Dagur - 02.08.1989, Qupperneq 3
Miðvikudagur 2. ágúst 1989 - DAGUR - 3
fréffir
Fjórar kaupleiguíbúðir afhentar nýlega á Árskógsströnd:
Dræmar undirtektir hjá Húsnæðissto&iun
þrátt fyrir uppgang í hreppnum
en
Árskógsstrendingar urðu með
þeini fyrstu til að aflienda
kaupleiguíbúðir samkvæmt
nýja húsnæðiskerfmu. Fyrir
skömmu voru aflientar fjórar
íbúðir, tvær á Árskógssandi og
tvær á Hauganesi. Margir voru
um hituna því 11 aðilar sóttu
um þessar fjórar íbúðir sem er
í samræini við þá eftirspurn
sem er eftir húsnæði á
Árskógsströnd. Hins vegar er
ekki útlit fyrir að auðvelt verði
að aðstoða það fólk sem í
hreppinn vill koma hvað hús-
næði varðar því við afgreiðslu
Húsnæðisstofnunar á dögun-
um kom engin kaupleiguíbúð
til handa Árskógsstrendingum.
Sveinn Jónsson, oddviti
Árskógsstrandarhrepps, segir að
- oddviti segir að hreppurinn þurfi 5 íbúðir í kaupleigukerfi á ári
hreppurinn komst ekki á blað í nýlegri úthlutun Húsnæðisstofnunar
á síðasta ári hafi fjölgun á íbúa-
skrá hreppsins orðið tvöföld á við
meðaltalsfólksfjölgun.
„Og í þcssu sambandi má láta
þess getið að það virðist ekki enn
vera talið byggilegt hér þar sem
að við úthlutun fáum við enga
kaupleiguíbúð. Það eru margir
sem bíða eftir að fá hér húsnæði,
bæði heimamenn og aðkomu-
menn. Við erum meðal tekju-
hæstu hreppa landsins, miðað við
fólksfjölda, erum með fólksfjölg-
un um 4,8% á síðasta ári, ekkert
atvinnuleysi en samt er ekki hægt
að úthluta okkur einni einustu
kaupleiguíbúð. Þetta verður til
þess að maður hugsar sem svo
hvort ekki sé ennþá hægt að
merkja að það sé bygggilegt á
Eyjafjarðarsvæðinu. Við sveit-
arstjórnarmenn erum ákaflega
Álagningaseðlar sendir út:
Húsmóðir á Akureyri skuldar
rúmar 3 miUjónir í skatt
- kerfið greinilega ekki alveg í lagi
Landsmenn hafa þá vonandi
allir fengið álagningarseðilinn
frá skattinum og geta því séð
hvort þeir eru í skuld eða eiga
Ragnheiður Sigurðardóttir með
álagningarseðil sinn en þar segir að
hún skuldi rúmar 3 milljónir í skatt.
Mynd: KL
inni en það þykir nú alltaf
skemmtilegra.
Ragnheiði Sigurgeirsdóttur á
Akureyri brá heldur betur í brún
þegar hún fékk sinn álagningar-
seðil. Á honum stendur, að hún
skuldi skattinum alls kr.
3.015.462 og eigi því að greiða
rúmlega 600.000 kr. um hver
mánaðamót, næstu fimm mán-
uði.
Ragnheiður var ekki alls kost-
ar sátt við þetta. Hún á fjögur
börn og hefur verið heimavinn-
andi húsmóðir síðastliðin átta ár.
Hér er því um augljós mistök að
ræða, sem vonandi verða leiðrétt
sem fyrst. Engu að síður verður
þetta til þess að Ragnheiður fær
ekki sínar barnabætur um þessi
mánaðamót eins og aðrir sem
eiga rétt á þeim. -KK
SYSLUM UC, bÁJARF AKUkEYKl
SKAll STjUfclNN í NOROURLaNDSUHD. EYSÍRa
Þinggjalda- og áiagningarseðill 1989
Allar t|arha*6lr aru tllgraindar i hoilum hronum
kADUHt H)UR SlOURDlÍRSDOIT1K UA11Stl-4bi9
loene,m* , dnember ,9M PÍStSttli
LlNHOLÍl 1A L 6Ui AKURLYR1 AKURtYRl 6CU0
Grelðslustaða hinn 1A.U7.19&9
Gjold utan staiqreiðslu tlwstoðvv ,48.’ tlwsieiví, «d" Ögreuda d,SlU„i«,» Syretrw^, umiOoU*,., 15.751 16.349
598
Gjóld i staðgreióslu áj*q og drtiurvem
"Í • Ul (j‘a» 7 2 U 3.016.72U
17.6U7UR 17.607CR 17.ÍU7CR
Gralóafuataóa alla, krónur 3.015.462
A árinu 1989 hala verið lögð á yður ettirlalin gjold
2.550.277 Verðo®,u' a ogreHldan E«jnarsKanu' 4*58.44 3 Ueynsirvggngaí «,V rektnii skv «id S,ys«,r>gging«giaW l'«.,ug«r .0 gr «K r«.«n,Ja |.» 36 gr
645.294 115.637 S9&
Tll innheimtu hjá sveitarsjöði vegna álagningar 1989
7ÓU.931
Stolnar til útreiknings
9.6>1.2S0- C
Húsnæðisbælur - Utsvar */i
B. ™. partonoalUailur Skaltahl v
husn spamaðar
18t.fc?9
SiomannaalsiaitU'
Ráðstölun skattafsláttar
Uppgjör staðgreiðslu
óhressir með svona afgreiðslu,"
segir Sveinn.
