Dagur - 25.07.1989, Side 7
Pollamót 6. flokks:
Þór meistari
- í flokki B-liða - KA í 3. sæti í flokki A-liða
R. 4:2. í úrslitaleiknum unnu
Þórsararnir Fylki mjög örugglega
4:0.
Við munurn fjalla nánar um
mötið á unglingasíðu á morgun
og ræðum þar við Karl Hákonar-
son og Orra Óskarsson en þeir
voru kosnir besti sóknar- og besti
varnarmaður mótsins. Sjá einnig
mynd af liðinu er það kom til
Akureyrar á sunnudagskvöldið á
baksíðu en þá var fjölmenni mætt
á flugvöllinn til þess að fagna
þessum glæsilega árangri liðsins.
Þórsarar gerðu sér lítið fyrir og
sigruðu í ilokki B-liöa á Polla-
móti KSI og Eimskips sem
haldið var í Reykjavík um
lielgina. Þór sigraði örugglega
í öllum leikjum sínuin og var
markatalan 30:3. KA keppti í
flokki A-liða og lenti í 3. sæti
sem einnig er mjög góður
árangur.
Bjarni Jónsson og Birgir Skúlason berjast um knöttinn í leik KA og FH á föstudagskvöldið. Ókunnug FH-löpp
blandar sér einnig í baráttuna. Mynd: kl
Þór lék fyrst við UBK og vann
6:1, síðan við Þrótt N. og gersigr-
aði þá 16:0 og vann síðan Þrótt
íslandsmótið í knattspyrnu:
Glæsimark Hlyns
dugði ekki til
Þór og Víkingur skildu jöfn 1:1
í 1. deildinni í knattspyrnu á
Víkingsvellinum í Reykjavík í
gærkvöld. Hlynur Birgisson
skoraði mark Þórs með
þrumuskoti eftir fyrirgjöf
Bojan Tanevskis en Björn Ein-
arsson jafnaði fyrir Víkinga
einungis fjórum mínútum fyrir
leikslok.
Fyrri hálfleikur var -að mestu
leyti tíðindalítill. Liðin skiptust á
að sækja án þess þó að skapa sér
verulega hættuleg marktækifæri.
Þó bjargaði Nói Björnsson með
skalla á marklínu skoti frá Atla
Einarssyni og sluppu þar Akur-
eyringarnir rétt fyrir horn.
Seinni hálfleikur var mun
fjörugri og áttu bæði lið ágæt
marktækifæri. Mark Þórs var
mjög fallegt og samvinna Tan-
evskis og Hlyns Birgissonar til
fyrirmyndar. Tanevski átti
lúmska en gullfallega sendingu á
Hlyn rétt fyrir utan vítateig Vík-
inga. Hlynur lék knettinum
nokkur skref og þrumaði knettin-
um í mark, alveg óverjandi fyrir
Guðmund markvörð.
Þórsarar bökkuðu nokkuð eftir
markið og freistuðu þess að halda
fengnum hlut en varamaðurinn
Björn Einarsson gerði út um þá
von með þrumuskalla á 86. mín-
útu. Þá áður hafði legið nokkuð á
norðanmönnum en áhangendur
Þórsara voru þó farnir að vona að
stigin þrjú færu norður. En mark
Björn var mjög fallegt og kættust
Víkingar mjög við það af skiljan-
Iegum ástæðum.
Nokkru síðar varði Baldvin
frábærlega í marki Þórs skot frá
Atla Einarssyni. Leiknum lauk
því með 1:1 jafntefli og eru bæði
liðin enn í bullandi fallhættu.
Bestu menn Þórs í þessum leik
voru þeir Bojan Tanevski, sem
var besti maðurinn á leikvellin-
um, og Kristján Kristjánsson sem
var síógnandi í framlínunni.
Víkingsliðið var mjög jafnt í
leiknum og ekki er hægt að gerá
upp á milli einstakra leikmanna
þess.
Dómari leiksins var Ólafur
Sveinsson og dæmdi vel. Hann sá
þó ástæðu til þess að sýna Milan
Duricic þjálfara Þórs gult spjald
fyrirólæti við hliðarlínu. HB/AP
Liö Þórs: Baldvin Guðmundsson, Luca Kostic,
Nói Björnsson, Július Tryggvason, Þorsteinn
Jónsson, Bojan Tanevski (Bjarni Sveinbjörns-
son-75. mín.), Birgir Karlsson, Sveinn Pálsson.
Hlynur Birgisson, Ólafur Þorbergsson. Kristján
Kristjánsson (Sævar Árnason 80 mín.).
Liö Víkinga: Guömundur Hreiðarsson. Hall-
stcinn Arnarson, Stefán Aðalsteinsson, Ámundi
Sigmundsson (Jón Oddsson 46. mín.), Atli
Helgason, Björn Bjartmarz (Björn Einarsson
80. mín.), Unnsteinn Kárason, Lúövík Braga-
son, Atli Einarsson, Andri Marteinsson, Páll
Guðmundsson og Aöalsteinn Aðalsteinsson.
