Dagur - 27.10.1989, Page 10
10 - DAGUR - Föstudagur 27. október 1989
fþróttir
i
Handknattleikur:
Tilbúnir í slaginn
- segir Þorleifur Ananíasson um KA-liðið
Augu flestra íþróttáhuga-
manna beinast að leik KA og
FH í 1. deildinni í handknatt-
leik en sá leikur fer fram í
Iþróttahöllinni á Akureyri á
laugardaginn kl. 16.30. Þor-
leifur Ananíasson liðsstjóri
KA-Iiðsins er nokkuð bjart-
sýnn fyrir leikinn og segir að
KA-liðið sé tilbúið í slaginn.
„Við byrjuðum mjög ilía gegn
Stjörnunni en þetta hefur verið
upp á við síðan. Nú er bara að
fara að vinna leiki,“ segir Þorleif-
ur.
FH-ingar verða án stórskytt-
unnar Héðins Gilssonar, en hann
er í leikbanni í þessum leik. Þor-
leifur segir að þó að það veiki
*
1
Blak
HöUiruii
- í 2. og 3. flokki
Það verður mikið um að vera í
Iþróttahöllinni á Akureyri um
helgina. Þar verður fyrsta fjöl-
liðamót vetrarins í 2. og 3.
flokki í blaki. Keppt verður í
bæði karla og kvennaflokki og
taka 27 lið frá 9 félögum þátt í
þessu fjölliðamóti.
Keppnin hefst á laugardags-
morguninn og verður framhaldið
allan laugardaginn. Hlé verður
gert á keppninni á meðan KA og
FH keppa í 1. deildinni í hand-
knattleik en síðan verður blak-
mótinu framhaldið. Einnig er
keppt allan sunnudaginn. Frá
Norðurlandi taka þátt lið frá KA,
Völsungi og Laugum. Þar að auki
eru lið frá UBK, Þrótti N., Þrótti
R., Fram, Stjörnunni og HK.
KA sendir kvenna og karlalið í
bæði 2. og 3. flokki. Frá Laugum
koma kvenna- og karlalið í 2.
flokki og Völsungar senda
kvénnalið í 2. og 3. flokki. Vert
er hvetja fólk til að mæta í Höll-
ina til þess að sjá -þessa ungu
blakara reyna með sér.
FH-liðið óneitanlega að Héðinn
sé ekki með, þá komi alltaf mað-
ur í manns stað og á margan hátt
sé það ekki betra að hann sé fjar-
verandi. „KA-liðinu hefur oftast
gengið vel að stöðva stóru nöfnin
hjá andstæðingunum, en síðan
höfum við verið að vanmeta
minni spámennina sem hafa þá
refsað okkur með því að
blómstra í leikjum gegn KA. Það
verður því að taka á móti öllum
þeirra leikmönnum með jafn
mikilli virðingu," segir Þorleifur.
Allir leikmenn KA eru heilir
fyrir þennan mikilvæga leik gegn
FH. Liðið hefur æft vel þennan
tíma sem hlé hefur verið á
íslandsmótinu vegna ferðar lands-
liðsins til Sviss. KA gekk vel gegn
FH í fyrra og vann þá í hörkuleik
í Hafnarfirði í fyrri umferð. Á
heimavelli var KA komið með
unninn leik en tapaði honum nið-
ur á stuttum tíma f síðari hálf-
leik. Á þessu sést að búast má við
hörkuleik í Höllinni á morgun.
Grænlendingur Anas Hellman
er ekki enn kominn til landsins
en KA-menn áttu von á honum
um síðustu mánaðamót. Þorleif-
ur kveðst ekki vita hvað orðið
hafi um Anas en hann fór á köf-
unarnámskeið í Danmörku eftir
að hann dvaldi hér á landi í
haust. „Hann hefur e.t.v. farið á
kajak frá Danmörku og þá ætti
hann að koma um þessi mánaða-
mót,“ bætir Þorleifur Ananías-
son liðsstjóri KA-Iiðsins við
kankvís á svip.
Heil umferð fer fram í 1. deild-
inni um helgina. Stjarnan og Vík-
ingur mætast í Garðabæ, IR og
ÍBV keppa í Seljaskóla og Grótta
og Valur keppa á Seltjarnarnesi.
Á sunnudag keppa síðan KR og
HK í Laugardalshöll.
Pétur Bjarnason og félagar ■ KA-liðinu mæta FH á laugardag kl. 16.30.
Jaftit í
Þýskalandi
- hjá 21 árs liðinu
U-21 árs landslið íslendinga og
V-Þjóðverja í knattspyrnu
gerðu jafntefli 1:1 í V-Þýska-
landi á miðvikudagskvöldið.
Það var Fylkismaðurinn Bald-
ur Bjarnason sem gerði mark
íslands í fyrri hálfleik en Þjóð-
verjarnir jöfnuðu í síðari hálf-
leik. íslendingar lentu í öðru
sæti í riðlinum en V-Þjóðverj-
ar fara í úrslitakeppnina.
Þetta er glæsilegur árangur hjá
íslenska liðinu því V-Þjóðverj-
arnir eru allir atvinnumenn í
sinni grein. Þess má geta að einu
stigin sem þeir töpuðu voru í
leikjunum gegn íslendingum en
jafnt var einnig í fyrri leik lið-
íslendingar súpa nú seyðið af
því að hafa tapað klaufalega fyrir
Finnum í Finnlandi síðastliðið
haust en eftir þann leik var Youri
Sedov settur af sem þjálfari
liðsins. En annað sætið í riðlinum
er glæsilegur árangur sem við get-
um verið stoltir af.
