Dagur - 25.07.1989, Blaðsíða 2
Veðurofsi eða vondur frágangur?:
MiUjónatum eins og beygluð bjórdós
Hann er glæsilegur á að líta úr
nokkrum fjarska votheysturn-
inn á bænum Grund í Svínadal
í Austur-Húnavatnssýslu.
Fjarskafallegur kalla gárung-
arnir þetta víst. Þegar nær
kemur líkist efri hluti turnsins
hins vegar einna helst beygl-
aðri bjórdós, að vísu allt eftir
því hvort og þá hvaðan vindur
blæs. Turninn sem fyrir fjórum
árum kostaði feðgana Þórð og
Þorstein fjórar milljónir hefur
aldrei komið að neinu gagni
enda var hann gallaður frá
upphafl. Mistök og óvandaður
frágangur segja þeir; óeðlilega
vont veður, segir seljandinn
Globus hf. í Reykjavík. Úr
þessu máli fæst ekki skorið fyrr
en í haust þegar skaðabóta-
- feðgarnir á
krafa þeirra feðga verður tekin
fyrir í Bæjarþingi Reykjavík-
ur.
Árið 1985 réðust Þórður Por-
steinsson og sonur hans Þor-
steinn Þórðarson bændur á
Grund í Svínavatnshreppi í þá
fjárfestingu að kaupa sér einn
þessara turna sem reynst höfðu
svo vel víða um land. Um var að
ræða talsverða byltingu í verkun
votheys en áður höfðu menn not-
ast við gryfjur, utanhúss eða
innan. Turnar þessir, belgískir að
gerð, höfðu reynst vel víða um
land og þeir menn sem þeir feðg-
ar ræddu við létu afar vel af því
fóðri sem úr þessum miklu mann-
virkjum kom og einnig því hve
þægilegir þeir væri í notkun
vegna mikillar sjálfvirkni. Þeir
Eins og sjá má er um verulegar skemmdir að ræða á turninum. Þegar vind-
urinn snýst flytjast dældirnar til þannig að nota má turninn sem vindmæli.
Frá menntamálaráðuneytingu:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Framlengdur umsóknarfrestur:
Við Menntaskólann á ísafirði eru lausar til umsóknar
kennarastöður í íslensku og þýsku.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík fyrir 4. ágúst n.k.
Menntamálaráðuneytið.
Veiðivörur,
útileguvörur
Höldursf.
Tryggvabraut 10,
símar 21715 og 27015
Eitt mesta
úrval
iwrðanlands.
Regnfatnaður,
hlífðarföt,
vöðlur og
veiðistígvél.
Ánamaðkar
og allt sem
þarf í
veiðiferðina.
Grund í skaðabótamáli við Globus
feðgar höfðu um skeið verið að
velta fyrir sér endurnýjun á fóð-
urgeymslu og þessi lausn varð
fyrir valinu.
Of þunnar stálplötur
Á Grund háttar þannig til að þar
er mjög sviptivindasamt og oft
getur þar orðið ansi hvasst. Um
þetta er þeim feðgum vitanlega
fullkunnugt enda lögðu þeir á
það mikla áherslu við uppsetn-
ingu á turninum að sökkull hans
yrði nægilega þungur og frágang-
ur allur með því móti að turninn
myndi ekki velta þó hvessti
hressilega. Sökkullinn hefur að
geyma hvorki meira né minna en
220 tonn af steinsteypu!
Þessi frágangur hefur reynst
nægilega góður. Meinið liggur
hins vegar í samsetningu sjálfs
turnsins þegar ofar dregur og þar
er turninn ekki fagur á að líta.
Þegar blaðamann bar að garði
var strekkingsvindur að sunnan
en þó erfitt að hugsa sér að nokk-
urt mannvirki gæti ekki þolað
slíkt. En öðru nær. Efst á turnin-
um var stór dæld og fleiri smærri
í kring. Ef vindur hefði blásið að
norðan hefði dældin verið þeim
megin!
„Það hvarflaði ekki að okkur
að hann myndi gefa sig á þennan
hátt. Við vissunt meðal annars af
turni á Svarfhóli í Svínadal í
Borgarfirði, þar sem oft hvessir
hressilega, og hann hafði reynst
vel. Við fréttum hins vegar ekki
af því fyrr en síðar að stálplöt-
urnar í þeim turni eru allt að fjór-
ir millimetrar á þykkt,“ segir Þor-
steinn. Plöturnar í turninum á
Grund eru tveir og hálfur milli-
metri og telja þeir að seljandinn
hefði átt að ráðleggja þeim að
kaupa slíkt.
Hélt að sér hefði missýnst
Við verkun votheys skiptir öllu
máli að ekkert súrefni komist að
fóðrinu. Þannig stöðvast gerjun
fljótlega og heyið helst óskemmt.
Komist loft að verkast heyið hins
vegar eins og illa þurrkað þurr-
hey; það hitnar, ntyglar og í því
geta myndast eiturefni. „Það var
eitthvað að strax frá upphafi því
heyið verkaðist ekki eins og það
átti að gera. Við héldum fyrst að
hér væri um einhverja byrjunar-
örðugleika að ræða og þetta
myndi lagast,“ segir Þórður. Af
verkun heysins næsta vetur fór
það hins vegar ekki milli mála að
hér var um annað að ræða en
klaufaskap og byrjunarörðug-
leika og turninn hélt ekki lofti.
