Dagur - 25.07.1989, Síða 16
TEKJUBREF• KJARABRÉF
FJARMÁL ÞIN - SÉRGREIN OKKAR
rFIÁRFESriNGARFÉLAQD
Ráðhústorgi 3, Akureyri
Laxá í Aðaldal:
Forsætis-
ráðherra
setti í
þann stóra
- dró 19 punda lax
á laugardaginn
„Okkur gengur vel í veiði-
skapnum hér í Laxá þrátt fyrir
að reyndar sé svolítið tregt í
dag,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra í
samtali við blaðið í gær en þá
var hann að Ijúka morgunvakt-
inni í Laxá í Aðaldal. Steingrím-
ur byrjaði ásamt sínu „holli“
á laugardaginn í ánni og strax á
laugardagskvöldið beit sá stóri
á og forsætisráðherrann átti
langa glímu við 19 punda fal-
legan lax.
Steingrímur hefur gert ágætan
túr í Laxá að þcssu sinni, var um
hádegið í gær kominn með sex
laxa og þann stærsta 19 punda.
Ráðherrann fór mjög nálægt
metinu í þetta skiptið því stærsti
lax sumarsins úr ánni er 20 pund.
Steingrímur sagðist eingöngu
veiða á flugu en mismunandi væri
hvaða flugu fiskurinn tæki. „Við
erum búnir að vera hér nokkur
sumur og þetta er nú með lakara
móti en í sæmilegu lagi miðað við
ána í sumar.“
Nú eru komnir um 600 iaxar úr
Laxá í Aðaldal. „Holl“ Orra Vig-
fússonar, formanns Laxárfélagsins,
lauk veiðum síðastliðinn laugar-
dag og hafði þá fengið ríflega 100
laxa sem er besta veiði hjá einu
„holli“ í ánni það sem af er
JÓH
sumri.
Aðsóknarmetin fuku á tjaldsvæðunum á Akureyri um helgina enda þyrptust sólþyrstir sunnlendingar norður yfír
heiðar til að njóta veðurblíðunnar. Mynd: kl
Stanslaus
straumur
- norður í sólina
og hitann
Góð aðsókn var að flcstum
tjaldsvæðum norðanlands um
síðustu helgi, enda veður með
afbrigðum gott.
í Vaglaskógi varfjölmenni, um
tólf hundruð manns, og var hlut-
fall ungs fólks hátt. Notuðu
margir Akureyringar tækifærið til
að skreppa í „skóginn.“
I Mývatnssveit voru liðlega eitt
þúsund tjöld, og varlega áætlað
þýðir það milli tvö og þrjú þús-
und ferðamenn. Lögreglan á
staðnum hafði sjaldan eða aldrei
séð aðra eins umferð við Mývatn,
og var allt óhappalaust, að einu
atviki undanskildu.
Ásbyrgi er alltaf vinsæll ferða-
mannastaður, en um helgina
voru þar fleiri ferðamenn en vit-
að er til áður, 650 manns skráðir
í bók landvarðar.
Færri ferðamenn voru í Skaga-
firði um helgina en þó tjölduðu
100 manns á Sauðárkróki og
einnig nokkrir við Varmahlíð.
EHB
Metaðsókn að tjaldsvæðum um síðustu helgi:
Á þriðja þúsund gistu
í tjöldum á Akureyri
Um síðustu helgi voru öll fyrri
met í aðsókn að tjaldstæðum
Hraðakstur í Húnaþingi:
71ökumaðurtekinn
- þar af 3 án ökuréttinda
Þrátt fyrir gífurlega umferð um
Húnavatnssýslur um síðustu
helgi var ökuhraðinn ekkert
minni. Frá föstudegi til
sunnudags tók lögreglan 71
ökumann fyrir of hraðan akst-
ur. Þar af voru 3 ökumenn
réttindalausir undir stýri. Lög-
reglan á Blönduósi tók tvo
ökumenn vegna gruns um ölv-
un við akstur.
