Dagur - 02.08.1989, Side 11
......•• • ', t ■-> i i'v wy - - •' -
Miðvikudagur 2. ágúst 1989 - DAGUR - 11
Tvítekin vítaspyrna frá Júlíusi
Tryggvasyni rétt fyrir leikslok
tryggði Þór iafntefli í leik gegn
KA í 1. deildinni í knatt-
spyrnu. Þórsarar voru mun
ákveðnari í fyrri hálfleik en
KA-menn hresstust í síðari
hálfleik og jafntefli því sann-
gjörn úrslit.
Það var ekki að sjá í fyrri hálf-
leik að annað liðið væri í botn-
baráttu og hitt í toppbaráttu.
Botnliðið var mun frískara og
strax á 1. mínútu voru lukkudí-
sirnar með KA-liðinu því auka-
spyrna Júlíusar Tryggvasonar
small í stönginni hjá Hauki mark-
verði.
Þórsarar héldu áfram upptekn-
um hætti og gerðu harða hríð að
marki KA-manna. Tanevski var
frískur í hálfleiknum og áttu
varnarmenn KA í mestu erfið-
leikum að hemja hann á kantin-
um. Hins vegar hirtu bræðurnir
Erlingur og Jón flesta bolta sem
komu inn í teiginn og vantaði
örlítið meiri brodd í sóknarleik-
inn hjá Þór til þess að ógna þeim
að ráði.
Eftir að mesti móðurinn rann
af Þór fóru KA-menn að koma
meira inn í leikinn én án þess þó
að skapa sér nein veruleg mark-
tækifæri.
unni og Nói Björnsson hélt Þor-
valdi að mestu leyti niðri.
KA-liðið olli vonbrigðum í
þessum leik. Þcir virkuðu mjög
taugaóstyrkir og náðu ekki að
spila boltanum af neinu viti og
fóru þvf í háloftaspyrnur. Greini-
legt var að þeir söknuðu Jóns
Grétars sem var veikur og
Antony Karl var ekki svipur hjá
sjón án félaga síns.
Liö KA: Haukur Bragason, Erlingur Kristjáns-
son, Ormarr Örlygsson, Gauti Laxdal, Jón Krist
jánsson, Arnar Bjarnason, Árni Hermannsson,
Halldór Halldórsson, Bjarni Jónsson, Þorvaldur
Örlygsson, Antony Karl Grcgory (Stcingrímur
Birgisson 55. m.).
Liö Þórs: Baldvin Guömundsson, Luca Kostic,
Nói Björnsson, Valdimar Pálsson, (Sævar Árna-
son 75.m.). JúlíusTryggvason, Bojan Tancvski,
Árni Þór Árnason, Olafur Þorbergsson, Hlynur
Birgisson, Sveinn Pálsson, Þorstcinn JónsSon.
Erlendur Hermannsson mun leika
með KA næsta vetur.
Handknattleikur:
Erlendur
með KA
- næsta vetur
Erlendur Hermannsson hand-
knattleiksmaður og fyrrver-
andi þjálfari Þórsara er geng-
inn í raðir KA-manna. Hann
þjálfaði og lék með færeyska
liðinu Kyndli í fyrra og gerði
þá að meisturum en hefur nú
ákveðið að taka þátt í 1. deild-
arslagnum með KA.
Reyndar er nú Erlendur ekki
ókunnur í herbúðum KA-manna
því hann lék hátt í 100 leiki fyrir
KA fyrir nokkrunt árum. Hann á
einnig um 200 leiki með Víking-
um í 1. deildinni og þar að auki
lék hann 3 landsleiki fyrir Islands
hönd. Erlendur ætti því að
styrkja hópinn töluvert hjá KA.
