Dagur - 14.03.1989, Qupperneq 16
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF
02?
FJARMAL ÞIN - SERGREIN OKKAR
rF|ÁRFESriNGARFÉLACID
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Rauðmagaveiðin hefur verið með eindæmum léleg:
Man ekki eftir jafti
lélegri rauðmagaveiði
- segir Reimar Þorleifsson á Dalvík
„Ég aan ekki eftir jafn lélegri
rauðmagaveiði og er ég þó
búinn að stunda hana til
margra ára,“ sagði Reimar
Þorleifsson, trillukarl á
Dalvík, aðspurður um rauö-
magavertíðina.
Reimar vitjaði um 17 net sl.
sunnudag og var afraksturinn 150
stykki. „Þetta er það besta til
Sölumarkaður notaðra
bíla hefur breyst
- uppsveifla í bflasölu á Akureyri
eftir að færðin batnaði
Fjör er að færast í bílaviðskipti
á Akureyri eftir að óveðrinu,
sem ríkt hefur með köflum
undanfarnar vikur, slotaði og
færð til bæjarins varð þokka-
leg. Almennt búast bílasalar,
sem versla með notaða bíla,
við góðu söluári í ár, en mark-
aðurinn hefur breyst mikið
undanfarið.
Hjörleifur Gíslason hjá bíla-
sölu Höldurs hf. sagði að stærsti
hluti bílasölunnar á Akureyri
byggðist á kaupendum sem
kæmu úr nágrannabyggðum
Akureyrar til að kaupa bíla. Ein
góð sala út úr bænum leiddi oft af
sér tvær til þrjár sölur innanbæj-
ar. Góð sala hefur verið í vélsleð-
um undanfarið en eftirspurn hef-
ur ekki verið sérstaklega mikil
eftir jeppum, þrátt fyrir erfiða
færð. Skilin milli fólksbíla og
jeppa hafa orðið ógreinilegri í
hugum margra eftir að fjórhjóla-
drifnir fólksbílar urðu algengari.
- En eru notaðir bílar að
hækka í verði?
„Til að notaðir bílar hækki
verulega verður að selja eitthvað
af nýjum bílum. Það er ekki nóg
að verðskráin yfir nýja bíla hækki
og sala í nýjum bílum er léleg,“
sagði Hjörleifur.
Einar Gunnarsson hjá Bílasölu
Norðurlands sagði að rólegt hefði
verið yfir bílasölum i febrúar en
ástandið færi dagbatnandi núna.
„Ég hef trú á að það verði góð
sala í notuðum bílum í ár, ekki
minni en í fyrra. En það dregur
úr sölu á nýjum bílum. Þetta lýsir
sér þannig að fólk kaupir frekar
1-2 ára gamla bíla en alveg nýja,“
sagði Einar. Hann sagði að fjór-
hjóladrifnir bílar hefðu selst best
undanfarið, aðallega Subaru, en
þar fyrir utan væri mest spurt eft-
ir litium, framhjóladrifnum jap-
önskum bílum. „Greiðslugetan
er ágæt, það virðist vera talsvert
af peningum í umferð," sagði
Einar. EHB
þessa, þó ekki sé beint hægt að
hrópa húrra fyrir aflanaum.“
Netin hafa verið lögð á hefð-
bundnum rauðmagamiðum, frá
Sauðanesi norður að Hrauni.
Auk Reimars hefur Þorvaldur
Baldvinsson lagt rauðmaganet en
fengið fremur lítið. Sjómenn
kunna ekki skýringar á þessari
deyfð í rauðmaganum en Reimar
getur sér þess til að þarna hljóti
óvenju kaldur sjór að hafa eitt-
hvað að segja. „Mér hefur virst
sem sé æ minna af rauðmaganum
á hefðbundnum miðum hér og þá
verður hans vart mun síðar en
var hér á árum áður,“ segir
Reimar.
I hönd fer grásleppuvertíðin en
Reimar er ekkert of bjartsýnn á
hana en segist sarnt ætla að prófa,
„svona af gömlum vana.“ Grá-
sleppunnar hefur enn ekki orðið
vart, að sögn Reimars, svo horf-
urnar eru ekki beint bjartar. Þá
ríkir enn óvissa með verð fyrir
grásleppuhrognin og vart að
búast við að það liggi fyrir fyrr en
eftir páska. óþh
Reimar Þorleifsson kom með 150 rauðmaga sl. sunnudag úr 17 netum. Ekki
beint liægt að hrópa húrra fyrir þeim afla, en hann er þó það skásta hingað
til. Trillukarlar halda í vonina um að þetta lagist allt sainan með hækkandi
SÓI. Mynd: óþh
Góð loðnuveiði og allar þrær fullar íyrir austan:
7500 tonnum landað á Siglu-
firði frá því á laugardag
- „þeir veiða örugglega upp í kvótann,“
segir Ástráður Ingvarsson hjá loðnunefnd
Loðnuveiði hefur verið með
líflegasta móti síðustu sólar-
hringa á miðunum við Eystra-
horn. Þróarrými er nú af
skornum skammti á Austfjörð-
um og hafa skipin því þurft að
sigla norður og landa afla sín-
um til loðnuverksmiðja á
Norðurlandi.
