Dagur - 16.09.1989, Side 2
2 - DAGUR - Laugardagur 16. september 1989
Tilgangurinn með þessu jarðlífi
Hallfreður
Örgumlelðason:
Góðan daginn, ágætu lesend-
ur. Eftir fyrirsögninni að dæma
mætti halda að ég væri sokkinn
ofan í heimspekilegar vanga-
veltur en það er nú varla rétta
orðið. Á hinn bóginn kemst ég
ekki hjá því að hugsa dálítið
um lífið og tilveruna þegar ég
ligg aðgerðarlaus heima í sófa
og bíð eftir því að konan verði
búin að vaska upp, þrífa
ísskápinn, strauja fötin, setja í
þvottavélina, koma barninu í
háttinn, fara í sturtu og mála
sig svo hún geti fært mér kaffi
og sígarettu skammlaust. Þessi
bið er oft löng og tekur á taug-
arnar og raunar er stórmerki-
legt hve konur eru oft lengi að
því sem lítið er. Þegar hún
kemur loks með kaffið er ég
orðinn úrillur og uppstökkur
og þá þykist hún vera þreytt og
pirruð, þannig að draumurinn
um notalega kvöldstund er fyr-
ir bí. Eftir að við erum bæði
orðin þegjandi hás og gamli
maðurinn á hæðinni fyrir ofan
er búinn að stappa átján sinn-
um í gólfið er mál að linni. Þá
gefst mér tækifæri til að hugsa
á nýjan leik og taka upp þráð-
inn frá þeirri stundu er ég beið
eftir kaffinu.
í vikunni var ég næstum
búinn að leysa vanda hús-
byggjenda og íbúðarkaupenda
í eitt skipti fyrir öll í huganum.
Þannig er nefnilega mál með
vexti að við erum að gera heið-
arlega tilraun til að kaupa íbúð
eftir áratugahark á leigumark-
aðinum. Þetta er flókið dæmi
því lág laun konunnar hrökkva
engan veginn fyrir skuldum,
hvað þá mat. Áf þeim sökum
hef ég orðið að vinna dálítið
úti og líkar það bölvanlega.
Þetta er víst kallað brauðstrit.
En þar sem ég lá í sófanum og
reykti þá datt mér snjallræði í
hug. Ég fann leið til að bjarga
okkur út úr lánafrumskógin-
um, leið sem gæti orðið íslend-
ingum öllum til hagsbóta. Já,
það borgaði sig svo sannarlega
að gefa sér tíma til að hugsa.
Ég fengi ábyggilega friðarverð-
laun Nóbels eða bjartsýn-
isverðlaun Bröstes fyrir þessa
snilldarhugmynd. Hugsið ykk-
ur bara, ég gæti komið í veg
fyrir ævinlangt brauðstrit lág-
launafólks, heilsuleysi;
sjálfsvíg, hjónaskilnaði, óham-
ingju og landflótta. Ég hafði
fundið tilganginn með þessu
jarðlífi. Forsetaembættið
bankaði á öxl mér. Fálkaorð-
urnar biðu í kippum. Ég varð
að skrifa þetta niður.
„Ég skal bara segja þér eitt,
Hallfreður, héðan í frá getur
þú náð í þitt kaffi sjálfur.“ Ég
hrökk í kút og sá að konan
stóð yfir mér með hendur á
mjöðm, ómáluð og úfin.
Barnið var enn á fótum og
óstraujaður þvotturinn lá
dreifður um alla stofuna.
„En elskan mín góða, þú
hefur gleymt að mála þig,“
stundi ég upp, alveg forviða.
„Þú ert vonlaus ónytjung-
ur,“ hrein konan. „Ég strita úti
allan daginn og hér heima öll
kvöld meðan þú liggur og
dormar. Nú er ég hætt að
vinna fyrir þig skítverkin. Þú
getur sjálfur brotið saman
brækur þínar og nú skaltu
gjöra svo vel að fá þér
almennilegt starf svo við get-
um borgað . . .“ Rödd hennar
fjaraði út í hásu gargi.
„Mamma, ekki vera svona
vond við pabba,“ grenjaði
krakkinn.
„Já, en elskan,“ sífraði ég
sveittur. „Ég er búinn að finna
lausn á öllum vandamálum
okkar. Eftir þrotlausan þanka-
gang veit ég loks hvernig við
getum bjargað okkur. Ég ætla
að bjarga þessari skuldugu
þjóð, uppræta óhamingju og
böl.“
Konan starði á mig eins og
ég væri ekki með öllum mjalla;
þerraði síðan augun og hreytti
út úr sér:
,,Lát heyra!“
Ég kyngdi. Það hringsnerist
allt fyrir augum mér. Þögn.
Konan horfði á mig óþolinmóð
á svip. Síðan glotti hún hroða-
lega.
„Sjáðu til,“ byrjaði ég
óstyrkur. „í fyrsta lagi . . .“
Ég greip um vísifingurinn. „í
fyrsta lagi verðum . . .“ Hvað
var að gerast? Ég fann ekki
réttu orðin. Hugurinn var
tómur. Snilldarlausnirnar
höfðu fokið út úr heilabúinu
þegar konan truflaði mig. Æ,
hvaða ráð voru þetta? Var ég
að hugsa um að selja öll ríkis-
fyrirtæki og skipta ágóðanum
milli launþega og láta þá síðan
vinna í álverum um land allt?
