Dagur - 29.06.1989, Blaðsíða 12

Dagur - 29.06.1989, Blaðsíða 12
12 — DAGUR FERÐABLAÐ FERÐASKRIFSTÖFAN POLARIS to^rjs W Bókabúðin Edda Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 24334 Stórkostlega lágt verð á passamyndum í passamyndasjálfsalanum okkar takið þið sjálf myndirnar. Hægt er að velja um að fá 1 stóra og góða mynd eða 4 stórgóðar litlar myndir. 'Ar CPpiö í hádeginu ★ Polaroid-myndirnar okkar kosta 900 kr. nonbun Allar myndatökur alla daga Pantið tíma. v mynól LJÓSMVN DASTOFA Simi 96-22807 • Pósthólf 464 Glerárgötu 20 602 Akureyri Gunnar Oddur Sigurðsson, svæðisstjóri Flugleiða á Norðurlandi: Tel vera gnmdvöll kiir áætlmiartlugi millí ^Tkurejrar og Glasgow Prátt fyrir að vega- kerfi landsins hafi batnað verulega á imdanfömuni árum verður ekkl fram hjá því litið að flugið gegnir og mim áfram gegna stóm hlutverki í fólksflutningum landshluta á milli. Flugleiðir er risinn í flugi á Islandi og því sest margur ferða- maðurinn upp í flug- vélar félagsins allan ársins hring og flýgur á vit ævintýra. Gunn- ar Oddnr Sigurðsson er mndæmisstjóri Flugleiða á Norður- landi og hefur hann með flug félagsins til Húsavíkur, Sauðár- króks og Akureyrar að gera. Gunnar Oddur kvað litlar sem engar breytingar á sumaráætlun Flugleiða milli Akureyrar og Reykjavíkur frá því í fyrra, en hún gildir frá 15. maí til 10. sept- ember. Á áætlun er 6 ferðir alla daga nema miðvikudaga en þá eru 7 ferðir á áætlun. Fyrsta brottför frá Akureyri er kl. 8.50 og sú síðasta 23.05. Hins vegar hefur verið gerð breyting á sumaráætlun Flugleiða til Sauðárkróks og Húsavíkur. Nú cru 10 vikulegar ferðir á Sauðárkrók í stað 6 ferða í fyrra. Á þriðjudögum og fimmtudögum eru bæði morgun- og kvöldflug. Erlendir ferðamenn í dagsferðum á leiðinni Akureyri-Reykjavíkur eru mest áberandi. Mynd: kl LEITAÐU EKKI LANGTYFIR Hagkvœm verslun í heimabyggð SVARFDÆLABÚÐ Dalvík Veitingahúsið 03- Bjóduxxi upp á allar almennar veitincjar, allt frá smáréttum upp í stórsteikur. Vínveitingar með mat. Pantanir í síma 96-61751. Verið velkomin. i Veitingahúsið Brekka Þetta vill segja að fólk getur brugðið sér í höfuðborgina að morgni og snúið heim að kvöldi. „Þessi nýbreytni hefur gefið mjög góðan árangur og mælst vel fyrir,“ segir Gunnar Oddur. Ferðum hefur einnig verið fjölg- að til Húsavíkur. 1 fyrra voru þangað 8 ferðir í viku en eru nú 11. Þrjá daga vikunnar er flogið til Húsavíkur bæði að morgni og kvöldi. Gunnar Oddur segist fastlega búast við að í sumar verði álíka aðsókn í flugið og á sl. ári. Hann segir ekki unnt að spá í spilin út frá bókunum því þróunin sé sú að fólk, sérstaklega íslendingar, bóki ekki fyrr en á síðustu stundu. „Það kann að vera að helsta ástæðan fyrir þessu séu minni fjárráð fólks en á undan- förnum árum. Fólk heldur að sér höndum og tekur ekki ákvörðun um ferðalög fyrr en á síðustu stundu. Rétt er þó að hafa í huga að með betri vegum á flugið í æ harðari samkeppni við einkabíl- inn. En ég er nokkuð ánægður með hlut flugsins á ferðamanna- tímanum en hefði þó viljað sjá fleiri útlendinga í fluginu milli Reykjavíkur og áfangastaða út á landi,“ segir Gunnar Oddur. Hann segir að erlendir ferða- menn í dagsferðum hafi verið mest áberandi á leiðinni Reykja- vík-Akureyri á undanförnum árum. Þá hafa ferðahópar komið norður að morgni og farið í rútu- ferðir um nágrennið, t.d. Mývatnshringinn, og haldið síð- an suður að kvöldi. Gunnar Odd- ur segir þá Flugleiðamenn vera spennta að sjá hvort erlendir ferðahópar nýti sér dagsferðir til Sauðárkróks og Húsavíkur. Á Sauðárkróki hafa verið skipu- lagðar dags skoðunarferðir ásamt ferð út í Drangey og á Húsavík eru m.a. í boði stuttar ferðir fyrir Tjörnes, að Dettifossi og í Ásbyrgi. Á undanförnum árum hefur fólk kvartað nokkuð yfir óstund- vísi Flugleiða. Gunnar Oddur segir þetta rétt en ánægjulegt sé að geta greint frá því að verulegt átak hafi verið gert til að laga þetta. „Þetta átak hefur skilað sér og er starfsfólki félagsins að miklu leyti að þakka. Liður í þessu var uppstókkun á skipulagi flugáætlunar.“ Gunnar Oddur var spurður að því hvort hann gæti greint ein- hvern mun á íslenskum og erlend- um farþegum. Hann sagði að með fullri virðingu fyrir íslendingum hefði hann alltaf meira gaman af að þjóna útlendingum því þeir væru duglegir að spyrja um allt milli himins og jarðar um land og þjóð. Oft heyrast þær raddir að á næstu árum rætist sá draumur Norðlendinga að hafið verði áætlunarflug milli Akureyrar og áfangastaða erlendis. Gunnar Oddur segist vera á þessari skoðun. „Ég vildi gjarnan sjá áætlunarferðir með Fokker, eða hvað vél sem við höfum í innan- landsflugi, milli Akureyrar og t.d. Glasgow. Ég held að sé grundvöllur fyrir því a.m.k. hluta úr ári. Það er enginn vafi á því að í þessar ferðir færu margir sem taka flug héðan og til Reykjavík- ur gagngert til að taka utan- landsflug í Keflavík.“ óþh ÆMf) STANSA Wflestirí mmiu mwkw mmm mmmi mmm mmm ALLTÁ FULLUHJÁ OKKUR - SUMAR SEM VETUR SffiES mmrn mmni mmm mrnm mmm mmrn

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.