Af þessum 71 ökumanni, voru
tveir teknir þar sem þeir voru í
kappakstri á 126 km hraða. Til
allrar hamingju varð ekkert
óhapp í umferðinni um Húna-
þing. -bjb
Akureyrarbæjar slegin. Þrátt
fyrir þessa miklu aðsókn var
rólegt og lítið um að kalla
þyrfti löggæslu til aðstoðar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Karenu Malmquist, starfsmanns
Jjaldsvæðanna, voru tvö þúsund
tvö hundruð og fimmtíu manns
bókaðir inn frá föstudegi til
sunnudags. Sólarhringsgjaldið fyr-
ir hvern gest er tvö hundruð og
fimmtíu krónur, en frítt fyrir
börn innan tólf ára aldurs. Tekj-
ur Akureyrarbæjar af þessari
þjónustu geta því verið umtals-
verðar þegar svo mikill gesta-
fjöldi notar tjaldstæðin. Að-
gangseyririnn þessa einu helgi
var þannig um hálf milljón
króna.
íslendingar voru í miklum
Pollamót KSÍ:
Þórsarar
sigruðu
- í flokki B-liða
Þórsarar sigruðu örugglega í
flokki B-liða á Pollamóti KSÍ og
Eimskips í 6. flokki nú um helg-
ina. Mótið er nokkurs konar
óopinbert Islandsmót í þessum
aldurflokki og teljast nú Þórsarar
eiga besta B-lið í þessum aldurs-
flokki á Islandi í dag. Þeim var
því vel tekið cr þeir komu aftur
heim til Akureyrar á sunnudags-
kvöldið. Hér sést meirihluti
strákanna á Akueyrarflugvelli
ásamt þjálfurum sínum, þeim
Gísla Bjarnasyni og Jónasi
Róbertssyni.
meirihluta tjaldsvæðisgesta þessa
helgi eins og aðrar, eða um 80 af
hundraði. Meðferð áfengis á
svæðinu er bönnuð að því leyti
að drukkið fólk er fjarlægt ef það
veldur ónæði. Alltaf er eitthvað
um að ferðafólk sæki skemmti-
staði bæjarins um helgar, fyrst og
fremst lslendingar, og komi þá
ölvaðir til baka á tjaldsvæðin. Ef
hávaði eða annað ónæði verður
af slíku eru viðkomandi beðnir
um að yfirgefa svæðið, en að
sögn Karenar Malmquist eru
þetta sem betur fer undantekn-
ingartilfelli. Margt ferðafólk
þakkar fyrir sig þegar það fer og
talar um hversu rólegt og gott
hafi verið að gista á tjaldsvæðum
Akureyrar. EHB
Umferðaróhapp
við Dettifoss
- 18 flýttu sér of'mikið
Ökumenn 18 bifreiða voru
teknir fyrir of hraðan akstur í
Þingeyjarsýslu og á Húsavík
um helgina. Mjög mikil um-
ferð var í sýslunni eða „eins og
rúnturinn væri kominn út á
þjóðvegina,“ sagði Iögreglu-
maður í samtali við Dag.
Þessi mikla umferð gekk
óhappalaust fyrir sig nema hvað
eitt umferðaróhapp varð á Detti-
fossvegi. Þar rákust saman tveir
bílar erlendra ferðamanna, engin
meiðsli urðu á fólki og litlar
skemmdir á bílunum.
Rólegt var í sýslunni þrátt fyrir
gífurlegan ferðamannastraum og
dansleikir sem haldnir voru á
Þórshöfn og Raufarhöfn fóru
ntjög vel fram, að sögn lögreglu.
Sömu sögu var að heyra af
Austurlandinu. „Hér lágu menn í
sól og nutu lífsins,“ sagði lög-
reglumaður á Egilsstöðum. Mik-
ill ferðamannastraumur var fyrir
austan og sagðist lögreglan aldrei
hafa séð eins mörg tjöld á Egils-
stöðum, þar hefði eiginlega verið
barist um tjaldstæði. IM
Landnemar Islands urðu að
búa til margvísleg nýyrði.
Alla tíð síðan hafa Islend-
ingar smíðað ný orð um það
sem þeir vildu nefna. Þess
vegna er íslenska okkar