Dagur - 21.07.1989, Blaðsíða 2
2 - Ðmmt - P^fUéaBifP21: júh 1989
fréffir
Istess:
Hluti lagersins á Þórshöfn
- hátt í tvö þúsund tonn hafa verið keypt þaðan á árinu
Fóðurverksmiðjan ístess hefur
á þessu ári keypt hátt í tvö þús-
und tonn af loðnumjöli frá
Þórshöfn. Að sögn Einars
Sveins Ólafssonar verksmiðju-
stjóra er ekki talin hætta á
hráefnisskorti hjá verksmiðj-
unni þrátt fvrir að einhverjar
tafir verði á að Ioðnuveiðar
hefjist.
„Með þessu erum við að
tryggja okkur viðskipti við fleiri
aðila en Krossanesverksmiðjuna
enda er alveg óvíst hvenær verk-
smiðjurnar hefja framleiðslu í
haust,“ sagði Einar í samtali við
Dag.
í vor voru tveir 200 tonna
skammtar fluttir frá hórshöfn en
síðastliðinn sunnudag kom svo
stærsti skammturinn til þessa eða
um 700 tonn. Ekki er hægt að
taka á móti meira magni til verk-
smiðjunnar enda er geymslupláss
þar mjög af skornum skammti.
„Það er troðfullt hjá okkur
núna,“ sagði Einar. Um 800 tonn
sem keypt hafa verið eru því enn
á Þórshöfn og því má segja að
verksmiðjan þar sé notuð sem
lager. i
700 tonnin endast til fram-
leiðslunnar í 5-6 vikur en þegar
þeim sleppir veröur nýr skammt-
ur fluttur af „lagernum“ á Þórs-
höfn. ET
Norðurland vestra:
Vegagerð ríkisins hefur lokið
við að leggja bundið slitlag á
þjóðveg 1, hringveginn, og
stofnbrautir í Vestur-Húna-
vatnssýslu. Þá er komið
samfellt, bundið slitlag á veg-
inn frá Húnaveri í Langadal að
Brú í Hrútafirði, samtals 105
kílómetra vegalengd.
Að þessum framkvæmdum
loknum er ekki eftir nema að
leggja bundið slitlag í Bólstaðar-
hlíðarbrekkuna, þ.e. vegarkafl-
ann milli Svartárdals upp í
Vegaframkvæmdir í Svarfaðardal:
Jarðverk í startholum
Verktakafyrirtækið Jarðverk
sf. mun á næstu vikum verða
með tól sín og tæki í Svarfað-
ardal, nánar tiltekið á 3,2 kíló-
metra vegakafla frá Hreiðars-
staðakoti að Hóli. Ætlunin er
að byggja þennan kafla upp og
átti Jarðverk sf. lægsta tilboð-
ið í verkið, 9,6 millljónir
króna, sem er 85% af kostnað-
aráætlun Vegagerðar ríkisins.
Samkvæmt verkáætlun Jarð-
verks sf. áttu framkvæmdir að
hefjast um síðustu mánaðamót
og þeim að verða Iokið um miðj-
an september. Óvíst er hins veg-
ar hvort þessi verkáætlun stenst
því verktakinn er nú fyrst að
hefja framkvæmdir í Svarfaðar-
dal.
Umræddur vegakafli hefur oft
reynst vegfarendum erfiður yfir
vetrarmánuðina. Á hann sest
mikill snjór og því er ekki van-
þörf á endurbótum.
Fyllingarefni til hækkunar veg-
arins veröur að mestu fengiö með
skeringu, þ.e. úr vegstæöinu.
Buröarlagsefni verður hins vcgar
fengið úr Svarfaðardalsá. óþh
Samdráttur í áfengis
og tóbakssölu
- áhrif bjórsölunnar koma í ljós
að nokkrum mánuðum liðnum
Nú liggja fyrir tölur um áfeng-
is- og tóbakskaup íslendinga
fyrstu sex mánuði ársins. Lítið
tillit er tekið til þess áfengis og
tóbaks sem áhafnir skipa og
flugvéla, eða ferðamenn flytja
inn í Iandið eða kaupa í
„Bónusmarkaður“
Matvörumarkaðarins:
Leiðrétting
í Degi í gær, var sagt frá fyrirhug-
uðum kaupum Sæborgar hf. á
húsínu að Fjölnisgötu 4 á Akur-
eyri en þar hyggst fyrirtækið setja
upp markað með svokölluðu
bónusfyrirkomulagi.
