða
sjálfskuldarábyrgð tveggja
manna. Innheimtustofnunum
ríkisins verður falið að meta
hvernig efnahagslegar forsendur
einstaklinga eru og meta þannig á
hve langan tíma uppgjör við
ríkissjóð dreifist. Þeir sem vilja
gera upp þurfa að sækja um fyrir
15. apríl og fá þeir svar fyrir 30.
maí. Þeir sem enn kjósa að velta
skuldinni á undan sér mega eiga
von á sérstökum aðgerðum inn-
heimtumanna ríkissjóðs.
Ólafur Ragnar segir að mjög sé
mismundi hve háa upphæð ein-
staklingar skuldi. í mörgum til-
fellum séu upphæðirnar óveru-
legar en dæmi sé um allt að 6
milljóna skuld hjá einum ein-
staklingi. Þess hefur orðið vart í
ráðuneytinu á síðustu mánuðum
skömmtum, upp á hagkvæmnina
að gera,“ sagði Einar Svansson
framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar
hf. í samtali við Dag.
Hegranes og Skafti fara strax á
veiðar aftur, Skafti að öllum lík-
indum um helgina og Hegranesið
á mánudag. Hegranes mun í
næstu tveim veiðitúrum sigla með
aflann á markað í Þýskalandi,
þannig að Skafti mun einn veiða
fyrir frystihúsin þar til Drangey
og Skagfirðingur koma úr slipp í
Bretlandi. Gert er ráð fyrir að
þeim seinki éitthvað og komi til
heimahafnar 10.-15. mars nk.
Þórsarar söknuðu greinilega
Konráðs,en þótt hann hefði verið
með þá hefðu heimamenn ekki
haft roð við sterku ÍBK-liðinu.
Hjá Þór bar mest á Birni
Sveinssyni og Kristjáni Rafns-
syni. Einnig stóð Einar Karlsson
sig vel þann tíma sem hann var
inni á vellinum. Hjá ÍBK voru
þeir Guðjón Skúlason og Jón Kr.
Gíslason mest áberandi en
reyndar er liðið mjög jafnt og all-
ir varamennirnir fengu að spreyta
sig í síðari hluta leiksins.
Stig Þórs: Kristján Rafnsson 20, Björn
Sveinsson 19, Eiríkur Sigurðsson 16,
Guðmundur Björnsson 16, Einar Karls-
son 6, Jóhann Sigurðsson 6 og Einar
Viðarsson 2.
Stig ÍBK: Guðjón Skúlason 30, Sigurður
Ingimundarson 18, Albert Óskarsson 15,
Jón Kr. Gíslason 15, Axel Nikulásson 15,
Nökkvi Sveinsson 9, Egill Viðarsson 9,
Einar Einarsson 5.
að einstaklingar hafa komið sjálf-
viljugir og gert upp gamlar skatt-
skuldir og þannig hafa komið inn
um 600 milljónir frá því í ágúst á
síðasta ári. JÓH
Fjölskyldu-
skeuuntun
- í Höllinni
Lyftingamenn á Akureyri
standa fyrir mikilli skemmtun
í íþróttahöllinni á sunnudag-
inn. Þar verður m.a. stórbingó
og margt annað verður þar sér
til gamans gert. Þar má nefna
að kraftlyftingamenn og lög-
reglan munu reyna með sér í
innanhússknattspyrnu.
Skemmtunin hefst kl. 15.00 á
sunnudaginn.
Allur ágóðinn af skemmtun-
inni fer til greiða kostnað
vegna Norðurlandsmótsins í
lyftingum sem haldið verður
hér á Akureyri í apríl.
Hestamannafélagið
Léttir:
Kaffisala í
Skeifuiuii
- alla laugardaga
í vetur
Hestamannafélagið Léttir á
Akureyri verður með kaffisölu
í Skeifunni, félagsheimili sínu
í Breiðholti á morgun laugar-
dag frá kl. 15.
Félagið hyggst standa fyrir
slíkri kaffisolu alla laugardaga
í vetur en þarna yerður hægt
að fá kaffi, gos og alls kyns
meðlæti. Stjórn Léttis vill
hvetja alla félagsmenn og aðra
bæjarbúa til þess að koma í
Skeifuna og njóta góðra veit-
inga í þægilegu umhverfi.
Fyrirlestur
Hrafnhildar Schram:
FeDur niður
vegnaforfaDa
Fyrirlestur Hrafnhildar
Schram um „aldamótakonur“
í íslenskri myndlist sem vera
átti í Myndlistarskólanum á
Akureyri í dag kl. 14.00 fellur
niður vegna forfalla.
Fyririesturinn mun fara
fram síðar og verður hann
auglýstur nánar þegar þar aö
kemur.
Félagsráðs-
ftmdurKEA
Félagsráðsfundur KEA verður
haldinn að Hótel KEA þriðju-
daginn 28. febrúar n.k. Fund-
urinn hefst kl. 10.30 árdegis.
Félagsráðsmenn og deildar-
stjórar eru hvattir til að mæta.
Togarar ÚS:
Góðuraflihjá
Skafta og Hegranesi
- næg vinna í frystihúsunum að nýju
-bjb
Flugleiðadeildin í körfubolta:
Stórtap Þórsara