Dagur - 25.07.1989, Side 10
10-
íþróttir
Sigfús Kárason var í miklum ham gegn Val og skoraði 4 mörk. Hér sést hann
skora gegn Reyni fyrr í sumar. Mynd: ap
Knattspyrna/3. deild:
Stórsigur Dalvíkur
- á Val 7:0 - KS lagði Kormák 7:0
KS heldur enn forystunni í 3.
deildinni en um helgina unnu
þeir Kormák á Hvammstanga
7:0. Dalvíkingar unnu einnig
7:0 gegn Valsmönnum á Dal-
vík og standa þeir nú ágætlega
í deildinni. Huginn sigraði hins
vegar Magna 3:2 á Grenivík og
verða Magnamcnn að herða
sig ef þeir ætla ekki að standa í
fallbaráttu.
Leikur KS og Kormáks var
leikur kattarins að músinni. Lið
KS er mun sterkara en Kormáks
en þó virtust Hvammstangapilt-
arnir bera of mikla virðingu fyrir
Siglfirðingunum. Líklegast hafa
úrslitin í fyrri leik liðanna, 7:0,
enn setið í Kormáksdrengjum.
KS tók því öll völd á vellinum
strax frá byrjun og skiptu þeir
KS-menn mörkunum bróðurlega
á milli sín. Baldur Benonýsson
setti tvö þeirra en þeir Mark
Duffield, Hafþór Kolbeinsson,
Óli Agnarsson, Hlynur Eiríksson
og Sveinn Sverrisson skoruðu sitt
markið hver. Sem sagt stórsigur
KS 7:0.
Stórsigur Dalvíkinga
Dalvík gerði sér lítið fyrir og rót-
burstaði Val frá Reyðarfirði 7:0.
Sigfús Kárason var mjög at-
kvæðamikill í leiknum og gerði
fjögur þessara marka. Ragnar
Rögnvaldsson, Björn Friðjófsson
og Örvar Eiríksson sáu síðan um
hin mörkin þrjú.
Valsmenn veittu nokkra mót-
spyrnu í fyrri hálfleik og tókst
heimamönnum ekki að skora
nema tvö mörk í þeim hálfleik. í
þeim síðari settu Dalvíkingar
hins vegar í fluggír og áttu gest-
irnir ekkert svar við sterkum
sóknarleik heimamanna. Knött-
urinn lenti þá fimm sinnum inn.
fyrir marklínu og lokatölur urðu
því 7:0 fyrir Dalvík.
Magnatap á Grenivík
Magnamenn urðu að sætta sig við
tap gegn sterkum Seyðfirðingum
á Grenivík 2:3. Eymundur Ey-
mundsson skoraði fyrst fyrir
Magna en Sveinbjörn Jóhannsson
jafnaði fyrir Hugin. Þórir Ólafsson
kom gestunum síðan yfir en Jón
S. Ingólfsson jafnaði fyrir Gren-
víkinga úr vítaspyrnu rétt fyrir
leikhlé.
Snemma í síðari hálfleik skor-
aði Kristján Jónsson fyrir Seyð-
firðinga og reyndist það sigur-
markið í leiknum. Staða Magna
versnaði til muna við þetta tap
því þessi tvö lið berjast hat-
rammri baráttu um sæti í 3. deild-
inni að ári.
Einn leikur fór fram í B-riðli 3.
deildar fyrr í vikunni en þá sigr-
aði Þróttur Austra á Norðfirði
4:1.
Knattspyrna/2. deild:
Öruggur Leifturssigur
- lagði Einherja 3:0
Leiftursmenn unnu öruggan
sigur á Einherja frá Vopnafiröi
á Ólafsfírði á föstudagskvöld-
ið. Þegar upp var staðið voru
mörkin þrjú sem Leiftursmenn
höfðu gert en Einherjamenn
ekkert.
Garðar Jónsson skoraði fyrsta
mark Leifturs eftir góðan undir-
búning Guðmundar Garðarsson-
ar. Rúmeninn Arthur David
Udrescu setti annað markið um
miðjan seinni hálfleik beint úr
aukaspyrnu og Hafsteinn Jakobs-
son innsiglaði sigur Ólafsfirðinga
með þrumuskoti skömmu fyrir
leikslok.