Það liggur því ljóst fyrir að
íslendingar þurfa engu að kvíða í
framtíðinni á knattspyrnusviðinu
því strákarnir hafa sýnt það að
þeir geta staðið í bestu liðum
Evrópu.
Enn tapar MA
- nú fyrir Húsvíkingum 6:4
Það gengur hvorki né rekur
hjá MA í framhaldsskólamót-
inu í knattspyrnu. A þriðju-
daginn töpuðu þeir fyrir VMA
4:3 og á miðvikudaginn töpuðu
þeir fyrir Framhaldsskólanum
Enska knattspyrnan:
Tottenham og Arsenal
áfram í Deildarbikamum
á Húsavík 6:4.
Húsvíkingarnir byrjuðu leik-
inn á Akureyri af miklum krafti
og létu ekki snjófölina á vellinum
hafa áhrif á sig. MA-ingarnir virt-
ust dasaðir eftir erfiðan leik dag-
inn áður gegn VMA og í leikhléi
var staðan orðin 3:0 fyrir Húsvík-
ingana.
í síðari hálfleik var leikurinn
jafnari en munurinn var of mikill
fyrir MA og lokatölur urðu því
6:4 fyrir
Húsavík.
Framhaldsskólann á
Ásmundur Arnarson var áber-
andi í leiknum og skoraði 4 mörk
fyrir Húsvíkinga. Þeir Þórir Örn
Gunnarsson og Þór Stefánsson
settu síðan sitt markið hvor. Fyr-
ir MA skoraði Rafn Ingi Rafns-
son tvívegis og þeir Guðlaugur
Birgisson og Sveinn Sverrisson
eitt mark hvor.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
íþróttir
helgariimar
Handknattlcikur
Föstudagur:
2. deild ka... Þór-UMFN i íþrótta-
höllinni kl. 20.00
3. deild ka... Völsungur-Grótta-h á
Húsavík kl. 20.00
Laugardagur:
1. deild ka... KA-FH í íþróttahöllinni
kl. 16.30
Blak
jslandsmót í 2. og 3. flokki í íþrótta'
höllinni, laugar- og sunnudag.
Karfa
Sunnudagur:
Úr.valsdeild... UMFG-UMFT í
Grindavfk kl. 16.00
Úr.valsdeild... Reynir-Þór í Sand-
gerði kl. 20.00
Arsenal er komið áfram í 4.
umferð deildarbikarsins í
Englandi eftir að hafa lagt
Liverpool að velli 1:0 með
marki Alan Smith. Tottenham
er á mikilli siglingu þessa dag-
ana og jarðaði Man. Utd. á
útivelli 3:0. Gary Winston
Lineker, Vinny Samways og
Nayim settu mörk Tottenham-
Iiðsins.
Terry Fenwick miðvörður
Tottenhamliðsins fótbrotnaði í
leiknum og e.t.v vill kemst Guðni
Bergsson þá inn í liðið að nýju. í
gær var síðan dregið í 4. umferð-
ina og þar mætir Tottenham
Tranmere úr 4. deild en Arsenal
fær 2. deildarlið Oldham sem
mótherja:
Oldham-Arsenal
Tranmere-Tottenham
Man. City-Coventry
Nott. Forest/C. Pal-Everton
Derby-WBA
A. ViIla/W.Ham-Middlesbrough-
Wimbledon
Exeter-Sunderland/
Bournemouth
Swindon/Bolton-Southampton
Rúnar skorar á
Gylfa Þórhallsson
Liverpool-maðurinn Rúnar Berg Aðalbjörnsson lagði Utd.-
manninn Víking Traustason að velli í síðustu viku. Reyndar
munaði ekki nema einum á þeim félögum en það dugði til þess
að Rúnar hélt áfram í keppninni.
Rúnar er enn við sama heygarðshornið og hefur skorað á ann-
an Utd.-mann, Gylfa Þórhallsson. „Allt er þegar þrennt er,“
sagði Rúnar en hann hefur nú lagt tvo rauöa „djöfla'1 að velli.
Gylfi er nú hins vegar hvergi banginn og segist örugglega geta
veitt Rúnari verðuga keppni. En lítum á spá þeirra félaga:
Handknattleikur/2. deild:
Ekkert vanmat
- segir Árni Stefánsson þjálfari Eórs
Þór keppir við Njarðvík í 2.
deildinni í handknattleik í
jþróttahöllinni á Akureyri í
kvöld kl. 20.00. Njarðvíkingar
eru neðstir í deildinni og hafa
ekki enn hlotið stig en Þórsar-
ar eru með 5 stig og eru í 4.
sæti í deildinni.
„Þrátt fyrir að þeir séu neðstir
megum við alls ekki vanmeta
þá,“ sagði Árni Stefánsson þjálf-
ari Þórsaranna. „Úrslitin í deild-
inni hafa sýnt að flest lið geta náð
upp góðum Ieik gegn betri liðum
þannig að ekki er hægt að bóka
sigur gegn neinu liði,“ bætti hann
við.
Rúnar: Gylfi:
Arsenal-Derby 1 Aston Villa-C.Palace 1 Charlton-Coventry x Chelsea-Man.City 1 Man.Utd.-Southampton x Millwall-Luton 1 Norwich-Everton 1 Nott.For.-QPR 1 Sheff.Wed.-Wimbledon 2 Bradford-Leeds x Middlesbro-WBA 1 Watford-Sheff.Utd. 1 Arsenal-Derby 1 Aston Villa-C.Palace 1 Charlton-Coventry x Chelsea-Man.City 1 Man.Utd.-Southampton 1 Millwall-Luton 1 Norwich-Everton x Nott.For.-QPR 1 Sheff.Wed.-Wimbledon 1 Bradford-Leeds 2 Middlesbro-WBA 2 Watford-Sheff.Utd. x
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2