Dagur - 02.08.1989, Page 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 2. ágúst 1989
íþróttir
ÁRLANP
f/ myndasögur dogs 1
Pabbi, ég var að velta fyrir mér.. . hvað
myndi gerast ef allir i landinu sturtuðu niður úr
klósettunum sínum á nákvæmlega sama tíma?
ANPRÉS ÖND
HERSIR
BJARGVÆTTIRNIR
# Skatturinn
Árlegir skattasneplar hafa
nú skriöið inn um bréfalúg-
ur út um allt land. Snepillinn'
er víst eitthvað öðruvísi en
undanfarin ár og ku það
helgast af því að á síðasta
ári var í fyrsta skipti dreginn
staðgreiðsluskattur af launa-
fólki. Hvað um það. Skatta-
miðinn ber sem fyrr með sér
annaðhvort jákvæðar eða
neikvæðar fréttir fyrir Jóna
og Gunnur þessa lands.
Sumir fá jafnvirði margra
bjórkassa til baka frá ríkinu
á meðan aðrir þurfa að
punga út óguðlega háum
fjárhæðum til Ólafs
Ragnars. Tíðindamaður
S&S fékk skattsnepilinn í
hendur á dögunum og viti
menn; hann taldist skulda 7
krónur í botnlausan rikis-
kassann. Vinurinn kvaðst
staðráðinn í því að gera sér
ferð á Skattstofuna og
greiða þessar krónur eins
og skilvísum góðborgara
sæmdi! Annar kunningi
S&S fékk álíka rukkun frá
skattinum vegna vangold-
ins staðgreiðsluskatts. Sá
er líka þekktur fyrir að vera
skilvís. Hann fór þó heldur
óvenjulega leið í að greiða
skuldina. Tók hann tóma
kók-flösku, bjó um hana í
skókassa, pakkaði „jóla-
gjöfinni" inn í snotran pappír
og sendi skattinum. Með-
fylgjandi orðsending var
eitthvað á þessa leið: Sendi
hér með greiðslu fyrir skuld
minni. Þið kaupið eitthvað
gott fyrir afganginn!
# Fyrst grín -
nú alvara
Eins og öllum fótbolta-bull-
um ætti að vera kunnugt um
nálgast hápunktur „vertíð-
arinnar“. Allt er á útopnu í
fyrstu deild og er þar engan
veginn sýnt hver standa
mun uppi sem sigurvegari í
haust. Línur eru þó öllu
skýrari í neðri deildunum.
Þannig er næsta víst að
Siglfirðingar koma ferskir
upp í aðra deiid á nýjan leik.
Hugsanlegt er að lið frá
Akureyri taki stöðu þeirra í
þriðju deildinni. Lið Tennis-
og badmintonfélags Akur-
eyrar er nú með góða for-
ystu í D-riðli fjórðu deildar
og virðist fátt geta stoppað
það úr þessu. Stóra hindr-
unin fyrir sæti í þriðju deild
er leikur við efsta liðið í
Austurlands-riðli. Leikið
verður heima og heiman og
verður mótherjinn líklega
Leiknir eða Höttur. Óneitan-
lega er það spaugilegt að lið
TBA skuli nú vera í þessari
stöðu. Á vordögum lögðu
leikmenn þess upp með það
' að markmiði að hafa gaman
af boltanum, halda sér í
formi, eins og það heitir á
máli íþrótta. Nú standa
TBA-strákarnir frammi fyrir
alvöru keppni. Heimildir
S&S herma að þeir hafi nú
lagt grínið og fína formið á
hilluna og ætli sér aö klára
dæmið, þ.e. vinna sér sæti í
þriðju deild.
\
Þóra Einarsdóttir UMSE íslandsmeistari í hástökki. Keppir með íslcnska
landsliðinu í Dyflinni. Mynd: jóh
Frjálsar íþróttir:
Norðlensku stúlkurnar
í landsliðinu
- Ágústa, Þóra og Guðbjörg
Eftir að Meistaramótinu í
frjálsum íþróttum lauk um
helgina var íslenska landsliðið
sem keppa á í Evrópubikar-
keppninni á írlandi um næstu
helgi valið. Þrjár norðlenskar
stúlkur, Þóra Einarsdóttir
UMSE, Ágústa Pálsdóttir
HSÞ og Guðbjörg Gylfadóttir
USAH, stóðu sig það vel á
Meistaramótinu að þær voru
valdar í landsliðið.
Þóra sigraði örugglega í
hástökkinu með 1,75 og er nú
tvímælalaust besti kvenhástökkv-
arinn á landinu í dag, fyrir utan
Þórdísi Gísladóttur sem ekki
keppir núna.
Ágústa Pálsdóttir HSÞ var val-
in til að keppa í 4x400 m boð-
hlaupi. Hún var valin frjáls-
íþróttamaður HSÞ í fyrra og á
svo sannarlega framtíðina fyrir
sér.
Guðbjörg Gylfadóttir frá
Skagaströnd er fremsti kven-
kastari íslendinga í dag. Hún
sigraði í kúluvarpi á Meistara-
mótinu og varpaði 13,68 metra.
Hún mun því keppa í kúluvarpi í
Dyflinni.
Sigfús hæstur
- í 3. deildinni - Viðar og Sigurpáll
berjast um titilinn í 4. deild
Baráttan um markakóngstitil-
inn í öllum deildum knatt-
spyrnunnar er nú mjög hörð og
standa Norðlendingar ágæt-
lega í neðri deildunum. Sigur-
páll Árni Aðaisteinsson TBA
og Viðar Sigurjónsson HSÞ-b
eru markahæstu menn yfir
landið og Sigfús Kárason Dal-
vík er markahæstur í 3. deild-
inni.
Ar.tony Karl Gregory KA er
markahæstur norðanmanna í 1.
deild með 5 mörk. Hörður Beno-
nýsson Völsungi hefur skorað 6
mörk og er sókndjarfasti norðan-
maðurinn í 2. deild. Sigfús Kára-
son er efstur í 3. deildinni með 13
mörk en Hafþór Kolbeinsson er
ekki langt undan með 11 mörk.
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
TBA og Viðar Sigurjónsson
HSÞ-b skoruðu báðir 3 mörk um
helgina og eru markahæstu menn
yfir allt landið. En lítum á efstu
menn í hverri deild:
1. deild: Mörk
Kjartan Einarsson ÍBK ......... 8
Pétur Pétursson KR ............ 7
Guðmundur Steinsson Fram .... 7
Hörður Magnússon FH .......... 7
Antor.y Karl Gregory KA ....... 5
Björn Rafnsson KR ............. 5
2. deild:
Tómas I. Tómasson ÍBV ......... 8
Árni Sveinsson Stjörnunni ..... 7
Jón Þ. Jónsson UBK .............. 7
Hörður Benonýss. Völsungi ....... 6
3. deild:
Sigfús Kárason Dalvík .......... 13
Sigurður Hallvarðs. Þrótti R. ... 13
Hafþór Kolbeinsson KS .......... 11
4. dcild:
Sigurpáll Á. Aðalsteinss. TBA . 16
Viðar Sigurjónsson HSÞ-b ....... 16
Valdimar Sigurðsson Skallagr. . 15
Rafn Rafnsson Snæfelli ......... 11
Jóhann Sigurðsson Hetti ........ 11
Dalvíkingurinn Sigfús Kárason hef-
ur skorað 11 inörk í þremur sídustu
leikjum og er nú markahæstur í 3.
deild meö 13 mörk.