Sóknarmenn Leifturs hefðu
getað skorað mun fleiri mörk því
vörn Einherja var slök en
knötturinn neitaði að fara oftar í
netið. I þessum leik bar mest á
Hafsteini Jakobssyni í Leifturs-
liðinu en einnig átti David
Udrescu góða spretti. Síðan var
vörn Leifturs traust.
Vopnfirðingarnir náðu sér ekki
á strik í leiknum og verða að fara
að herða sig ef þeir ætla ekki aft-
ur niður í 3. deild.
Knattspyrna/1. deild kvenna:
Fyrsti sigur í’órs
- vann Stjörnuna 1:0 - KA tapaði 2:1 fyrir ÍA
Þórsstelpurnar unnu sinn
fyrsta sigur í 1. deild kvenna á
þessu keppnistímabili er þær
lögðu Stjörnuna að velli 1:0 á
Þórsvellinum á föstudags-
kvöldið. Á sama tíma tapaði
KA 2:1 fyrir ÍA á KA-vellin-
um.
Sigur Þórs var sanngjarn og
hefði getað orðið stærri. Þórs-
stelpurnar komu ákveðnar til
Sólveig Haraldsdóttir skoraði mark
KA gegn ÍA.
leiks og kom það Garðbæingun-
um dálítið í opna skjöldu. Þrátt
fyrir þokkaleg færi í fyrri hálfleik
tókst hvorugu liðinu að koma
knettinum í mark.
Snemma í síðari hálfleik fékk
Ellen Óskarsdóttir góða send-
ingu, lék inn fyrir vörn Stjörn-
unnar og skoraði örugglega fram
hjá markverði gestanna. Stjörnu-
stúlkunum hljóp nokkurt kapp í
kinn við þetta en vörn Þórs gaf
ekkert eftir og fyrsti sigur Þórs á
þessu keppnistímabili var stað-
reynd.
Tap hjá KA
Það gekk ekki eins vel hjá KA
enda við mun sterkari andstæð-
ing að etja. ÍA-stúlkurnar voru
mun sterkari og skoruðu tvö
mörk í fyrrii hálfleik. í bæði'skipt-
in var þar Ásta Benediktsdóttir á
ferðinni.
í síðari hálfleik hresstust KA-
stelpurnar nokkuð og minnkaði
Sólveig Haraldsdóttir muninn
með ágætu marki um miðjan
hálfleikinn. En þar við sat og
voru ÍA-stelpurnar nær því að
bæta við marki en KA að jafna
leikinn.
Þórsarar leika næst við ÍA á
Akranesi næsta laugardag en
KA-stelpurnar sitja yfir í þessari
umferð. Næsti leikur þeirra er við
Þór á Þórsvellinum miðvikudag-
inn 9. ágúst. Síðast vann KA 2:1
í jöfnum leik og má því búast við
að Þór vilji hefna harma sinna og
leggja nágranna sína að velli.
Breiðablik sigraði KR 2:1 um
helgina í 1. deild kvenna og er nú
komið í 3. sæti deildarinnar.
Ellen Óskarsdóttir skoraði sigur-
mark Þórs.
Héraðsmót USAH í frjálsum íþróttum:
Umf. Fram hlutskarpast
- ágætur árangur í mörgum greinum
Héraðsmót USAH í frjálsum
íþróttum fór fram á Skaga-
strönd fyrr í þessum mánuði
eins og sagt var frá í Degi á
föstudaginn. Það var Umf.
Fram á Skagaströnd sem sigr-
aði í stigakeppni félaga.
Við munum hér á eftir fara yfir
úrslit í einstökum greinum á mót-
inu:
100 m hlaup karla: sek.
1. Guðmundur Ragnarsson Hvöt 11,8
2. Kristján Frímannsson Vorb. 12,0
3. Víðir Ólafsson Fram 12,3
200 m hlaup karla: sek.
1. Guðmundur Ragnarsson Hvöt 24,3
2. Víðir Ólafsson Fram 24,6
3. Agnar B. Guðmundsson Hvöt 25,0
400 m hlaup karla: sek.
1. Daníel Guðmundsson Fram 55,4
2. Víðir Ólafsson Fram 55,8
3. Kristján Frímannsson Vorb. 57,4
1500 m hlaup karla: mín.
