Dagur - 25.02.1989, Qupperneq 9
'W fmm&\ <afe--*öK<5íyfc~-*)
Kvikmyndasíðan
Jón Hjaltason
Fingur Krösusar
Klórað í bakkann
Einn er þó sá sem er ekki á því að
Þeir hafa svo sannarlega ástæðu til að brosa breitt Dustin Hoffman og Tom
Cruise. Rain Man, vandræðabarn liollywood, er ioksins orðin að veruleika
eftir margra ára undirbúning.
Heimur kvikmyndanna getur
tekið á sig hinar undarlegustu
myndir. Það hafa ýmsir stór-
leikarar, kvikmyndaleikstjórar
og framleiðendur mátt reyna að
undanförnu í sambandi við gerð
myndarinnar Rain Man. Sagan á
bak við hana er svo undarleg og á
köflum fáránleg að stórblaðið
Newsweek gerði hana að umfjöll-
unarefni ekki alls fyrir löngu. Við
skulum lyfta upp tjaldinu og með
hjálp fréttaritara Newsweek
virða fyrir okkur atburðina sem
leiddu til þess að Rain Man varð
um síðir að kvikmynd sem halað
hefur inn rúmar 42 milljónir doll-
ara á fyrstu 18 sýningardögunum
og er talin líkleg til að komast í
hóp þeirra sárafáu bíómynda sem
gefa af sér yfir 100 milljónir doll-
ara. Og þegar eru menn farnir að
gefa Rain Man einn eða fleiri
Óskara sem er nú líklega ótíma-
bært. En frændur okkar Kanar
eru hrifnæmir menn og ekkert að
skafa utan af hlutunum ef sá gáll-
inn er á þeim.
Myndin sem þú færð ekki
að sjá
Á árinu 1984 fékk handritshöf-
undurinn Barry Morrow hug-
mynd að bíómynd. Hann var þá
nýlega búinn að skrifa sjónvarps-
leikrit um þroskaheftan einstakl-
ing og nú datt honum í hug að
spinna sama þráðinn svolítið
lengur. Og þá varð sá Rain Man
til sem áhorfendur fá aldrei að
sjá. Sagan gekk fyrir sig eitthvað
á þessa leið:
Charlie Babbitt er miðaldra
sölumaður sem ímyndar sér að
lífið hafi leikið hann heldur grátt
og til að bæta gráu ofan á svart
hefur vinkona hans náð ágætum
árangri sem lögfræðingur. Babb-
itt á bróður, Raymond. Ray-
mond er aðlaðandi ungmenni
með ástríðu fyrir körfubolta og
þroskaheftur. Raymond hefur
nýlega erft peningafúlgu eftir
föður sinn en Charlie sér ofsjón-
um yfir þessu peningaláni bróður
síns. Hann vill sitja einn að aur-
unum. Bræðurnir leggja land
undir fót og lenda í ýmsum ævin-
týrum. Þeim eru brugguð bana-
ráð og smám saman myndast
með þeim vinátta sem verður
órjúfanleg þegar Raymond
bjargar Charlie út úr brennandi
hlöðu. í lokin sjáum við
bræðurna sitja saman og fylgjast
með körfuboltaleik. Vinátta
þeirra er innsigluð.
Hvað gerðist svo?
Barry Morrow fannst þetta held-
ur gott handrit og kom því á
framfæri við rétta menn. Þeir sáu
í því efni í hjartnæma mynd, til-
valda fyrir þá bræður Randy og
Dennis Quaid að spreyta sig á.
Bráðlega fékk United Artists
áhuga. Kannski var þarna komið
tækifæri fyrir kvikmyndaverið að
búa til stórgróða-jólamynd sem
bjargað gæti kvikmyndaverinu
frá gjaldþroti. Og nú hófst leitin
að rétta leikstjóranum. Og svo
vill til að Barry Levinsons er
einna fyrstur til að afþakka
starfið. Hann hefur öðrum
hnöppum að hneppa, nefnilega
þeim að gera Good Morning,
Vietnam. Það er hins vegar
Marty Brest (Beverly Hills Cop)
sem þiggur að leikstýra Rain
Man en hafnar Good Morning,
Vietnam.
