Dagur - 02.08.1989, Qupperneq 1
72. árgangur Akureyri, miðvikudagur 2. ágúst 1989 145. tölublað
Aiít •fyirir’
fkenrsurkst
errabodin
HAFNARSTRÆTI 92 602 AKUREYRI SlMI 96 26708 BOX 397
Engar ákvarðanir um
niðurskurð hjá bænum
- segir Sigurður Hlöðversson,
formaður bæjarráðs
„Eg tek fram að engar ákvarð-
anir hafa verið teknar um
niðurskurð á framkvæmdum
hjá bænum. Þessi mál eru öll í
skoðun hjá bæjarráði og ég
reikna með að bæjarstjórn
fjalli um þetta síðar í þessum
mánuði,“ sagði Sigurður
Hlöðversson, formaður bæjar-
ráðs Siglufjarðarbæjar í sam-
tali við Dag.
Erfið staða bæjarsjóðs um
þessar mundir gerir það -að verk-
um að menn íhuga að skera niður
framkvæmdir á vegum bæjarins.
Ljóst er að það getur reynst veru-
lega örðugt á miðju fjárhagsári
sökum þess að nú þegar hafa ver-
ið gerðir samningar við verktaka
um einstaka verkþætti.
Jarðvegsframkvæmdir við nýtt
600 fm barnaheimili á Bretatúni,
sem er á milli Hlíðarvegar og
Hvanneyrarbrautar, eru nú í full-
um gangi. Það verk hafa með
höndum þrír vörubílstjórar á
Siglufirði. Næsti áfangi bygging-
arinnar, steypa á. sökkium og
plötu, hefur verið boðinn út en
Sigurður segir að menn bíði
átekta með að gera samning við
verktaka á meðan bæjarstjórn
hafi ekki tekið ákvörðun um
niðurskurð á verklegum fram-
kvæmdum.
Sigurður segir að óvissa ríki
með aðrar byggingaframkvæmdir
á vegum Siglufjarðarbæjar,
bæjarstjórn muni skoða málin í
heild sinni. Samkvæmt fjárhags-
áætlun eiga 11,2 milljónir að
renna til byggingar íþróttahúss-
Heimtur úr haíbeit:
Ááttunda
hundrað fiskar
hjá Óslaxi
Að sögn Ármanns Þórðarson-
ar hjá Óslaxi í Ólafsfirði eru
komnir nálægt 730 hafbeitar-
laxar í stöðina. Nú er tæpur
mánuður liðinn frá því fyrstu
laxarnir skiluðu sér en líkt og
með árnar kemur fiskurinn í
göngum og því er afraksturinn
misjafn frá einum degi til
annars.
Mikið af þeim fiski sem kemur
í gildrur hefur verið í sjó um eins
árs skeið en stærri fiskurinn hefur
verið tvö ár í sjó og vegur hann
10-14 pund. Armann segir að
sleppingum hafi að mestu verið
hætt í sumar. Þeim fiski sem
heimtist úr hafbeit sé ýmist slátr-
að strax eða hann seldur lifandi
bæði í ár og vötn í Skagafirði og
inn fyrir Olafsfjarðarmúla. Þar
glími sportveiðimenn við hafbeit-
arfiskinn. Búast má við að fiskur
verði að ganga í gildrurnar í
Ólafsfirði fram í septembermán-
uð. JÓH
ins. Þar er nú verið að ganga frá
lýsingu samkvæmt verksamningi
og unnið að byggingu tengiálmu
milli íþróttahússins og Sundhall-
arinnar. Þá verður lítið annað
eftir en lagning parketgólfs í
salinn.
Hugsanleg ákvörðun bæjar-
stjórnar um að setja í bakkgírinn
í verklegum framkvæmdum ntun
ekki hafa áhrif á gang mála við
byggingu íbúða fyrir aldraða.
Um þær hafa verið gerðir samn-
ingar sem ekki verður hróflað
við. Bæjarsjóður kemur enda
ekki beint að byggingu íbúöanna
í ár. Gert er ráð fyrir að framlög
úr byggingarsjóði aldraðra og
húsnæðislán dekki kostnað við
þær á þessu ári. óþh
Fögur fljóð og einn piltur að auki vopnuð garðáhölduni í bæjarvinnunni á Húsavík.
Mynd: IM
Hamborgara- og samlokustríð vegna rokkhátíðar í Húnaveri:
Stjóm félagsheimilisins ásökuð um
að vinna gegn byggðasjónarmiðum
- „viljum ekki standa uppi matarlausir á hátíðinni“ segir formaðurinn
r Rokkhátíðarinn- „Það er kaldhæðnislegt í allri skuli sækja föng yfir lækinn þegar við það að athuga sei
Undirbúngur Rokkhátíðarinn
ar í Húnaveri ’89 ætlar ekki að
ganga hávaðalaust fyrir sig.
Stjórn félagsheimilisins Húna-
vers barst fyrir skömmu opið
bréf, undirritað af þremur
forsvarsmönnum fyrirtækisins
Húnfjörð hf á Blönduósi. í
bréfinu, sem var sent inn á 800
heimili í Austur-Húnavatns-
sýslu, er stjórn Húnavers harð-
lega átalin fyrir að kaupa sam-
lokur og tilbúna hamborgara
vegna hátíðarinnar frá brauð-
gerð í Reykjavík, í stað þess að
versla við innanhéraðsfyrir-
tæki. Bæjarráð Blönduóss tek-
ur í sama streng í bréfi dags.
