Dagur - 25.07.1989, Blaðsíða 3
frétfir
Steypt af kappi í Kolbeinsey
Starfsmenn Vitamálastofnunar
og Landhelgisgæslunnar vinna
nú hörðum höndum við upp-
steypu þyrlupalls í Kolbeinsey.
Framkvæmdir hófust sl.
fimmtudag og var þann dag og
á föstudag slegið upp fyrir pall-
inum. Varðskipið Oðinn flutti
möl frá Akureyri að kvöldi
föstudags og á Jaugardag byrj-
aði sjálf steypuvinnan í eynni.
í gær kom Oðinn í aðra ferð til
Akureyrar til að sækja möl.
Að öllum líkindum þarf skipið
að sækja þriðja farminn áður
en yfir lýkur.
Dagur náði tali af Hermanni
Guðjónssyni, vita- og hafnamála-
stjóra, um horð í Óðni í Akur-
eyrarhöfn í gær og sagði hann
framkvæmdir hafa gengið vei til
þessa. Að vísu hefði verkið
reynst tímafrekara en menn
hefðu fyrirfram gert ráð fyrir.
Hann sagði að veður hefði verið
hreint stórkostlegt út við Kol-
beinsey og það hefði sannarlega
auðveldað mönnum verkið.
Eins og áður segir byrjaði
steypuvinnan á laugardag og
flutti þyrla Landhelgisgæslunnar
steypuna í sílói frá borði út í
eyna. Hermann segir þessa vinnu
hafa gengið mjög vel. Að vísu
hafi sílóið í tvígang sokkið i
greipar Ægis en það hafi aflur
náðst upp með lagni og seiglu.
Áður en verkið liófst bjuggust
menn við að þyrfti um 60 rúm-
metra í þyrlupallinn. Hermann
segir nú sýnt að þurfi talsvert
meira al' steypu, 80 rúmmetrar
séu ekki fjarri lagi. Fyrsta steypu-
hræran hvarf að mestu ofan í
sprungu eina alldjúpa og segir
Hermann að hún hafi „sopið"
ívið meira cn menn gerðu ráð
fyrir.
Líklegt er að Óðinn þurfi að ná
í einn malarfarm til viðbótar til
Akureyrar. Gangi það eftir tclur
Hermann líklegt að framkvæmd-
um við þyrlupallinn á útverði
Islands í norðri Ijúki undir lok
vikunnar. óþh
Mest aflaverðmæti báta árið 1988:
Loðnu- og rækjufrysti-
skip í tíu efstu sætunum
Loðnu- og rækjufrystiskipið
Pétur Jónsson RE var með
mest aflaverðmæti báta á land-
inu öllu á síðasta ári, 192 millj-
ónir 191 þús. krónur. Aflinn
nam rétt liðlega 19 þúsund
tonnum. Annar í röðinni var
Hákon ÞH með 167 milljónir
625 þús. krónur, fyrir 20.681
tonna afla.
Þetta kemur fram í nýjasta
hefti Fiskifrétta en blaðið birti
fyrir helgi lista yfir þá 60 báta
sem voru með yfir 60 milljónir
króna í aflaverðmæti á síðasta
ári. Listinn er unninn upp úr
skýrslum sem birtar eru í nýút-
komnum Útvegi 1988, riti Fiski-
félags íslands.
Þar kemur einnig fram, að
loðnu- og rækjufrystiskip eru í 10
efstu sætunum. Þannig var Hilm-
ir SU í þriðja sæti með tæpar 145
milljónir króna í aflaverðmæti,
rækjuskipið Gissur ÁR í fjórða
sæti með tæpar 143 milljónir
króna og Oddeyrin EA í því
fimmta, með 140 millónir króna,
fyrir 1.546 tonna afla.
Auk Oddeyrinnar EA frá Ak-
ureyri, eru Súlan EA og Þórður
Jónasson EA einnig á listanum.
Súlan er þar í 38. sæti, með 72
milljónir 897 þús. krónur í afla-
verðmæti, fyrir 17.325 tonna afla
en Þórður Jónasson er í 47. sæti,
með 69 milljónir 595 þús. krónur
í aflaverðmæti, fyrir 16.336 tonna
afla.