Sveinn segir að eigi að verða
hægt að útvega húsnæði því fólki
sem vilji flytjast í hreppinn þá
verði að koma til bygginga. Þessi
úthlutun setji hins vegar strik í
reikninginn. „Við stöndum því
frammi fyrir því að geta ekki
hjálpað því unga fólki sem hér
vill fá húsnæði," segir Sveinn.
JÓH
Enn eitt „ferðamannametið“:
Hríseyjarferjan flutti
ellefu þúsund í júlí
Alltaf bætist við metin þegar
ferðamannasumrinu 1989 er
lýst í tölum. í nýliðnum júlí-
mánuði voru fluttir fleiri far-
þegar með Hríseyjarferjunni
en í nokkrum mánuði áður eða
11.091 að tölu.
Tíuþúsundasti farþeginn í
mánuðinum var Margrét
Höskuldsdóttir frá Húsavík en
hún kom til eyjarinnar um hádeg-
isbil á laugardag. Margréti var
færður blómvöndur en auk þess
hlaut hún að launum ferð yfir
sundið, báðar leiðir. Mesti far-
þegafjöldi í einum mánuði fram
til þessa var 8.863 í júlímánuði
fyrir tveimur árum.
Það sem af er árinu hafa alls
28.500 manns tekið sér far með
Hríseyjarferjunni, Sævari, en á
Leiðrétting
í frétt í gær um danska eftirlits-
skipið Vædderen slæddist sú villa
að það kæmi til Akureyrar nk.
föstudag. Hið rétta er að skipið
kemur til bæjarins á morgun og
verður við bryggju til sunnudags-
ins 6. ágúst.
sama tíma í fyrra var fjöldinn
talsvert minni. Allt árið í fyrra
var fjöldinn um 42 þúsund. „Það
er engin spurning að heildarfjöld-
inn á árinu verður meiri nú en í
fyrra,“ sagði Guðjón Björnsson
sveitarstjóri í Hrísey í samtali við
Dag. Guðjón sagðist helst sjá
þær breytingar frá því í fyrra að
útlendingar væru meira áberandi
og auk þess væri farþegafjöldinn
jafnari alla daga vikunnar en
áður hefði verið. Veðrið hefur
hins vegar sín áhrif eins og á allt
sem viðkemur ferðamönnuni.
„Jú blessaður vertu. Þetta sveifl-
ast eins og loftvogin,“ sagði
Guðjón. ET
HáskóUnn á Akureyri
Líf undir leiðarstjömu
Haldin verður á Akureyri dagana 9.-12. ágúst þverfagleg
ráðstefna undir heitinu Líf undir leiðarstjörnu. Virkir þátt-
takendur eru frá íslandi, Kanada, Bandaríkjunum og
Skotlandi. Ráðstefnan verður haldin að Möðruvöllum,
húsi Menntaskólans á Akureyri. Ráðstefnan er öllum opin
án þátttökugjalds. Meðal þeirra viðfangsefna sem tekin
verða til umræðu eru heilbrigðisfræði, rekstrarfræði,
sjávarútvegsfræði, félagsfræði, stjórnmálafræði, mann-
fræði, bókmenntir og sagnfræði. Dagskrá ráðstefnunnar
liggur frammi á skrifstofu Háskólans. Fólk er hvatt til þess
að sækja fyrirlestrana.
Háskótinn á Afmreyri.
Álagningarseðill Ragnheiðar lítur þannig út.
Gallabuxur
Kakibuxur
Bolir
Peysur
Skyrtur
Stakkar
Húfur
Hattar
Sláðu f gegn
í fötum frá okkur