Miklu magni af loðnu hefur ver-
ið landað hjá Síldarverksmiðjum
ríkisins á Siglufirði síðustu daga.
Á laugardag lönduðu þar Börkur
NK (1183 tonn), Jón Finnsson
RE (1149 tonn) og Hólmaborg
SU (1461 tonn). Á laugardag
kom síðan Jón Kjartansson SU
með 1119 tonn til Siglufjarðar og
í gær lönduðu þar Beitir NK
Byggingariðnaðurinn á Dalvík:
Viðar hf. mun væntanlega byggja
þjónustu- og iðnaðarhús í sumar
- Tréverk hf. bíður eftir svari um smíði 7 kaupleiguíbúða
Byggingarfyrirtækið Viðar hf.
á Dalvík hefur fengið úthlutað
lóð við Gunnarsbraut 8 til
byggingar iðnaðar- og þjón-
ustuhúss. Ekki liggja fyrir
endanlegar teikningar af hús-
inu en Hilmar Daníelsson, hjá
Viöari hf., segist binda vonir
við að hægt verði að hefja
framkvæmdir í sumar.
Hugmyndin er að húsið verði á
tveimur hæðum, nálægt 600 fer-
metrum að grunnfleti. Hilmar
segir að Viðar hf. nýti hluta rýmis
í húsinu en afgangsrýmið verði
selt til iðnaðar- og þjónustufyrir-
tækja. Hann segist vongóður um
að hægt verði að seija allt rýmið,
enda sé ótvírætt þörf fyrir það á
Dalvík. Hann bendir á að langt
sé um liðið síðan byggt hafi verið
hús á Dalvík sem ætlað er fyrir
iðnað og þjónustu.
Auk þessa húss' við Gunnars-
braut hafa Viðarsmenn hug á að
byggja upp raðhús í sumar og þá
er hugsanlegt að byggt verði
parhús. Fyrirliggjandi eru teikn-
ingar af parhúsum en ekki hefur
verið tekin ákvörðun um hvort í
byggingu þeirra verður ráðist á
þessu ári.
Að sögn Hilmars Daníelssonar
er stefnt að því að afhenda 8
íbúðir á næstunni. Þar af eru 4
íbúðir í verkamannabústaða-
kerfi, 2 kaupleiguíbúðir og 2
leiguíbúðir í eigu Dalvíkurbæjar.
Óvissu gætir með komandi
sumar hjá Tréverki hf. á Dalvík.
Þær upplýsingar fengust hjá
Braga Jónssyni að fyrirtækið hafi
sótt um fyrirgreiðslu til byggingar
7 kaupleiguíbúða. Engin svör
hafa enn fengist frá Húsnæðis-
stofnun en búist er við að þau
liggi fyrir fljótlega eftir páska.
Að undanförnu hafa Tréverks-
menn unnið við frágang íbúða
fyrir stjórn verkamannabústaða
við Reynihóla og Lynghóla. Þær
verða væntanlega afhentar þann
20. maí nk. Þá eru 4 kaupleigu-
íbúðir í smíðum og segir Bragi að
stefnt sé að afhendingu þeirra
síðla sumars. óþh
(1299 tonn) og Hilmir SU (1325
tonn).
Að sögn Þórhalls Daníelssonar
var von á meiri loðnu í gær en
ekki hafði fengist staðfest hvaða
skip voru þar á ferðinni eða
hversu mikið magn af loðnu þau
báru. Þórhallur sagði að þróar-
rými væri nægilegt, þrátt fyrir að
svo mikið magn af loðnu bærist á
fáum dögum. „Við njótum góðs
af því þegar gerir svona góðar
aflahrotur. Þrærnar fyllast fyrir
austan og þá kemur ekkert annað
til greina en að sigla norður fyrir
land. Ég vona bara að þetta verði
svona áfram. Við getum tekið við
mun meiri loðnu,“ sagði Þórhall-
ur. Frá áramótum hefur verið
landað 15.558 tonnum af loðnu
úr 15 skipum til Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði.
Loðnubræðsla hófst sl. sunnu-
dag hjá Síldarverksmiðjunum og
er nú unnið á vöktum. Það er því
líf og fjör í loðnunni á Sigló og
vonandi að svo verði um hrið.
Ástráður Ingvarsson, hjá
loðnunefnd, var vel ánægður
með lífið og tilveruna þegar Dag-
ur náði tali af honum í gær. Hann
sagði veiðina vera góða og í sín-
um huga væri enginn vafi að það
tækist að veiða upp í kvótann.
„Ég hef lengi haldið því fram og
sé enga ástæðu til að breyta þeim
spádómi,“ sagði Ástráður. óþh