Golf á Blönduósi:
Steinar setti vallarmet
- á Opna T.M. mótinu á Blönduósvelli
Golfklúbburinn Ós á Blöndu-
ósi stóð fyrir opnu móti á
Vatnahverfisvelli sl. laugar-
dag, svokölluðu T.M. móti en
það er Tryggingamiðstöðin
sem styrkir mótið. Alls mættu
44 kylfingar til leiks, allt frá
Reykjavík til Húsavíkur. Fjöl-
mennastir voru kylfingar frá
Króknum, eða 18 talsins og
voru þeir einnig sigursælir á
mótinu. Ágætis árangur náðist
og setti Steinar Skarphéðins-
son GSS opinbert vallarmet,
fór 9 holur á 41 höggi. Aðeins
í æfingahring hafði náðst betri
árangur en ekki í móti.
Þokkalegasta veður var á
mótsdaginn. Keppt var í karla-,
kvenna- og unglingaflokki.
Keppni var jöfn og hörð, m.a.
þurfti bráðabana um 3. sætið í
karlaflokki. Þar kepptu Króksar-
arnir Magnús Rögnvaldsson og
Guðmundur Sverrisson og hafði
Magnús betur. Feðgarnir frá
Húsavík, Bjarni Sveinsson og
Sveinn sonur hans, voru sigursæl-
ir. Bjarni vann karlaflokkinn
með forgjöf og Sveinn vann ungl-
ingaflokkinn með miklum glæsi-
brag, bæði með og án forgjafar.
Lítum nánar á úrslit mótsins:
Unglingar með forgjöf högg
1. Sveinn Bjarnason GH 64
2. Pálmi Vilhjálmsson GÓs 72
3. Gunnar A. Gunnarsson GSS 73
Unglingar án forgjafar högg
1. Sveinn Bjarnason GH 89
2. Gunnar A. Gunnarsson GSS 92
3. Pálmi Vilhjálmsson GÓs 100
Kvennaflokkur högg með án
1. Elín Hannesdóttir GL 87 115
2. Bjarnhildur Sigurðard. GSk 92 120
3. Valgerður Sverrisd. GSS 107 135
Karlar með forgjöf högg
1. Bjarni Sveinsson GH 74
2. Jón Jóhannsson GÓs 75
3. Gunnar Gunnarsson GR 77
Karlar án forgjafar högg
1. Steinar Skarphéðinsson GSS 90
2. Haraldur Friðriksson GSS 91
slitum Bikarkeppni kvenna a
KA-vellinum í kvöld kl. 20.00.
Það lið sem sigrar mætir
Akurnesingum í úrslitaleik
föstudaginn 18. ágúst.
KA er með sterkara lið á
3. Magnús Rögnvaldsson GSS 92
4. Guðmundur Sverrisson GSS 92
Auk glæsilegra aðalverðlauna
gaf Tryggingamiðstöðin auka-
verðlaun fyrir að fara næst holu í
fyrsta höggi. Á 2. braut var Sig-
urgeir Angantýsson GSS næst
holu og á 6. braut var Gunnar A.
Gunnarsson GSS næstur því að
setja niður.
Það var samdóma álit kepp-
enda hvað Vatnahverfisvöllur
væri orðinn góður, miðað við
aðeins 4ra ára aldur. í sumar er í
fyrsta sinn verið að spila á 9
holum, en í vor var bætt við þeim
þrem brautum sem á vantaði.
pappírunum en Þórsarar fyrir
þessa viðureign. Hins vegar má
ekki gleyma því að oft verða
óvænt úrslit í bikarkeppni og
Þórsstelpurnar hafa verið á upp-
leið að undanförnu. Það má því
búast við spennandi keppni í
kvöld.
Undanúrslit í Bikarkeppni kvenna:
Þór mætir KA
- á KA-velli í kvöld
Þór og KA keppa í 4-Iiða úr-
Þrátt fyrir góöa tilburði hjá Baldvini í marki Þórs tókst honum ekki að verja skalla Jóns Kristjánssonar. Mynd: kl
Knattspyrna 4. deild:
Jónas varði
vítaspymuna
- frá Alfreð
Jónas Sigursteinsscn mark-
vörður SM vaiði vítaspyrnu
Alfreðs Gíslasonar í leik TBA
og SM á laugardaginn. í blað-
inu í gær var sagt að Alfreð
hefði brennt af spyrnunni og er
Jónas beöinn velvirðingar á
þessari ónákvæmni enda varði
hann mjög vel í leiknum.
