Dagur - 14.03.1989, Page 7
ffVMgbWMMM - 8X868 - 9
Knattspyrna:
Þór vann tvo af þremur
- vann Stjörnuna og Þrótt en tapaði fyrir ÍR
Sigurpáll Árni AAalstoinsson stóð sig vel um helgina og var markahæstur
KÁ-manna í leikjunuin tveimur. Mynd: tlv
Staðan í 1. deild
Valur 13 13-0- 0 356:262 26
KR 12 9-1- 2 302:271 19
Stjarnan 14 8-2- 4 319:302 18
FH 12 7-1- 4 326:299 15
Víkingur 13 6-1- 6 337:351 13
KA 14 5-2- 7 313:319 12
Grótta 12 4-2- 6 257:263 10
Fram 13 2-3- 8 276:315 7
ÍBV 12 1-3- 8 247:291 5
UBK 13 1-1-11 267:327 3
Staðaní2. deild
HK 15 13-1- 1 398:292 27
Haukar 16 10-2- 4 369:312 22
ÍR 13 10-1- 2 329:252 21
Ármann 15 9-1- 5 348:348 19
Njarðvík 14 6-1- 7 349:338 13
Selfoss 15 7-0- 8 382:381 14
ÍBK 15 5-0- 9 330:363 10
Þór 16 5-0-11335:397 10
UMFA 15 4-0-12 328:364 8
ÍH 14 2-0-12 261:382 4
Handknattleikur 1. deild:
KA í öruggu sæti eftir tvö jaftitefli
- gegn KR 24:24 og Stjörnunni 23:23
KA gerði tvö jafntefli í 1. deild
í handknattleik um helgina og
siglir þar með lygnan sjó í
deildinni. Jafnteflið á móti KR
á föstudagskvöldið er mjög
umdeilt þar sem Konráð Olav-
son steig á línu er hann skoraði
jöfnunarmark KR á síðustu
sekúndum leiksins. Tíminn var
of naumur fyrir KA-inenn og
þeir máttu því sætta sig við
24:24 jafntefli. Á sunnudaginn
lék KA við Stjörnuna og þeim
leik lyktaði einnig með jafn-
tefli, 23:23, eftir að KA hafði
verið tveimur mörkum yfir í
hálfleik, 15:13.
Umdeilt jafntefli í
Laugardalshöllinni
KA skoraði tvö fyrstu rpörkin í
leiknum á móti KR á föstudags-
kvöldið og hélt forystunni þar til
15 mínútur voru liðnar af leikn-
um. Þá jafnaði Konráð Ólavson,
5:5. í næstu sókn KA-manna
misstu þeir boltann og Páll Ólafs-
son brunaði upp állan völl og
kom KR yfir í fyrsta sinn í leikn-
um. Páll tognaði illa í hné er
hann stökk inn í vítateig KA og
var borinn af leikvelli. Allt útlit
er því fyrir að KR njóti ekki
krafta hans í komandi leikjum.
Meiðsli Páls brutu KR-liðið
ekki niður og næstu 10 mínúturn-
ar skiptust liðin á um að hafa
frumkvæðið en jafnt var á öllum
tölum. Pegar um 5 mínútur lifðu
af hálfleiknum kom slæmur kafli
hjá KA og KR komst 3 mörkum
yfir. staðan í hálfleik var því
11:14 fyrir KR.
Síðari hálfleikurinn var ögn
skemmtilegri á að horfa en sá
fyrri. KA-menn sóttu í sig veðrið
og náðu að stöðva KR-ingana.
Peir höfðu góðar gætur á Alfreð
Gíslasyni og komst hann því lítið
áfram. Axel Stefánsson átti góð-
an leik í KA markinu og varði
samtals 13 skot í leiknum. Þegar
10 mínútur voru liðnar af hálf-
leiknum jöfnuðu KA-menn 18:18
og eftir það var jafnt á öllum
tölum. Leikurinn varð talsvert
spennandi í lokin en Erlingur
Kristjánsson kom KA yfir 24:23
þegar aðeins 30 sekúndur voru til
loka leiksins. KR-ingar voru
fljótir fram og út í hornið barst
boltinn til Konráðs Ólavsonar
sem greinilega steig á línu er
hann stökk inn í teiginn. Dómar-
ar þóttust ekkert athugavert sjá
við þetta og jöfnunarmarkið var
því gilt.
Markahæstir KA-manna í
leiknum voru Jakob Jónsson og
Sigurpáll Aðalsteinsson sem
skoruðu 5 mörk hvor. Pétur
Bjarnason og Erlingur Kristjáns-
son skorðu 4 mörk hvor, Guð-
mundur Guðmundsson 3 og
Friðjóns Jónsson og Ólafur
Hilmarsson 1 mark hvor.
Hjá KR var Konráð Ólavson
með 9 mörk en næstur honum
kom Stefán Kristjánsson með 5
mörk. Alfreð Gíslason skoraði 3
mörk, þar af tvö úr vítum.