Hlynur Birgisson skoradi mark Þórs gegn Víkingum med fallegu skoti.
íslandsmótið í knattspyrnu:
Sveltur sitjandi kráka
- og einnig knattspyrnulið sem ekki nýtir færin sín - KA-FH 1:1
KA-menn geta ekki kennt
neinum um nema sjálfum sér
að hafa ekki tekið öll stigin í
viðureign sinni við FH í 1.
deildinni í knattspyrnu á Akur-
eyrarvelli á föstudagskvöldið.
Leiknum lauk með 1:1 jafntefli
eftir að KA hafði átt alla
möguleika á því að gera út um
leikinn í fyrri hálfleik.
Fyrstu tuttugu mínútur leiksins
átti KA fleiri marktækifæri en
mögulegt var að telja. Þar
var Jón Grétar Jónsson fremstur
í flokki en einnig áttu þeir Þor-
valdur Örlygsson, Antony Karl
og Bjarni Jónsson ágæt tækifæri.
En annað hvort brenndu KA-
menn illa af, Halldór varði eins
og berserkur í markinu eða þá
löpp FH-manns komst í milli.
Það kom því eins og köld
vatnsgusa framan í áhorfendur
að gestirnir yrðu fyrri til þess að
skora. Pálmi Jónsson fékk knött-
inn inni í vítateig KA á 30. mín-
útu eftir slæm varnarmistök,
þakkaði pent fyrir sig og skoraði
örugglega án þess að Haukur í,
markinu ætti möguleika á að
verja.
KA jafnaði leikinn tíu mínút-
um síðar. Jón Grétar fékk bolt-
ann óvænt rétt fyrir utan vítateig
eftir að knötturinn hafði lent í
bakhluta varnarmanns FH sem
var á hraðri siglingu aftur í vörn-
ina. Halldór markvörður freist-
aði þess að koma út úr markinu
en spyrna Jóns fór yfir hann en
small í slánni og út á völlinn. Þar
var Antony Karl réttur maður á
réttum stað og skallaði knöttinn í
móður jörð og inn í markið.
Gauti Laxdal fékk ágætis
marktækifæri í byrjun síðari hálf-
leiks en fastur skalli hans fór rétt
fram hjá stöng FH-marksins. En
þar með var fjörið búið í leikn-
um. Spilið fór út í veður og vind
og baráttan var mest á miðjunni,
lítið fyrir augað.
Reyndar sóttu KA-menn mun
meira og tókst FH-ingum ekki að
ógna marki KA að neinu ráði all-
an hálfleikinn. En broddinn vant-
aði í sóknarleik KA og því fór
sem fór og heimaliðið þurfti að
sætta sig við eitt stig í leiknum.
í leiknum gegn FH var gaman
að sjá að Ormarr Örlygsson virð-
ist vera að komast í sitt gamla
góða form. Sérstaklega var
hann sterkur í síðari hálfleik en
þá vantaði aðstoð frá framlínu og
miðjumönnum að vinna úr send-
ingum hans fyrir markið. í fyrri
hálfleik voru miðju-og framlínu-
menn KA mjög góðir enda yfir-
spiluðu þeir FH-liðið gersamlega
en það sem vantaði voru mörkin
og það eru þau sem gilda.
Lið KA: Haukur Bragason, Erlingur
Kristjánsson, Arnar Bjarnason, Halldór
Halldórsson, Ormarr Örlygsson, Bjarni
Jónsson, Jón Kristjánsson, Gauti Laxdal,
Antony Karl Gregory, Jón Grétar
Jónsson, Þorvaldur Orlygsson.
Liö FH: Halldór Halldórsson. Ólal'ur
Jóhannesson, Birgir Skúlason, Magnús
Pálsson, Kristján Gíslason, Guðmundur
Valur Sigurðsson, Þórhallur Víkingsson,
Hörður Magnússon, Ólafur Kristjáns-
son, Pálmi Jónsson, Björn Jónsson.
Staðan
1. deild
Fram 10 6-1-3 15: 8 19
Valur 10 5-3-2 12: 6 18
KA 10 4-4-2 14:10 16
FH 10 4-4-2 14:10 16
ÍA 10 5-1-4 12:12 16
KR 10 4-3-3 15:13 15
Þúr 10 2-4-4 10:14 10
ÍBK 10 2-4-4 11:17 10
Víkingur 10 2-3-5 14:12 9
Fylkir 10 2-1-7 7:21 7
2. deild
Stjarnan 9 6-1-2 22:11 19
ÍBV 8 6-0-2 21:13 18
Víðir 9 5-2-2 13: 9 .7
Selfoss 9 5-0-4 10:13 x5
Breiðablik 9 4-1-4 20:15 13
Leiftur 9 3-3-3 9: 9 12
ÍR 9 3-1-5 8:12 10
Völsungur 9 2-2-5 14:23 8
Tindastóll 9 2-1-6 13:14 7
Einherji 8 2-1-5 9:21 7