Dagur - 08.03.1989, Síða 1
Allt fyrir
72. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 8. mars 1989
47. tölublað
errabodin
HAFNARSTRÆTI 92.602 AKUREYRI. SlMI 96-26708 . BOX 397
Slökkvilið Akureyrar kallað út í tvo bruna í gærkvöld með aðeins 8 mínútna millibili:
Hús sem í eru þijú fyrir-
tæki brann á Akureyri
- og eldur kom upp að bænum Hjarðarhaga í Öngulstaðahreppi
Slökkvilið Akureyrar var tví-
vegis kallað út með aðeins 8
mín. millibili í gærkvöld. Kl.
19.48 var slökkviliðið kaljað að
bænum Hjarðarhaga í Öngul-
staðahrcppi en þar hafði
kviknað í feiti á pönnu. Þegar
slökkviliðsmenn komu að
bænum á bíl Brunavarna
Eyjarfjarðar, hafði húsfreyj-
unni tekist að ráða niðurlögum
eldsins en einhverjar skemmd-
ir urðu af dufti og reyk.
Það var svo kl. 19.56 að
slökkvilið var kallað að Óseyri 20
en þar hafði komið upp eldur í
bárujárnsklæddu timburhúsi,
sem í eru 3 fyrirtæki, Skutull hf.
Bátaverkstæði Birgis Þórðatíon-
ar, auk bílaverkstæðis. Nánast
allt tiltækt lið var kallað út og
gekk slökkviliðinu greiðlega að
ráða niðurlögum eldsins að sögn
Gísla Kristins Lórenzsonar vara-
slökkvliðsstjóra en engu að síður
urðu miklar skemmdir í brunan-
um.
I Á bílaverkstæðinu voru fjórir
bílar og eru þeir mikið
skemmdir, þar inni voru einnig
gastæki sem slökkviliðsmenn
grófu í fönn, enda kútarnir farnir
að hitna. Þá urðu einnig mikl-
ar skemmdir á bátaverkstæðinu
og hjá Skutli, þó ekki hafi legið
neitt endanlegt fyrir um það er
blaðið fór í prentun seint í
gærkvöld.
Gísli Kristinn sagði að það
hefði verið heppilegt að tvö
snjóruðningstæki frá bænum hafi
verið á Óseyrinni þegar tilkynnt
var um eldinn og þau hafi hjálpað
til við að ryðja fyrir tæki slökkvi-
liðsins að húsinu.
-KK
Slökkvilið Akureyrar að störfum við brunann að Óseyri 20 í gærkvöld.
Mynd: TLV.
Akureyri:
Tindinni
synjað um
léttvínsleyfi
„Þetta er gamaldags og illgirn-
islegt sjónarmið því í dag fer
enginn að drekka sig fullan af
rauðvíni og rósavíni sem getur
fengið bjór og sterk vín á
næsta veitingastað,“ sagði Vil-
helm Agústsson, en Bæjar-
stjórn Akureyrar samþykkti í
gær bókun bæjarráðs um að
hafna Lindinni við Leiruveg
um vínveitingaleyfi.
Vilhelm sagði að hann hefði
rætt við Ólaf Walter Stefánsson
hjá dómsmálaráðuneytinu um
leyfi til að veita lé'ttvín með mat í
Lindinni. Ólafur taldi enga mein-
bugi á veitingu slíks leyfis ef sam-
þykki bæjarstjórnar fengist.
„Við erum með fínasta eldhús,
þjónustu á borð, matreiðslumann
og annað tilheyrandi, alls ekki
verra en aðrir veitingastaðir í
bænum. Að fólk geti bara fengið
Mix með matnum finnst okkur og
gestunum leiðinlegt. Fólk á að
geta komið í Lindina á föstudags-
eða laugardagskvöldi og fengið
sér steik og kannski rauðvínsglas
með. Ég sé engan mun á Lindinni
og því að fólk keyri inn á Bauta-
plan, fari inn og kaupi vín eða
bjór í almennu afgreiðslunni,“
sagði Vilhelm. EHB
Bjarni Ásgeir Jónsson, stjórnarmaður í Félagi kjúklingabænda,
um ummæli Jóhannesar Gunnarssonar:
Réttast að fara í mál við formaim
Neytendasamtakaima vegna atviimurógs
,Það virðist ekkert annað
komast að hjá formanni Neyt-
endasamtakanna en að ráðast
með offorsi á kjúklinga- og
eggjaframleiðendur. Hann
hefur vísvitandi borið á borð
villandi og rangar tölur um
verð kjúklinga sem t.d. rit-
stjóri DV hefur tekið beint
upp og hamrað á í leiðaraskrif-
um. Við getum ekki setið und-
ir þessu lengur. I raun þyrfti að
„Eins og köld vatnsgusa“
- segir Helgi Helgason framkvæmdastjóri Hiks sf. á Húsavík
um orð Jóns Sæmundar Sigurjónssonar alþingismanns
,Orð Jóns Sæmundar Sigur- Verðmæti óseldra birgða Hiks
jónssonar, alþingismanns, um er yfir 40 milljónir króna. Á
þessu stigi er ekki séð að hægt
verði að selja þær en Helgi segir
að lagmetisframleiðendur hafi
blásið út slæmt ástand á lag-
metismörkuðum er eins og
köld vatnsgusa í andlitið á
okkur,“ segir Helgi Helgason,
framkvæmdastjóri Hiks sf. á
Húsavík. „Slík ummæli eru
ekki til að auðvelda okkur að
rétta úr kútnum. Þau má túlka
þannig að við lagmetisfram-
leiðendur höfum ekki verið að
segja fólki satt um stöðu
mála.“
Helgi segir staðreyndir málsins
liggja fyrir og engum blöðum sé
um það að fletta að Hik hafi tap-
að á annan tug milljóna vegna
þess að markaðir í Þýskalandi
lokuðust.