Sanngjörn úrslit
gegn Stjörnunni
Á sunnudaginn mættu KA-menn
Stjörnunni úr Garðabæ. Líkt og
á föstudagskvöldið var byrjun
KA-manna mun betri en eftir því
sem á leikinn leið efldust leik-
menn Stjörnunnar. Þegar 10
mínútur voru til loka fyrri hálf-
leiks jafnaði Skúli Gunnsteinsson
í fyrsta skipti í leiknum, 9:9, en
aftur tóku KA-menn forystuna
og leiddu með tveimur mörkum
15:13 í hálfleik.
Strax í upphafi síðari hálfleiks-
ins jöfnuðu Stjörnumenn. Varn-
armönnum KÁ gekk illa að ráða
við Sigurð Bjarnasorf sem skor-
aði 4 fjögur falleg mörk í hálf-
leiknum. Allan síðari hálfleikinn
var jafnræði með liðunum og
jafntefli því sanngjörn úrsiit.
Bæði liðin fengu þó tækifæri til
að gera út um leikinn, Sigurður
Bjarnason skaut yfir KA-markið
þegar um 1 mínúta var eftir af
leiknum en KA-mönnum tókst
hins vegar ekki að nýta sína síð-
ustu sókn og urðu því að láta sér
eitt stig nægja.
Sigurpáll Aðalsteinsson lék vel
í þessum leik, skoraði 6 mörk.
Erlingur Kristjánsson átti einnig
ágætan leik, sérstaklega í fyrri
hálfleik þegar hann skoraði 4
mörk. Axel Stefánsson hefur
fengið harða samkeppni um
markmannsstöðuna því vara-
markvörðurinn Björn Björnsson
stóð sig stórvel þann tíma sem
hann fékk að spila og varði 5 skot
á mikilvægum augnablikum, þar
af eitt vítakast frá Gylfa Birgis-
syni.
í liði Sjörnunnar voru þeir
Gylfi Birgisson, Skúli Gunn-
steinsson og Sigurður Bjarnason
í sérflokki en minna sást til ann-
arra leikmanna. Brynjar Kvaran
varði 4 skot í markinu. JÓH
Knattspyrna:
Þórsarar með
öðlingamót
- næsta sumar á Akureyri
Þórsarar léku þrjá æflngaleiki í
knattspyrnu fyrir sunnan um
helgina. Þeir töpuðu fyrsta
leiknum 5:2 fyrir IR, en unnu
síðan Þrótt 3:0 og Stjörnuna
2:0.
Norðanmenn virkuðu frekar
daufir í fyrsta leiknum enda í
fyrsta skipti sem þeir leika knatt-
spyrnu í ár. ÍR-ingar gengu því á
lagið og komust í 3:0 í fyrsta hálf-
leiknum, en leikið var 3x30
mínútur.
Þórir Áskelsson minnkaði
muninn fyrir Þór og er þetta
fyrsta markið og fyrsti meistara-
flokksleikurinn hjá piltinum.
Efnileg byrjun það!
Bjarni Sveinbjörnsson minnk-
aði síðan muninn úr víti sem
Árni Þór Árnason fiskaði. Duric-
ic þjálfari var með ýmsa tilrauna-
starfsemi í þessum leik og fengu
allir leikmenn Þórs að spreyta
sig. Undir lok leiksins bættu IR-
ingar tveimur mörkum við og
endaði því leikurinn 5:3.
Á laugardagsmorguninn var
spilað við Þrótt og fóru Þórsarar
létt með Sæviðarsundsdrengina.
Valdimar Pálsson, Bjarni Svein-
björnsson og Bojan Tanevski
skoruðu mörk Norðanmanna.
Eftir hádegi var síðan leikið
við Stjörnuna og aftur sigruðu
Þórsarar. Tanevski skoraði fyrra
markið og Kristján Kristjánsson
bætti síðan við öðru marki undir
lok leiksins.
íþróttafélagið Þór hefur
ákveðið að standa fyrir „Polla-
móti Öldunga“, 30 ára og
eldri, á Akureyri næsta sumar,
nánar tiltekið föstudaginn 30.
júni og laugardaginn 1. júlí.
Gert er ráð fyrir að mótið
standi frá hádegi föstudaginn 30.
júní til kl. 19.00. Þá verði gert hlé
og menn geti ráðstafað kvöldinu
á þann hátt sem þeir kjósa.
Morguninn eftir verður boðið
upp á golfkeppni milli liðanna og
hefst hún kl. 8 árdegis. Til
keppninnar er boðið tveimur full-
trúum liðanna og verður fyrir-
komulagið níu holu keppni.
Mótinu sjálfu verður síðan
framhaldið kl. 13.00 og áætlað er
að ljúka því kl. 18.00.
Um kvöldið verður síðan sam-
eiginlegur kvöldverður og verða
þar verðlaun afhent fyrir besta
sóknarmann mótsins, besta varn-
armanninn, besta markvörðinn,
markakóng mótsins og síðast en
ekki síst persónuleika mótsins.
íþróttafélagið Þór tekur að sér
að bóka flug og hótel fyrir vænt-
anlega þátttakendur, ef þeir óska
þess. Allar upplýsingar um þetta
mót má fá hjá Benedikti Guð-
mundssyni vs. 21210 eða hs.
23918 á Akureyri.
Bjarni Sveinbjörnsson skoraði tvö mörk um helgina. Hér sést hann í leikn-
um gegn Þrótti. Mynd: KK