Dagur - 14.03.1989, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 14. mars 1989
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis
boðar til
almenns fundar
í tilefni alþjóðadags neytendaréttar, miðviku-
daginn 15. mars kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu 4. hæð.
Fundarefni:
Myndum vöruverðs og reglur um merkingu- og
aukaefni í matvælum.
Neytendur sýnið áhuga og mætið á fundinn.
Stjórn N.A.N.
-J
kvikmyndarýni
Umsjón: Jón Hjaltason
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Grænugötu 6 e.h. og ris, Akureyri,
þingl. eigandi Margrét Randvers-
dóttir, föstud. 17. mars '89, kl.
15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Hafnarstræti 77,3. og 4. hæð, Akur-
eyri, þingl. eigandi Jóna Ákadóttir
o.fl., föstud. 17. mars ’89, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Sveinn H.
Valdimarsson hrl., Ásgeir Thor-
oddsen hdl., Gísli Gíslason hdl. og
Ingvar Björnsson hdl.
Hjallalundi 3e, Akureyri, þingl. eig-
andi Ragnar Daníelsson, föstud.
17. mars '89, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Bruna-
bótafélag íslands.
Kaupvangsstræti 21, Akureyri,
þingl. eigandi Rafsegull hf., föstud.
17. mars '89, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Kaupangur v/Mýrarveg, O-hl., Akur-
eyri, þingl. eigandi Haukur Adolfs-
son föstud. 17. mars '89 kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Ólafur Gústafsson hrl.
Löngumýri 16, Akureyri, þingl. eig-
andi Óttar Ingimarsson o.fl., föstud.
17. mars ’89, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Litluhlíð 2c, Akureyri, þingl. eigandi
Haukur Guðmundsson, föstud. 17.
mars '89, kl. 15.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Bæjarsjóður Akureyrar og Kristján
Ólafsson hdl.
Litluhlíð 2d, Akureyri, þingl. eigandi
Óli H. Sæmundsson, föstud. 17.
mars '89, kl. 15.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Lækjargötu 18, Akureyri, þingl. eig-
andi Jónas Bjarnason o.fl., föstud.
17. mars ’89, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
Steypustöð Dalvíkur, v/Sandskeið
Dalvík, þingl. eigandi Steypustöð
Dalvíkur hf., föstud. 17. mars ’89, kl.
14.30.
Uppoðsbeðendur eru:
Iðnlánasjóður og innheimtumaður
ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaðurinn í Eyjafjaröarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Eyrarlandsvegi 12 e.h. Akureyri,
þingl. eigandi Herbert Halldórsson,
föstud. 17. mars '89, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Búnaðarbanki íslands og Ragnar
Steinbergsson hrl.
Gránugötu 7, hesthús, Akureyri, tal-
inn eigandi Kristján Þorvaldsson,
v/B.R.Þ. s.f., föstud. 17. mars ’89,
kl. 13.45
Uppboðsbeiðendur eru:
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hdl. og
Ólafur Garðarsson hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
Arnold Schwarzenegger í gufubaði með handklæðavæddum körlum og nöktum konum, sem er auðvitað afskaplcga
æskilegt gufubaðsform en kannski of hættulegt annars staðar en þar sem sólarleysið hefur dregið alla náttúru úr
mönnum.
Enn er sólarlaust
í Moskvu
Borgarbíó sýnir: Rauðu hættuna (Read
Heat).
Leikstjóri: Walter Hill.
Helstu leikendur: Arnold Schwarzen-
egger og James Belushi.
1988.
Ennþá hefur ekki runnið upp sól-
ríkur dagur yfir Sovétríkjunum
ef marka má bandarískar bíó-
myndir. Þetta segir vitaskuld sína
sögu um heimildagildi kvik-
mynda, jafnvel í þeim tilvikum
sem þær eru sagðar byggðar á
sönnum atburðum þá taka leik-
stjórar sér iðulega stórkostleg
skáldaleyfi. En ekki meira um
það.
Þessi nýjasta framleiðsla Walt-
er Hills er í flestu keimlík öðrum
spennumyndum sem til okkar
koma að vestan. Að vísu teflir
hann saman lögreglumönnum
tveggja heima. Hugmyndin er
óneitanlega góð en úrvinnslan vel
fyrir neðan meðallag. Þrauta-
gangan byrjar í Moskvu og það
þarf ekki að taka það fram að
gráminn yfir Kreml er allsráðandi
og sólin jafn fjarri og paradís er
frá helvíti. Arnold Schwarzen-
egger er einhvers konar lögga í
Moskvu sem á í harðri baráttu
við eiturlyfjasmyglara frá
Georgíulýðveldinu. Hann tapar
orrustunni en stríðið heldur
áfram því vondi maðurinn flýr til
Cicago og kemst þar undir
mannahendur fyrir of hraðan
akstur og óleyfilegan vopnaburð.
Arnold er sendur vestur að flytja
þann vonda heim aftur í járnum.
En glæponarnir leika á samein-
að lið löggæslumanna að austan
og vestan og sá vondi sleppur úr
haldi. Eltingaleikurinn hefst,
Arnold neitar að fara tómhentur
heim enda þá nokkuð vfst að
hann muni ekki eiga sér viðreisn-
ar von. í fylgd James Belushis,
sem er eini ljósi punktur þessarar
myndar, fer Arnold um borgina
veltandi við hverjum steini í leit
að eiturlyfjasmyglaranum landa
sínum.
Ég sagði víst í upphafi að þessi
hasarmynd Hills væri í flestu
keimlík öðrum slíkum. Þetta er
kannski heldur mikið sagt því að
einu leyti sker hún sig eftirminni-
lega úr spennumyndaflórunni.
Þrátt fyrir að lögreglan sé látin
sigra að lokum þá er hún gerð svo
heimsk að ég man ekki annað
eins. Hvað eftir annað leika
þrjótarnir þá alveg upp úr skón-
um og það er alls ekki fyrir neina
snilli að Arnold og Belushi
standa að lokum yfir höfuðsvörð-
um illmennisins. Það eru áhorf-
endurnir sem gera kröfu um góð-
an endi og við þeim óskum er
orðið andstætt öllum gangi
myndarinnar. Er það nokkur
furða þó sögusagnir komist á
kreik um lélegar sellur í heljar-
menninu Arnold þegar hann fær
hvert hlutverkið á fætur öðru sem
endurspeglar slúðrið? Sagt er að
leikarar geti fest sig í ákveðnum
hlutverkum, til dæmis vonda og
góða mannsins og því þá ekki
heimska mannsins?
Ein spurning að lokum; ætli
Sovétmenn verði svona þurr-
pumpulegir og grimmir til augn-
anna af öllu sólarleysinu þarná
fyrir austan?
NU ER HANN TVOFALDUR
Þetta eru tölurnar sem upp komu 11. mars 1989.
Heildarvinningsupphæð var kr. 4.673.066.-
Enginn var með 5 tölur réttar.
1. vinningur var kr. 2.151.826.- og færist hann yfir á 1. vinning næsta laugardag.
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 374.216.-
Skiptist á 8 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 46.777,-
Fjórar tölur réttar, kr. 645.392,- skiptast á 209 vinningshafa, kr. 3.088.- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.501.632.- skiptast á 5688
Sölustaðir eru opnir frá mánudegi til laugardags og er lokað 15 minútum fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
Akureyringar
Ferskar
fréttir með
morgunkaffinu
Askriftar‘2i2‘ 96-24222