Von bráðar fá stórfiskarnir
veður af brallinu og umboðsmað-
ur Dustins Hoffmans sendir hon-
um handritið í von um að leikar-
inn fáist til að taka að sér hlut-
verk Charlie Babbits. En Hoff-
man sýnir Raymond meiri áhuga.
Hóað er saman fundi með
Hoffman, Barry Morrow og fleir-
um. Þar kemur Hoffman öllum á
óvart með yfirlýsingu sinni: „Þeg-
ar fólk mun líta til baka á feril
minn verður mín minnst fyrir tvö
hlutverk; Ratso Rizzo og Regn-
manninn. Ég vil gera þessa mynd
og það fljótt."
Én þetta er ekkert einfalt mál.
M-G-M/UA (United Artists) vill
fá myndina fyrir jólin 1987 og
leikstjórar hafa í hótunum um að
fara í verkfall. Tökur verða að
hefjast ekki síðar en í apríl það
ár. Brest á í sálarstríði, pressan
er þung og hann gengur með aðra
mynd í maganum og vonast til að
geta vakið áhuga Hoffmans á
henni.
Það verður svo til að auka enn
á kröfurnar um flýti að Tom
Cruise vill fyrir alla muni fá að
leika á móti æskuhetju sinni
Dustin Hoffman. Síðar játar
Cruise það fyrir Hoffman að
hann, Tim Hutton og Sean Penn
hafi sem strákpjakkar löngum
setið fyrir utan heimili stórstjörn-
unnar og manað hvern annan til
að berja upp á.
En Cruise er tveimur áratugum
yngri en Charlie Babbitt sögunn-
ar. Morrow rís því upp gegn val-
inu á Cruise en er látinn fara. í
hans stað kemur Bass, fyrrver-
andi lögfræðingur sem skrifaði
handritið að Black Widow og er
þekktur fyrir röskleika við
skriftir. Hann fær aðeins tvo
mánuði til að fara yfir handritið
og fínpússa það. Þetta tekst hon-
um þrátt fyrir hlaupabólu og
tímaskort. Brass heldur sig við
góðu málalokin. Bræðurnir eru
sáttir í enda myndar og una vel
við sitt dorgandi niður á bryggju.
Allt í vaskinn
Um þetta leyti eru allir orðnir
taugaveiklaðir. Brest leitar töku-
staða í Chicago og Las Vegas og
að tillögu Cruise er þriðji hand-
ritshöfundurinn ráðinn, Richard
Price (The Color Of Money).
Hann fær að skrifa 40 síður sem
ekki finna náð fyrir augum
Hoffmans og Brests. Price missir
starfið og Michael Bortman er
ráðinn í hans stað.
Allar þessar sviptingar koma
svitanum út á framleiðanda
myndarinnar Guber og hann bið-
ur því Mark Johnson, sem fram-
leitt hefur allar myndir Barry
Levinsons, um að taka að sér
ráðgjöf og aðstoð við gerð mynd-
arinnar. Johnson er hins vegar
ekki á lausum kili í svipinn en
árið eftir er hann orðinn fram-
leiðandi Rain Man.
Ogsvofellurrothöggið. Innan
þriggja vikna á að hefja upptökur
en þá tilkynnir forstjóri UÁ Tony
Thomopoulos að hætt hafi verið
við allt. Marty Brest er hættur.
Enginn veit af hverju og hann
neitar að tala við nokkurn mann.
leggja árar í bát. Það er umboðs-
maðurinn Mike Ovitz sem í upp-
hafi vakti athygli Dustin Hoff-
mans á Rain Man. Hann vill hafa
eitthvað fyrir snúð sinn. Ovitz
kemur handriti Bass yfir til Spán-
ar þar sem Steven Spielberg er að
vinna að Empire Of The Sun.
Spielberg sýnir áhuga en neitar
að binda sig. Hann samþykkir þó
að mæta til viðræðna með þeim
Hoffman og Cruise,
Á meðan þessu fer fram er
Hoffman byrjaður að finna til
efasemda um Raymond. Hann á
að vera þroskaheftur en þó að
búa yfir einstökum hæfileikum.