í fréttinni var einnig sagt, að
Eyfirsk matvæli sem eru með
starfsemi í húsinu, hafi farið frám
á riftun kaupsamnings milli
Sæborgar hf. og atvinnumála-
nefndar Akureyrarbæjar. Það
mun ekki alls kostar rétt, eins og
einnig kemur fram í fréttinni.
Hið rétta er að Eyfirsk matvæli
hafa sent atvinnumálanefnd bréf,
þar sem þess er óskaó að hætt
veröi við að selja húsið en fyrir-
tækinu að öðrum kosti gefiö tæki-
færi á að gera tilboð í það.
fríhöfn. Sama er að segja um
það sem ÁTVR flytur úr landi
eða selur til Fríhafnar á Kefla-
víkurflugvelli.
Heildarsala ÁTVR fyrstu sex
mánuði þessa árs nam 1.224.262
lítrum, sem eru 330.852 alkóhól-
lítrar. Samdráttur á milli ára í
alkóhóllítrum talinn nemur því
13.08%.
Heildarsala áfengs bjórs í mars
var 1.170.303 lítrar, sem eru
61.081 alkóhóllítrar. Sala á
áfengum bjór í apríl, maí og júní
var 2.418.950 lítrar. ÁTVR telur
ekki unnt að draga ályktanir af
áhrifum bjórsölu á áfengisneyslu
fyrr en að nokkrum mánuðum
liðnum. Verður þá að taka tillit
til áhrifa á sölu létts öls svo og
sölu áfengis og bjórs í Fríhöfn-
inni.
Við samanburð á helstu vöru-
flokkum þ.e. rauðvíni, hvítvíni,
vodka og viskí virðist hafa dregið
úr sölu allra flokka. Árið 1988
seldust 245.466 lítrar af rauðvíni
en 1989 212.789, af hvítvíni 1988
228.245 og 1989 168.979, vodka
344.355 1988 og 315.221 1989 og
viskí 78.522 1988 og 66.085 1989.
Einnig hefur dregið nokkuð úr
tóbakssölu en þó ekki eins mikið
og áfengissölunni.
Deilt um hvort lágmarksverð á
hrogmim verði látið gilda
- ályktun fundar Kletts fyrir stjórnarfund
Landssambands smábátaeigenda
„Fundur haldinn í smábátafé-
laginu Kletti 12. júlí 1989 að
Hótel KEA krefst þess að lág-
marksverð það sem í gildi er
verði fellt burtu vegna þeirrar
slæmu stöðu sem er í sölumál-
um grásleppuhrogna ef takast
mætti að selja þær birgðir sem
fyrir eru.“
Tillögu þessa setn samþykkt
var á nefndum fundi í liðinni viku
lagði Jón Eiríksson í Ólafsfirði
fram. Það voru grásleppukarlar í
Ólafsfirði sem höfðu frumkvæði
að fundinum vegna mikillar sölu-
tregðu á grásleppuhrognum á
Heildaraflinn á Norðurlandi
fyrstu sex mánuði ársins dróst
saman um 47.610 tonn miðað
við sama tímabil í fyrra.
Heildaraflinn í fyrra var
198.482 tonn á móti 150.872
tonnum í ár. Mestur varð sam-
drátturinn í rækju-, loðnu- og
þorskveiði. Þetta kemur fram í
bráðabirgðatölum frá Fiskifé-
lagi íslands.
Samdrátturinn varð langmest-
ur í rækjuveiði, eða tæp 50% á
milli ára. Fyrstu sex mánuði árs-
þessu ári. Það sem af er hafa þeir
aðeins náð að selja lítið brot af
framleiðslu síðustu vertíðar.
