Dagur - 25.07.1989, Síða 1
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Lögreglan á Akureyri:
Óhappalítil helgi
„Ég held að segja megi að
umferðin hafi gengið ótrúlega
vel fyrir sig miðáð við hversu
margt fólk var hér á svæðinu
en hins vegar var ölvunin
nokkuð mikil. Þessi ölvun var
nú út um bæinn og þá bæði á
tjaldstæðunum og í miðbæn-
um,“ sagði Gunnar Randvers-
son, varðstjóri í Akureyrarlög-
reglunni í gær.
Gunnar segir að engin slys hafi
orðið á mönnum í umferðinni um
helgina en nokkur minniháttar
tjón þegar ökumenn hafi nuddað
saman bílum. Hann segir að alla
helgina hafi verið viðloðandi ein-
hver ölvun sem lögregla hafi
þurft að skipta sér af, í sumum
tilfellum hafi hún aðstoðað menn
við að koma sér til síns heima en
í öðrum tilfellum hafi viðkom-
andi fengið að gista fangageymsl-
ur.
Þá voru 13 ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur í bænum og
í nágrenninu og ók sá sem hrað-
ast fór á um 90 knr hraða. Engin
afskipti þurfti lögregla hins veg-
ar að hafa af ölvuðum ökumönn-
um. JÓH
Grund í Svínavatnshreppi:
Bændur í mál
við Globus
Bændurnir á Grund í Svína-
vatnshreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu riðu ekki feitum
hesti frá kaupum sínum á svo-
kölluðum Globus-turni fyrir
fjórum árum. Turninn hefur
aldrei verið nothæfur og þegar
hvessir gefur klæðning hans sig
þannig að hann líkist beyglaðri
bjórdós. Bændumir og seljandi
turnsins, Globus hf, eru ekki
sammála um orsakir þessa og í
septembqr verður tekin fyrir
skaðabótakrafa á hendur fyrir-
tækinu.
Fyrir fjórum árum leist þeim
feðgum Þórði Þorsteinssyni og
Þorsteini syni hans vel á nýjung
sem þá var að koma fram við
verkun á heyi, stálturna búna
sjálfvirkum búnaði til fyllingar og
losunar. Turninn kostaði hátt í
fjórar milljónir á þeim tíma en
hann hefur aldrei nýst til verkun-
ar á heyi.
í fyrstu héldu þeir feðgar að
um klaufaskap og byrjunarörð-
ugleika væri að ræða en svo
reyndist ekki vera heldur það að
turninn var ekki loftþéttur. Þeir
telja sökina liggja hjá seljandan-
um en hann hefur ekki fallist á
það sjónarmið. Tryggingafélag-
ið neitar að greiða skaðann og
því hafa þeir feðgar nú höfðað
skaðabótamál fyrir Bæjarþingi
Reykjavíkur. Sjá nánar bls. 2.
Fimmtán fallhlífastökkvarar mynduðu á laugardaginn stærstu stjörnu sem mynduö hefur verið yfir Akureyri. í
stjörnunni voru 13 íslendingar, einn stökkvari frá Svíþjóð og einn frá Bandaríkjunum. Sagt er frá flugdegi á Akur-
eyri á bls. 14 í blaðinu í dag. Liósmynd: Sigurður Baldursson.
D-blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri:
Tilbúin á Ólympíuleika!
- sveitin vann til gullverðlauna á heimsmóti blásarasveita í Hollandi
D-blásarasveit Tónlistarskólans
á Akureyri náði glæsilegum
árangri á heimsmóti blásara-
sveita sem lauk í Kerkrade í
Hollandi um helgina. Sveitin
vann til gullverðlauna á mót-
inu og fékk meðal annars fleiri
stig en kanadísk blásarasveit
sem sá um allan undirleik á
Ólympíuleikunum í Calgary
fyrir fáum árum.
„Þetta tókst með miklum
glæsibrag og betur en nokkur
þorði að vona,“ sagði Þórey
Aðalsteinsdóttir einn fararstjóra
sveitarinnar við komuna til
Keflavíkur síðdegis í gær.
