Dagur - 29.06.1989, Blaðsíða 4
’Ö — QMQKQRB^ RUÖA.Q
4 — DAGUR FERÐABLAÐ
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRIMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Eitt af Eddu-hótelunum á Norðurlandi er rekið i Hrafnagilsskóla í Eyjafirði.
—
Tvö glæsileg, vel búin sumarhús til leigu
í friðsælu umhverfi hvenær árs sem er.
Nokkrar vikur lausar í sumar og stakar nætur.
Hestaleiga ★ Bátaieiga ★ Stangveiði í sjó.
Syðri-Hagi, Árskógsströnd
Si'mi 96-61961. AA 6Ie/f'T'’
áák *
v____________________________ j
Útgáfan hefur ákveðið að bjóða nýjum áskrifendum
eina bók ókeypis um leið og þeir gerast áskrifendur.
Peir geta valið úr eftirtöldum bókum.
Spennusöguflokkurinn:
Morðið í Tauerngöngunum, Þeir dauðu drekka ekki
Síðasta bónin, Líkið stjórnar leiknum.
Ástarsöguflokkurinn:
Hrakfallabálkur, Ómótstæðilegur karlmaður
Sjúkrahúsið í frumskóginum, Indíánaprinsessan.
SNORRAHÚS
Pósthólf 58 • 602 Akureyri • -sr 96-24222
HótelEdda:
„Yomunst tíl að sjá
stæni hóp íslendinga
á ferðalagi innanlands“
- segir Tryggvi Gtiðmmidsson hjá Ferðaskrifstofii íslands hf.
Peir eru margir sem
gist hafa Edduhótelin
í ferðum sínum um
landið á liðnum
árum. Edduhótelin
verða starfrækt
áfram í sumar eins og
áður og verða 15
hótel opin, en voru
17 í fýrra. Um ára-
tuga skeið hefur
rekstur hótelanna
verið á hendi Ferða-
skrifstofu ríkisins en
síðastliðinn vetur
keypti starfsfólk
skrifstofunnar meiri-
hlutann í fyrirtækinu
og stofiiaði þar með
Ferðaskrifstofu ís-
lands hf. Tiyggvi
Guðmundsson sem I
sér um þá hlið sem
snýr að rekstri Eddu-
hótelanna segir að
þessi breyting hafi
ekki áhrif á rekstur
Edduhótelanna.
„Raunverulega hefur þessi
breyting engin áhrif á Edduhótel-
in. Ferðaskrifstofa íslands er
hlutafélag þar sem starfsfólkið á
67% en ríkissjóður 33%. Eddu-
hótelin ætlum við hins vegar að
reka áfram með óbreyttu sniði.“
- Eru einhver nýmæli í rekstr-
inum í sumar?
„Ekki önnur en þau að nú
bjóðum við annað árið í röð sér-
stök tilboð til íslendinga þar sem
við gefum mikinn afslátt af gist-
ingu í júní og eftir 10. ágúst. Þá
kostar gisting fyrir manninn í
tveggja manna herbergi 1080 sem
er 25% afsláttur. Þetta er að vísu
háð því að menn kaupi fjórar
nætur saman fyrirfram en þeir
þurfa ekki að nota þær allar í
einu, ekki endilega á sama stað
og þurfa heldur ekki að nota þær
allar sjálfir. Við erum með þessu
að reyna að lengja tímann. Það
er mikið að gera á hótelunum í
júlímánuði og fram í ágúst en
minna í júní og þess vegna erum
við að reyna að teygja svolítið á
þessu enda er júnímánuður bjart-
asti tími ársins og einna skemmti-
legasti tíminn til að ferðast um
landið," segir Tryggvi.
Tryggvi segir að um helmingur
gesta á hótelunum séu útlending-
ar en hinn helmingurinn íslend-
ingar. Ferðaskrifstofan skipu-
leggi töluvert af hópferðum um
landið með gistingu á Edduhótel-
um og því til viðbótar gisti tölu-
vert af hópum frá öðrum ferða-
skrifstofum á hótelunum. Þetta
geri að verkum að á háannatím-
anum séu hótelin fyrirfram þétt-
bókuð þannig að fólk geti ekki
gengið að því vísu að það geti
fengið gistingu með stuttum fyrir-
vara.
„Auðvitað eru hótelin misjafn-
lega mikið bókuð en ég ráðlegg
fólki að setja sér alltaf þá reglu
að panta fyrirfram. Það getur
verið mjög til bóta að menn panti
sér gistingu strax að morgni fyrir
næstu nótt.“
- Nú heyrast raddir frá þeim
sem við ferðamannaþjónustu
starfa sem segja að meira sé pant-
að en á sama tíma í fyrra. Er
þetta raunin hvað ykkur varðar?
„Já, við erum bjartsýnir. Hér
er heldur aukning í bókunum
miðað við sama tíma í fyrra og
við vonum að þegar upp verði
staðið þá höldum við þessari
aukningu. Helmingur okkar
gesta eru íslendingar og við von-
umst til að sjá stærri hóp íslend-
inga á ferðalagi innanlands enda
gæti maður ætlað að þeir skiluðu
sér að einhverju leyti hér innan-
lands ef dregur úr utanlandsferð-
um, eins og verið er að tala um.
Fólk getur meira ráðið sér sjálft
hér heima og ekki síður ferðast
fyrir minni pening þannig að
ferðalag hér heima er góður val-
kostur," segir Tryggvi. JÓH
„Ég ráðlegg fólki að setja sér alltaf þá reglu að panta fyrirfram,11 segir
Tryggvi. Mynd: jöh