Dagur - 25.07.1989, Blaðsíða 9
w'íÞriðjudagur 25. júlí 1989^ ÐAQbUR - 9
Húsvíkinga
2. Hreinn Jónsson GH 169
3. Guðmundur Sverriss. GSS 171
2. flokkur karla: högg
1. Oddur Jónsson GA 178
2. Sigurður Hreinsson GH 179
3. Einar Viðarsson GA 180
3. flokkur karla: högg
1. Pálmi Pálmason GH 188
2. Guðlaugur Bessason GH 194
3. Sveinn Rafnsson GA 197
Meistaraflokkur kvenna: högg
1. Inga Magnúsdóttir GA 175
2. Árný L. Árnadóttir GA 179
3. Andrea Ásgrímsdóttir GA 196
1. flokkur kvenna: högg
1. Fjóla Stefánsdóttir GA 229
2. Kristín Jónsdóttir GA 236
3. Bjarnhildur Sigurðard. GSK 254
Unglingaflokkur: högg
1. Guðni R. Helgason GH 173
2. Gunnar A. Gunnarsson GSS 188
3. Sveinn Bjarnason GH 194
Öldungaflokkur: högg
1. Gísli Vigfússon GH 152
2. Haukur Jakobsson GA 158
3. Guðjón E. Jónsson GA 159
Luca Kostic, knattspyrnumað-
urinn sterki í Þór, hefur rætt
við Þórsara í körfunni um að
hann leiki með liðinu körfu-
knattleik næsta vetur. Kostic
er víst mjög frambærilegur
körfuknattleiksmaður og ætti
að geta styrkt Þórsliðið veru-
lega.
Pessar umræður eru enn á
frumstigi og ekkert hefur verið
frágengið í þeim efnum. Kostic
er hér með fjölskyldu sinni og
hefur líkað dvölin á Akureyri
mjög vel. Hann hefur því fullan
hug á því að dvelja hér áfram og
leika með Þórsliðinu.
Það er mikill hugur í Þórsurum
í körfunni. Landsliðsmaðurinn
Birgir Mikaelsson hefur tilkynnt
félagaskipti úr KR í Þór og má
líklegt telja að Jón Örn Guð-
mundsson bakvörður úr ÍR leiki
einnig með Þórsliðinu næsta
vetur.
Eins og sagt var frá í Degi fyrir
helgina hafa Þórsarar verið í
sambandi við bandarískan leik-
mann, John Calverson, urn að
hann þjálfi og leiki með liðinu á
næsta keppnistímabili. Reyndar
er annar Bandaríkjamaður inni í
myndinni, sá er svartur á hörund
og nokkrum árum eldri en Calver-
son. Hvor verður fyrir valinu
mun skýrast á næstu dögum.
Það er því ljóst að Þórsarar
munu mæta með mun sterkara lið
til leiks á næsta keppnistímabili
en þeir gerðu í fyrra. Þá voru þeir
í basli og tókst naumlega að forð-
ast fall. Körfuknattleiksáhuga-
menn á Akureyri ættu því að
gleðjast því það stefnir allt í að
Þórsliðið geti orðið mjög sterkt á
næsta ári.
Þrjár efstu í meistaraflokki kvenna, Andrea Ásgrímsdóttir, Inga Magnúsdóttir og Árný L. Árnadóttir.
>orvaldsson GA, Kristján Gylfason GA og Axel
- í meistaraflokki - hörð keppni milli Akureyringa og
Noröurlandsmótið í golfi 1989
var haldið á Húsavík um helg-
ina. Keppendur voru 105 frá
fimm golfklúbbum á Norður-
landi, GA, GH, GSS, GÓ og
GSK. Kristján Gylfason GA
sigraði í meistaraflokki karla
og Inga Magnúsdóttir GA í
meistaraflokki kvenna.
Akureyringar og Húsvíkingar
börðust um gullið í öllum flokk-
um og skildu að lokum jafnir
með fjóra verðlaunapeninga
hvor. Akureyringar sigruðu í
meistaraflokki karla og kvenna,
2. flokki karla og 1. flokki
kvenna. Húsvíkingar hirtu hins
vegar gullið í 1. flokki og 3.
flokki karla, unglingaflokki og
öldungaflokki.
Keppni var jöfn og spennandi
í öllum flokkum en þó hvergi
Körfuknattleikur:
Leíkur Kostic
í körfunm?
- Birgir í Þór
jafn spennandi og í meistara-
flokki karla. Þegar upp var
staðið voru þeir efstir og jafnir
Kristján Gylfason GA og Axel
Reynisson GH með 158 högg.
Þurfti því að fara fram umspil
um fyrsta sætið. Leiknar voru
þrjár holur og reyndist Kristján
þá sterkari. Reyndar þurfti einn-
ig umspil um þriðja sætið og þar
sigraði Sverrir Þorvaldsson GA
og náði því 3. sætinu.