Eða að selja Bandaríkjamönn-
um ísland fyrir ógnarfé og
flytja alla íslendinga í nokkur
háhýsi á Manhattan? Nei, það
var eitthvað annað sem mér
hafði dottið í hug. Konan
blístraði en mér leið ægilega.
„Þetta er alveg að koma,“
tuldraði ég afsakandi. „Ég er
bara ekki alveg í jafnvægi.
Þú . . .“
„Ha, ha, ha, ha.“ Skerandi
hlátur konunnar þaggaði niður
í mér. „Þú ert ekki í jafnvægi!
Það voru svei mér kyndug tíð-
indi. Nei, góði minn. Ég er far-
in að kannast við þessar töfra-
lausnir þínar. Þær eru svo
flóknar að þú skilur þær ekki
sjálfur enda gleymir þú þeim
jafnóðum. Hlífðu mér við bull-
inu í þér. Málið er ofur ein-
falt.“
„Nú? Ert þú nú farin að
hugsa?“ Ég reyndi að bíta frá
mér. „Þú þykist kannski hafa
fundið lausn á fjárhagsvanda
þjóðarinnar, ha?“ Hæðnin vall
út um munnvikin.
„Ekki þjóðarinnar, enda
treysti ég Denna fyrir þeim
vanda. En ég veit hvernig við
getum fleytt okkur í gegnum
þetta fen. Málið er einfaldlega
það að þú þarft að fá þér fasta
vinnu, þokkalega launað starf,
og hætta um leið að eyða pen-
ingum í vitleysu. Punktur og
basta.“
Huh! Ósköp eru þær ein-
faldar, þessar konur.
Hallfreður sendir konunni tóninn, enda sakar hún hann um iðjuleysi þegar hann er önnum kafinn við að leysa vanda
; þjóðarinnar.
■/ matarkrókur j
Áreiðanlegar uppskriftir
Möndlusnittur
í matarkróknum í dag kennir
ýmissa grasa, eins og fyrri
daginn. Ég vil minna á að
hér er ekki um að rœða
handahófskennt val á upp-
skriftum úr erlendum blöð-
um eða eitthvað í þeim dúr,
því við birtum aðeins þraut-
reyndar og góðar uppskriftir
sem eiga erindi inn á öll
heimili. Pað er því tilvalið að
klippa þær út og geyma þær,
a.m.k. geri ég það. Þetta er
hinn boðlegasti matur, skal
ég segja ykkur.
Gylltar buffkökur
400 g nautahakk
2lh dl kaffirjómi
'/2 dl brauðrasp
salt, pipar
1-2 pressuð hvíllauksrif
1 msk. rifinn laukur
Sósa:
1 pk. Hollandaise-sósa
1-2 msk. tómatkraftur
Raspið er látið blotna í kaffirjóm-
anum í 10 mtnútur. Hakkið er hrært
með kryddi og iauk og vætt með
rjómanum. Búnar til buffkökur og
þær steiktar á pönnu. Sósan er búin
til á venjulegan hátt og tómatkrafti
bætt út í. Sósunni er síðan hellt yfir
buffkökurnar og einnig smjörsteikt-
um sveppum og rækjum til að gera
réttinn enn girnilegri.
Ostagratín
4 sneiðar formbrauð
3 dl rifinn ostur
6 dl mjólk
4egg
1 tsk. salt
2 tsk. basilikum
1 tsk. svartur pipar
Brauðsneiðarnar eru settar í smurt
eldfast mót. Ostinum stráð yfir.
Mjólkin er hituð, eggin þeytt ásamt
kryddi og þeim blandað í mjólkina.
Þessu er síðan hellt yfir brauðið og
ostinn í mótinu. Bakað í 30-40
mínútur. Gratínið er skínandi gott
með köldu kjöti eða pylsum.
2 egg
150 g snittur
150 g hveiti
'h tsk. lyftiduft
50 g saxað suðusúkkulaði
75 g brœtt smjörlíki
Glassúr:
50 g hakkaðar möndlur
50 g smjörlíki
50 g sykur
1 msk. hveiti
3 msk. rjómi
Þeytið saman egg og sykur. Þurrefn-
unum er síðan blandað saman við
og loks smjörlíkinu. Deigið er sett í
litla skúffu (u.þ.b. 20x25 cm) og
bakað í miðjum ofni í 10 mínútur.
Á meðan er allt sem fer í glassúrinn
hitað vel þangað til það samlagast.
Þá er því hellt yfir kökuna og hún
bökuð áfram þangað til gulbrúnn lit-
ur er kominn á hana. Takið kökuna
þá út úr ofninum og kælið. Þegar
hún er orðin köld er hún skorin í
hæfilega bita og þar með eru
möndlusnitturnar komnar. Hafið
þið nokkurn tíma bragðað möndlu-
snittur? Ef ekki þá væri sniðugt að
prófa það. Verði ykkur að góðu. SS
Þetta er einfalt og gott ostagratín og tilvalið að snæða það með köldu kjöti
eða pylsum.