Ólafsfirðingar líta þetta mjög
alvarlegum augum ekki síst
vegna þess að nokkrir þeirra hafa
stærstan hluta tekna af sölu grá-
sleppuhrogna. Til að bjarga því
sem bjargað verður telja þeir
vænlegast í stöðunni að koma
' framleiðslu sinni í verð með því að
selja hana undir lágmarksverði.
Lágmarksverð það sem getið
er um í ályktun fundarins á Hótel
KEA var ákveðið í febrúar sl., 11
þúsund þýsk mörk eða nálægt 31
ins 1988 veiddust 7.206 tonn á
móti 3.651 tonni á sama tíma í ár.
Loðnuveiði dróst saman um
tæp 30% á umræddu tímabili en í
fyrra veiddust 112.698 tonn en
79.823 tonn í ár. Heildar þorsk-
aflinn á tímabilinu dróst saman
um rúm 20%, úr 53.799 tonnum í
fyrra, í 42.746 tonn.
Ýsu- og ufsaaflinn varð örlítið
meiri fyrstu sex mánuði ársins en
sama tíma í fyrra og þá veiddist
mjög svipað af grálúðu á milli
ára." -KK
þúsundi fyrir tunnuna. Kostnað-
ur á hverja tunnu sem dregst frá
þessu verði er um 4000 krónur.
Ályktunin mun koma til
umræðu á stjórnarfundi í Lands-
sambandi smábátaeigenda á
næstunni og verður þar væntan-
íega tekin ákvörðun um hvort
lágmarksverð verði afnumið.
En það eru ekki allir á þeirri
skoðun að beri að afnema lág-
marksverð á grásleppuhrognun-
um. Örn Pálssön, framkvæmda-
stjóri Landssambands smábáta-
eigenda, mætti á fundinn á Hótel
KEA og mælti gegn því. Hann
segist telja að samkvæmt fyrir-
liggjandi upplýsingum eigi smá-
bátaeigendur að geta losnað við
sína framleiðslu á verði sem er
yfir lágmarksverði. Örn segist
vilja rökstyðja sitt mál í fjórum
liðum. í fyrsta lagi séu þarna
umtalsverðir fjármunir í húfi.
Hundrað marka verðlækkun á 12
þúsund tunnum myndi svara til
34 milljóna króna tekjutaps. í
annan stað að samskipti við þá
erlendu aðila sem gert hafa
samninga á þessari vertíð upp á
tæpar 5000 tunnur á 1100 þýsk
mörk yrði stefnt í voða. í þriðja
lagi myndi afnám lágmarksverðs
hafa í för með sér undirboð á
helstu mörkuðum okkar sem gæti
leitt til verulegrar verðlækkunar á
næsta ári. í fjórða lagi gæti svo
farið að ísland tapaði því frum-
kvæði í verðlagsmálum á grá-
sleppuhrognum sem það hefur
haft og um leið myndi ísland
glata því trausti sem það hefur
notið á undanförnum árum, að
hér séu litlar sveiflur á verði
grásleppuhrogna. óþh
Heildaraflinn á Norðurlandi
fyrstu sex mánuði ársins:
Rækjuaflinn dróst saman
um helming á milli ára
- einnig verulegur samdráttur
í loðnu- og þorskveiði
Vatnsskarð. Brekkan hefur löng-
um verið talin með hættulegri
vegum hérlendis, en nokkur ár
munu líða þar til bundið slitlag
verður sett á hana, enda er fram-
kvæmdin kostnaðarsöm og þarf
að byggja veginn upp.
Hvað aðrar vegaframkvæmdir
snertir á umdæmissvæði Vega-
gerðar ríkisins á Norðurlandi
vestra, þá er verið að vinna við
bundið »slitlag frá þjóðvegi 1 að
Hammstanga. Ætlunin er að
leggja bundið slitlag um Hegra-
nes að hluta, og fimm kílómetra
kafla á Siglufjarðarveg, frá bæn-
um Vatnsleysu. EHB
Á knattspyrnuvellinum við Árskógsströnd rakst Ijósmyndari Dags á þessa
broshýru stúlku sem mætt hafði á völlinn :neð föður sínum. Eins og sést á
myndinni er stúlkan strax farin að sýna góða takta við boltasparkið. Mynd: ap
Bundið slitlag milli Brúar
í Hrútafirði og Húnavers