Dagur - 20.04.1989, Blaðsíða 19

Dagur - 20.04.1989, Blaðsíða 19
íþróttir íþróttir helgarinnar: Skíði og knattspyma - Andrésar Andar-leikamir og æfingaleikir í knattspyrnunni Þar sem ekkert blað kemur út á morgun munum við í dag ræða um helstu íþróttavið- burði. Það sem hæst ber eru Andrésar-Andarleikarnir á skíðum í Hlíðarfjaili. Fyrir sunnan fer íslandsmótið í júdó fram og þar keppir fríður hóp- ur frá KA. Keppnin á Andrésar-Andar- leikunum hefst í dag kl. 10.00. og verður fram haldið á föstudag og laugardag. Samhliðasvig Flugleiða sem frestað var annan dag páska, fer fram í Hlíðarfjalli sunnu- daginn 23. apríl. Verðlaun eru sérstaklega glæsileg; flugferðir til Luxemborgar á vegum Flug- leiða. íslandsmótið í júdó fer fram í íþróttahúsi Kennaraháskóla Islands á laugardag og sunnudag og keppa þar um 100 júdómenn frá sex félögum. Þangað fer sterkur hópur júdómanna frá KA og má búast við að þeir standi sig vel, eins og fyrri daginn. KA-liðið í knattspyrnu fer suð- ur og keppir þar tvo æfingaleiki: við Valsmenn í kvöld og Stjörn- una á sunnudaginn. Þorvaldur Örlygsson er nú kominn aftur til er að efa að keppnin í ár verður líka mjög spennandi og búast má við mjög mörgum keppend- unt því verðlaunin eru einstak- lega glæsileg. landsins og Erlingur Kristjánsson farinn að æfa svo þetta er í fyrsta skipti sem Guðjón þjálfari getur, svona nokkurn veginn, teflt frant sínu sterkasta liði. Þórsarar leika tvo æfingaleiki á Sana-vellinum. í dag, fimmtu- dag, kl. 12.00 keppa þeir við Völsunga frá Húsavík og á laug- ardaginn kl. 12.30 keppa þeir við KS frá Siglufirði. KS keppir þar að auki annan leik gegn TBA á sunnudaginn kl. 10.30. Fyrsta íslandsmótið í pútti fer frant í Broadway á sunnudags- kvöldið kl. 18.00. Keppt verður í fjórunt flokkum karla, kvenna, unglinga og öldunga. Skráning fer fram á staðnum og eru þeir kylfingar sem verða í Reykjavík hvattir til að taka púttið rneð sér, en einnig veröur hægt að fá lánað pútt á staðnum. Að mótinu lokn- um mun John Garner landsliðs- þjálfari halda golfsýningu. Svona í lokin er vert að minna á samhliðasvig Flugleiða sem haldið er í Hlíöarfjalli á sunnu- daginn. Glæsileg verðlaun eru í boði og er fólk hvatt til að fylgj- ast með spennandi keppni. Samhliðasvig í HKðarfjalli - glæsileg verðlaun í boði Fimmtudagur 20. apríl 1989 - DAGUR - 19 Kcppni á Andrésar Andar-leikunuin á skíðuin hcfst í dag kl. 10.00. Tinna Hlín Ásgcirsdóttir verður sjálfsagt nieðal keppcnda ásaint 600 öðruni krökkuni. Mynd: TLV. Vara við of mikiiii bjartsýni - segir Porvaldur Örlygsson knattspyrnumaður Keppnin hefst á sunnudags- morguninn í forkeppni 13-14 ára drengja og stúlkna. Eftir hádeg- ið, kl. 13.00, er keppt í flokki 15 ára og eldri og þeirra sem komust áfram í forkeppninni. Þátttöku þar að tilkynna fyrir 21. apríl í síma 21766, 22280 eða 21720. Keppnin í samhliðasviginu í fyrra þótti mjög skemmtileg og dró að marga áhorfendur. Ekki Akureyrarmót í stórsvigi 13-14 ára var haldið um síðustu helgi. Keppnin fór fram í blíð- skaparveðri og var árangurinn ágætur. Hjördís Þórhallsdóttir sigraði í stúlknaflokki en Arn- ar Friðriksson í piltaflokki. En lítum á úrslitin: Þorvaldur Örlygsson knatt- spyrnumaður úr KA hefur undanfarna mánuði leikið með hálf-atvinnumannaliðinu Pad- erborne í V-Þýskalandi. Hann er nú kominn aftur hing- að upp á klakann og við tókum Stúlkur: 1. Hjördís Þórhallsdóttir 1:36.08 2. Ásta Baldursdóttir 1:37.22 3. Sísý Malmquist 1:37.22 Piltar: 1. Arnar Friðriksson 1:33.40 2. Magnús Magnússon 1:34.89 3. Bjarni B. Bjarnason 1:35.26 hann tali og ræddum um dvöl- ina hjá Þjóöverjunum. „Þetta var á margan hátt ágætis tími,“ sagði Þorvaldur. „Ég bjóst að vísu við að klúbburinn væri sterkari og meiri klassi yfir honum. Einnig náði ég mér ekk- ert sérstaklega vel á strik knatt- spyrnulega séð en ég