Eftir þetta hefur ekki komið í
hann hey og þeir feðgar hafa
mátt taka upp gömlu verkunar-
aðferðina og fullþurrka heyið.
„Það var lán að við vorum ekki
búnir að rífa gömlu hlöðuna,"
segir Þorsteinn. Fjárfesting sem
fyrir fjórum árum kostaði fjórar
milljónir stendur hins vegar ónot-
uð.
Það var ekki fyrr en haustið ’87
að þeir feðgar tóku fyrst eftir
dældunum í turninum. „Ég var á
leiðinni frá bænum þegar mér
fannst ég sjá þetta. Þegar ég kom
heim aftur var svo ekkert að sjá
og ég hélt að mér hefði
missýnst,“ segir Þórður. Þeir
feðgar gengu svo úr skugga um
þetta síðar. „Þetta hefur alltaf
verið að aukast því boltar eru
farnir að koma inn úr turninum
og klæðningin farin að brotna.“
Þegar svona er komið er það ekki
aðeins loft sem kemst inn og þeg-
ar rignir fossar vatn úr turninum.
Ósanngjarnar kröfur
tryggingafélagsins
Feðgarnir sneru sér til Samvinnu-
trygginga þar sem turninn var
foktryggður en þar var ekki nein-
ar bætur að fá. Þórður segir að
þess hafi m.a. verið krafist að
þeir sýndu fram á, að vindstyrkur
hefði náð ákveðnum mörkum
þegar skemmdirnar urðu og að
vont veður hefði verið annars
staðar líka. „Það er vonlaust að
vita hvenær nákvæmlega þetta
hefur gerst fyrst og hvenær ein-
stakar smáskemmdir hafa orðið.
Þetta er nokkuð sem gerist smám
saman,“ segir Þórður. „Við erum
ekki með vindmæli hér framfrá,“
segir Þorsteinn og bætir því við
Þórður Hilmarsson fram-
kvæmdastjóri Globus hf. vildi
ekki tjá sig um afstöðu fyrir-
tækisins í máli þeirra Grund-
arfeðga. Þórður sagði að hér
væri um „principatriði“ að
ræða og það væri stefna fyrir-
tækisins að láta reyna á þetta
mál á réttum vettvangi.
„Við hörmum mjög að svona
hafi farið í þessu máli og að það
að sér hefði þótt eðlilegast að
tryggingarnar greiddu tjónið en
krefðu Globus um endurgreiðslu.
Unnið í öllum veðrum
Eitt af því sem þeir Þórður og
Þorsteinn telja að hafi haft áhrif á
hvernig fór er hve turninn var
settur upp í miklum flýti. Sér-
fræðingar frá hinum belgíska
framleiðanda sáu um uppsetning-
una en fyrir lá afdráttarlaus yfir-
lýsing frá Globus þess efnis að
þeir ábyrgðust uppsetninguna.
Lítið tillit var að mati feðganna
tekið til veðurs og jafnvel unnið í
slagveðursrigningu. Þetta telja
þeir eina orsök þess hve óþéttur
turninn er því kítti hafi alls ekki
tollað á blautum plötunum.
Viðræður við fulltrúa Globus
hafa heldur engan árangur borið
og raunar segja þeir feðgar að
þessir aðilar tveir hafi sífellt vís-
að hvor á annan. Svörin hjá
Globusmönnum hafa verið á þá
leið að tjónið sé að rekja til
veðursins og það hafi bændurnir
átt að þekkja manna best og
byggja í samræmi við það. Bænd-
urnir hafa nú krafið Globus hf.
þess að þeim verði greitt andvirði
turnsins að fullu og hann fjar-
lægður. Til þess þarf sérstakan
búnað og þó að þeir feðgar vildu
gjarnan taka hann niður sjálfir
vegna þeirrar slysahættu sem þeir
telja að stafi af honum núorðið,
þá geta þeir það ekki.
Málið hefur verið þingfest og
verður að öllum líkindum tekið
fyrir í Bæjarþingi Reykjavíkur í
september. „Maður vonar auð-
vitað að þetta endi vel. Ég held
að það hafi ekki verið þeirra hug-
mynd að plata neinn en það voru
hins vegar gerð mistök við upp-
setningu turnsins,“ segir Þórður.
ET
þurfi að fara þessa leið. Það má
hins vegar ljóst vera að þegar
málið fer fyrir dómstóla þá þýðir
það að við erum ekki sammála
þeir Grundarmönnum um ástæð-
ur fyrir því sem þarna hefur
gerst. Við viljum hins vegar ekki
láta þetta mál fara fram í fjöl-
miðlum og teljum ekki rétt af
þeim heldur að gera það,“ sagði
Þórður. ET
Þórður Hilmarsson
framkvæmdastjóri Globus:
„Ekki sammála Gnmdarmömmm“
Turninn er hinn myndarlegasti að sjá þar sem hann gnæfir yfir aðrar byggingar að Grund, 25 metra hár og 6 metrar
í þvermál. Myndir: ET