Dagur - 25.07.1989, Blaðsíða 11
Þriðjuaagur 2
9- DA
_ <Mr
Uft -11
Hermann og Sara Hills í óvenjulegri lífsreynslu:
Bamsfæðing um borð í
Cessnu í 5500 feta hæð
Fæðing hefur oft tekið á taugarn-
ar hjá verðandi feðrum en fáir
hafa gengið í gegnum þá lífs-
reynslu sem Hermann Hill og
kona hans fengu þegar þau eign-
uðust sitt þriðja barn um borð í
lítilli Cessna flugvél í 5500 feta
hæð yfir Bandaríkjunum. Faðir-
inn verðandi bað til Guðs þegar
kona hans sagði skyndilega að
fæðing væri að fara af stað og
barnið væri að koma. Hermann
vissi að hann var í vandræðum
þegar kona hans bað hann að
koma vélinni strax niður á flug-
völl því enginn var flugvöllurinn í
nágrenninu. Ekki var því um
annað að ræða en fæða barniö í
háloftunum.
A Cessna vélinni var engin
sjálfstýring þannig að Hermann
varð að gera hvort tveggja í senn,
stýra vélinni og aöstoða konu
sína viö fæðinguna. „í byrjun var
ég skelfingu lostin,“ sagði Sara
þegar hún lýsti þessari óvenju-
íegu fæðingu. „En okkur fannst
sem æðri máttarvöld kæmu okk-
ur til hjálpar og létu þetta ganga
vel fyrir sig."
„Eg hjálpaði Söru í aftara sæti
vélarinnar þar sem'hún bjó um
sig til fæðingarinnar. Skyndilega
kallaði hún til mín að barnið væri
að korna og ég teygði aðra hönd-
ina til hennar og aðstoðaði hana
við að taka á mpti barninu en
með hinni hendinni og fætinum
reyndi ég að halda stjórninni á
vélinni og óskaði þess heitt að
ekkert kærni upp á. Þegar barnið
var komið urðum við hrædd eitt
augnablik því enginn grátur
heyrðist í barninu. Sara setti fing-
urinn upp í barnið og loks heyrð-
ist gráturinn."
Nokkrum mínútum seinna var
Cessna vélin lent á næsta flug-
velli. Þar beið sjúkrabíll eftir
nýbökuöum foreldrum og barn-
inu og var fjölskyldan strax flutt á
sjúkrahúsið.
„Bæði læknar og flugmenn
segja mér að þrátt fyrir að nokk-
ur börn hafi fæðst um borð í flug-
vél í háloftunum þá hafi það
sennilega aldrei gerst áður um
borð í lítilli og þröngri Cessna
vél.
Flugkappinn frækni varð að gera tvcnnt í senn:
Stýra vélinni og aðstoða konu sína við fæð-
inguna . . .
Julio Iglesias heltekinn
af Brooke Shields
Móðir Brooke má ekki til þess hugsa að þau nái saman.
Sagt er að Julio Iglesias sé svo
hrifinn af Brooke Shields að
hann hafi sent henni blórn og
hringt stöðugt til hennar í tvo
mánuði. Móðir hennar Teri er
ekki hrifin af uppátækinu og er
staðráðin í að halda þeim sundur.
„Hún er draumadísin mín.
Falleg, rík, á framabraut, greind
og ung. Samsetning sem ég stenst
engan veginn," sagði hinn 45 ára
gamli Julio.
Brooke er heilluð af athygli
hins spánska Rómeos en mamma
er ströng og segir þvert nei.
„Þetta yrði hræðilegt fyrir
Brooke,“ sagði hún vini sínum.
„Hann er helmingi eldri en hún
og ferill hans brátt að enda en
hennar rétt að byrja. En það sem
verra er er að hann hefur getið
sér þess orðs að vera mesti
glaumgosi í heimi,“ sagði Teri og
bætti því að hann hefði verið
kenndur við þúsundir kvenna.
Julio heillaðist fyrst af Brooke
fyrir sex árunt þegar hún var 17
ára. Þá komu þau bæði fram í
þætti Bob Hope. Þau hittust síð-
an af og til í skemmtibransanum
en alltaf var Tcri með dóttur
sinni og Julio varð því lítið
ágengt.
Undanfarið hefur Brooke ver-
ið í slagtogi með ótrúlega ríkum
33 ára Egypta, Dodi Fayed sem
Varðhundurinn Teri..
hefur svift mæðgunum um Kali-
forniu, New York og Evrópu á
glæsilegan hátt. „Dodi ög Brooke
eiga svo margt sameiginlcgt. Ef
þau giftust þá yrði hún drottning
alheimsins,“ sagði móðirin.
Julio fékk Brooke nýlega til að
leika í myndbandi hjá sér og að
sögn kunnugra gátu þau ekki haft
augun hvort af öðru. Þetta fór
ekki framhjá neinum og allra síst
Teri sem varð nánast óð. Meðan
á upptökum stóð fylgdi hún þeim
eftir hvert fótspor og dró Brooke
síðan með sér heim þegar verk-
efnið var á enda.
Síðan þá hefur Julio verið í því
að senda rósir og hringja. Brooke
er harðákveðin í að láta móður
sína ekki stoppa sig lengi og seg-
ist ekkert vilja með Dodi hafa
hún vilji bara Julio. Um þetta allt
sagði Julio: „Afskiptasemi móð-
urinnar truflar mig ekki heldur
gerir mig staðráðnari í að sigrast
á þessari bráð.“
Heildarupphæð vinninga
22.07 var 3.752.604.-
Enginn hafði 5 rétta sem
var kr. 1.727.811.-
Bónusvinninginn fengu 7
og fær hver kr. 42.910.-
Fyrir 4 tölur réttar fær
hver kr. 4.585.- og fyrir 3
réttar tölur fær hver um
sig kr. 321.-
Sölustaðir loka 15 minútum
fyrir útdrátt í Sjónvarpinu.
Sími 68511 1.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
eins og þú vilt
að aorir aki!
UMFEROAR