eignaðist þarna ágæta kunningja og þetta var því dýrmæt reynsla scm kem- ur rnanni örugglega til nota síðar,“ bætti hann við. - Þú segir að þér Itafi ekki gengið neitt sérstaklega vel knattspyrnulega séð. En hvernig gekk liðinu þann tíma sem þú spilaðir með þeim? „Liðinu gekk svona þokka- lega. Paderbotne leikur í Ober- ligunni svokölluðu, sem er sam- bærileg við 3. deildina hér á landi. Það hafði ekkert gengið áður en ég kom og var liðið þá í bullandi fallhættu. Ég spilaði sjö deildar- leiki og unnust fimm þeirra. Ein- um töpuðum við og einn var jafn- tefli. Síðan lékum við bikarleik sem tapaðist. Ég náði að skora tvo mörk í þessum leikjum.“ - Er mótið búið í V-Þýska- landi? „Nei, það eru enn fjórar umferðir eftir. Við vorum þarna í óttalegu basli en náðum að sigra í síðasta leiknum sem ég Iék með liðinu. Það voru þýðingarmikil stig sem við náðum þar í og lyft- um okkur upp um 2-3 sæti. En leikirnir sem Paderborne á eftir að spila eru erfiðir og það er ekki víst að liðið nái að halda sér f deildinni.“ - Sérðu eftir því að hafa farið út? „Nei, alls ekki. Þarna kynntist ég andrúmsloftinu í atvinnu- knattspyrnu og það er reynsla sem maður býr alltaf að. Veðrið er búið að vera sérstaklega gott í Evrópu að undanförnu og það var því frábært að æfa og spila í sól og 15 stiga hita og fá síðan fréttirnir af fannferginu hér heima.“ Nú hló Þorvaldur og benti út um gluggann. „Hugsaðu þér að þaö er mánuður í íslands- mót, grasvöllurinn er undir ís- klaka og það snjóar þrátt fyrir 'aö sumardagurinn fyrsti sé á morgun," sagði hann hugsandi. - Nú hefur verið ncfnt að þú værir á leið til Grikklands? „Já, það er enn inni í mynd- inni. Reyndar átti ég að fara út núna þessa dagana en ég er ekki nógu góöur í hnénu og hætti því við þá ferð. Hins vegar er þetta dæmi ennþá opið, en ég vil fá betur á hreint ýntis atriði áður en ég fer að fara þangaö og það verður þá ekki fyrr en í haust.“ - Hvernig líst þér á tímabilið fyrir ykkur KA-menn? „Þaö er dálítið erfitt að segja. Liðið styrkist mikið við af fá þá Orntarr og Jón Grétar, en nú verður Ormarr ekki nteð fyrr en í júlí. Hópurinn er tvístraður, eins og undanfarin ár og liðið er alltaf óskrifað blað í fyrstu leikjunum. Dæmið gekk upp í fyrra og ég sé ekki af hverju þaö ætti ekki að ganga upp í ár. Hins vegar vil ég vara við of ntikilli bjartsýni því nú taka hin liöin okkur mjög al- varlega." 1X21X21X21X21X2 1X21X21X21X2 Ingi heldur áfram og 4 milljónir fœrasf á milli Ingi Björnsson fjármálastjóri hjá Álafossi lagði Kristján Torfason í síðustu viku og skorar nú á Jón H. Guðmundsson forstöðu- mann vefdeildarinnar hjá Álafossi. „Maður varð að finna ein- hvern nógu léttan,“ sagði Ingi og kímdi. Potturinn gekk ekki út í síðustu viku og því bætast rúmar 4 milljónir við venjulega sölu þannig að búast má við að hátt í 6 milljónir veröi til skiptanna að þessu sinni. Hið hörmulega slys á Hillsborough leikvanginum í síöustu viku hangir eins og dökkur skuggi yfir knattspyrnulífinu á Eng- landi þessa dagana. En það verður að klára mótið enda eru ekki margar umferðir eftir. Ingi: Charlton-Man. Utd. 2 Coventry-Q.P.R. 1 Derby-Sheff. Wed. 1 Middlesbro-Nott. For. 1 Newcastle-Luton 1 Norwich-Aston Villa x Southampton-Wimbledon 2 Tottenham-Everton x West Ham-Millwall x Brighton-Swindon 2 Chelsea-Leeds 1 Ipswich-WBA x Jón: Charlton-Man. Utd. 2 Coventry-Q.P.R. x Derby-Sheff. Wed. 1 Middlesbro-Nott. For. 2 Newcastle-Luton 1 Norwich-Aston Villa 1 Southampton-Wimbledon 1 Tottenham-Everton 1 West Ham-Millwall x Brighton-Swindon 2 Chelsea-Leeds 1 Ipswich-WBA 1 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 1X2 Þorvaldur Örlygsson segir að Grikklandsferð sé enn inni í myndinni. Mynd: TLV. Skíði: Ainar og Hjördís efst í stórsvigi - á Akureyrarmótinu

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.