Dagur - 27.10.1989, Qupperneq 3
fréttir
Föstudagur 27. október 1989 - DAGUR - 3
r-
Á þriðja þúsund eintök seld af Kántrí 5:
„Þetta er stórkostlegt"
- Hallbjörn Ómarsson líklega sendur í aðgerð til Bandaríkjanna
„Þetta er stórkostlegt. Viðtök-
ur landsmanna hafa farið fram
úr björtustu vonum og vil ég
hér með þakka þær,“ segir
kántrísöngvarinn landskunni
frá Skagaströnd, Hallbjörn
Hjartarson. Nýjasta plata
hans, Kántrí 5, hefur selst
grimmt og segir Hallbjörn að
búið sé að selja á þriðja þús-
und eintök af henni.
„Ég hafði fyrirfram reiknað
með að selja um tvö þúsund ein-
tök af plötunni. Sennilega eru
nokkuð margir þættir þess vald-
andi að Kántrí 5 hefur selst svo
vel. Þó tel ég víst að tilefni plöt-
unnar hafa haft sitt að segja,“
segir Hallbjörn. Þar vísar hann til
þess að hann hyggst nýta ágóða
af sölu Kántrí 5 til að senda dótt-
urson sinn, Hallbjörn Ómarsson,
erlendis í aðgerð til að freista
þess að hann endurheimti heyrn-
ina.
Hallbjörn segir líklegt að
heyrnaraðgerð sem gerð var á
eldri manni í Ástralíu nýverið
gangi ekki fyrir dótturson sinn.
„Hins vegar verður drengurinn
að öllum líkindum sendur í
aðgerð til Bandaríkjanna þegar
þar að kemur,“ segir Hallbjörn.
Hann tók fram að fjölmargir
hafi komið að máli við sig þar
sem hann hafi kynnt Kántrí 5 og
látið fé af hendi rakna til að
hjálpa Hallbirni Ómarssyni.
„Einnig hefur fólk sent pen-
inga til mín í pósti og ég vil nota
þetta tækifæri til að biðja fólk að
láta nöfn sín og heimilisföng
koma fram. Ég mun halda lista
yfir alla gefendur og afhenda
dóttursyni mínum hann með
gjafafé þegar þar að kemur,“
sagði Hallbjörn.
Hallbjörn segist hafa farið víða
um land og kynnt plötuna og
hann sé bókaður til 12. desem-
ber. „Af sölu plötunnar að dæma
hefur hlustendahópurinn
stækkað. Margir þeirra sem
keypt hafa Kántrí 5, en eiga ekki
fyrri plötur mínar, hafa hringt í
mig og beðið um hinar fjórar
plöturnar." óþh
, Átaksverkefni í atvinnumálum á Siglufirði:
Ahersla á markaðssetningu vara
og þjónustufyrirtækja
„Það er engin svartsýni í
mönnum. Ég held að menn
geri sér fulla grein fyrir því að
nú er að duga eða drepast.
Menn verða að taka atvinnu-
málin föstum tökum. Greini-
legt er að forsvarsmenn fyrir-
tækja eru fúsir til meira sam-
starfs en verið hefur,“ segir
Björn Valdimarsson, uinsjón-
armaður tveggja ára átaks-
verkefnis í atvinnumálum á
Siglufirði, sem hleypt var af
stokkunum seinnipart sumars.
í síðustu viku átti Björn fund
með bæjarstjórn Siglufjarðar og
um 30 stjórnendum fyrirtækja á
Siglufirði um stöðu atvinnumál-
anna í bænum og hvað framund-
an væri. Björn segir að greinilega
hafi komið fram á fundinum að
þrátt fyrir vissa erfiðleika í
atvinnulífinu á Siglufirði að
undanförnu væru menn bjartsýn-
ir á að með sameiginilegu átaki
væri hægt að snúa vörn í sókn.
„Menn vilja auka samvinnu sín
í milli. Nýlokið er sameiginlegu
verkefni hér á Siglufirði í skipa-
iðnaði. Við erum að skoða mögu-
leika á samvinnu milli Egilssíldar
og Þormóðs Ramma varðandi
pökkun á saltfiski í neytenda-
umbúðir. Þá er ennfremur verið
að athuga samvinnu milli Egils-
síldar og annars fyrirtækis á
staðnum um pökkun,“ sagði
Björn.
