Dagur - 02.06.1989, Síða 6

Dagur - 02.06.1989, Síða 6
fCi ' ,S ■ujpebutaö^ 6 - DAGUR - Föstudagur 2. júní 1989 Stúdentar brautskráðir frá M.E. árið 1986 skólameistari lengst til vinstri. Ljósm.: Jón Ingi Menntaskólinn á Egilsstöðum: Stúdentar braut- skráðir 4. júní Þann 4. júní nk. verður braut- skráning stúdenta úr Mennta- skólanum á Egilsstöðum. At- höfnin hefst kl. 14 í Egilsstaða- kirkju. Reiknað er með að fjöldi þeirra verði alls 32, þar af 7, sem luku námi á haustönn 1988. Frá því að starf hófst í skólan- um laugard. 20. maí hefur verið unnið af kappi. Reglulegar kennslustundir hafa staðið fram til kl. 17. Að þeim loknum hafa tekið við „stoðtímar", þar sem kennarar hafa verið á vissum tím- um í tilteknum kennslustofum til aðstoðar við nemendur til kl. 21 hvern dag. Við þær erfiðu aðstæður sem blöstu við að loknu verkfalli hafa komið í Ijós kostir „stoðkerfisins", sem þróaö hefur veriö í skólanum allt frá árinu 1983. Kerfi þetta tekur mið af þörfum nemandans, sem ein- staklings. Það gefur honum færi á að koma til þess eða þeirra kennara í „stoðtíma" sem hann telur sig þurfa aukna aðstoð frá, með sín eigin vandamál viðkom- andi námi sínu. Slíkt leiðir svo til aukinna tengsla og bættra sam- skipta kennara og nemenda, sem vissulega hafði sín áhrif þegar upp koni sú erfiða staða „að bæta skaðann eftir föngum“. Nemendur skiluðu sér mjög vel til starfa og í sumum áföngum vantarengan nentanda. Þeirbáru fram óskir um það að námið yrði metið og próf felld niður hvar sem það væri mögulegt. Kennar- ar komu til móts við kröfur nemenda þar sem þeir töldu sig geta og prófum var fækkað nokkuð. Próftími var ákveðinn frá 26.5. til 2.6. og um þessa lausn ríkir samkomulag. Megin- stefna skólans var að námslyktir yrðu marktækar og að truflun nemenda í námi sínu í lágmarki. Þeim nemendum, sem ekki geta lokið prófum í vor er gefinn kostur á því fyrir upphaf haust- annar ’89. Ákveðið hefur veriö að bjóða upp á tvenns konar lausnir: a) viku kennsla og próf frá 28.8. til 9.9. eða b) próf 2.9. til 9.9. Allir nemendur skólans á sl. önn, sem ekki brautskrást, fá gögn hér að lútandi og eiga að sækja um haustfyrirgreiðslu fyrir 20. júní. Að gerðum framangreindum ráðstöfunum er fyrirhugað að haustönn hefjist 11. sept. og að henni Ijúki fyrir jól. Með þessu móti er röskun á starfi haustanm ar í lágmarki og þeir nemendur, sem ekki þurfa á haustprófum að halda fá eina aukaviku til eigin ráðstöfunar, þar sem haustönn hefst einni viku síðar en annars væri. RKURTÓL Ahaldaleiga Akurvíkur Glerárgötu 20 • Sími 22233 Rafmagnshand- verkfæri: • Beltaslípivél • Borhamar • Borhamar og fleigur • Borvél • Handfræsari • Háþrýstitæki • Hitablásari (hand) • Hjólsög • Hjólsög + borð • Höggborvél • Járnaklippur • Juðari • Lokkur (Nagari) • Rafhlöðuvél • Rafmagnshefill • Skrúfuvél • Slípurokkur, lítill • Slípurokkur, stór • Stingsög • Sverðsög Loftverkfæri: • Loftheftibyssa, lítil • Loftheftibyssa, meöalst. • Loftpressa, 190 Itr. • Loftpressa, 340 Itr. • Naglabyssa • Naglabyssa, gas Garðáhöld: • Garðsláttuvél • Garðsláttuvél, drif • Greinasög, rafm. • Greinasög, bensín • Hekkklippur • Hjólbörur • Keðjusög án keðju • Sláttuorf, bensin • Sláttuorf, rafm. • Valtari Ýmislegt: • Borðsög • Borðsög P 700 • Borðsög P 700 m/keflaborði • Flísaskerar • Flísaskerar, rafm. • Framlengingarsnúra • Gólfslípivél Woodboy • Hitablásari Master • Hæðarmælir (kíkir) • Jarðvegstætari • Jarðvegsþjappa • Járnbútsög, m.a. f/kambstál • Ljóskastari • Naglabyssa f/stein • Rafstöð 1900 w • Rafstöð 4500 w • Rafsuðuvél • Steypuhrærivél • Úðabrúsi