Dagur - 02.08.1989, Side 7
V - rf% , ■ .
vikudagur 2. ágúst 1989 - DAGUR
^v■V.V,i-•-Y.y,V.-,:'V. , ‘
-7
innæli
lalirepps
á Skagaströnd um síðustu helgi
Endað með kaffisamsæti
í Fellsborg
Á sunnudag fór fram helgistund í
nýrri kirkju þeirra Skagstrend-
inga og var það í fyrsta skiptið
sem messað var þar. Fjölmenni
var við þessa fyrstu messu.
Einnig var haldið útiskákmót á
sunnudeginum og þar sigraði Sig-
urgeir Arnar Ægisson með fjóra
vinninga af fimm mögulegum. Á
Syðra-Hóli í Vindhælishreppi var
afhjúpaður minnisvarði um
Magnús Björnsson, fræðimann,
sem hefði orðið 100 ára 30. júlí
sl. Að lokinni afhjúpun var kaffi-
samsæti í Fellsborg sem hrepp-
arnir þrír og ættmenni Magnúsar
stóðu fyrir. Með kaffisamsætinu
lauk hátíðarhöldunum um helg-
ina og þóttu þau takast mjög vel,
þó einhverjir hafi viljað betra
veður. En það er nú eins og það
er!
Útsendingar heyrðust allt
til Blönduóss
Ekki verður klárað að segja frá
afmælishaldinu á Skagaströnd,
án þess að minnast á RÁS-SKA
FM 97,7, útvarpsstöðina sem
starfrækt var yfir helgina. Par var
spiluð tónlist, fylgst með afmælis-
hátíðinni í beinum, jafnt sem
óbeinum útsendingum, og rætt
við hina og þessa valinkunna
menn. Útvarpsstjóri var Magnús
Jónsson oddviti og að hans sögn
tókst útvarpið mjög vel og fékk
góðar viðtökur heimamanna.
Útsendingar heyrðust allt niður á
Blönduós, þannig að grannarnir
gátu fylgst með hvað var að ger-
ast á Skagaströnd. -bjb
Krakkar úr leikskólanum sungu nokkur lög af mikilli innlifun á Hólatúni og fengu klapp fyrir. Þarna er fólk fram-
tíðarinnar á Skagaströnd, samankomið á hálfrar aldar afmælinu.
Það var hátíðarblær yfir öllu og lögreglan fór fyrir skrúðgöngunni.
Þessi kvartett spilaði og söng nokkra slagara og hann skipa Viggó Magnús-
son, Þorvaldur Skaftason, Fannar Viggósson og Kristján Blöndal.
Grillað var ofan í afmælisgesti á Hólatúninu og gat hver fengið sér af kjöti
og pylsum eins og hann gat í sig látið.
Hljómsveitin Skriðjöklar frá Akureyri kom við í lok grillveislunnar á Hóla-
túni og gæddi sér á restinni af kjötinu, það litla sem afgangs var. Hér eru þeir
ásamt kokknum, Steindóri í Marska, og líkar matseldin greinilega mjög vel.
„Fengum dæmigert
hátíðarveður“
- segir Halldór Hermannsson, „framkvæmdastjóri“
hátíðarhaldanna á Skagaströnd
„Að mínu mati tókst fram-
kvæmd hátíðarhaldanna vel,
miðað við efni og aðstæður.
Heimamenn sáu nær alfarið
um öll atriði og ég get ekki
verið annað en sáttur við
útkomuna. Við fengum
dæmigert hátíðarveður,"
sagði Halldór Hermannsson,
útibústjóri í kaupfélaginu, í
samtali við blaðamann Dags,
en hann sá um undirbúning
og framkvæmd 50 ára afmæl-
ishátíðar Höfðahrepps. Það
tókst að ná tali af Halldóri á
hátíðinni á Hólatúni, en hann
hafði í nógu að snúast.
Halldór var nú ekki aleinn í
undirbúningi og framkvæmd.
Fjölmörg félagasamtök lögðu
hönd á plóginn. Má þar nefna
Ungmennafélagið Fram, Kven-
félagið . Einingu, Leikklúbb
Skagastrandar, Slysavarnarfé-
íagið, Björgunarsveitina, Hesta-
mannafélagið Snarfara og
Briddsfélag Skagastrandar.
Halldór sagði að fleiri utan
þessara félaga hafi hjálpað til,
enda hafi þurft margar hraðar
hendur. „Þetta hefði aldrei tck-
ist nema með þátttöku fyrir-
tækja á staðnum. Kaupfélagið
og Skagstrendingur styrktu
þetta ntyndarlega svo ég nefni
einhver nöfn,“ sagði Halldór.
Halldór sagði að þessi helgi
hefði verið hápunktur afmælis-
haldsins í tilefni hálfrar aldar
afmælisins, en síðar í þessum
mánuði stendur til að hafa
dagskrá af listrænum toga. „Það
verður nánar auglýst síðar,"
sagði Halldór að lokum og hélt
för sinni áfram. -bjb
„Sáttur við útkomuna,“ segir Halldór Herinannsson um hátíðarhöldin.
Myndir: -bjb