Þá sagði Björn að verið væri að
skoða ntöguleika á stofnun
þriggja lítilla þjónustufyrirtækja
á Siglufirði, en of snemmt væri að
spá fyrir um niðurstöður þeirrar
athugunar. „Þarna er um að ræða
þjónustu sem hefur vantað í
bæinn.
Björn sagðist leggja á það
mikla áherslu að ekki yrðu stofn-
uð fyrirtæki nema því aðeins að
aðstandendur þeirra gætu fjár-
magnað stofnkostnað að veru-
legu leyti. Óæskilegt væri að taka
dýrt lánsfé til uppbyggingar nýrra
fyrirtækja, reynslan sýndi að
mikill fjármagnskostnaður setti
fyrirtæki í stórum stíl á hausinn.
Otur EA-162, 58 tonna stál-
skip frá Dalvík, fer í breytingar
hjá Slippstöðinni á Akureyri
um miðjan nóvembermánuð.
Ætlunin er að skipta um stýris-
hús á skipinu og endurnýja
káetur.
Að sögn Gunnlaugs J. Gunn-
laugssonar hjá útgerð Oturs var
skipið lengt árið 1986 og þá
einnig breytt rafkerfi. Þá hafi
hins vegar ekki verið ráðist í
„Meginmarkmiðið með þessu
verkefni er að styrkja fyrirtæki
sem eru í rekstri á Siglufirði. Við
munum leggja á það ríka áherslu
að markaðssetja vöru og þjón-
ustu fyrirtækja á Siglufirði á
innanlandsmarkaði. Markaður-
inn er stöðugt að breytast og
fyrirtækin þurfa að sama skapi
stöðugt að minna á sig.“
Átaksverkefni í atvinnumálum
á Siglufirði hófst síðsumars og er
áætlað að það verði í tvö ár, Að
því standa Iðnþróunarfélag
Norðurlands vestra, Vinnuveit-
endafélag Siglufjarðar, fyrirtæki
á Siglufirði og þá hafa opinberir
aðilar gefið vilyrði fyrir fjárhags-
legri þátttöku í verkefninu. óþh
breytingu á stýrishúsi en nú sé
kominn tími til að endurnýja
enda stýrishúsið upprunalegt.
Oturinn var byggður árið 1970 á
Seyðisfirði.
Gunnlaugur segir að verkið
hafi verið boðið út og tilboði
Slippstöðvarinn tekið, ekki síst
þar sem hagstæðara væri að geta
fylgst með verkinu. Verklok eru
áætluð 20. janúar og fer Oturinn
þá á net. JÓH
Dalvík:
Oturiim í lagfæringar
Hallbjörn Hjartarson.
Skíðasvæði
Austfirðinga:
Vonandi
tilbúið
í vetur
Framkvæmdir við nýtt skíða-
svæði Austfirðinga á Fjarðar-
heiði ganga ágætlega. Bæjar-
stjórn Egilsstaða hefur átt í
viðræðum við íþróttafélagið á
staðnum um samstarf við upp-
setningu á skíðalyftu en fljót-
lega verður farið að grafa fyrir
undirstöðum.
Sigurður Símonarson bæjar-
stjóri á Egilsstöðum segir að lyft-
an sjálf sé væntanleg um mánaða-
mótin nóvember-desember svo
vonandi geti íbúar rennt sér á
skíðunt í brekkunum í vetur. Það
sé þó háði veðri og öðrum
aðstæðum þegar að uppsetningu
kemur. VG
Tíl sölu!
Eigum til sölu Skoda 120 L og 130 L, árgerðir ’85-’88.
Vel nreð farnir bílar.
★ Góöir greiðsluskilmálar.
Skálufcll sf.
Draupnisgötu 4, sími 96-22255, Akureyrí.
___________________________________/
Við bjóðum íslenskar
úrvalsvörur
Bómullar- og
ullarpeysur
frá Árblik.
Angora nærföt
frá Fínull.
Póstsendum.
Leikfangamarkaburinn
Hafnarstræti 96 • Akureyri
Sími 27744
r ' . .........................*
Húsgagnasýning T V/örubæ
laugardag og sunnudag
Verðum á staðnum með okkár vörur
Komið og kynnist því nýjasta T rúmum og dýnum.
Opið laugardagfrá kl. 10-17 og sunnudag frá kl. 13-17.
Ingyar og synir