f/mótaolíu • Vatns- og ryksuga • Vatnsdæla, bensín • Vatnsdæla • Víbrator, minni • Víbrator, stærri Kynning í íþróttahöllinni Laugardag 13.00-18.00- Sunnudag 13.00-17.00 AKURVÍK ls HF. - CLERÁRCÖTU 20 - AKUREYRI - SlMI 22233 Barnaskóla Sauðárkróks slitið: Framhaldsskólinn á Húsavík: Sex nemendur luku burtfararprófi - fyrsti stúdentinn útskrifaður Framhaldsskólanum á Húsavík vár slitið við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju sl. laugardag. Sex nemendur luku burtfar- arprófi frá skólanum; einn af viðskiptabraut, fjórir af iðn- braut og einn með stúdents- próf af hagfræðibraut. Það var Svava Viggósdóttir sem varð fyrst til að ljúka stúdentsprófi frá Framhalds- skólanum, en aðeins eru tvö ár frá stofnun hans og hafði hún stundað nám sitt til stúdents- prófsins einnig í öðrum skólum áður. Að öllum líkindum verður næsta stúdentsútskrift frá skólan- um ekki fyrr en eftir hálft annað ár, eða um jólin 1990. í tilefni af þessum merka áfanga í sögu skólastarfs á Húsavík voru Svövu afhentar bókagjafir; Guðmundur Birkir Þorkelsson, skólameistari afhenti henni gjöf frá skólanum og Bjarni Þór Einarsson, bæjar- stjóri gjöf frá Húsavíkurbæ. Egill Olgeirsson afhenti skólanum 80 þúsund krónur að gjöf frá Kiwanisklúbbnum Skjálf- anda, til kaupa á ljósabúnaði til félagsstarfs. I ræðu skólameistara kom fram að nemendum skólans hefur fjölgað um helming frá fyrsta starfsári og reiknað er með, að minnsta kosti jafnmikilli fjölgun í höföum talið nú, og vel á annað hundrað nenrenda stundi því framhaldsnám við skólann næsta vetur. IM Guðmundur Birkir Þorkelsson skólameistari, ásamt Svövu Viggosdottur sem varð fyrst til að ljúka stúdentsprófi frá Framhaldsskólanum á Húsavík. Egill Olgeirsson afhenti skólanum 80.000 kr. að gjöf frá Kiwanisklúbbnum Skjálfanda, til kaupa á Ijósabúnaði til félagsstarfs. Myndir: HJ Skólanum færðar margar gjafir Barnaskóla Sauðárkróks var slitið í síðustu viku með hefð- bundnum hætti. í ræðu skóla- stjóra, Björns Björnssonar, kom fram að 255 nemendur voru í skólanum í vetur og 17 kennarar störfuðu við hann. Engar breytingar verða á kennaraliðinu fyrir næsta vetur og er skólinn fullmannaður. Barnaskólanum barst fjöldi gjafa á skólaslitunum, þ.á m. frá Kvenfélagi Sauðárkróks, Skátafélaginu Eilífsbúum, Kaupfélagi Skagfirðinga o.fl. Kvenfélagið gaf skólanum 6 myndvarpatjöld, til nota í stofum skólans, og það var Steinunn E. Friðþjófsdóttir sem afhenti gjöf- ina fyrir hönd félagsins. Skáta- félagið Eilífsbúar á Sauðárkróki gaf bækur til skólans og að vanda gaf Kaupfélag Skagfirðinga verð- laun til nemenda 1. bekkjar fyrir framfarir í lestri. Foreldra- og kennarafélag skólans gaf bækur og skyggnu- sýningavél til skólans, en félagið hefur verið mjög virkt í vetur og staðið fyrir ýmsum uppákomum og fjáröflunum. Félagið beitti sér m.a. fyrir gerð leiktækja á skóla- lóðinni og annaðist föndurdag fyrir jólin. Að vanda gaf skólinn svo verð- laun til nemenda fyrir góðan námsárangur. Er Björn hafði slit- ið skólanum, var ekki þar með sagt að allt væri búið, því að í íþróttasal skólans biðu 55 fót- boltar þess að vera afhentir nemendum forskóladeildar að gjöf. Það var knattspyrnudeild Tindastóls og Verslunin Tinda- stóll sem gáfu boltana, og er þetta í annað sinn sem þessir aðilar eru svo rausnarlegir. Það þarf vart að nefna tilgang gjafar sem þessarar, en eitt er víst að krakkarnir tóku henni afar vel. -bjb Glaðir forskólakrakkar í Barnaskóla Sauðárkróks komin með fótbolta í fangið, að loknum skólaslitum. Mynd: -bjb \

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.