27. júlí, og er rætt um að með
þessari ákvörðun séu stjórnar-
menn félagsheimilisins að
vinna gegn hagsmunum fyrir-
tækja í héraðinu og byggða-
sjónarmiðum.
Þetta „hamborgara- og sam-
lokustríð" hófst með því að Ósk-
ar Húnfjörð, framkvæmdastjóri,
undirritaði opna bréfið til stjórn-
ar Húnavers, ásamt Þorsteini G.
Húnfjörð, forstjóra, og Arnbirni
Arasyni, framleiðslustjóra. „Þeir
kaupa af okkur pylsubrauð, en
gáfu okkur ekki kost á að fram-
leiða tilbúnar samlokur og ham-
borgara,“ sagði Óskar. í bréfinu
kemur fram að líkast til seljist 15
til 30 þúsund samlokur og ham-
borgarar á rokkhátíðinni um
verslunarmannahelgina, miðað
við 5 til 10 þúsund manna
aðsókn. Fyrir utan brauðvörur
færu hálft til eitt tonn af nauta-
kjöti í haniborgarana, auk 200 til
400 kílóa af áleggi. Kjötvörurnar
yrðu keyptar af kjötvinnslu
Kaupfélags Húnvetninga.
„Það er kaldhæðnislegt í allri
umræðunni um landsbyggðarmál
og þörf fyrir aðstoð við uppbygg-
ingu atvinnutækifæra þar, og í
ljósi þeirrar staðreyndar að milli
20 og 30 manns eru atvinnulausir
á þessu atvinnusvæði, þá standi
aðilar hér heima fyrir þvf að
senda milli 1,5 óg 3 milljónir
króna til atvinnusköpunar í
Reykjavík," segir m.a. í bréfinu.
I bréfinu sem Bæjarráð
Blönduóss sendi stjórn Húnavers
segir m.a. „Það er átakanlegt
að íbúar í sveitum landsins
skuli sækja föng yfir lækinn þegar
þess er ekki nauðsyn, og veikja
þannig af ásettu ráð eigin fyrir-
tæki sem eiga undir högg að
sækja... Það er leitt að þeir sem
hávaðasamastir hafa verið í þess-
um efnum (þ.e. að berjast fyrir
hagsmunum dreifbýlis, innsk.
blaðamanns) skuli bregðast
skyldum sínum, svo sem dæmin
sanna, sbr. bréf Húnfjörðs hf,
sem dreift hefur verið.“
Sigurjón Guðmundsson á
Fossum í Svartárdal, formaður
stjórnar Húnavers, hefur margt
við það að athug'a sem fram kem-
ur í nefndum bréfum, en vill láta
svör bíða betri tíma. Þó beri að
athuga að stjórnin beri ákveðna
ábyrgð á því að samkomugestir
fái nægilegt framboð af nefndum
matföngum, en ákveðnar
efasentdir hafi ríkt um getu Hún-
fjörðs hf. í þeim efnum. „Það væri
það hrikalegasta sem fyrir okkur
gæti kontið að standa uppi matar-
laúsir hérna,“ sagði hann, og taldi
málið langt í frá vera eins einfalt
og forsvarsmenn Húnfjörð og
bæjarráðs vildu vera láta. EHB
Hlutaijársjóður samþykkir að gefa HÓ hf.
kost á 95 milljónum í hlutafé:
Bjartsýnn á að Hraðfiystihúsið
sé nú komið á beinu hrautina
- segir Gunnar Þór Magnússon
„Menn eru bjartsýnir á að
Hraöfrystihúsiö sé komið á
beinu brautina. Að mínu mati
er þó gallinn sá að ekki bólar
enn á að almennum rekstrar-
grundvelli sjávarútvegsins.
Það er ekki nóg að menn kom-
ist á beinu brautina og fari síð-
an aftur niður á við. Það þarf
að búa þannig um hnúta að
fyrirtækin geti fengið tekjur til
að greiða niður sínar skuldir,“
sagði Gunnar Þór Magnússon,
formaður stjórnar Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar hf., í tilefni
ákvörðunar stjórnar Hlutafjár-
sjóðs um að gefa HÖ hf. kost á
95 milljóna króna hlutafé.
Gunnar Þór segir að þessi upp-
hæð hafi í raun ekki komið
mönnum á óvart. Hún hafi verið
staðfesting á þeirri vinnu sem
sjóðurinn hafi haft forgöngu um
að undanförnu.
Mál Hraðfrystihússins er þar
með ekki í höfn því Atvinnu-
tryggingarsjóður mun væntan-
lega koma til skjalanna nú þegar
afgreiðsla Hlutafjársjóðs liggur
loks fyrir. Stjórn Atvinnutrygg-
ingarsjóðs mun að öllum líkind-
um koma saman til fundar í
næstu viku og hugsanlega verður
mál HÓ hf. tekið þar fyrir. Áður
þarf endanlega að ganga frá söfn-
un undirskrifta í Ölafsfirði fyrir
hlutafé í Hraðfrystihúsið. Fyrir
liggja munnleg loforð forsvars-
manna fyrirtækja og einstaklinga
en blekið þarf á pappíra til þess
að fullgilt geti talist. Gunnar Þór
segir að þessi vinna sé í gangi og
stefnt sé að því að ljúka henni á
næstu dögum því það sé heima-
mönnum í hag að frá málum
Hraðfrystihússins verði gengið
sem allra fyrst. óþh