að vissulega reyni menn allt til að
halda áfram baráttunni og leita
nýrra leiða út úr ógöngunum.
„Staða okkar er auðvitað mjög
slæm og af þeim sökum höfum
við ekki getað staðið við ýmsar
skuldbindingar."
Helgi Helgason.
Að sögn Helga bíða lagmetis-
framleiðendur enn eftir við-
brögðum stjórnvalda við aðgerð-
um grænfriðunga. „Við teljum
sem fyrr að hér sé um að ræða
ríkisstjórnarmál. Þetta er pólitísk
ákvörðun,“ segir Helgi. „Okkur
þykir sanngirnismál að stjórnvöld
taki á þessu máli með okkur því
það er vægast sagt óeðlilegt að
við berum allan kostnað af þessu
hvalastríði," segir Helgi Helga-
son. óþh
fara í mál við Jóhannes Gunn-
arsson, formann Neytenda-
samtakanna, vegna sífclldra
árása hans því hér er ekki um
neitt annað að ræða en atvinnu-
róg,“ segir Bjarni Ásgeir
Jónsson, kjúklingabóndi á
Reykjum í Mosfellsbæ, en
hann á sæti í stjórn Félags
kjúklingabænda.
Bjarni er hér að vísa til þeirra
miklu umræðna sem orðið hafa í
fjölmiðlum um verðlag á kjúkl-
ingum og eggjum, og raunar
einnig kartöflum. Talsmenn
Neytendasamtakanna hafa sagt
að verðhækkanir á þessum vöru-
flokkum hafi verið langt umfram
verðlagsbreytingar í landinu og
þær hafi verið látnar afskiptalaus-
ar í skjóli einokunarlaga.
Jóhannes Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna,
sagði í samtali við Dag að sam-
tökin hefðu alls ekki sagt sitt síð-
asta orð í þessu máli og sverð
yrðu ekki slíðruð fyrr en fram-
leiðendur hefðu fengist til að
lækka verð á þessum vörum veru-
lega. Hann sagðist viðurkenna að
kjúklinga- og eggjaframleiðend-
ur hafi ekki brotið lög, en mein-
semdin væri að núgildandi
búvörulög bjóði upp á einokun
og taumlausar verðhækkanir.
Það hefðu framleiðendur notað
sér t.d. með stofnsetningu dreif-
ingastöðvarinnar Alifuglasalan
hf. í Mosfellsbæ. Jóhannes sagði
að í farvatninu væru aðgerðir af
hálfu Neytendasamtakanna til að
knýja fram verðlækkun þessara
vara. Meðal annars sagði hann
koma til greina að hvetja neyt-
endur til að sniðganga kjúklinga
og egg. Þá sagði hann að upplýsa
þyrfti neytendur um verðlag á
þessum vörum í nágrannalönd-
unum, þannig að þeir gætu sjálfir
dæmt um hvort þeir létu bjóða
sér verðlagningu hérlendra
framleiðenda.
Bjarni Ásgeir segir það alrangt
hjá Jóhannesi Gunnarssyni að
kjúklingar hafi hækkað í verði á
undanförnum misserum langt
umfram það sem eðlilegt getur
talist. Hann bendir á að fram-
færsluvísitalan hafi hækkað um
93,17% á tímabilinu ágúst 1985
til og með febrúar 1989 en á sama
tíma hafi heildsöluverð á kjúkl-
ingum hækkað um 56,15% (260
kr. í ágúst 1985 en 406 kr. í
febrúar 1989). „Þetta þýðir
ósköp einfaldlega að það hefur
orðið raunlækkun á kjúklingum
en ekki þessi svívirðilega hækkun
sem Jóhannes Gunnarson talar
sífellt um,“ segir Bjarni Ásgeir
Jónsson. óþh