Dagfari ÞH og Oddgeir ÞH eru
einnig á listanum. Dagfari í 56.
sæti með 61 milljón 107 þús.
krónur í aflaverðmæti, fyrir
18.114 tonna afla en Oddgeir í
57. sæti með 60 milljónir 987 þús.
krónur í aflaverðmæti, fyrir 1.117
tonna afla.
Áberandi er, að á þessum lista
eru, auk loðnu- og rækjufrysti-
skipa, helst bátar sem selja afla
sinn að hluta til eða öllu leyti
utan í gámum. Þannig er Freyja
RE, sem er aðeins 136 brl. að
stærð, í 11. sæti á listanum með
105 milljónir króna í aflaverð-
mæti.
Sem fyrr sagði, voru 60 bátar
með yfir 60 milljónir króna í afla-
verðmæti á síðasta ári en til
samanburðar má geta þess að á
árinu 1987, voru 32 bátar með
yfir 60 milljón króna aflaverð-
mæti en þess ber þó að geta, að
verðgildi krónunnar hefur nokk-
uð breyst á milli ára. Helstu
breytingar efst á listanum á milli
ára eru þær, að tvö ný skip hafa
bæst við og skotist upp í toppsæt-
in, Pétur Jónsson RE og Hákon
ÞH. Á listanum 1987, var Odd-
eyrin efst með með 119 milljón
króna aflaverðmæti en er nú í
fimmta sæti, með 140 milljónir
króna. Hilmir SU var í öðru sæti
árið 1987 með 119 milljónir
króna en er nú í því þriðja með
145 milljónir króna.
í Fiskifréttum segir ennfremur.
að það orki kannski tvímælis að
kalla sum þessara stóru skipa
báta, enda eru nokkur þeirra um
og yfir 800 brl. að stærð, eins og
Pétur Jónsson , Hákon og Helga
II og aflaverðmæti þeirra sam-
bærilegt við betri ísfisktogara.
Oddeyrin EA 210 er í finimta sæti á lista yfir ailaverðmæti báta á síðasta ari.
Melgerðismelamót 1989:
Hingað koma menn til að setja met
- segir Reynir Hjartarson
Um næstu helgi halda liesta-
mannafélögin Funi, Léttir og
Þráinn Melgeröismelamót
1989. Alls eru um 150 hestar
skráðir til keppni á þessu opna
móti þar sem gæðingar verða
sýndir og fótfráum hleypt.
Að sögn Reynis Hjartarsonar
sem sæti á í mótsnefnd þá eru um
150 hestar skráðir til keppni í A-
og B-flokki gæðinga, unglinga-
keppni og kappreiðum. Rpynir
segir að meðal keppenda séu
margir bcstu hestar og knapar
landsins enda sé hér um að ræða
eitt stærsta mót sumarsins.
Hér er um opið mót að ræða en
gagnstætt því sem frarn hefur
komið í öðrum fjölmiðlum þá
hafa slík mót verið haldin í Eyja-
firði af og til í nær tuttugu ár.
Fyrst var slíkt mót haldið á Þver-
áreyrum árið 1970, aö sögn
Reynis.
Dagskrá mótsins er í stórum
dráttum sú að á laugardag verður
undankeppni í gæðingaflokki og
unglingakeppni en á sunnudag
fara fram úrslit og kappreiðar.
í auglýsingu um mótið eru
hestamenn hvattir til þess að
koma og taka gæðinga sína til
kostanna á „bestu hlaupabraut
landsins“, „Á því leikur enginn
vafi,“ sagði Reynir aðspurður
hvort þeim stætt á þessari fullyrð-
ingu. „Hér eru nær öll gildandi
íslandsmet í kappreiðum sett og
ef menn ætla sér að setja met þá
koma þeir hingað um helgina,“
sagði hann. ET
Ásýnd útvarðarins í norðri breytist óneitanlega mjög með tilkomu þyrlupallsins.
Þyrlupallurinn er mikið mannvirki og trúlega einstakt i sinni röð. Flokkur
vaskra sveina vann baki brotnu í sólinni við að slá upp f'yrir pallinum.
Þriðjudagyr 25. júlí 1989 - DAGUR - 3
^ iupsbu(6íi4 - fíUÖAÖ “
fcítie.
Steingrímur .1. Siglússon, samgönguráðherra, brá sér norður í Kolbeinscy á
laugardag og fylgdist með framkvæmdunum. Hér er ráðherra að ræða við
Hcrmann Guðjónsson, vita- og hafnamálastjóru.
■