Það var þrefaldur Akureyrar-
sigur í meistaraflokki kvenna.
Þar var Inga Magnúsdóttir sterk-
ust á 175 höggum. Árný L. Árna-
dóttir varð önnur með 179 högg.
og Andrea Ásgrímsdóttir þriðja
með 195 högg.
í 1. flokki karla var Kristján
Guðjónsson hlutskarpastur á 165
höggum. Hreinn Jónsson GH
lenti í öðru sæti á 169 höggum og
Guðmundur Sverrisson frá Sauð-
árkróki náði þriðja sætinu á 171
höggi.
I 2. flokki varð Akureyringur,
Oddur Jónsson, hlutskarpastur
með 178 högg. Einu höggi á eftir
kom Sigurður Hreinsson GH og
Einar Viðarsson GA lenti í
þriðja sæti á 180 höggum.
í 3. flokki sigraði íþróttafull-
trúinn og handboltakappinn
Pálmi Pálmason frá Húsavík á
188 höggum. Guðlaugur Bessa-
son GH varð í öðru sæti og
Sveinn Rafnsson GA í þriðja
sæti.
I 1. flokki kvenna sigraði Fjóla
Stefánsdóttir GA og Kristín
Jónsdóttir GA varð í öðru sæti. í
þriðja sæti kom síðan eini verð-
launahafinn frá Skagaströnd,
Bjarnhildur Sigurðardóttir.
í unglingaflokki sigraði Guðni
R. Helgason GH, Gunnar R.
Gunnarsson GSS varð í öðru sæti
og Sveinn Bjarnason lenti í
þriðja sæti.
í öldungaflokki var einungis
spilað með forgjöf og þar sigraði
Gísli Vigfússon GH. I öðru sæti
koma Haukur Jakobsson GA og
Guðjón E. Jónsson GA varð í
þriðja sæti.
En lítum á þrjá efstu í hverjum
flokki:
Meistaraflokkur karla: högg
1. Kristján Gylfason GA 158
2. Axel Reynisson GH 158
3. Sverrir Þorvaldsson GA 159
1. flokkur karla: högg
1. Kristján Guðjónsson GH 165
Norðurlandsmótið í golfi á Húsavík:
Kristján og Inga sigruðu
r Árnason skoraði fyrsta mark Þórs í 3:1 sigri
KR. Mynd: AP
Unglingameistaramótið í sveitakeppni:
GA íslandsmeistari
lagði GS í úrslitakeppni
Sveit
Sveit GA varð íslandsmeistari
á Unglingameistaramótinu í
golfi fyrir 14 ára og yngri, sem
haldið var í Mosfellsbæ um
helgina. Sveitin lagði Golfklúbb
Suðurnesja að velli í úrslitum
en alls tóku níu sveitir þátt í
keppninni. Sigursveit GA
skipuðu Þorleifur Karlsson,
Aki Harðarson, Sigurpáll
Sveinsson og Jón Árnason.
Keppnin fór fram með útslátt-
arfyrirkomulagi og var fyrst spil-
uð höggkeppni. Þar urðu Akur-
eyringarnir hlutskarpastir og
unnu síðan Golfklúbbinn Leyni á
Akranesi í undanúrslitum. Síðan
tóku þeir GS fyrir og lögðu þá
einnig og tryggðu sér þannig
íslandsmeistaratitilinn.
Á Selfossi fór keppnin í flokki
15-18 ára fram og lenti GA í 5.
sæti. Sveitin varð í fyrsta sæti í
höggkeppninni en náði sér síðan
ekki almennilega á strik og tap-
Sigurpáll Sveinsson var í sigursveit
GA.
aði fyrir GN. Síðan lagði hún
sveit Leynis og lenti því í 5. sæti.
Sveitina skipuðu Magnús Karls-
son, Örn Arnarson, Egill Hólm-
steinsson og Sigurður O.
Jónsson.
Austurlandsmótið í golfi var
haldið á Eskifirði um síðustu
helgi. Jóhann Kjærbo GN sigr-
aði í meistaraflokki karla,
Agnes Sigurþórsdóttir GE í
kvennaflokki og Bjartur Finns-
Þetta er mjög góður árangur
hjá báðum sveitum og sýnir að
hið öfluga unglingastarf sem
haldið hefur verið uppi hjá GA
er nú að skila sér í glæsilegum
árangri á mótum.
son GHH í unglingaflokki.
Um næstu helgi verður opið
mót hjá GE á Eskifirði og segja
þeir Eskfirðingar að búið sé að
panta rétta veðrið fyrir mótið og
voni þeir að margir Norðlending-
ar láti sjá sig þar.
Austurlandsmótið í golfi:
Jóhann efstur
- Opið mót á Eskifirði um næstu helgi