Dagur - 25.07.1989, Page 8
80M§^JR^1»riÖjiÍdagur 25:’jaH'f§89
íþróttir
---------------------------------t
Knattspyrna/2. deild:
Knattspyrna:
og Þór lögðu KR
- 3:1 í miklum
ekki aðeins með tvö töp frá
Akureyri heldur héldu þeir í
Frostaskjólið með fimm gul
spjöld og tvö rauð á bakinu.
KR lék fyrst við KA á laugar-
dag og tapaði 3:1. Skafti Ingi-
marsson kom KA yfir snemma í
leiknum en KR jafnaði skömmu
síðar. Guðmundur Sigurðarson
skoraði rétt fyrir leikhlé annað
mark KA og í síðari hálfleik inn-
siglaði Björn Pálmason sigur KA
með ágætu marki.
Þrátt fyrir að leikurinn væri
ekki mjög harður þurfti Bragi
Bergmann dómari að lyfta gula
spjaldinu fimm sinnum og þar að
auki fékk markvörður KR reisu-
passann.
KA-liðið lék fyrir sunnan í síð-
ustu viku, tapaði illa fyrir Víking-
um 6:1 en vann síðan góðan sigur
á Val 3:2 daginn eftir. Mörk KA
spjaldaleikjum
gegn Val settu Björn Pálmason,
Halldór Kristinsson og Guð-
mundur Sigurðarson. Gegn Vík-
ingum skoraði Guðmundur Sig-
urðarson.
Þórssigur í hörðum leik
Það var ekki síður hiti í mönnum
í leiknum á sunnudag. Þórsarar
léku með vindinn í bakið í fyrri
hálfleik og voru mun sterkari.
Reyndar höfðu KR-ingar látið
senda sér meistaraflokksmanninn
Jóhann Lapas að sunnan til þess
að styrkja vörnina að það dugði
ekki gegn frískum framlínu-
mönnum Þórs.
Fyrsta markið kom eftir að
markvörður KR hafði varið
aukaspyrnu Páls Gíslasonar.
Hann hélt hins vegar ekki knett-
inum og Sævar Arnason fylgdi
vel á eftir og skoraði örugglega.
Axel Vatnsdal skoraði annað
markið eftir góða stungusend-
ingu Þóris Áskelssonar og Árni
Þ. Árnason setti þriðja markið
eftir að vörn KR hafði opnast illi-
lega. KR-ingar hresstust í síðari
hálfleik og skoruðu þá sitt eina
mark.
Leifur Garðarsson dómari
hafði í nógu að snúast og sýndi
þremur KR-ingum gula spjaldið
og einum Þórsara. Þar að auki
fékk einn KR-ingurinn að sjá
rautt hjá Leifi.
Fallbaráttan er nú mjög hörð í
A-riðli. Lítum á stöðu liðanna:
Stig
1. ÍA 16
2. Þór 12
3. Valur - 11
4. KA 8
5. Stjarnan 7
6. Víkingur 5
7. ÍBK 4
8. KR 3
Tindastóll vann Völsung sl.
föstudagskvöld á Sauðárkróks-
velli með fimm mörkum gegn
engu og var sá sigur fyllilega
sanngjarn. Tindastólsliðið lék
mjög vel í þessum leik og upp-
skar eftir því, en Völsungar
virkuðu ósannfærandi og kom-
ust ekki inn í leikinn. Sigurinn
var mikilvægur fyrir Tindastól
í botnbaráttunni í 2. deild og
lagaðist markatalan heilmikið.
Leikurinn var í jafnvægi til að
byrja með, Völsungar ívið beitt-
ari en ógnuðu lítið. Tindastóll
hafði sterkan vind í bakið í fyrri
hálfleik, en vindinn lægði eftir
því sem líða tók á leikinn. Það
var á 20. mínútu sem fyrsta mark
Tindastóls kom. Guðbrandur
Guðbrandsson tók hornspyrnu
og gaf vel fyrir markið. Þar kom
Eyjólfur Sverrisson svífandi,
hoppaði hærra en markvörður
Völsunga og skallaði knöttinn í
markið. Áfram héldu sóknir
Tindastóls og á 32. mínútu varði
Haraldur, í marki Völsunga,
glæsilega þrumuskot frá Árna
Ólasyni. Annað mark Tindastóls
kom á markamínútunni frægu,
43. mínútu. Tindastóll fékk
aukaspyrnu fyrir utan vítateig
Völsunga. Marteinn Guðgeirsson
Boltinn hggur í markneti Völsunga eftir vel útfærða aukaspyrnu frá Marteini Guðgeirssyni. Þetta er annað mark Tind
markamínútunni frægu. 43. mínútu fyrir hállleik. Iiaraldur Haraldsson markvörður Völsunga á ekki möguleika á því að verja
Marteins.
Knattspyrna/3. deild:
KS-Reynir
- keppa í kvöld á Siglufirði
Stórleikur verður á Siglufirði í
kvöld kl. 20.00 í B-riðli 3.
deildar. Þar mætast KS og
Reynir en síðasta leik liðanna
lauk með markalausu jafntefli.
Dalvík fer á Eskifjörð og
keppir við Austra og Huginn
keppir við Þrótt í sömu deild.
Allir þessir leikir eru mjög mikil-
vægir í hinni hörðu baráttu í
deildinni og má því búast við
hörkuviðureign á öllum stöðum.
