Dagur - 27.10.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 27. október 1989 - DAGUR - 7
& < #
Það verður í mörg horn að líta hjá starfsfólki Skiðastaða á Akureyri meðan
á hátíðinni stendur.
Skátar á Akureyri hafa tekið
að sér að skipuleggja fjallgöngur,
leiki og útilegur og er óhætt að
fullyrða að þar mun gleðin ráða
ríkjum.
Auk viðburða sem beint tengj-
ast vetraríþróttahátíðinni verður
mikið um að vera á Akureyri á
sviði lista. Ákveðið er að Tónlist-
arskólinn á Akureyri mun leggja
sitt af mörkum og vitað er um
fleiri aðila sem hyggjast bjóða
upp á ýmislegt óvænt hátíðardag-
ana. Ekki má gleyma vöru- og
sögusýningu sem fyrirhuguð er í
íþróttaskemmunni á Akureyri
dagana 28. mars - 1. apríl. Þetta
verður sölusýning á íþróttabún-
aði hverskonar auk fræðandi
sögusýningar.
Gífurlegur undirbúningur
Eins og nærri má geta er að baki
mikil vinna við skipulagningu
vetrarhátíðar 1989 og mikil vinna
er auðvitað eftir. Þröstur Guð-
jónsson hefur verið ráðinn í hálft
starf sem framkvæmdastjóri
hátíðarinnar og hefur hann þegar
hafið störf á skrifstofu vetrar-
hátíðarnefndar að Strandgötu 19
b á Akureyri. Auk hans eru í
nefndinni Hermann Sigtryggs-
son, Óðinn Árnason, Sigurður
Aðalsteinsson og Baldvin Þór
Grétarsson. Guðrún Frímanns-
dóttir verður blaðafulltrúi hátíð-
arinnar. Nefndin hefur þegar
haldið 18 fundi.
Auk yfirnefndar hátíðarinnar
eru starfandi fimm nefndir.
Fyrsta skal nefna skrúðgöngu- og
skreytinganefnd, skipaða Ingólfi
Ármannssýni, Magnúsi Ingólfs-
syni og Friðriki Adólfssyni.
Verksvið þessarar nefndar er að
koma með hugmyndir og sjá um
skreytingu o.fl. varðandi setn-
ingu vetrarhátíðar, verðlauna-
afhendingar, lokahóf hátíðarinn-
ar o.fl.
í skemmti- og dagskrárnefnd
eiga sæti Guðmundur Sigur-
björnsson, Einar B. Kristjánsson
og Sigurgeir Haraldsson. Verk-
svið þremenninganna er að koma
með hugmyndir og sjá um hátíð-
ar- og skemmtidagskrá á vetrar-
hátíðinni og leita eftir uppákom-
um á menningarsviði, meðan á
hátíðinni stendur.
Sigurður P. Sigmundsson, Þor-
leifur Þór Jónsson, Gísli M.
Ólafsson, Tómas Leifsson og
Magnús Finnsson eiga sæti í
vöru- og sögusýningarnefnd.
Þeirra verk er að skipuleggja
áðurnefnda sýningu í íþrótta-
skemmunni á Akureyri.
Myndlist:
Ilelgi Vápni
sýnir í Vín
Helgi Vápni heldur þessa dagana
myndlistarsýningu í Vín í Hrafna-
giishreppi. Hann sýnir þar 23
verk, snertilist, vatnslita- og
olíumyndir og eru öll verkin til
sölu. Helgi útskrifaðist frá
Handíða- og myndlistarskólan-
um í Reykjavík árið 1974
Borgarafundur á Akureyri um:
Málefiii bama og unglinga
JC Akureyri mun á morgun,
laugardag, standa fyrir borgara-
fundi í Borgarbíói á Akureyri í
tilefni af JC degi sem tileinkaður
er byggðarlaginu. Kjörorð dags-
ins er „Búum börnum betri
framtíð“ og verða málefni barna
og unglinga meginefni borgara-
fundarins.