Þetta ástand kallast á fagmáli
savant Syndrome og er dregið af
franska orðinu savoir sem þýðir
að kunna. Hoffman fær veður af
einhverfi (autism) og um leið sér
hann opnast fyrir sér nýtt og
krefjandi verkefni. Hoffman vill
eitthvað nýtt og krefjandi. Hann
er leikari af lífi og sál. Bass er nú
ráðinn á ný til að umskrifa hand-
ritið enn einu sinni. „Nú varð
gjörbreyting,“ segir Bass. „í
staðinn fyrir geðfellda persónu
sem vakti samhug varð til önnur
sem vildi ekki leyfa neinum að
koma nærri sér og var langt frá
því að vera geðfelld.
Um leið sáu allir að hamingju-
sami endirinn hafði verið höfuð-
meinið allan tímann. Hann var
ekki trúverðugur. Það var þó erf-
itt að gefa hann upp á bátinn. Ein
af helstu kennisetningum Holly-
wood er sú að áhorfendur vilji að
allt falli í ljúfa löð, allir brosi og
hamingjan sé tryggð þegar tjaldið
falli. Bass og Spielberg bjuggu
því til brothættari hamingjuendi
en venja var til. Raymond fer á
hælið aftur en hefur áður fullviss-
að bróður sinn um að þeir muni
alltaf vera saman í andanum.
En þrátt fyrir að Spielberg sé
kominn með puttana á kaf í Rain
Man hefur hann ekki enn skrifað
undir samning. Hann er skuld-
bundinn Paramount um að gera
þriðju Indiana Jones myndina
um vorið 1989. Það er október
1987 og hann er ekki viss um að
geta gert hvorutveggja. Bass skil-
ar handriti númer tvö, Hoffman
og Cruise eru reiðubúnir en
Spielberg er á báðum áttum. Og
áður en nokkur veit af er hann
hættur við allt saman.
Eins og hundur á roði
Vísast hefðu andlega heilbrigðir
menn gefist upp við svo búið. En
Dustin Hoffman er ekkert venju-
legur. Þegar hann fær veður af
góðu hlutverki hangir hann á því
eins og hundur á roði. Enginn fær
að taka það frá honum. Hann
hafði vingast við tvo bræður,
annan einhverfan hinn ekki, til
að geta notað þá sem fyrirmynd
að Raymond. Hann og Cruise
deila daglegu brauði með drengj-
unum, fara í keilu með þeim og
orð þeirra og athafnir verða sjálf-
krafa hluti af handritinu. Þegar
Hoffman lék í Tootsie fór hann
iðulega um götur New York
klæddur eins og Dorothy. Hann
leikur nú sama leikinn. Hann
snæðir morgunverð með Tony
Thomopoulus og í heila klukku-
stund tekst honum að forðast
augnatillit forstjórans og er held-
ur undarlegur í allri framkomu.
Ónotatilfinning hríslast niður
hrygglengju Thomopoulus en
þegar hann sér að Hoffman er
líka eitthvað skrýtinn í göngulagi
áttar forstjórinn sig. Hoffman er
orðinn Raymond.
Þegar Spielberg hefur snúið
baki við Rain Man ákveður
Hoffman að hafa samband við
leikstjóra Tootsie, Sidney
Pollack, og athuga hvort hann sé
ekki tilkippilegur að taka mynd-
ina að sér. Þetta vekur óneitan-
lega furðu þegar hafður er í huga
eldurinn á milli þessara tveggja
við gerð Tootsie. Pollack tekur
þegar til starfa. Hann ræður tvo
uppáhalds handritshöfunda sína
og vill breyta handritinu einu
sinni enn. Og núna á það að fara
í upprunalega horfið með áherslu
á Charlie sem er í miklu meira
afhaldi hjá Pollack en nokkru
sinni Raymond. En allt í einu er
Pollack hættur. Hann hefur þó
skrifað undir og ráðið starfsfólk.