1. Daníel Guðmundsson Fram 4:38,5
2. Sverrir P. Sverrisson UMFB 4:50,1
3. Kristinn Guðmundsson Fram 4:50,2
3000 m hlaup karla: mín.
1. Daníel Guðmundsson Fram 9:21,5
2. Björn Björnsson Vorb. 10:40,1
3. Rafn Ingi Rafnsson Geislar 10:53,5
4x100 m boðhlaup karla: sek.
1. Sveit Hvatar 48,3
2. A-sveit Fram 49,2
3. B-sveit Fram 52,4
1000 m boðhiaup karla: mín.
1. A-sveit Fram 2:17,7
2. A-sveit Hvatar 2:17,9
3. Sveit Vorboðans 2:20,9
Kringlukast karla: metrar
1. Helgi Þór Helgason Geislar 50,60
2. Ásberg Sigurgeirsson Geislar 32,08
3. Jón Arason Hvöt 30,82
Kúluvarp karla: metrar
1. Helgi Þór Helgason Geislar 14,20
2. Ellert Svavarsson Hvöt 10,98
3. Ásberg Sigurgeirsson Geislar 10,94
Spjótkast karla: metrar
1. Friðgeir Halldórsson USAH 52,98
Guðbjörg Gylfadóttir sigraði í öll-
um kastgreinum kvenna á héraðs-
mótinu.
2. Guðmundur Ragnarsson Hvöt 48,56
3. Jón Þ. Heiðarsson Geislar 45,86
Þrístökk karla: metrar
1. Friðgeir Halldórsson USAH 12,35
2. Guðmundur Ragnarsson Hvöt 12,16
3. Jón Þ. Heiðarsson Geislar 11,64
Langstökk karla: metrar
1. Friðgeir Halldórsson USAH 6,14
2. Guðmundur Ragnarsson Hvöt 5,49
3. Víðir Ólafsson Fram 5,38
Hástökk karla: metrar
1. Guðmundur Ragnarsson Hvöt 1,80
2. Sigurbjörn Kristjánsson Fram 1,75
3. Ingvar Björnsson Geislar 1,70
100 m hiaup konur: sek.
1. Steinunn Snorradóttir Hvöt 13,3
2. Sunna Gestsdóttir Hvöt 13,6
3. Jóna F. Jónsdóttir Vorb. 13,8
200 h hlaup: sek.
1. Steinunn Snorradóttir Hvöt 28,4
2. Sunna Gestdóttir Hvöt 28,6
3. Jóna F. Jónsdóttir Vorb. 29,1
400 m hlaup: sek.
1. Steinunn Snorradóttir Hvöt 64,8
2. Jóna F. Jónsdóttir Vorb. 65,4
3. Þórhalla Guðmundsdóttir Hvöt 70,4
800 m hlaup: mín.
1. Guðný Finnsdóttir Fram 2:40,9
2. Jóna F. Jónsdóttir Vorb. 2:42,7
3. Steinunn Snorradóttir Hvöt 2:44,6
1500 hlaup: mín.
1. Steinunn Snorradóttir Hvöt 5:33,9
2. Guðný Finnsdóttir Fram 5:34,1
3. Hrefna Guðmundsdóttir Hvöt 5:48,9
4x100 m boðhlaup: sek.
1. Sveit Hvatar 57,3
2. Sveit Geisla 57,5
3. A-sveit Fram 57,8
1000 m boðhlaup: mín.
1. Sveit Hvatar 2:46,9
2. Sveit Geisla 2:51,5
3. Sveit Fram 3:02,3
Kringlukast konur: metrar
1. Guðbjörg Gylfadóttir Fram 31,28
2. Sigríður Gestsdóttir Fram 24,90
3T Guðrún Pétursdóttir UMFB 24,18
Kúluvarp konur: metrar
1. Guðbjörg Gylfadóttir Fram 13,61
2. Guðrún Pétursdóttir UMFB 9,32
3. Sigríður Gestsdóttir Fram 8,58
Spjótkast konur: metrar
1. Guðbjörg Gylfadóttir Fram 27,20
2. Birna Sveinsdóttir Fram 24,16
3. Soffía Pétursdóttir Fram 23,94
Langstökk konur: metrar
1. Steinunn Snorradóttir Hvöt 4,67
2. Sunna Gestsdóttir Hvöt 4,16
3. Vilborg Jóhannsdóttir Fram 4,14