Framsöguerindi um þetta
merka málefni hafa þeir Jón
Björnsson, félagsmálafulltrúi
Akureyrarbæjar, Trausti Þor-
steinsson fræðslustjóri Norður-
landsumdæmis eystra, Ólafur
Oddsson héraðslæknir og Sólrún
Jensdóttir skrifstofustjóri í
menntamálaráðuneytinu.
Að loknum framsöguerindum
verða almennar umræður og
fyrirspurnir en fyrir svörum sitja
ásamt framsögumönnum tveir
bæjarfulltrúar á Akureyri, Sigrún
Sveinbjörnsdóttir sálfræðingur
og þingmenn úr kjördæminu.
Þetta er tilvalið tækifæri til að
fræðast urn stöðuna í málefnum
barna og unglinga, koma skoðun-
um á framfæri og fá svör við
brennandi spurningum.
Hafralækjarskóli:
Tónleikar
á sunnudag
Hólmfríður S. Benediktsdóttir,
sópran og David B. Thompson,
píanóleikari halda tónleika í
Hafralækjarskóla, Aðaldal, kl.
17 sunnudaginn 29. október.
Á efnisskrá tónleikanna eru
íslensk sönglög og lög úr söng-
leikjum og óperum. Margrét
Bóasdóttir, sópran, syngur dúett
með Hólmfríði á tónleikunum.
IM
í vetrarbúðanefnd eiga sæti
Margrét Baldvinsdóttir, Jóhannes
Kárason og Héðinn Björnsson. í
þeirra hlut kemur að sjá um
vetrarbúðir sem starfræktar
verða dagana 25. niars til 29.
mars. Búðirnar verða fyrir
krakka á aldrinum 13-16 ára í
skauta-, alpa- og norrænum grein-
um.
Að lokum skal getið móttöku-
nefndar sem í eiga sæti Ingvar
Þóroddsson, Kolbeinn Sigur-
björnsson og Guðmundur Pét-
ursson. Hlutverk þeirra er að
annast móttöku og sjá um alla
erlenda og innlenda gesti. Enn-
frernur að vera þátttakendum inn-
an handar varðandi gistingu og
ferðir á meðan á vetrarhátíðinni
stendur.
Leitað til skólanna
Framkvæmdanefnd vetraríþrótta-
hátíðarinnar hefur ritað bréf til
menntamálaráðherra, sem er
um leið ráðherra íþróttamála í
landinu, þar sem þeirri hugmynd
er hreyft að efna til útivistardaga
um allt land í tengslum við hátíð-
ina. Bréf sama efnis hefur verið
sent til forráðamanna skóla á
Akureyri. Hugmyndin með þessu
er að fólk um allt land taki, eftir
því sem það hefur tök á, þátt í
vetraríþróttahátíðinni. Lagt er
t.d. til að skólarnir skipuleggi úti-
vistardaga, sér í lagi seinnipart
dags, og gefi nemendum kost á
að renna sér á skíðum eða taka
nokkrar léttar sveiflur á skautum
þar sem því verður við komið.
óþh
rjp Akureyringar -
Nærsveitamenn
Guömundur Bjarnason, heilbrigöis- og tryggingamála-
ráöherra, veröur til viötals á skrifstofu Framsóknar-
flokksins, Hafnarstræti 90, nk. laugard. 28. október
kl. 10-12.
Skrifstofan verður opin frá kl. 9, en sími skrif-
stofunnar er 21180.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Húsavíkur
veröur haldinn í Félagsheimili Húsavíkur miövikudaginn 1.
nóv. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Inntaka nýrra félaga.
3. Önnur mál.
Á fundinn mæta Guðmundur Bjarnason, heilbrigöismála-
ráðherra og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, alþingismaður.
Fjölmennum. Stjórnin.
Endurskinsmerki ggjjff
Dökkklæddur vegfarandí sést
ekki fyrr en í 20-30 m. fjarlægð
frá lágljósum bifreiðar.
umferðinni.
en með endurskinsmerki sést
hann i 120 — 130 m. fjarlægð.
bláu og
mörgu* litu*
loiir í fwb*ru U1
bindi
ir ieðurhanS*!ar
. „omfestingar
Gallat>uxur
Kakit>uxur
peysur og
1 skyrturoí
I Loðfóðra<
fe Loðfóðra
R Stakkar
■ Moóil 1