Heimsmót blásarasveita hefur
verið haldið fjórða hvert ár síðan
1951 og þetta var í ellefta skipti
sem það var haldið. Að þessu
Skagafjörður:
Alvarlegt umferðarslys í Fljótum
- annasöm helgi hjá lögreglu
Helgin hjá lögreglunni á Sauð-
árkróki var með eindæmum
annasöm, mikið um óhöpp,
margir teknir fyrir hraðakstur
Bíllinn sem ók á brúna yfir Stafá í Fljótum, er af BMW-gerð og er liann
gjörsamlega handónýtur, eins og sjá má á þessari mynd. Þykir það mesta
mildi að ekki varð þarna banaslys. Mynd: -bjb
og nokkrir fyrir ölvunarakstur.
Alvarlegt umferðarslys varð í
Fljótum árla á sunnudags-
morgun þegar bifreið ók á
brúna yfír Stafá, rétt hjá
Reykjarhóli. Fjórir voru í bíln-
um og allir fluttir mikið slasað-
ir á sjúkrahúsið á Sauðárkróki.
Þaðan var farið með tvo til
Reykjavíkur með sjúkraflugi.
Bifreiðin er gjörónýt eftir
slysið.
Fólk í tjaldi, nálægt slysstaðn-
um, kom þeim slösuðu til
hjálpar og tilkynnti slysið til lög-
reglu. Langan tíma tók að ná
ökumanni úr flakinu og þurfti að
saga toppinn af bílnunt.
Þegar lögreglan á Sauðárkróki
fékk tilkynningu um slysið við
Stafárbrúna var hún í útkalli
vegna útafaksturs hjá bænum
Krossi í Áshreppi. Þar endaði
bíll út í skurði. Ökumaður slapp
nær ómeiddur en farþegi í fram-
sæti slasaðist á höfði. Farþeginn
var ekki í bílbelti en ökumaður
var með beltin spennt. Bíllinn er
mikið skemmdur eftir útafakstur-
inn.
Um kvöldmatarleytið á sunnu-
dag var bifreið ekið á brúna yfir
Djúpadalsá í Blönduhlíð. Bif-
reiðin endaði í ánni. Farþegi í
bílnum skarst á höfði en öku-
maður slapp ómeiddur. Bíllinn er
nokkuð skemmdur og er þetta
ekki í fyrsta skipti sem slys verð-
ur við þessa brú.
Þá gerði lögreglan á Sauðár-
króki upptækt net úr sjó, um
rniðjan dag á sunnudag, þar sem
lög unt helgarfriðun voru brotin.
Á laugardag var tilkynnt um
árekstur í Varmahlíð, en það
reyndist minniháttar óhapp, eng-
in slys á fólki né miklar skemmdir
á bílunt. Að sögn lögreglu var
ntikil umferð um Skagafjörð og
náði hún hámarki á laugardag.
Voru það aðallega Sunnlending-
ar að flýja súldina og koma í sól-
ina norðan heiða. -bjb
borginni
og voru
sinni fór mótið frant í
Kerkrade í Hollandi
þátttakendur alls um 11 þúsund
talsins frá 28 löndum. Þetta var í
fyrsta skipti sem íslensk blásara-
sveit tekur þátt í mótinu.
Keppni fór fram í þremur
styrkleikaflokkum, meistara-
flokki og fyrsta flokki þar sem
kepptu sveitir skipaðar atvinnu-
mönnum, og öðrum flokki þar
sem eingöngu var um að ræða
áhugahljómsveitir. Akureyrska
sveitin keppti í síðastnefnda
flokknum og náði þeim frábæra
árangri að vinna til gulls. Þetta
þýðir þó ekki að sveitin hafi verið
best heldur fékk hún þann stiga-
fjölda sem þurfti til að ná fyrstu
verðlaunum. Nauðsynlegur stiga-
fjöldi var 280 en sveitin fékk 291
stig og var í fjórða sæti í flokkn-
um þar sem kepptu tíu sveitir. í
fyrsta sæti varð belgísk sveit með
*330 stig en síðan komu tvær holí-
jenskar með 324 og 291,5 stig.
Þess má til gamans geta að kana-
dísk sveit sem sá um undirleik á
Ólympíuleikunum í Calgary fékk
260 stig þannig að hvað tónlistina
snertir eru Akureyringar undir
það búnir að halda Ólympíuleika!
Akureyrska sveitin var sú eina
sem skipuð var börnum og ungl-
ingum en meðalaldur sveitarinn-
ar er um 15 ár. Sveitin vakti
mikla athygli og fékk meðal anii-
ars sérstakt hrós frá dómurum
vegna þess hversu vel hún túlkaði
blæbrigðamun tónlistarinnar.
Stjórnandi sveitarinnar er Roar
Kvant. ET