Nú hafa hvorki fleiri né færri en
þrír leikstjórar gefið Rain Man
upp á bátinn og verkfall handrita-
höfunda er yfirvofandi.
Bjargvætturinn
Örlögin ráða lífinu, sagði Krist-
ján frá Djúpalæk í ágætum sjón-
varpsþætti á dögunum. Líklega
myndi Dustin Hoffman taka und-
ir þau orð. Fyrir tilviljun hittir
hann Barry Levinson í fjölleika-
húsi. Hann biður hann að lesa
uppkast Bass og hringja í Pollack
til að telja í hann kjark. Levinson
hringir en áhugi hans á Rain Man
vaknar við lestur handritsins.
Eiginkona hans hvetur hann líka
til verksins þegar hún sér hvað
manni sínum líður. Það er því
himnasending fyrir Levinson
þegar Pollack hættir. Hann er til
reiðu. Og sannleikurinn er sá að
Levinson og Hoffman deila svip-
uðum skoðunum. „Málið er
það,“ segir Levinson, „að ég kæri
mig lítið um hina venjubundnu
söguuppbyggingu. Það eru per-
sónurnar sem skipta mig mestu.
Það eru þær sem ákveða atburða-
rásina en ekki einhverjir tilfall-
andi atburðir. Tökum Charlie
sem dæmi. Hann kemst áfram á
persónutöfrum en skyndilega
mætir hann persónu sem ekkert
vill kaupa, sem ekki verður plöt-
uð og ekki heilluð. Þegar þú get-
ur ekki lengur notað þá hæfileika
sem þú ert vanur að nota til að
pota þér áfram þá snýstu gegn
sjálfum þér. Þetta er einmitt það
sem Charlie gerir." Þessi orð
Pollacks hefðu allt eins getað
komið úr munni Hoffmans.
Enn einu sinni upphefst
kapphlaupið við tímann. UA vill
myndina fyrir jólin 1988. Levin-
son fær átta vikur til að undirbúa
tökur. Hann vill breyta handrit-
inu. Meðal annars finnst honum
Charlie vera í ómögulegu starfi.
Þeir taka tal saman leikstjórinn
og Cruise. „Við röbbuðum um
hraðskreiða bíla og erlenda bíla
og síðan um gráa bílasölumark-
aðinn og allt í einu sagði Barry.
Já þetta er það sem við gerum,
látum Charlie höndla með bíla á
gráum markaði.“
Á þennan hátt kom Levinson
vilja sínum fram, ekki með nein-
um látum heldur hljóðlegu tali og
átakalausu. Kvikmyndatakan
hefst og skotin eru tekin í þeirri
röð sem þau munu birtast í
myndinni sem er sjaldgæf vinnu-
tilhögun leikstjóra í dag. Hoff-
man gengur illa að ná tökum á
Raymond en smám saman verða
þeir eitt. Undir lokin vaknar ugg-
ur með Levinson um að væntan-
legir áhorfendur kunni að fá þá
tilfinningu fyrir Raymond að
honum sé að batna. Hann finnur
því upp á nýju atriði sem á að
koma í veg fyrir þann misskiln-
ing. Alveg undir lokin forfallast
sá sem á að leika geðlækninn og
Levinson lætur tilleiðast að leika
hann sjálfur.
Dauðir rísa upp
Þegar Rain Man er loksins orðin
að bíómynd er kvikmyndaverið
sem staðið hefur að gerð hennar
allan þennan tíma komið að fót-
um fram. M-G-M/UA á að
seljast. Það hefur ekki lengur for-
stjóra eða framkvæmdastjóra og
flestir starfsmenn þess eru á
braut. En nú er allt útlit fyrir að
vandræða myndin, eins og Rain
Man hefur á undanförnum árum
verið kölluð í Hollywood, bjargi
fyrirtækinu. Fjórir kunnustu
leikstjórar Bandaríkjanna hafa
haft hönd í bagga með henni, sex
handritshöfundar og átta fram-
leiðendur svo eitthvað sé talið.
Og nú er þetta vandræðabarn
orðið að fingri Krösusar.