Það fer að styttast í úrslita-
keppnina í 4. deildinni en hún fer
þannig fram að efsta liðið í
Norðurlandsriðli keppir við efsta
liðið í Austfjarðariðli, Hött á
Egilsstöðum eða Leikni á Fá-
skrúðsfirði, bæði heima og að
heiman. Sigurvegari í þeirri
viðureign fer upp í 3. deild og
keppir við það lið sem sigrar í
keppni Hauka frá Hafnarfirði,
Skotfélags Reykjavíkur og
Ármanns eða Skallagrfms um
meistaratitilinn í 4. deild.
Þess má svo geta að einn leikur
veröur í 4. deildinni í kvöld. Jón-
as og félagar í SM halda á Laugar
og keppa við Eflingu kl. 20.00.
Þetta er frestaður leikur og má
búast við hörkukeppni því bæði
lið vilja forða sér af botnsvæðinu.
Sem sagt, SM og Efling á Laug-
um kl. 20.00.
KA kom mun frískara til leiks í
síðari hálfleik og fljótlega kom
Jón Kristjánsson liðinu yfir. All-
an lieiður af því marki átti Orm-
arr Örlygsson. Hann lék upp
kantinn og átti gullfallega fyrir-
gjöf sem Jón skallaði af miklum
krafti í jörðina og yfir Baldvin í
markinu, 1:0 fyrir KA.
Heldur dró úr Þórsurum við
markið en KA tókst ekki að nýta
sér smá uppgjöf sem virtist grípa
þá rauðklæddu. Þórsarar komu
þvf fljótlega aftur inn í leikinn og
sóttu að KA-mönnum. Þorsteinn
Jónsson átti þrumuskot að marki,
Haukur hélt ekki knettinum og
varnarmenn KA björguðu skoti
Júlíusar á síðustu stundu.
Á hinum vallarhelmingnum
komst Arnar Bjarnason upp að
endamörkum og föst fyrirgjöf
hans fór rétt fram hjá sóknar-
mönnum KA.
Á lokamínútunum var síðan
dæmd vítaspyrna á KA og fannst
mörgum það strangur dómur.
Boltinn fór í hendi Steingríms
Birgissonar og góður dómari
leiksins, Gylfi Orrason, var ekki í
nokkrum vafa og benti á víta-
punktinn. Júlíus tók vítaspyrn-
una en skaut langt fram hjá.
Dómarinn var hins vegar ekki
búinn að gefa merki um að taka
spyrnuna og lét því endurtaka
spyrnuna. Þá brást Júlíusi ekki
bogalistin og skoraði hann af
öryggi í hornið.
Þórsliðið barðist vel í þessum
leik og verðskuldaði að ná jafn-
tefli. Kostic var að vanda klettur-
inn í vörninni en aðrir leikmenn
liðsins stóðu sig einni vel og var
allt annað að sjá til þeirra en í
leiknum gegn Fylki. Ölafur Þor-
bergsson var óþreytandi á miðj-
Staöan
1. deild
FH 12 6-4-2 17:11 22
Fram 12 7-1-4 17:11 22
Valur 12 6-3-3 14: 7 21
KA 12 5-5-2 18:12 20
KR 12 5-4-3 19:16 19
ÍA 11 5-1-5 12:14 16
Þór 12 2-5-5 12:18 11
Víkingur 11 2-4-5 16:16 10
ÍBK 12 2-4-6 11:19 10
Fylkir 12 3-1-8 11:24 10
Önnur úrslit
1. deild
Fylkir-KR 1:2
ÍBK-Fram 0:1
fslandsmótið í knattspyrnu 1. deild:
KA missti af toppsætinu
- því liðinu tókst ekki að sigra Þór frekar en endranær