Knattspyrna/4. deild:
Burst hjá HSÞ-b
- TBA tryggt á toppnum
skoraði beint úr aukaspyrnunni,
eftir að Eyjólfur Sverrisson hljóp
yfir knöttinn og plataði varnar-
vegg Völsunga.
Völsungar byrjuðu seinni hálf-
leikinn ágætlega, fengu góð
marktækifæri sem þeim tókst
ekki að nýta. Á 54. mínútu skaut
Kristján Olgeirsson þrumuskoti
að markinu, en Gísli varði vel.
Þriðja mark Tindastóls kom á 56.
mínútu. Eyjólfur tók langt inn-
kast fyrir Völsungsmarkið og
Ólafur Adolfsson skallaði í netið.
Eftir þetta mark var eins og
Völsungar væru búnir að gefast
upp og hafði Tindastóll leikinn í
hendi sér. Að vísu liðu 27 mínút-
ur þar til Tindastóll bætti við
fjórða markinu. Þar var Eyjólfur
að verki, skoraði af stuttu færi,
eftir að skot frá Sverri Sverrissyni
var varið af einum Völsungi.
Fimmta mark Tindastóls kom
KA
KR-ingar í 2. flokki fóru
hnípnir heim aftur eftir helgina
því þeir töpuöu bæði fyrir KA
og Þór 3:1 á íslandsmótinu í
knattspyrnu og eru nú í mikilli
fallhættu í A-riðli. En þeir fóru
Hvöt á Blönduósi 5:1. Fyrri hálf-
leikur var jafn en Ari Hallgríms-
son kom gestunum yfir fyrir
leikhlé. Axel Rúnar Guðmunds-
son jafnaði fyrir Hvöt snemma í
síðari hálfleik en einungis 20
sekúndum síðar kom Ari HSÞ-b
yfir aftur. Þá hrundi leikur Hvat-
ar og þeir Þórir Þórisson og Við-
ar Sigurjónsson innsigluðu sigur
HSÞ-b í leiknum. Sá fyrrnefndi
skoraði tvö mörk.
Annar sigur Neista
Neisti virðist hafa tak á SM og
lagði Neisti Hörgárdalsdrengina í
annað skipti í sumar. Reyndar
átti Neisti í vök að verjast allan
tímann en skoraði úr hraðaupp-
hlaupum tvö mörk. Þar voru að
verki Sigmundur Jóhannesson og
Stefán Ragnarsson og dugði það
til sigurs.
UMSE-b lagði Eflingu
Svipað var uppi á teningnum í
hitapottinum að Laugum á laug-
ardaginn er heimamenn mættu
UMSE-b. Eflingardrengirnir sáu
um að sækja en UMSE-b skor-
aði. Tómas Lárus Vilbergsson
þjálfari lék aftur með UMSE-b
og batt vörnina vel saman. En
mörk liðsins gerðu Ingólfur Sam-
úelsson, Þröstur Guðmundsson
og Valþór Brynjólfsson 2.
á lokamínútu leiksins. Árni Óla-
son tók aukaspyrnu á vinstri
kanti, gaf fyrir markið og Guð-
brandur skallaði í þverslá. Bolt-
inn barst fyrir fætur Stefáns Pét-
urssonar, sem skoraði örugglega.
Stefán fagnaði markinu með inn-
lifun og fór úr skyrtunni og veif-
aði til áhorfenda. Þetta athæfi
Stefáns fékk ekki góðar undir-
tektir dómaratríósins og fékk
Stefán gult spjald fyrir vikið.
Tindastólsliðið' átti góðan dag
að þessu sinni. Bestu menn voru
Hólmar Ástvaldsson og Stefán
Pétursson, auk þess sem Björn
Björnsson, Eyjólfur og Marteinn
áttu góða spretti. Völsungar voru
daprir og vilja sjálfsagt gleyma
þessum leik sem fyrst. Einna
mest bar á Jónasi Hallgrímssyni
og Ásmundi Arnarssyni.
Góður dómari leiksins var
Guðmundur Haraldsson. -bjb
Þrír efstu í meistaraflokki karla f.v.: Sverrir I
Reynisson GH.
Viðar Sigurjónsson þjálfari HSÞ-b
skoraði eitt mark í stórsigri liðsins á
Hvöt.
TBA heldur áfram öruggri for-
ystu í D-riðli 4. deildar eftir
öruggan sigur á Æskunni 5:2 á
Svalbarðseyri. HSÞ-b vann
óvæntan stórsigur á Blönduósi
5:1, UMSE-b vann góðan sigur
á Eflingu 4:0 og Neistinn vann
sinn annan sigur á SM 2:0.
Tveir leikir fóru fram á
fimmtudagskvöldið. TBA mætti
Æskunni á „frímerkinu" á Sval-
barðseyri og vann öruggan sigur
5:2. Nokkur vindur var er leikur-
inn fór fram og nýttu Tennis-
drengirnir sér það og skoruðu
fjögur mörk í fyrri hálfleik. Fyrst
skoraði Hannes Smárason, síðan
bætti Pétur Bjarnason tveimur
mörkum við og að lokum skoraði
Bragi Sigurðsson með fallegu
skoti utan af velli.
í síðari hálfleik skoraði Bragi
sitt annað mark með þrumuskoti
langt utan af velli en á loka-
mínútum leiksins skoruðu þeir
Gunnar Berg Gunnarsson og
Sigurður Skarphéðinsson sitt
markið hvor fyrir Æskuna.
Stórsigur HSÞ-b
HSÞ-b vann óvæntan stórsigur á
Stórsigur Tindastóls